Morgunblaðið - 27.10.1949, Side 12
VEÐURÚTLIT — FAXAFLÓI:
SUNNAN og suðaustan kaldi,
hi(i um frostmarlc.
Heykjssvákursýnmgin
ipnni n.k. miðvikudag
REYKJAVÍKURSÝNINGIN verður opnuð n.k. miðvikudag kl
S e. h. með -hátíðlegri athöín, þar sem Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri og Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri flytja ávörp
Við opnunarhátíðina verða eingöngu boðsgestir, en síðar urr.
daginn verður sýningin <spnuð fyrir almenning. Eins og skýrt
hefur verið frá áður, verður Reykjavíkursýningin í safnahúsinu
r:ýja við Hringbraut, en húsið hefur ekki áður verið tekið i
notkun, enda rjett lokið við byggingu þess.
®------------
Glæsileg og merk sýning
Blaðamaður frá Morgunblað
inu hefur fengið tækifæri til
að ganga í gegnum sýningar-
salina og sjá það, sem komið
er af sýningunni og þótt ekki
sje fulllokið að koma sýning-
unni upp er þegar ljóst, að
þetta verður glæsileg sýning
og merkileg.
Hefur verið unnið að undir-
búning frá því í vor og margar
hendur unnið að því. Á sýn-
ingunni eiga menn að geta
fengið yfirlit yfir menningar-
og atvinnusögu höfuðborgarinn
ar frá upphafi og fyrirtæki
þau og stofnanir, sem til eru í
bænum í dag á sviði iðnaðar,
verslunar og siglinga, mennta-
mála, fjelagsmála o. s. frv.
Flestir listamenn bæjarins
h.afa lagt eitíhvað til
Það má segja, að flestir lista-
menn bæjarins hafi lagt eitt-
hvað til sýningarinnar og marg
ir þeirra hafa undanfarið unn-
ið við uppsetningu hennar.
Auk margra listaverka verða
ýmsir fágætir munir á sýning-
unni, sem tekist hefur með mik
illi fyrirhöfn að fá lánaða. Þá
verða töflur og táknmyndir,
sem sýna þróun á mörgum svið
um. Síminn hefur sína deild,
þar sem sýnd verða fyrstu
símaáhöldin og þau síðustu,
sjálfvirku. Vatns- og hitaveita,
Eafveita og önnur bæjarfyrir-
tæki hafa sínar deildir og
þannig mætti lengi telja.
Allmörg iðnfyrirtæki hafa
sjerstaka bása og sýna fram-
leiðslu sína. Yfirleitt hefur
verið reynt að fá sýnishorn af
sem flestum starfsgreinum og
stofnunum í bænum og hefur
það tekist vel.
Gamalt og nýtt
Mörgum mun t.d. þykja
gaman að bera saman þrjú eld
hús, sem á sýningunni eru. —
Fyrst eldhúsið í torfbænum,
með gömlu hlóðunum, hangi-
kjöti og öðru tilheyrandi, þvi
næst næsta stigið, eldhúsið
með kolavjel og gastækjum og
loks nýtísku eldhús með sjálf-
virkum raftækjum til allra
eldhússtarfa.
Eða sjóminjasafnið, þar sem
sýndur er gamall hjallur með
harðfiski og veiðarfærum, lík-
ön af bátum og skipum frá
gömlu árabátunum upp í ný-
sköpunartogara og nýjustu
Eimskipafjelagsskip.
»
Skemmtanir og fjelagslíf
Stærsti salurinn verður há-
tlíasalur. Þar hefur verið
komið fyrir leiksviði, sem
skreytt er með gömlum mynd-
um frá Reykjavík, m.a. er bak-
tjaldið málað eftir einu elsta
málverki af Reykjavík frá því
snemma á 18. öld. í þessum sal
verða fyrirlestrar fluttir, kvik-
myndir sýndar og klæðnaður
og tískusýningar verða þar
einnig. Við hliðina á þessum
sal eru veitingasalir.
Er ætiunin að sýningin geti
verið einskonar miðstöð skemt
ana og fjelagslífs bæjarbúa á
meðan hún er opin.
Skoðunarferðir í stofnanir
Á meðan sýningin er opin
verður gengist fyrir skoðunar-
ferðum í fyrirtæki víðsvegar í
bænum. Einn daginn verður
eitthvert bæjarfyrirtæki skoð-
að, eða einkafyrirtæki. Geta
menn ritað sig á lista og kom-
ist mpð í þann og þann hópinn
eftir vild, en stórir bílar verða
í förum með hópana, sem fara
í skoðunarferðirnar.
Mikið starf
Mikið starf liggur á bak við
þessa sýningu, sem nær ein-
göngu til Reykjavíkur. í sýn-
ingarnefnd eru Vilhjálmur Þ.
Gíslason, formaður, Jóhann
Hafstein. Einar Erlendsson,
Soffía Ólafsdóttir, Ásgeir
Hjartarson, Haraldur Pjeturs-
son og Sigurður Halldórsson.
Framkvæmdastjóri sýningar-
innar er Sigurður Egilsson og
arkitekt sýningarinnar er Þór
Sandholt, en fjölda margir
starfsmenn hafa unnið að und
irbúningi í marga mánuði.
Ekki er ákveðið hvað sýn-
ingin verður opin lengi, en
gert er ráð fyrir að minnsta
kosti þremur vikum.
Skorfur á nýjum
iiski á næstunni
HORFUR eru á að skortur
verði á nýjum fiski í fiskversl-
unum bæjarins næstu daga.
Steingrímur Magnússon, fisk
kaupmaður, skýrði Mbl. frá því
í gær, að hjá þeim 12 eða 15
bátum, sem sjá bænum fyrir
daglegum fiskbirgðum, hafi afl
inn farið minnkandi síðustu
daga. í fyrrinótt fengu þessir
bátar aðeins frá 300 til 1200
kg. —
Fiskhöllin, sem daglega læt-
ur í verslanir sínar um 5 smál.
af fiski, fjekk ekki nema lítinn
hluta þess magns í gær. Taldi
Steingrímur þó sennilegt að úr
þessu myndi rætast þegar upp
úr mánaðarmótum, ef að líkum
Ijeti.
AMMERÍSKUR uppgjafahermaður hefir fundið upp aðferð til
að hlaða múrstoina miklu fljótar, cn áður heíir tíðkast. Er það
einskonar mót, sem hlaðið cr í. fc'jest uppfinningarmaðurinn á
myndinni við vinnu sína.
STARFSÁR Leikfjelags Reykjavíkur hefst á föstudagskvöld,
er það byrjar sýningu á einu allra vinsælasta leikriti W.
Somerset Maugham: Hringurinn (The Circle). Leikstjóri
verður Ævar R. Kvaran.
Ævar R. Kvaran, sem íslensk<
að hefur leikrit þetta, stjó.rnaði
flutningi þess í Útvarpinu, er
það var leikið þar.
Þeir sem hlýddu á Hringinn
í útvarpinu höfðu af því mikla
skemmtun, enda hefur leikritið
eins og það er oft kallað: farið
siguför um allan heim. Stærsta
kvenhlutverkið í Hringnum,
Lady Kitty, er heimskunn per-
sóna orðin.
Skilnaður —
Landssetur.
Leikurinn fer fram á bresku
sveitasetri og er í nútímaformi.
Viðfangsefnið er skilnaðarmál.
Átta leikendur eru. Arndís
Björnsdóttir leikur Lady Kitty.
Aðrir leikendur eru: Valur
Gíslason, Jón Aðils, Róbert Arn
finnsson, Þóra B. Einarsson. —
Þá kemur fram í leiknum ný
leikkona Elín Ingvarsdóttir,
sem fer með stórt hlutverk í
leiknum. — Leikkonan hefur
stundað nám í leikskóla Ævars
R. Kvaran og er talin mjög
efnileg. — Loks kemur svo fram
annar nemandi Ævars, er það
Lúðvíg Hjaltason, en hann er
ekki í stóru hlutverki.
Hringurinn er í þrem þátt-
um. — Miklum erfiðleikum var
bundið að útvega nauðsynleg
húsgögn, þar eð leikurinn fei
fram á bresku landssetri. — Öll
leiktjöld hefur Sigfús Halldórs
leiktjaldamálari gert.
Þriðja leikritið
eftir Maugham.
Þetta verður þriðja leikritið
eftir Maugham, sem Leikfjelag-
ið sýnir. — Árið 1938 sýndi það
Fyrirvinnan, er Ragnar R
Kvaran setti upp. — Veturinn
1940 sýndi fjelagið Logan helga
er Indriði Waage setti á svið.
— Eins og fólk rekur vafalaust
minni til, þá vöktu bæði þessi
leikrit óskifta athygli og voru
mjög vel sótt.
CHARLES A. LINDBERG flug-
kappi kom nýlega til Kefla-
víkur. Var hann farþegi á flutn
ingaflugvjel ameríska hersins,
sem var á leið frá Þýskalandi
til Ameríku, en I.indberg er
tæknilegur ráðunautur Banda-
ríkjastjórnar í flugmálum og
hefir undanfarið dvalið í Þýska
landi á vegum ameríska hers-
ins.
Flugvjelin, sem Lindberg var
með stóð stutt við. Lindbergh
keypti sjer sútað gæruskinn í
minjagripaverslun Ferðaskrif-
stofu ríkisins.
Fleira frægt manna hefur
farið um Keflavík undanfarið.
Áður hefur blaðið getið um við
komu Spellman? kardinála
þar og fyrir nokkru fóru um
Keflavík dansmeyjar úr fræg-
um breskum ballet, sem var á
leið til Bandaríkjanna. — Var
það ballettinn, sem ljek í kvik
myndinni „Rauðu skórnir", sem
sýnd var í Tjarnarbíó.
Útlit skánar í
Frakklandi
LONDON, 26. okt. — Skýrt er
frá því í dag, að Bidault, sem
unnið hefur að stjórnarmyndun
að undanförnu, hafi orðið vel
ágengt í dag. Gert er ráð fyrir,
að hann muni fara fram á
traustsyfirlýsingu þingsins á
morgun (fimmtudag).
BELGÍUMENN lcggja áhcrslu
á að fá ferðamenn til landsins.
Blaðsíða 7.
Myndaslytta Leiis
Eiepna í St. Pau!
SUNNUDAGINN 9. október var
í borginni St. PaUl í Minne-
sotaríkis afhjúpuð myndastytta
af Leifi hepna. Við það tæki-
færi fluttu þeir ávörp Morgen-
stjerne ambassador Norðmann:
í Washington og Valdimar
Björnsson vararæðismaður ís-
lands í St. Paul —. Minniea-
polis. Auk annara íslenskra
gesta voru viðstaddir afhiúpun-
ina Grettir L. Jóhannsson ræð-
ismaður í Winnipeg og dr. Bic-
hard Beck vararæðismaður í
Grand Forks.
Myndastyttan er gjöf frá
mönnum af norskum ættum i
Bandaríkjunum og hafði fjár-
söfnunin til gjafarinnar staðíð
yfir um nokkurt skeið. Hún er
gerð af myndhöggvaranum
John K. Daniels, sem er af
norskum ættum.
Skúr á Hagatorgi
brann í gærkveidi
í GÆRKVÖLDI var kveikt í
skúrræfli, sem stóð vestur á
Hagamelstorgi.
Ekki var annað verðmæti í
skúrnum, en timbur það, sem
í honum var, en það brann allt
meira og minna, en slökkviliðs
menn rifu skúrinn alveg. —
Talið' er víst að kveikt hafi
verið í skúrnum, því ekkert
var inni í honum, sem kveikt,
hefði getað í.
Fárviðri um
Brefiandssyjar
LONDON, 26. okt. — Síðast-
liðinn sólarhring hefur geisað
ofviðri um Bretlandseyjar og i
grennd. Hefur stormurinn víða
valdið stórspjöllum bæði á sjó
og landi.
Stórskipinu Queen Elizabeth
sem er á leið frá New York til
Southampton, mun að líkind-
um seina um sólarhring.