Morgunblaðið - 18.12.1949, Qupperneq 5
Sunnudagur 18. des. 1949.
MORGUNBLAÐIÐ
5
iyktanir iró LÍ.Ú.
AÐALFUNDARSTÖRFUM
Landssambands ísl. útvegs-
manna lauk á fimmtudags-
morgun kl. 5,30, eftir að fund-
urinn hafði staðið í 6 daga.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru afgreiddar margar
tillögur og samþykktir varð-
andi ýmis mikilvægustu hags-
munamál sjávarútvegsins. —
Hafa nokkrar þeirra verið
birtar hjer í blaðinu áður, en
eftirfarandi hefur ekki verið
getið.
„Aðalfundur L.Í.Ú., haldinn
í desbr. 1949, telur að vegna
ríkjandi óvissu um áframhald-
andi starfrækslu sjávarútvegs
ins, geti fundurinn ekki lokið
Störfum fyrr, en sjeð verður á
hvern hátt Alþingi og ríkis-
stjórn, hyggst að leysa þessi
vandamál fyrir áramót.
Fundurinn samþykkir því að
kjósa 4. manna nefnd, er ó-
samt fulltrúa frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna starfi að
samningum við ríkisstjórn og
Alþingi, að finna viðunandi
starfsgrundvöll fyrir fram-
leiðslu og hagnýtingu sjávar-
afurða á komandi vertíð.
Tillögur, greinargerð, áætl-
snir stjórnar L.Í.Ú. og þau
sjónarmið önnur varðandi frí-
listavörur er fram hafa komið
á fundinum, verði byrjunar-
starfsgrundvöllur fyrir nefnd-
ína.
Þá felur fundurinn stjórn-
ínni að kalla saman framhalds-
aðalfund eigi síðar en 9. jan.
næstkomandi“.
Um Verðlagsráð
sjávarútvegsins
„Aðalfundur L.Í.Ú., haldinn
í Reykjavík í desembermánuði
1949, skorar á Alþingi að setja
nú þegar lög um „Verðlagsráð
Sjávarútvegsins“ er hafi með
höndum svipað verkefni fyrir
sjávarútveginn og „Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins" fyr
Ir landbúnaðinn.
Við setningu slíkra laga
oskar fundurinn sjerstaklega
£ð eftirfarandi verði tekið til
igreina:
1. Að þess sje jafnan gætt að
sjávarútvegurinn fái staðið
undir framleiðslukostnaði af
urða sinna.
2- Að heildarsamtökum út-
vegsmanna sje tryggður í-
hlutunarrjettur um skipun
verðlagsráðsins á svipaðan
hátt og bændum er tryggð-
ur ihlutunarrjettur við á-
kvörðun verðlags landbún-
aðarafurða.
Jafnframt felur fundurinn
stjórn L.Í.Ú. að vinna að fram-
gangi þessa máls við Alþingi
og ríkisstjórn svo fljótt sem
framast er unnt.
Um nýtingu vinnuaflsins
Aðalfundur L.Í.Ú., haldinn í
Reykjavík í desembermánuði
1949, árjettar fyrri tillögu sína
varðandi nýtingu vinnuaflsins
í landinu og samþykkir að
beina eftirfarandi til ríkis-
stjórnar og Alþingis:
Aðalfundurinn telur það
þjóðarnauðsyn að beina vinnu-
afli og fjármagni landsmanna
sem mest að útflutningsfram-
leiðslunni og öðrum nýtsömum
framleiðslustörfum.
Til þess að ná þeim tilgangi,
telur fundurinn höfuðnauðsyn
að útflutningsframleiðslunni
sje tryggð sú aðstaða að menn
sækist eftir vinnu við hana.
Jafnframt telur fundurinn
að draga beri stórlega úr óarð-
bærum og opinberum fram-
kvæmdum, þar sem slíkar
framkvæmdir dragi of mikið
vinnuafl frá útflutningsfram-
leiðslunni.
Lítur fundurinn einnig svo á
að svo mikils ósamræmis gæti
uitl lengd vinnutíma, þeirra er
sjómennsku stunda og hínna er
vinna að ýmsum störfum í
landi, að rjett sje að vinnutími
þeirra sje lengdur nokkuð, til
frekara samræmis og á þann
hátt verði vinnuafköst þjóðar-
innar betur hagnýtt, en nú á
sjer stað.
Vill fundurinn í þessu sam-
bandi sjerstaklega benda á, að
tekin verði upp í verknáms-
deildum gagnfræðaskólanna,
kennsla í hagnýtum vinnu-
brögðum, er lúta að sjávarút-
vegi, og á þann hátt að glæða
áhuga æskunnar, fyrir aðalat-
vinnuvegi þjóðarinnar.
Um niðurfellingu innflutnings-
gjalda af vjelbátum og
söluskatt
Aðalfundur L.Í.Ú., haldinn í
Reykjavík í desember 1949,
skorar á Alþingi að fella niður
innflutningsgjald á vjelbátum,
sem fluttir hafa verið til lands
ins frá 1. janúar 1945, og jafn-
framt að Alþingi heimili ríkis-
stjórninni að endurgreiða inn-
flutningsgjöld þau, er inn-
heimt hafa verið af vjelbátum
frá þeim tíma.
Ennfremur skorar fundurinn
á Alþingi að fella niður sölu-
skatt á nauðsynjum útvegsins,
svo sem t.d. mótorvjelum, og
að heimila ríkisstjórninni að
endurgreiða þann söluskatt,
sem þegar hefur verið inn-
heimtur af þessum tækjum“.
„Aðalfundurinn skorar á
verðlagseftirlitið að endurskoða
í samráði við fulltrúa frá L.Í.Ú.
verðlag á innfluttum og inn-
lendum útgerðarvörum og
læka að verulegum mun álagn-
ingarheimild á vörum þessum
frá því sem nú er.
Felur fundurinn stjórn L.í.
Ú. að koma þessari samþykkt
til rjettra aðila og sjá um raun
hæfar framkvæmdir í þessa
átt.
^/%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%^fMt%%%^>
í DAG
opna jeg nýft
Bakarí á Skúlagötu 61
Áhersla lögð á fyrsta flokks framieiðslu
og fljófa afgreiðslu
OSKAR SI6URÐSS0N
bakarameistari
KAPPAit
íslendingasagnaþættir fyrir unglinga
Teikningar eftir Halldór Pjetursson
GLÆSLEG JÓLAGJÖF
Aðalúisala
ll^óLa [níÁ
'uinnur
Kirfajuhvoli — Simi 4235
-<&4
Sporf jólablað fjölbreytt að efni með fjölda mynda,
getraun ofl. kemur á morgun. Afgreiðsla er í Steindórsprent