Morgunblaðið - 10.12.1949, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.12.1949, Blaðsíða 8
8 *»#»«* * * 9 L 4 0 I Ð Laugardagur 10. des. 1949. CTtg.r H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.r Sigfús Jónsson. far: ’uerji áhrifa ÚR DAGLEGA LIFINU Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar • Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla' Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlanda, Ikr. 15.00 utanlands. í lausasölu 10 aura eintakið, ?• aara með LeaMS, Utgerðin og vandamál hennar TVENN samtök íslenskrar útgerðar hafa um þessar mundir efnt til funda hjer í Reykjavík. Eru það Fiskiþingið. sem nýlega er lokið og Landssamband íslenskra útvegsmanna, sem byrjaði fund sinn fyrir nokkrum dögum. Báðar þessar samkomur hafa rætt hin ýmsu vandamál og viðfangsefni útgerðarinnar og sjómanna. Það sætir engri furðu, þótt fulltrúar útvegsmanna eigi fundi með sjer um þessar mundir. Atvinnuvegur þeirra stendur nú frammi fyrir staðreyndum, sem engan veginn eru hugnanlegar. Rekstrargurndvöllur allrar útgerðar í landinu er um þessar mundir svo ótryggur að segja má að ekkert annað en stöðvun liggi við borð um næstu áramót. Raunar hefur mikill hluti bátaflotans og nokkur hluti tog- araflotans þegar stöðvast. Fimm síldarleysisvertíðir hafa leikið bátaútveginn þannig að meginhluti hans stendur uppi magnþrota. ★ En það er ekki aðeins útgerðin, sem síldarleysið hefur leikið þanníg. Síldariðnaðurinn hefur beðið gífurlegan hnekki, bæði ríkisverksmiðjurnar og verksmiðjur einka- framtaksins. Afleiðing þessa hörmungarástands hjá aðalat- vinnuvegi þjóðarinnar eru svo miklir erfiðleikar lánsstofn- ana þeirra, sem lagt hafa honum til fje. Ríkissjóður hefur einnig teflt á tæpasta vaðið með stórfelldum framlögum til kreppuhjálpar og fjárveitinga til uppbóta á útflutnings- verð afurðanna. Hið erfiða ástand útgerðarinnar hefur þannig haft víðtæk áhrif á allan þjóðarbúskapinn. Enn er þess þó ógetið að þúsundir sjómannaheimila í landinu hafa orðið fyrir miklu skakkafalli vegna aflabrestsins á síldveiðunum undanfarin 5 ár. ★ Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að tryggja áfram- haldandi rekstur þessa undirstöðuatvinnuvegar landsmanna? Að sinni skal þeirri spurningu ekki svarað. Væntanlega munu fulltrúar útvegsmanna benda á sínar leiðir til þess og hafa um þær samvinnu við þing og stjórn. En einhver lausn verður að finnast áður en fundum Alþingis lýkur fyrir jól. Trúlega getur sú lausn aðeins orðið til bráðabirgða. En frambúðarlausn verður þó ekki skotið á frest um lengri tíma. Ríkissjóð brestur bolmagn til þess að rísa undir áfram- haldandi ábyrgðum á nægilega háu verði á útflutnings- afurðunum og raunar hefur öllum verið það Ijóst allt frá 1946, er fiskábyrgðarlögin voru fyrst sett, að það er alger fjarstæða að ætla sjer að tryggja rekstur aðalatvinnuvegar þjóðarinnar með ríkisframlögum. Fiskiþingið samþykkti á fundi sínum m. a. eina tillögu, sem líkleg væri til þess, ef framkvæmd yrði að ljetta nokkuð á tilkostnaði bátaútvegsins. Það lagði til að „ljetta nú þegar sjómannatryggingunni af allri fiskveiðiútgerð landsins og fela almannatryggingunum að annast allar bótagreiðslur samkvæmt gildandi lögum og reglugerð.“ Þessi samþykkt Fiskiþingg er alls ekki óeðlileg. Ef úr framkvæmd hennar yrði þýddi það allverulegan útgjalda- sparnað fyrir útgerðina. ★ Kjarni málsins er sá, að það er ekki aðeins erfið sam- keppnisaðstaða á erlendum mörkuðum og aflabrestur á sííd- veiðum, sem er að knjesetja útveginn. Þar kemur fleiri til. Þar á meðal óhóflegur viðhaldskostnaður á skipum og veið- arfærum. Allir, sem eitthvað þekkja til útgerðar vita að útgerðin er beinlínis mergsogin og þrautpínd af ýmsum þeim aðiljum, sem hún þarf að sækja til vegna viðhalds á skip i’m og veiðarfærum. Að sjálfsögðu á hin almenna dýrtíð í landinu verulegan þátt í þeim mikla kostnaði. En þó virðist sem þessi kostnaður keyri úr hófi fram. Það er þess vegna ekki nóg að horfa á afurðaverðið og markaðsaðstöðuna. Við verðum að tryggja það að útgerðin sje ekki draugriðin svo innanlands með ýmiss konar álögum og tilkostnaði að hún komist í algert þrot. Svar frá póststofunni FRÁ póststofunni hefir borist langt svar við gagnrýni Snæ- bjarnar Jónssonar á póstþjón- ustunni. Svarið er álíka mikið að vöxtum og grein Snæbjarnar og verð jeg því að skifta því í tvö blöð. — Það þykir hlýða að gefa báðum aðilum sama tæki- færi til að flytja sitt mál. Eink- um þar sem um svo mikilsverða almenningsþjónustu er að ræða sem póstþjónustan er. En taka vil jeg fram, að eftir þetta verða umræður skornar niður, einsog þeir segja á fundum og verða ekki teknar nema stuttar at- hugasemdir eftir þetta. • * Kom ekki í pósti ER ÞÁ frá minni hálfu aðeins eftir sú eina viðbót við þetta mál, að jeg vil geta þess, að brjef póststofunnar kom ekki í pósti, heldur var boðsent ófrí merkt. En það kann að vera vani póststofunnar, þegar um áríðandi brjef er að ræða. Hefst svo fyrri hluti svars póststofunnar, eða póstmeist- ara, sem jeg geri ráð fyrir að hafi samið brjefið, þótt ekki sje þess getið: • Ádeilurnar „í „MORGUNBLAÐINU" 3. og 4. þ.m. hefir herra skjalaþýðari Snæbjörn Jónsson komið fram með nokkrar ádeilur á póstþjón ustuna í dálkum „Víkverja“. Fellur sumt í hlut póststofunn- ar en sumt í hlut æðri valda- manna ríkisins, t.d. það er snert ir hið óhæfa húsnæði póststof- unnar og ætti ekki að blanda slíku saman. Að öðru leyti eru ádeilur þessar þannig vaxnar að rjett þykir að gefa nokkur svör við. Tilkynningar: Póststofan hefir ætíð veitt bæði einstakl- ingum og blöðum upplýsingar, sem óskað hefir verið. En hún á engan þátt í áætlunum um ferðir, hvorki á láði nje legi eða í lofti, gerir ekki út nein flutningatæki til póstflutninga utan bæjarins, og er því annara sökin, ef ekki eru birtar áætlan- ir um flugferðir, skipaferðir o. s. frv. Hinsvegar eru þær áætl- anir, sem berast festar upp til handa almenningi í pósthúsinu og þar fást leiðabækurnar. ) Kvittanagjald og frí- merkjaskeyti I Kvittanagjöld eru tekin sam- kvæmt þeim reglum,' sem um !þau gilda, samkvæmt póstlög- um, reglugerð um notkun nóstp j og pósttöxtum, sem póststjórnin gefur út. Gjald fyrir frímerkjaskipti er heimilt að taka. Sú heimild er gömul, en ekki nv. En mis- skilningur mun hafa átt sjer stað í sambandi við ósk Sn. J. um skiftin en skýrst og sættst á málið. Stærð og gerð fríme’-kja e" mál sem póststofan hefir eng- in afskipti haft af. Mun sitt sýr ast hverjum. en vitað er að mörgum geðjast vel að nýju frímerkjunum. Pren+að mál og póstkort • Reglur um prentað mál er fyrst og fremst að finna í al- þjóðapóstsamningum og síðan í póstlögum hverrar þjóðar og reglugerðum, settum samkv. þeim. Oft getur leikið vafi á, eftir mismunandi frágangi ein- staklinga, hvað heyri undir á- kvæðin um prent. Ágreiningi milli sendanda og póstþjóns er heimilt og rjett að skjóta undir úrskurð yfirmanns. Væntan- lega hefði slíku ekki verið illa tekið, ef Sn. J. hefði gert það. Reglur um póstkort er að sjálfsögðu að finna í áðurnefnd um heimildum, sem fleirum en Sn. J. hefir orðið á að vjefengja og halda fram, að hvergi gildi nema á íslandi og sjeu jafnvel lagabrot. (Eitt blaðanna hefir halcjið því fram, að það sje laga brot að taka gjald fyrir flug- póst). Verður þetta ekki rætt miklu nánar hjer, enda vita vafalaust flestir menn að póst- stofan í Reykjavík setur ekki lög. En rjett þykir að minna Sn. J. sjerstaklega á það, að bað er hann hvggur lagabrot í þessu efni á íslandi, gildir í öUum löndum, sem eru í al- þióðapóstsambandinu. — Til glöggvunar skal það tilfært hjer orðrjett, sem segir í enskum póstreglum um þetta efni: ,,A postcard may not be fastened against inspection in any way, or enclosed in a cover of any kind,“. Hvaða lög brutu Bretar með þessu ákvæði? Innanbæjarbrjefin Innanbæjarbrjef segir Sn. J. að sjeu svo lengi á leiðinni, „að nálega ekkert tímatakmark er unnt að setja“. ■ Við þetta er það fyrst og fremst að athuga, að það er róg- ur. Og til þess að herða sem best á eftir þessum rógi á hend- ur póstþjónustunni leyfir Sn. J. sjer að nota nafn gamals heiðursmanns hjer í bænum, Helga Magnússonar (& Co.) og sennilega í heimildarleysi. — Virðulegra hefði verið að lýsa ástæðum eins og þær eru. Skýra fyrir mönnum að póststofan tek ur við hraðboðasendingum, ef óskað er, og því opin leið að koma brjefum fljótt til viðtak- enda í bænum. Helgi Magnús- son hefir vafalaust sent með brjef sín sjálfur af því að hon- um hefir þótt það hagkvæmara, en ekki af því að hann van- trevr.i póstþjónustunni. Hann hefir vafalaust vitað að engin póstþjónusta er skyldug til, nje hefir. möguleika til, að koma öllum pósti til skila samstund- is. — • Særðir starfsrnenn HELDUR eru venjuleg brjef send áleiðis með fyrstu ferð sem fellur. Sn. J. vill auðvitað ekki viðurkenna að hann skaði eða særi einstaka nafngreinda menn með ádeilu sinni. Hinsvegar kemst hann ekki framhjá því að, a. m. k., og fyrst og fremst, þrír starfsmenn póststofunnar, sem þaulreyndir eru að reglu- semi og samviskusemi í langri póstbjónustu, finni sig meidda af fullyrðineum hans. Fjöldi bæiarbúa þekkir þessa menn: Gísla V. Sigurðsson, Bjarna Þóroddsson og Harald Sigurðsson. Þeir stimpla, að- greina og raða unn bæjarpóst- inum í hendur bæíarpóstanna og stjórna útburði nóstsins. — Heldur Sn. J. að hann fái al- menning til að trúa bví, að þess ir menn, sem einnie starfa und- ir eftirliti, svíkist undan skvld- um sínum, legeist á póstinn, feli hann og geymi. í stað bess að láta póstana bera hann út? Nei, það er annað sem veldur að að brjef komast stundum seint til skila. Sn. J. bendir sjálfur á einn örðueleikann við póstskil- in, þ.e. útþenslu bæjarins“. Hjer lýkur bá fvrri hluta at- hugasemda póststofunnar. _ <iiiiifiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiir(iiiii(miitniiiviiiiiiirwiii iftmiiimimtiifmiiirfiiiirTtniiiniiiiiiiniiiiiiMiiiiiiiimiiMii .......... MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . ...........................„„„„„„„„ Mikið er framieitf af raisjám í Kanada Eflir Charles B. Lynch frjettaritara Reuters. OTTAWA: — Bretar afrjeðu snemma i styrjöldinni, að smíða ratsjár (radar) tæki í Kanada. Hefir þetta svo orðið til þess. að Kanada er orðið eitt helsta framleiðsluland þesskonar tækja í heiminum. • • HRÆDDUST LOFTÁRÁSIR KANADA hefir fengist við ratsiárnar síðan 1941, þegar bresk yfirvöld einrjeðu að tæk- in, sem þá voru ekki gefnar neinar upplýsingar um, skyldu gerð í Kanada. Var að þessu ráði horfið, þar eð óttast var um örlög breskra verksmiðja. Kanadiska stjórnin reisti risastór iðjuver í samvinnu við breska vísindamenn í Leaside rjett utan Toronto. Ríkisfyrir- tæki, Research Enterpdises sá um framkvæmdir. Voru þau aðallega notuð í þágu breská og kanadiska flotans. • • queen elisa- beth búin kana DISKUM TÆKJUM í ENDAÐA styrjöldina tók ann að ríkisfyrirtæki við reksri smiðjanna, og hefir framleiðsla ratsjártækja handa flotanum farið þar fram æ síðan. Frá styrjaldarlokum hafa um 1600 tæki verið smíðuð handa versl- unarskipum. Ratsjár, sem smíð- aðar eru í Kanada eru nú í meir en 500 skipum úthafanna, og eru þau í eigu rúmlega 20 þjóða. Risaskipið Queen Elizabeth er búið ratsjártækjum frá Kanda. ALLSKONAR SKIP TUGIR skipa, sem kljúfa öld- ur vatnanna stóru í Kanada, einnig þau, sem bruna með ströndum landsins, eru búin ratsjgm, er smíðaðar hafa ver- ið í Kanada. Þær eru örugg- ur leiðarsteinn í þoku, regni, byl ,og myrkri. Margir ísbrjót- ar, ferjur og snekkjur í einka- eign hafa og tæki til öryggis. • • EINS í MEGIN- ATRIÐUM RATSJÁNUM hefir verið breytt nokkrum sinnum, síðan hafin var framleiðsla þeirra tækja, sérn fyrst voru gerð úr garði í Bretlandi. En í megin- atriðum eru þó eins. Venjulegar ratsjár geta skynjað lítil dufl á sjónum í Framhald á bls.12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.