Morgunblaðið - 21.10.1949, Page 1

Morgunblaðið - 21.10.1949, Page 1
16 síður 36. árgangur. 240. tbl. — Föstudagur 21. október 1949. Prentsmiðja Morgunblaðsins ©1® t tesJ iiiipis olla ¥yslilsssky varð RáSuneyfisfundir Elnkaskeyti til Mbl. frá Reuter. FLUSHING MEADOW, 20. okt. — í gær voi'u 3 þjóðir valdar í Öryggisráð S. Þ. í stað Kanada, Argentínu og Ukrainu, sem viku sæti. Áhöíd voru um, hvort A-Evrópulanaið yrði ijlut- skarpara, Júgóslavía eða Tjekkóslóvakía. Við fyrstu atkvæða- greiðslu voru Plindustan og Equador samþykkt, en Júgóslavía fjekk 37 atkvæði á móti 20, sem Tjekkóslóvakía fjekk. Þar sem aukins meirihluta (2/3) atkvæða er krafist, varð Júgó- slavía ekki kosin. í annarri umferð fjekk Júgóslavía tilskilið atkvæðamagn, og var þar með löglega kosin í ráðið. LONDON, 20 okt. — Breska stjórnin hefir setið á fundum í dag og rætt boðskap þann, sem Attlee forsætisráðherra mun flytja þjóðinni á mánudags- kvöldið. Stjórnin gengur end- anleg'a frá boðskap þessum á morgun, en hann fjallar um efnahagsmál. Vishinsky sleppir sjer Vyshinsky hjelt ræðu áður ' en atkvæðagreiðslan fór fram, og var hann víttur fyrir hana, þar eð hún var óleyfileg og ekki samkvæmt dagskrá. Að atkvæðagreiðslu lokinni rann móður á ráðherrann. Sagði hann m. a., að brotin hefði ver- ið stofnskrá S. Þ. Klykkti hann út með því, að það væri skoð- un Rússa, að ekki væri hægt að líta á Júgóslavíu sem full- trúa A.-Evrópu í ráðinu, nje heldur mundi það verða gert. „Rússnesku fulltrúarnir telja, að með þessu nýja broti stofn- skrárinnar, þá sje kippt fótum undan öllu samstarfi hinna sameinuðu þjóða“. Atkvæðagreiðsian leynileg Allmikil hula hvíiir yfir þess um kosningum til öryggisráðs- ins. Þar sem kosningin er leyni leg, hefir ekkert verið tilkynnt opinber'lega um, hvernig hver og einn hafi grei& atkvæði. •— Gert er ráð fyrir, að þau 19 at- kvæði, sem Tjekkóslóvakía fjekk í seinni umferðinni sjeu að einhverju leyti svo til kom- in: Fimm frá Sovjet, fimm frá breska samveldinu. — Danir og Norðmenn greiddu atkvæði á sama hátt. Bretar höfðu opin- berlega lýst yfir, að þeir mundu styðja Tjekkóslóvakíu, og tals- maður Breta sagði, að þeirri stefnu hefði verið haldið allt í gegn. í seinni umferð fjekk Júgóslavía 39 atkvæði, en Tjekkóslóvakía 19. Frakkland og Svíþjóð studdu Júgóslavíu og sennilega Hol- land og Belgía líka. Bandarík- in höfðu og lýst yfir stuðningi sínum við Júgóslavíu. Framh. á bls. 2 Siálfsfætraenn sameinas! nú í lokaáfakinu. SJÁLFSTÆÐISFJELÖGIN í Reykjavík boða til almenns fund- ar í Sjálfstæðishúsinu í kvöld. Þetta verður síðasti fundur Sjálfstæðismanna hjer fyrir kosningarnar. Sjálfstæðismenn hafa haldið íjölda marga fundi og samkom ur nú fyrir kosningarnar. Hafa þessar flokkssamkomur borið ótvíræðan vott stöðugt vaxandi áhuga og sóknarvilja Sjálf- stæðismanna. Hinn samstillti áhugi hefir náð hámarki nú eftir útvarpsumræðurnar, eftir hina harðskeyttu sókn fulltrúa flokksins í umræðunum, og drengilega og einbeitta bar- áttu. Sjálfstæðisfólk er hvatt til þess að fjölmenna á fundinn í kvöld og samstilla baráttuna að einu marki fyrir kosningarnar á sunnudaginn kemur. Ræðumenn á fundinn eru fimm efstu menn listans: Bjatni Benediktsson, Björn Ólafsson, Jóhann Hafstein, Gunnar Thor oddsen og frú Kristín L- Sig- >>-----------—---------------- urðardóttir. — Flytja þau stuttar ræður og ávörp. Takmarkið er: Fimm þingmenn kosnir í Reykjavík! Meirihluti Sjálfstæðismanna á„ þingi — hreinar línur — heilbrigðir stjórnarhættir — frjálst þjóðfjelag — afnám haftanna! Samþykkt traust ástjérn Belgíu BRUSSEL, 20. okt.: — Full- trúadeild þingsins hefir undan- farna 2 daga rætt þá ráðstöfun stjórnarinnar að fella gengið. Umræðunum lauk í kvöld með því, að þingið samþykkti traust á stjórnina með 119 atkvæðum gegn 66. — Reuter. Yfirlýsing frá Sölusambandi ísL fiskframleiðenda og Landssamb. ísl. útvegsmanna KOMMÚNISTAR hafa nú gert síðustu tilraun til þess að verja sig á undanhaldinu með því að kasía kosningabomb- um, ljúga frá rótum svívirðingum um menn og málefni. í nafni útgerðarmanna báru þeir fram kveinstafi um svik og stórþjófnað og höfðu að yfirskyni skýrslu, sem umboðsmaður L. I. Ú. hafði sent Landssambandinu. í nafni útgerðarmanna svara nú þeir í dag, sem af út- gerðarmönnum eru kosnir til að fara með mál þeirra, Landssamband íslenskra útgerðarmanna og Samband ísl. fiskframleiðenda. Hvað segja þessir aðilar? SÍF sannar, að Þjóðviljinn falsar fantalega skýrslu Geirs H. Zoega. Það sem G. H. Zoega segir er þetta: 1. Hálfdán Bjarnason fær 3% sölulaun. 2. Ólyginn sagði mjer, að Hálfdán Bjarnason ætti 7% í firma, sem fær að kaupa einhvern hluta af þeim ís- lenska fiski sem fluttur er til Ííalíu. Þjóðviljinn segir, með þessu er sannað, að Hálfdán Bjarnason stingur í sinn vasa tíunda hluta af „andvirði saltfisksölunnar til ítalíu“. Með öðrum orðum, það að eiga 7% í fjelagi, sem fær að kaupa einhvern hluta af íslenska fiskinum, er látið jafngilda því að græða eða stela 7% af andvirði alls fisks, sem til ítalíu flytst. Svona feita lygi hafa kommúnistar sjaldan þorað að bera á borð, enda er kommúnisminn nú í dauðateygjunum. En hvað segja svo þeir, sem Geir H. Zoega vinnur hjá. Þeir segja: Við skipuðum nefnd til þess að rannsaka skýrslu Geirs H. Zoega. Sú nefnd komst að þeirri niðurstöðu: „Að þessar ásakanir og aðdróttanir höfðu ekki við rök að styðjast, og er stjórn Landsambands ísl. útvegs- manna sömu skoðunar“. Þá standa sakir þannig, að fyrst falsar Þjóðviljinn skýrslu Geirs H. Zoega, en þar næst er upplýst, að skýrslan sjálf er að dómi húsbænda Geirs rakalaus þvættingur. Loks koma svo þeir, sem fiskinn eiga og upplýsa: 1. Að Hálfdán Bjarnason fær ekki einu sinni 3% — heldur aðeins lVz% °» eru l}að lægstu umboðslaun, sem SÍF greiðir umboðsmönnum sínum. 2. Hálfdán fær enga aðra þóknun fyrir fisksöluna. 3. Að fiskurinn er ekki seldur einu fjelagi, eins og Sig- fús Annes segir, heldur 20 fjelögum. 4. Að gríski umboðsmaðurinn, sem Sigfús Annes sagði, að hefði selt íslenskan fisk langt undir sannvirði, hefir náð hærra verði fyrrir íslenskan fislt en nokkur annar umboðs- maður SÍF. Eftir stendur þá ekld stafur af lygum Sigfúsar. Rothöggið er þó eftir, en það er að skýrsla Geirs H. Zoega hefir í sjö mánuði verið í höndum ýmsra opinberra nefnda, þar á meðal Fiskimálanefndar, en þar eiga sæti Þórarinn Tímaritstjóri og Áki Jakobsson. Trúi því hver sem vill, að þessir heiðursmenr. þag- að í sjö mánuði, ef eitthvað fælkí snknæmí í bcsrrri sl ý'n’u Sjálfsíæðismönnum til ávirðin"'r. SVOHLJÓÐANFI yfirlýsing heíir Morgunblaðinu borist frá Söiusambandi íslenskra fisklramleiðenda: Vegna ummæla er hr. Sigfús Sigurhjartarson Viðhafði í gær í ríkisútvarpinu, þar sem hann sagði að umboðslaun þau er S. í. F. grciddi Hálfdáni Bjarnasyni í ítalíu væru 3%, leyfum vjer oss hjermeð að lýsa því yfir, að umboðs- Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.