Morgunblaðið - 20.12.1949, Side 2

Morgunblaðið - 20.12.1949, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 20. des. 1949. ir.osið í ýmsar nefnd- Ólafur Proppe látinn Sr og stjórnir á w f GÆR fóru fram í sameinuðu Alþingi kosningar í ýmsar nefndir og stjórnir. | í verðlaunanefnd gjafar Jóns JSigurðssonar voru kosnir: Matthías Þórðarson, fyrrv. i þjóðminjav., Þórður Eyjólfs- íon, hæstarjettardómari, og Þorkell Jóhannesson, próf. j Framkvæmdarstjóri Söfnun ( arsjóðs íslands var endurkos- inn Vilhjálmur Briem. Stjórn Byggingarsjóðs var ♦íosin: Jón Maríusson, banka- ■stjóri, Sveinbjörn Hannesson, X'erkamaður, Stefán Jóh. Stef- ánsson, alþm., Eysteinn Jóns- ,snn, alþm., og Áki Jakobsson, alþm., — Endurskoðendur sjóðsins voru kosnir: dr. Björn Björnsson og Gísli Guð- mundsson, alþm. Stjórn Síldarverksmiðja rík- ísins: Sveinn Benediktsson, framkvæmdarstj., Sigurður Ágústsson, alþm., Erlendur Borsteinsson, alþm., Eysteinn Jönsson, alþm., og Þóroddur ■Guðmundsson. Varamenn í stjórn Síldar- verksm. voru kosnir Júlíus Hav steen, sýslumaður, Jón Þórðar frkv.stj., Finnur Jónsson, ;,!þm., Jón Kjai'tansson, frkv. ;,tj. og Tryggvi Helgason. Eftirlitsmenn með opinber- um sjóðum voru kosnir: Þor- einn Þorsteinsson, Sigurjón Á Ólafsson og Andrjes Eyjólfs ^on. Síldarútvegsnefnd: Jón Þórð n ison, frkv.stj., Erlendur Þor- steinsson, alþm., og Björn Kristjánsson, kaupfjel.stj. — Varamenn: Óli Hertervig, frkv. í Birgir Finnsson og Þor- •ceinn M. Jónsson. Raforkuráð: Steingr. Jóns- f-on, rafmagnstj., Ingólfur Jóns ,~on, alþm., Axel Kristjánsson, frkv.stj., Daníel Ágústínus- son. erindreki, og Einar Ol- geirsson, alþm. Stjórn Landshafnar í Kefla- vik og Njarðvíkum (kosnir til 4 ára); Alfreð Gíslason, lög- reglustj., Þórh. Vilhjálmsson og Danival Danívalsson. — Endurskoðendur; Guðm. Guð- mundsson og Valtýr Guðjóns- son. Landsbankanefnd (til 6 ára): Bjarni Snæbjörnsson, læknir, lóh. G. Möller, frkv.stj., Guðm. B. Oddson, frkv.stj., Eysteinn -Tönsson, alþm. og Einar Olgeirs ■ • n, alþm. — Varamenn Gísli Jönsson, Ingólfur Jónsson, Björn Jóhannesson, Þóraiinn Þörarinsson og ísleifur Högna- son. FORSETI sameinaðs Alþingis minntist á þingfundi í gær Ól- afs Proppé, fyrrverandi alþing ismanns, er ljest í gær. Ólafur Proppé átti sæti á Alþingi á árunum 1919—1923. Hann varð síðan framkvæmda stjóri Sölusambands ísl. fisk- framleiðenda. Þérir Olafsson vann B RSLITAKEPPNI hraðskák- rnóts. þess er hófst á miðviku- öaginn var, var tefld á sunnu- dag. Úrslit urðu þau að efstur varð Þórir Ólafsson með 5!4 vinning. í öðru og þriðja sæti Guðmundur S. Guðmundsson og Friðrik Ólafsson með 5 vinn inga hvor og fjórði varð Benóný Benediktsson með 4 vinninga. Þátttökurjett í úrslitakeppn- j ni höfðu 8 og mættu allir til ■leite; Tekjuöflun ríkisins FRV. TIL LAGA um framleng- ingu á 3. kafla 1. nr. 100/1948 um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna var til 1. um- ræðu í neðri deild í gær. Frumvarpið er borið fram af fjárlaganefnd samkv. ósk fjár- málaráðh. og hafði Ásgeir Ás- geirsson framsögu fyrir nefnd- inni. Hann og fjármálaráðh. sögðu hjer vera á ferðinni tekjukafla þeirra dýrtíðarlaga, sem Alþingi hefði samþykkt íyrir síðustu áramót, en þar sem vafi þótti vera á því, að lögin giltu lengur en til ára- mótanna nú og ekki væri víst, að frv. um alhliða dýrtíðarráð- stafanir kæmi fram fyrir þann tíma, þá hefði þótt rjett að flytja þetta frv. nú. Aðaltekju- stofnarnir eru söluskatturinn og hið hækkaða leyfisgjald. Stefán Jóh. Stefánsson og Eysteinn Jónsson tjáðu sig samþykka írv. Eysteinn vildi þó helst ekki framlengja tekjustofnana lengur en til janúarloka, þótt honum væri á það bent af fjár- málaráðh. og atvinnumálaráðh. að tekjur þessar mundu verða nauðsynlegar, hvað sem alhliða dýrtíðarráðstafanir fælu í sjer, m. a. næmi áætlaðar niður- greiðslur skv. fjárlagafrv. álíka upphæð og söluskatturinn er áætlaður, en hann er upp und- ir 4/s hlutar teknanna skv. þessu frv. Lög afgreidd frá Alþingi í GÆR voru afgreidd sem lög frá Alþingi auk laganna um bæjarstjórn í Húsavík: Frv. til laga um breyt. á 1. nr. 61 31. maí 1947 um vá- tryggingarfjelög fyrir fiski- skip. Frv. til laga um breyt. á 1. nr. 60 1939 um gjald af inn- lendum tollvörutegundum. Frv. um breyt. á 1. nr. 98 9. júlí 1941 um heimild fyrir rík- isstjórnina til ráðstafana og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna. Frv. til laga um tekjuskatts- viðauka árið 1950. Frv. til laga um heimild fyr- ir ríkisstjórnina að innheimta ýms gjöld með viðauka. Frv. til laga um heimild fyr- ir ríkisstjórnina að innheimta skemmtanaskatt með viðauka árið 1950. Frv. til laga um breyt. á 1. nr. 8. 1944 um breyt. á lögum nr. 44 1932 um skipun læknis- hjeraða, „verksvið landlæknis og störf hjeraðslækna. Jóiafagnaður fyrir börn i á Keflavíkurflugvelli Sfarfsfóikið skauf saman í 1200 jólagjafirr auk sæigæfis og annarra veifinga Jafntefli í hnefaleik. LANDSKEPPNI í hnefaleik fór fram í Oslo s.l. sunnudag á milli Sviþjóðar og Noregs. Lauk keppn mni með jalntefli, 4 vinningum gegn 4. — G.A. Fra frjettaritara Mbl. í Keflavík SÍÐASTLIÐINN sunnud. bauð starfsfólkið á Keflavíkurflug- velli, börnum úr Keflavík og Njarðvík, til jólafagnaðar. Að þessu sinni var fagnaðurinn haldinn í hinum rúmgóðu húsa kynnum skemmtistaðarins á flugvellinum, en það eru 3 stór ir, sambyggðir skálar. Starfsfólk hinna þriggja er- ' lendu aðila, sem starfrækja flugvöllinn, skutu saman fje til að standast kostnaðinn af veit- ingum og gjöfum til barnanna og nam sú upphæð yfir 2500 dollurum. Þessir aðilar eru: starfsmenn Bandaríkjastjórn- ar, Loochead-fjelagsins og byggingarfjelagsins, sem venju lega er nefnt K.C.B. — Þessi fjelög greiddu einnig fyrir starfsfólkinu á allan hátt, svo allt mætti fara sem best úr hendi, bæði með flutninga á fólkinu, húsnæði og annað, sem til þurfti. Undirbúningur Á föstudag og laugardag var unnið að undirbúningi langt fram á nótt og tóku þátt í því bæði konur og karlar, sem þarna hafa búsetu. Stórt jóla- trje var’ á miðju gólfi og salir skreyttir, nær, 1200 jólagjöf- um var innpakkað og þeim staflað á leiksfvið stærsta skál- ans, í öðrum skála voru veit- ingar afhentar, sem voru ávext ir, kökur, ís og annað sælgæti, svo ríkulegá útilátið, að vai'Ia var við barnahæfi að torga því. Börnin sótt Strax upp úr hádegi á sunnu dag komu hinir stóru farþega- bílar flugvallarins á ákveðinn stað í Njarðvíkum og á Vatns- nestorg í Keflavík, en þangað áttu börmn að koma og þeir, sem fylgdu þeim, þar voru skátar til aðstoðar og einnig á vellinum, þar sem þess var óskað. Veður var milt og gengu flutningar fólksins með ágæt- um og viðstöðulaust. Fyrirkomulag á skemmtistaðnum Ætlast var til að gestir kæmu fyrst í kvikmyndahúsið, en þar voru sýndar skemmti- myndir fyrir börn, og að þaðan væri svo farið þangað sem veit ingum var úthlutað og þá í sal- inn, þar sem jólatrjeð var og börnin leyst þaðan út með jóia gjöfum, en sökum mikillar og óvæntrar aðsóknar brast þetta skipulag nokkuð og varð það til angurs, bæði þeim sem buðu til fagnaðarins og þeim, sem boðið var. Mikil aðsókn í Keflavík og Njarðvíkum eru um 800 börn á aldrinum til 14 ára, þess utan eru svo börnin, sem heima eiga á flug- vellinum og börn starfsfólksins við Reykjavíkurflugvöll, sem boðið var, en svo mikil aðsókn varð að tæplega 1200 jólagjafir hrukku ekki til og 1500 sæl- gætis-diskar gengu einnig upp og urðu þó nokkrir útundan, en það má ekki saka gefendur um, því engum hefur sárnað það meira en þeim Jólagjafirnar Myndarlegur jólasveinn af- henti börnum gjafirnar, sem voru hreinustu dýrgripir í aug um þeirra, sem fátt hafa sjeð af því tagi, voru þar bílar og skip, dúkkur og margskon- ar kassar með hinu ótrúleg- asta innihaldi, allt sýnilega valið af mikilli rausn og góð- um huga. Tilgangurinn Flestir hinna erlendu starfs- manna verða að vera fjarri sínum eigin börnum á þessum jólum og þess vegna er þeim þetta kærkomið tækifæri að gleðja önnur börn og njóta gleði þeirra, því börn eru alls- staðar eins og á jólunum sakna þeir sinna barna mest, sem ekki geta dvalið hjá þeim. Á síðastliðnum jólum færði starfsfólk flugvallarins börnun um í nágrenninu, einnig jóla gjafir, en þá kom jólasveinn þeirra á jólatrjesskemmtunina í Ungmennafjelagshúsinu i Keflavík, en með því að hafa þennan fagnað í stærra hús- rými, töldu þeir sig geta náð til fleiri barna. Þakkir Aðalforstöðumenn fyrir þess um jólafagnaði voru þeir Glenn Warring, Irving Hermann, sem var formaður undirbúnings- nefndar, og báðu þeir sjerstak- lega að flytja öllum þakkir sín ar og þeirra annara, sem að þessu stóðu, bæði stjórnarvöld unum og þeim mörgu einstakl ingum í Keflavík og nágrenni, sem aðstoðuðu þá á ýmsan hátt, og síðast en ekki síst að flytja þeim þakkir, sem komu til þessa fagnaðar. Starfsfólkið á flugvellinum á skilið innilegasta þakklæti fyrir hugulsemi sína og rausn og fyrir allt það mikla starf, og fjármuni, sem það hefur lagt fram til að gleðja börn og unglinga í nágrenni sínu. Að lokum nokkur orð til gestanna. Þegar svona mikill mannfjöldi er saman kominn, verður að ríkja regla, en ekki troðningur og það er æskilegt að öll framkoma, sje mörkuð meiri hógværð, en raun varð á; hitt er leiðinlegt og lítill sómi að. Að sjálfsögðu eiga ekki all ir þar að óskipt mál, en fáir geta stundum orðið mörgum til ama. Helgi. Vatn veldur íkveikju. LONDON. — Nýlega olli vatn íkveikju hjer í Bretlandi. Vatns- leiðsla hafði sprungið. Varð það til þess, að rafmagn leiddi út, svo að í kviknaði. Pólskir flugmenn hyggja á flófla Einkaskeyti til Mbl, KAUPMANNAHÖFN, 19. des. — Pólsk flugvjel með 8 manna áhöfn kom til Bornholm í gær- kvöldi til að sækja þangað flug- vjelina, sem þar lenti með flótta fólkið á dögunum og áður hef- ur verið frá skýrt í skeyti. —- Margt bendir til, að nokkrir af áhöfn þessarar seinni vjelar hafi haft flótta í huga. Komu flugvjelarinnar seinkaði. Komu flugvjelarinnar til Bornholm seinkaði mikið frá á-> ætlun og virðist hún fyrst hafa flogið fram hjá Bornholm og inn yfir Svíþjóð. Loftskeytasambandið frá flug vellinum við flugvjelina hætti allt í einu og svaraði loftskeyta maðurinn ekki kalli frá Born- holm í tvær klukkustundir, þótt loftskeytatæki flugvjelarinnar væri í besta lagi. Loftskeytamað urinn var taugaóstyrkur er vjel in lenti og gat ekki gefið neina skýringu á því, að hann hefði ekki svarað. Áhöfnin skiftist í tvennt. Áhöfnin skiftist í tvo fjand- samlega flokka eftir að vjelin hafði lent. Starfsmenn flugvallarins telja að ósamkomulag hafi orðið á leiðinni milli áhafnarinnar og hafi sumir viljað flýja land í vjelinni. —■ Páll. „Bláa hékin 1949 er Villi valsvængur „BLÁA BÓKIN“ 1949 er kom- in út. Er það Villi valsvængur, eftir Edmund Walden í þýðingu Ölafs Einarssonar. Villi valsvængur er, eins og binar „bláu bækurnar11, drengja saga. Bókin ber nafn aðalsögu- hetjunnar, sem er Indíána- drengur. Hann ratar í mörg æv- intýri og miklar hættur. — Má gera ráð fyrir að Villi verði eftirlætisgoð allra röskra drengja eins og Persival Keene, Daniel djarfi, Klói, Dick Sand, Pjetur Haukur og Jói gullgraf- ari. Bókfellsútgáfan gefur bókina út. Hún er yfir 220 bls. a3 stærð. Allur frágangur er góð- ur. Hnefaleikamehtara- móf íslands HNEFALEIKAMEISTARA- MÓT íslands 1949 fór fram i íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar 18. þ. m. Keppt var í 7 þyngd- arflokkum. Keppendur voru 16. Úrslit urðu sem hjer segir: Fluguvigt: íslandsmeistarl Hörður Hjörleifsson (A). Fjað- urvigt: íslandsmeistari Guðm. Karlsson (A). Ljettvigt: ís- landsmeistari Jón Norðfjörð (K. R.). Veltivigt: íslandsmeisli ari Kristján Jóhannsson (A), Millivigt: íslandsmeistari Davíð Haraldsson (A). Ljettþunga- vigt: Islandsmeistari Björn Ey- þórsson (A). Þungavigt: ís- landsmeistari ÞorkeP Magnús- son (A). Mótið fór vel fram og áhorf- endur voru margir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.