Morgunblaðið - 21.10.1949, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. október 1949.
J
?
V
*
iJtvarpsræða Bjarna Benediktssonar
Framh. af bls. 9.
án gengisfellingar, og ef sam-
komulag er hægt að fá um að
gera það án hennar, þá er það
fyrir ýmsra hluta sakir æski-
legast. Hinsvegar tjáir ekki það
eitt að hrópa úlfur úlfur, geng-
isfelling, gengisfelling. Slík
hróp leiða til þess eins, að ekk-
ert er að gert, þangað til at-
vinnulífið stöðvast og atvinnu-
leysi og örbirgð taka við.
Hvar á að finna nýja skatta
um næstu áramót? Hvernig á
þá að borga hækkandi styrki til
atvinnuveganna, svo að þeir
lamist ekki með öllu?
En auðvitað er það ekkert
/narkmið að keppa að gengis-
lækkun. Markmiðið hlýtur að
vera hitt að forðast atvinnu-
leysi og tryggja hag almenn-
ings.
Af þeim ástæðum varð ríkis-
stjórnin öll sammála um það,
nú fyrir skömmu, að lækka
gengi íslensku krónunnar um
30í ; miðað við gull og dollar.
Þckísí ráðstöfun var ekki gerð,
vegna þess að menn vildu
laakka gengi krónunnar eða
vildu fylgja sterlingspundinu,
heldur af því, að þeir vildu
forðast stöðvun útvegsins og
annara atvinnuvega, forðast at-
vinnuleysi, og forðast almenna
upplausn.
Þessi staðreynd sýnir, hversu
fráleitt er að vera með yfir-
lýsingar í þessum efnum um
óórðna hluti, sem enginn veit
hvort og hvernig ber að hönd-
um. Þegar styrkjaleiðin verður
orðin ófær, og hún verður það
bráðlega, sje hún eigi nú þeg-
ar„ orðin það, verða menn
nauðugir viljugir að leita nýrra
ráða, ef atvinnulífið á ekki að
stöðvast.
Hrunspá kommúnista
Hitt verður að játa, að þrátt
fyrir allt, hafa styrkirnir ein-
mitt að undanförnu komið í
vég fyrir að svo færi, af því að
þeir voru eina vörnin, sem
menn gátu komið sjer saman
um.
að kommúnistar sáu fram á
þessa örðugleika, sem þeir ruku
úr ríkisstjórninni um áramót-
in 1946 og 1947. Þeir vildu geta
þakkað sjer velsældartímann,
sem var á meðan verið var að
eyða erlendu inneignunum en
vildu ekki standa undir erfið-
leikunum, sem hlutu að koma
um sinn þar á eftir.
Kommúnistar ánægðir
yfir óhöppum
Þessir örðugleikar hafa síðan
magnast við stöðugan aflabrest
á sumarsíldveiðunum og nú á
þessu síðasta ári við það, að
Hvalfjarðarsíldin brást, eftir að
búið var að verja stórfje til að
vera reiðubúinn til að hagnýta
hana betur en áður.
Þótt ótrúlegt sje, leynir sjer
ekki, að kommúnistar hafa
beinlínis gottað sjer yfir þess-
um óhöppum og telja þau vatn
á sína myllu, svo sem mikið er
til í, því að öll vandræði skapa
betri jarðveg fyrir óheillastefnu
kommúnismans.
En þó að sitthvað megi að nú-
verandi stjórnarsamstarfi finna
hefur þrátt fvrir allt tekist að
koma í veg fyrir, að þessar ó-
farnaðarspár kommúnista rætt-
ust. Væri þó synd að segja, að
kommúnistar hefðu legið á liði
sínu við að fylgja þeim eftir.
Hitt er annað mál, hvort rjettu
aðferðinni hefur verið beitt til
að ná því marki að forðast at-
vinnuleysi og trvggja sem best
lífskjör alþjóðar. Það er um-
deilanlegt. En um hitt geta
menn naumast deilt, að ef nú-
verandi aðferð dugar ekki ,leng-
ur, t. d. einfaldlega af því að
menn treysta sjer ekki til að
leggja á þyngri skatta. en þeir
þegar hafa gert, þá tjáir ekki
að láta hendur falla í skaut,
heldur verður að ná markinu,
fullri atvinnu og velmegun al-
mennings, eftir öðrum leiðum.
Nú kynnu sumir að spyrja,
hvernig standi á því, að jeg sem
hefi verið í ríkisstjórn á þessu
tímabili, skuli ekki vera sann-
færður um. að sú leið sem far-
Þegar núverandi ríkisstjórn in hefur verið og ríkisstjórnin
var mynduð fyrir tæpum 3 ár- ! óneitanlega ber ábyrgð á, sje
um, spáðu kommúnistar því, að
atvinnuleysi tæki þá þegar við.
Þennan spádóm hafa þeir æ
ofan í æ endurtekið síðan. Eng-
inn skyldi halda, að kommún-
istar hafi þá og síðan ekki trú-
að á þennan spádóm. Þeir hafa
þvert á móti verið innilega
sannfærðir um, að hann mundi
rætast.
Til þess liggja ýmsar ástæð-
ur:
Sannfæring rjetttrúaðra
kommúnista um heim allanj
sem þeim hefur verið send aust
an frá Moskvu, um, að kreppa
væri yfirvofandi í auðvalds-
löndunum, sem þeir svo kalla,
þ. á. m. íslandi.
Öryggi íslensku kommúnista-
flokksdeildarinnar um, að hjer
á landi hlytu að verða sjerstak- ;
lega örðugir tímar frá bví búi‘5 i og Framsóknarflokkurinn ger-
væri að eyða erlendu innstæ '- ; . amlega klofnir.
hin besta.
Enginn samfelldur
meirihluti
Svarið við þessu er ofur ein-
falt. Aðalgalli stjórnmálalífsins
á íslandi nú, galli, sem hefur
einnig mikil áhrif á fjárhags-
og atvinnulíftð, er, að enginn
samfelldur meiri hluti er á Al-
þingi Islendinga.
A Alþingi eru fjórir flokkar.
Einn þeirra hefur að vísu sagt
sig úr leik. En enginn hinna
hefur meM hluta og samlynd-
ið milli þeirra er vægilega orð-
að m'-iafnlega gott.
Og ekki er nóg með það, að
samlyndið á milli flokkanna sje
harla bágborið, heldur er einni
viíað, að í flestum meiri háttar
um eru Alþýðuflokkurinn
unum, sem söfnuðust á stríes-
árunum og þangað til öll ný-
sköpunartækin væru kor.iin í
notkun. Fyrirsjáanlegt var, að
þessi tími yrði frá árinu 1947
fram á árið 1949. Það er ein-
mitt meðal annars vegna þess,
Klofningurinn í Alþýðu-
flokknum skiptir raunar minna
máli. Þar eru aðeins minnihátt-
ar þingmenn tveir, sem tekið
hafa sig ut ur flokksheildinni
og reyna að gera henni allan
þann miska, er þeir mega.
Klofningurinn
í Framsókn
Um Framsóknarflokkinn horf
ir þetta við á annan veg. Þar
er sjálfur formaður flokksins
ásamt einum eða tveimur þing-
mönnum, og aðalmálgagni
flokksins, í andstöðu við meiri
hluta þingflokks og miðstjórn-
ar í nsér öllum málum, er veru-
lega þýðingu hafa.
Framsóknarflokkurinn hefur
verið klofinn í öllum eða nær
öllum utanríkismálum, sem
nokkru skipta, hin síðari ár. í
því sambandi nægir að minna
á afstöðuna til þátttöku í
Bandalagi Sameinuðu bjóðanna
samninginn um Keflavíkurflug
völl og brottfall herverndar-
sáttmálans frá 1941, þátttöku í
Efnahagssamvinnunni, sem
kennd er við Marshall og síð-
ast en ekki síst þátttökuna 1
Atlantshafsbandalaginu
Þessi ágreiningur hefur ver-
ið mest áberandi um utanríkis-
málin en engan vegin takmark-
ast við þau, sem sjest á því,
að formaður flokksins hefur ver
ið á móti núverandi stjórn frá
því, að hún var myr.duð, og
lagt alla þá steina í götu henn-
ar, er hann gat í náð.
Ósjálfstæði kommúnista
Af andstöðuflokkum Sjálf-
stæðismanna er kommúnista-
flokkurinn hinn eini, sem á
ytra borði hefur verið nokk-
urn veginn óklofinn á Alþingi.
Mátti þó sjá þess merki á síð-
asta þingi. að Hermann Guð-
mundsson úi Hafnarfirði var
að fjarlægjast flokksfjelaga
sína, enda er hann nú ekki í
kjöri. Hefði þó mátt ætla, að
kommúnistaflokkurinn væri sá,
er síst kæmist hjá klofningi,
því að kommúnistar um heim
allan deila nú um afstöðuna
til Titos, sem sje þess hvort
sjálfstæð kommúnistaríki eigi
rjett á sjer og geti staðist eða,
hvort allir eigi í blindni að
lúta einræðisherrunum í
Moskva Svo er að sjá sem ráða
menn kommúnista hjer á landi
fylgi allir ósk'ptir Moskva- lín-
unni. Mun það síst verða til að
auka þeim vinsældir með þjóð-
inni.
Alþingi alt að því
óstarfhæft
Þessi ágreiningur milli flokka
og klofningur innan flokka ger-
ir Alþingi óneitanlega mjög
seinvirkt og á köflum nærri ó-
starfhæft. Það ástand er þeim
mun hættulegra sem afskipti
ríkisins af málefnum borgar-
anna eru meiri nú en áður.
Sök sjer væri, þótt ríkið vildi
hafa forsjá allra manna og
mála, ef það gæti -komist að
skjótum og skýrum niðurstöð-
um um það, hvernig málum
skyldi til lykta ráðið eða úr
þeim leyst. En allir vita, að
fjarri fer að svo sje. Langvar-
andi samninga innan flokka og
milli flokka þarf um úrlausn
flestra mála. Þegar hún loks-
ins er fundin, er enginn ánægð-
ur, vegna þess að allir hafa
þurft að slá af því sem þeir
töldu rjett vera í því skyni að
ná samkomulagi.
Ýmsir ásaka Sjálfstæðis-
menn fyrir það, að þeir hafi
\8 m m ■ #,j
gengið of langt í þessum efn-
um og slegið meira en góðu
hófi gegnir af stefnu sinni, til
að ná samkc.mulagi við aðra.
Meðan enginn einn flokkur hef-
ur meiri hluta með þjóðinni eða
á Alþingi, hlýtur svo að fara,
að allir flokkar verði nokkuð
að slá af. Aðalskylda stjórnmála
flokkanna er sú að sjá land-
inu fyrir löglegri stjórn.
Það er Þjóðviljinn einn, sem
í þessari kosningahríð hefur
gerst málsvari þess, að á ný
yrði komið á utanþingsstjórn.
Þar er og ekki farið dult með,
í hvaða skyni þett.a skuli gert.
Berum orðum er sagt, að með
þessu verði stjórnin veikari en
ella og leikurinn því hægari
fyrir upplausnaröflin. íslend-
ingar sækjast ekki eftir slíkum
stjórnarháttum. Vaxandi fiöldi
landsmanna skilur, að þjóðin
þarf nú ekki á að halda veikari
stjórn en verið hefur, heldur
þvert á móti styrkari.
Ef menn vilja halda við höft-
um og hömlum og vaxandi ríkis
afskiptum eins og Alþýðu-
flokkurinn krefst í kosninga-
stefnuskrá sinni. þá er nauð-
synlegt, að þjóðin segi til um
það og veiti þeim flokkum, er
þessa stefnu vilja hafa. aukið
fylgi og bolrnagn á Alþingi.
Eflum Sjálfstæðis-
flokkinn , ^
En ef þjóðin vill breyta til,
ef hún hefur fengið nóg af nú-
verandi ástandi, ef hún telur,
að afskipti ríkisvaldsins sjeu
orðin of mikil, og ef hún tel-
ur að bæta eigi verslunarhætt-
ina og útrýma svörtum mark-
aði, ef hún telur að atvinnu-
vegirnir verði að geta starfað
styrkjalaust í skaplegu árferði,
þá er eina ráðið að láta Sjálf-
stæðisflokkinn fá meiri áhrif
en verið hefur. Og þau áhrif
fá ekki notið sín til fulls, nema
flokkurinn fái hreinan meiri
hluta. Enda er hann eini flokk-
urinn, sem möguleika hefur til
þess að fá það atkvæðamagn,
er gæti nægt til að mynda meiri
hluta á Alþingi.
Þeir, sem vilja frið og frelsi
íslands — þeir, sem vilja að
atvinnuvegirnir geti starfað
styrkjalaust, skattaáþján verði
afljett og höft og hömlur leyst,
svo að einstaklingsframtak og
atorka fái að njóta sín, — þeir
sem vilja, að sundrungunni á
Alþingi ljúki, með stefnufastri
stjórn eins flokks, sem þjóðin
síðan geti látið bera ábyrgð á
gerðum sínum, þeir, sem þetta
vilja, munu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn.
NÝJUSTU DÆGIJRLÖG
Á annað hundrað
DANSIAGA
IEITAK
Hér fara á eftir nokkrir
titlar á þeim helztu:
í nýjum viðbæti: Lavender Blue, dilly, dilly — Red Roses_ Whii
tlie Angelus was ringing. — Blue Ribbon Gal. — Oliver Twist. -
| Buttons and Bows — By the River of Roses — Cruisinj? down th
’ "iver — Cuanto le gusta — Dance Ballerina — Delilah — Down b
the Old Mill Stream — Hello! My Baby — Honey — How lucky yo
are — How sweet you are — I’d love to iive in Loveland — If I coul
; be the sweetheart — It had to be yóu — It’s Dream Time _ L
I Paloma — Let’s try again — Little girl — Love somebody -— M
happiness — My cousin Lovella — My Little Grass Shack — Onl
I Passing Clouds — Rhum-Boogie — Rocka-bye your baby — Sooner c
later - South America — Tea leaves — The Big Brass Band -
The Christmas song — The Coffee song — The Maharajah of Maf
ador — The wishing waltz — Time may change — Too fat Polka -
Toohe oolie doolie — Try a little tenderness — Until — When you wei
sweet sixteen — You’re my Girl. — Og f.jöldi annarra nýrra texti
— FÁST í ÖLLUM BÓKA- OG HLJÓÐFÆRAVERZLUIMUM -
NOKKRIR
og framreiðslustúlkur svo og aðstoðarstúlkur í eldhús,
geta fengið vinnu í Gildaskálanum h.f., Aðalstræti 9.
Upplýsingar í skrifstofu
Ragnars Þórðarsonar kl. 2—4 í dag.
NoíislEeEisku ostaruir
fást í heildsölu hjá
JJryó tih áóin, u ^JteJu hre J
Sími 2678.