Morgunblaðið - 31.08.1949, Side 14

Morgunblaðið - 31.08.1949, Side 14
t* MORGVNBLAÐ10 Miðvikudagur 31. ágúst 1949 namMdssagan 11 iijinnuiiii niiiiiii*iiiiiii4«MiMriMMM«nnm»nii«»niiiiiiiiiiiiiiiini»iiiiiiniimnM»i«in»MW#«i™« Kira Arqunova Eftir Ayn Rand ........... öllum atriðum. Skilurðu? Var- úð í öllu! Hjeðan í frá þekkir þú'mig als ekki. Ef við skyld- um hittast einhversstaðar af hendingu, þá höfum við aldrei sjetst áður. Antonina kemur peningunum til mín, eins og við vorum búnir að ákveða." „Já, já, jeg man þetta allt, Pavlusha.“ „Segðu þessum Kovalensky að hann eigi líka að halda sér í hæfilegri fjarlægð frá mjer. Jeg vil ekki þurfa að hitta hann“. „Það þarft þú heldur als ekki“. „Eruð þið búnir að fá búð- ina?“ „Við göngum frá leigunni í dag“. „Gott- Nú situr þú kyrr hjerna í tuttugu mínútur. Þú skilur það?“ „Já, já. Blessun drottins sje með okkur“. „Hana getur þú átt fyrir >njer“, sagði Syerov, stóð á fæt ur og hraðaði sjer út. Iinmwililiuillimiinilitittr..................................................••»i»»»»»»mi»»»m»»»m»»»»i»»»mm»»mm»»»»»m«*»»m»»»mm»m»»»»»»Æ A skrifstofu aðaljárnbrautar ctöðvarinnar sat skrifstofu- þjónn við lágt borð og hamaðist við ritvjelina. Fyrir framan borðið var dálítið aútt svæði- Þar biðu sex menn, þolinmóðir á svip. Stólarnir voru aðeins Iveir, svo^ þeir skiptust á um að sitja. Á bak við skrifstofu- þjóninn voru dyr. Á dyrunum hjekk skilti, þar sem á stóð: Pavel Syerovr. Fjelagi Syerov kom frá því að snæða hádegisverð. — Hann gekk hratt í gegn um fremri skrifstofuna. Það brakaði í her- mannastígvjelunum hans. Menn irnir sex, sem biðu eftir hon- um, litu allir á hann, vandræða legir og áhyggjufullir á svip. En hann leit hvorki til hægri nje vinstrj og gekk rakleiðis inn á innri skrifstofuna. Skrif stofuþjónninn fór á eftir hon- um. Þar inni var stórt, nýtt skrif borð. A veggnum hjekk mynd af Lenin og línurit yfir þróun járnbrautarrekstursins. Auk þess hjekk þar skilti, þar sem á stóð skrífað með rauðum bók stöfum: Fjelagar, verið stuttorðir og íjúkið erindi ykkar á sem styttstum tíma. Proletariskur dugnaður við uppbyggingar- starfið er ríkur þáttur í aga friðartímans. Pavel Syerov tók vindlinga- öskju úr gulli upp úr vasa sín- um. Hann kveikti sjer í vindl- ing, settist við skrifborðið og íór að blaða í skjalahrúgunni Skrifstofuþjónninn beið auð- sveipur eftir fyrirskipunum. Hann leit upp. „Nokkuð sjerstakt?“ „Það eru þessir borgarar þarna frammi, fjelagi Syerov. Þeir bíða eftir að fá viðt.al við þig“. „Hvað vilja þeir?“ „Þeir eru flestir í atvinnu- leit“. „Jeg get ekki tekið á móti neinum í dag. Jeg þarf að flýta mjer á fjelagsfundinn. Hann byrjar eftir hálftíma. Ertu þú- inn að hreinskrifa ritgerðina mína: „Járnbrautirnar, slagæð öreigaríkisins““. 1 „Já, fjelagi Syerov. Hún er hjeina“. „Ágætt“. „Þessir borgarar þarna í frammi fjelagi Syerov, eru bún j ir að bíða í rúmar þrjár klukku stundir“. | „Segðu þeim að fara til fjand ans. Þeir geta komið aftur á morgun. Ef þú þarft nauðsyn- ' lega að ná í mig, þá hringirðu í aðalskrifstofu fjelags járn- ■ brautarverkamanna. Jeg fer þangað, þegar fundurinn er bú- | inn .... og jeg kem í seinna lagi á morgun“. Syerov var samferða flokks- fjelaga frá aðalskrifstofu fje- lags járnbrautarverkamanna. j Hann var í góðu skapi. Hann gekk sönglandi eftir götunni og brosti kumpánlega, þegar lag- ! leg stúlka varð á vegi þeirra- < „Jeg er að huesa um að halda veislu i kvöld“, sagði hann við fjelagann. „Við höf- um ekkert skemt okkur núna í fleiri vikur. Mig er farið að langa til að slá mjer svolítið upp- Hvað segir þú um það?“ „Jeg er til í það“. „Jeg hefi hugsað mjer að ná . í nokkra kunningja. Jeg býð heim til mín“. „Upplagt“. „Jeg þekki náunga, sem get- ur útvegað mjer vodka .... ó- svikna vöru. Við skulum fara inn hjá „Des Gourmets“ og kaupa alt sem til er og svo borg um við sinn helminginn hvor“. „Jeg slæ til, fjelagi“. „Við skulum halda daginn hátíðlegan ....“. ,í tilefni af hverju?“ „Það er svo sem sama. Við skulum bara skemmta okkur. Og við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af útgjöldunum. — Fjandinn hafi það. Þegar jeg vil skemmta mjer, getur mjer verið skítsama um hvað það kostar“ „Það er alveg rjett. fjelagi“. „Hverjum eigum við að bjóða? Við skulum nú sjá .... fyrst eru það Grishka og Max- im og stúlkurnar þeirra“. „Og Liztveta“. „Já, auðvitað hringi jeg til Lizavetu. Þú getur víst ekki verið án hennar. Og svo Valka Doruva .... það er lagleg stelpa. Og venjulega fylgja henpi einir tveir eða þrír. Og svo held jeg að við tökum Victor Dunajev og Harishu Lavrovu. Victor er bæði slung- inn og lævís. Hann verður ein- hverntíman feitur karl, svo það er eins gott að koma sjer strax í mjúkinn hjá honum .. .. og segðu mjer eitt, fjelagi, finst þjer, að jeg eigi að hringja til fjelaga Sonju?“ „Auðvitað. Því ekki það?“ „O, já, jeg veit það vel. — Hún hefir tvö stjettarfjelög og fimm kvenfjelög á sínu valdi. Fjandinn hafi það .... _jeg hringi þá til hennar“. Pavel Syerov hafði dregið, gluggatjöldin fyrir gluggana og einhver gestanna hafði hengt ( rauð-gulan hálsklút yfir lamp- ann svo að það var hálfdimmt í herberginu. Andlit gestanna lýstu eins og hvítir dílar hjer og þar í myrkrinu á stólum, legubekkjum og á gólfinu. Á mið.iu gólfinu stór stór súkku- laðikaka frá „Des Gourmets”. Einhver hafði óvart stigið ofan á hana. Brotin flaska lá á kodd anum í rúminu. Victor og Marisha sátu á rúminu. Hattur Victors lá á gólfinu fyrir fram- an legubekkinn. Gestirnir not- uðu hann fyrir öskubakka. — „John Grey“ ómaði frá grammó fóninum. Platan var gölluð, svo að nálin hjakkaði alltaf í sama farinu, en enginn skeytti því- Ungur maður hallaði sjer upp að rúmgaflinum og reyndi að syngja. Hann muldraði eitthvað í barminn, en rjetti höfuðið upp við og við og rak upp hátt væl, svo að hinir hrukku við og köstuðu i hann koddum og skóm. „Haltu þjer saman, Grishka“, kallaði einhver, og þá hneig höfuðið á Grishka aft- ur niður á bringuna. Stúlkukind lá sofandi í einu skotinu við hlið ina á hiákadallinum. Hár henn ar klístraðist við sveitt og rauð flekkótt andlitið. Pavle Syerov gekk reikulum skrefum um herbergið og veif- aði tómri flösku yfir höfði sjer. „Hver vill fá meira að drekka .... vill enginn drekka meiia. .. . ?“ „Hver fjárinn er að þjer, Pavel. Flaskan er tóm, sem þú ert að veifa framan í okkur“, hrópaði einhver framan úr myrkrinu. , Pavel hjelt flöskunni í ljós- ið, spýtti á gólfið og fleygði henni undir xúmið. „Jæja, þið haldið kannske, að jeg eigi ekki meira?“ Hann steytti hnefann framan í gest- ina. „Haldið þið að jeg sje ein- hver smádindill .... einhver vesalingur, sem hefir ekki ráð á að kaupa nógu mikið af vodka? .... Smádindill? Hald- ið þið það kannske? En jeg skal sýna ykkur .... jeg skal sýna það, að jeg hefi ráð á ... ■ jeg skal sýna ykkur.... “ Hann fálmaði niður í kassa, sem stóð undir borðinu, reisti sig upp aftur með miklum erf- iðismunum, og lyfti fullri flösku upp yfir höfuð sjer. — Hann hló fábjánalega. „Já, hefi jeg kannske ekki ráð á bví“, hrópaði hann og slangraði inn í dimma skotið, sem röddin hafði komið frá. Hann gretti sig framan í hvítu dílana, sem allir sneru að honum, veifaði flöskunni í stóran boga og kast aði henni af alefli í bókaskáp- inn. Kvenmaður æpti upp yfir sig, glerbrotin þeyttust út um allt herbergið. Einhver gest- anna tók til að bölva og ragna. „Sokkarnir mínir, Pavel, sokkarnir mínir“, veinaði kven maðurinn og dró pilsið hátt upp yfir rennvotar fæturnar. Einn gestanna teygði sig til hennar og tók um fótinn. „Það gerir ekkert til, væna mín. Farðu bara úr þeim“. Pavel flissaði sigri hrósandi- „Jæja, hefi jeg ekki ráð á því? .... Pavel Syerov hefir láð á öllu .... bókstaflega öllu sem til er á jörðinni....Það er ekki sá hlutur til, sem Pavel Syerov hefir ekki ráð á að kaupa. Hann getur keypt ykk- ur öll með húð og hári“. Refsing og rjettmæt laun ÍTÖLSK ÞJÓÐSAGA 12. Drottningin vildi ekki fara, en þegar hún sá, hvað sonur hennar var sjúkur og máttfarinn, gekk hún þó enn einu sinni hina þurigu göngu yfir í hina höllina. IVIyra tók vingjarnlega á móti henni og drottningin sagðt strax: j „Göfuga ungfrú, nú vil jeg bera fram bón við yður, sem i þjer megið ekki neita. Sonur minn er dauðsjúkur af ást til j vðar og hann kveinar og barmar sjer í ástarsorg sinni. Ef þjer sýnið honum enn einu sinni fyrirlitningu og skellið glugganum, þ ámun hann falla dauður niður, því að án yðar getur hann ekki litið glaða stund og getur ekki lif- að lengur. Gerið það ekki oftar að sýna honum slíka fyrir- litningu." Þá svaraði Myra: „Segið syni yðar: Ef hann elskar mig svo mikið, að hann ; vilji af ást til mín láta bera sig í líkkistu yíir götuna meðan lúðrasveit leikur útfararsálm og öll þjóðin horfir á, segið j hor.um að þá muni prestur bíða hjer í höllinni, sem gefur : okkur saman í heilagt hjónaband“. . Og drottningin sneri til baka með þetta svar. Hún áleit, j að engar líkur væru til að þetta næði fram að ganga, því að sonur hennar myndi ekki lítillækka sig á þennan hátt. En hann vildi það. Hann ljet þegar í stað smíða skrautlega líkkistu og lagðist í hana. Hann ljet hringja sorgarklukkum um alla borgina í og svo var kistan borin yfir götuna. Lúðrasveit ljek út- fararsálma og kyndlar voru bornir með líkfylgdinni, sem nálgaðist höll Myru. , Sjálf stóð hún úti á svölunum og horfði á. En þegar kistan var rjett undir svölunum, beygði hún. sig fram og sagði háðslega: „En hvað hann hefur lítillækk- að sig af ást til einnar jarðneskrar konu. Foj, það er and- styggilegt“. Þá þekkti hann hana og hrópaði upphátt: „Myra, Myra“. Meðan hann kallaði á hana, kom hún hlaupandi niður til hans og sagði: „Já, jeg er hún Myra þín. Nú hefi jeg launað þjer með iíku þá hneysu og hryggð, sem þú ollir mjer. Nú er allt orð- ið gott aftur og presturinn, sem á að vígja okkur bíður í höllinni minni“. Og kongssonurinn var á einu augnabliki orðinn alheill heilsu. Þá varð móðir hans svo hamingjusöm ,að hún af- salaði sjer ríkinu, en kongssonurinn og Myra urðu konung- ur og drottning og þannig endar þetta gainla æfintýri. SÖGULOK Hann var hræddnr. — Jeg er búinn að tapa peninga- veskinu minu, hvað á jeg að gera? — Ertu búinn að leita allsstaðar, þar sem þú getur látið þjer detta í hug að þu hafir sett það? — Já, jeg er búinn að leita i her- berginu mínu, í skrifstofunni og ganga tvisvar leiðina. sem jeg fer venjulega til vinnunnar. — Og í vösunum ertu auðvitað bú- inn að leita? — Já, já. það er að segja i öllum nema rassvasanum vinstra megin. — Hversvegrta leitarðu þar ekki líka? — Jeg þori það ekki, þvi að ef veskið er þar ekki, er jeg viss um að jeg lifi það ekki af. Forsetinn var að nota hafið. | Taft Bandaríkjaforseti var ákaflega feitur og fyrirferðarmikill. Hann var , á baðströnd að sóla sig og synda í : sjónum. Þegar hann var eitt sinn nýfarinn að synda. sagði maður við kunn- ingja sinn: j — Komdu, við skulum fara i sjóinn I — Hvernig getum við það. var svarið, sjerðu ekki að forsetinn er að nota hafið. ★ Hann átti eftir að segja það. Oscar Wilde hrópaði eitt sinn, er Whistler ljet einn ódauðlegan brand- ara fjúka: — 0, Jimmy, jeg vildi að jeg hefði sagt þetta. — Taktu það ekki nærri þjer, svar- aði Whistler, þú átt áreiðanlega eftir að segja það mörgum sinnum. Hann ininnti á Jóa. — Þú minnir mig alltaf á Jóa. þegar jeg sje þig. — Já, én jeg er alls ekkert líkur Jóa. — Jú. að nokkru leyti, Þið skuldið mjer báðir 100 krónur. Læknisráðið. — Læknir, sagði frökenen um leið og hún kom á 50 km, hraða inn stofuna, jeg vil að þjer verðið hrein- skilinn og segið mjer hreint út, hvað að mjer gengur. Hann leit á hana og virti fyrir sjer frá hvirfli til ilja. „Fröken", sagði hann hægt, „það er aðeins þrennt, sem jeg vil segja yður: 1 fyrsta lagi er þynd yðar að minnsta kosti 50 pundum of mikil, 1 öðru lagi, mynduð þjer líta mun betur út ef þjer notuðuð ekki nema einn tíunda af þeim fegurðarmeðul- um, sem þjer klínið á yður, púður, varalit o. s. frv. Og í þriðja lagi, er jeg listamaður — læknirinn er á næstu hæð'".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.