Morgunblaðið - 20.12.1949, Side 8

Morgunblaðið - 20.12.1949, Side 8
8 MORGUNBLAfílÐ Þriðjudagur 20. des. 1949. Otg.: H.f. Arvakur, Reykjavlk. Frainkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson A.uglýsingar1 Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla- Auuturstræti 0. — Sími 1600 Askrtftargjald kr. 12.00 á mánuði, Innanlands, kr. 15.00 utanlands. í U'Usasðln <0 aura «intaki8 mr» mcA Vetrarhjálpin VETRARHJÁLPIN í Reykjavík hefur undanfarna daga leitað til bæjarbúa um nokkur framlög til stuðnings því iólki, sem hjálpar er þurfi. Mörg undanfarin jól hefur Vetrar- hjálpin beint þessum sömu tilmælum til Reykvíkinga og jafnan orðið vel til liðs. Nú eins og áður er allmargt fólk, sem vegna örðugra að- stæðna, getur lítinn jólaviðbúnað haft. Vetrarhjálpin vill rjetta því fólki hjálparhönd. Hún vill stuðla að því að bæta úr þörfum nauðstaddra og gefa einnig þeim sína jólagleði. íslendingar eru hjálpfúsir menn og greiðasamir. Það hafa þeir oftlega sýnt þegar vandræði, slys og óhöpp hefur borið að hendi einstaklinga eða jafnvel heilla byggðarlaga. Fátæktin hefur verið á undanhaldi í íslensku þjóðlífi undanfarin ár. Lífskjör þjóðarinnar hafa batnað og jafnast. Víðtæk tryggingarstarfsemi hefur ljett erfiðleikum af völd- v.m slysa, veikinda, elli og ómegðar mjög verulega af þús- undum heimila í landinu. Engum hugsandi manni getur blandast hugur um að þessi þróun hefur stefnt í rjetta átt. Hinar víðtæku tryggingar kosta að vísu mikið fje og sumir ólíta jafnvel að ríki og bæjarfjelög fái varla undir því íisið. Víst er um það að bæði ríkið og einstök sveitar- og bæjarfjelög hafa átt í miklum erfiðleikum með að gera full skil við Tryggingarstofnunina. En þeir erfiðleikar spretta .iyrst og fremst af erfiðleikum atvinnulífsins. Fullkomin tryggingarlöggjöf getur aldrei tryggt afkomu almennings. Grundvöllur hennar verður að vera þróttmikið og heilbrigt atvinnulíf. Fátæktinni verður ekki útrýmt nema með heil- brigðum atvinnurekstri og nægri og varanlegri atvinnu. Tvær hengingar BÚLGARSKA kommúnistastjórnin lætur skammt stórra höggva í milli. Ekki alls fyrir löngu ljet hún hengja aðal- leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, Petkoff leiðtoga bændaflokksins. Þessi stjórnmálamaður hafði tekið mjög virkan þátt í andstöðuhreyfingunni gegn nazistum á styrj- aldarárunum og tekið þátt í ríkisstjórn eftir að styrjöldmni lauk. Þennan mann þurfti kommúnistastjórnin að losa sig við. Hann var svo dæmdur til dauða fyrir andstöðu sína við stefnu stjórnarinnar.. Nú hefur annar maður verið hengdur í Búlgaríu. Hann heitir Traieho Kostoff, ráðherra í stjórn kommúnista og ritari flokks þeirra. Þessum stjórnmálamanni var m. a. gefið það að sök að hafa verið því meðmæltur í Moskva 1943 að Tito yrði gerður að æðsta ráðamanni í Júgóslavíu. Hann var einnig sakaður um að hafa rekið erindi erlendra ríkja í landi sínu. Traicho Kostoff neitaði öllum aðalákæruatriðunum gegn sjer. Hann neitaði að hafa rekið njósnir fyrir erlend ríki. Hann lýsti því yfir að sjer þætti vænt um Stalin og Sovjet- skipulagið. Hann krafðist sýknu. En dómstóll kommúnista- stjórnarinnar dæmdi hann sekan og ákvað að Kostoff skyldi hengdur eins og leiðtogi bændaflokksins. Þannig er „lýðræðið“ og „rjettaröryggið“ í löndunum austan járntjaldsins. Andstaða við stefnu valdhafanna varðar íífláti. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar eru teknir af lífi. Ekki nóg með það. Ráðherrar og æðstu valdamenn stjórnar- ílokksins, kommúnistaflokksins, eru ákærðir fyrir hina íjöl- þættustu glæpastarfsemi og síðan dæmdir til lífláts. í svipaðan mund og þetta gerist efnir kommúnistastjórn Búlgaríu til „kosninga“. í þeim er þannig í pottinn búið að aðeins stjórnarflokkurinn fær að hafa frambjóðendur í kjöri. Svo segir Moskvaútvarpið að geysileg þátttaka hafi verið í þessum búlgörsku , kosningum“!! Og kommúnistaflokkar allra landa taka undir lofsönginn um það „lýðræði“ sem þessar „kosningar" byggjast á, og sem liggur til grundvallar aftökum þeirra Petkoffs og Kostoffs. Hefur einstæðari skrípaleikur nokkru sinni verið settur í svið? Á veraldarsagan nokkurt greinilegra dæmi um geð- bilunarpólitík og fullkomna fyrirlitningu fyrir dómgreind almennings í lýðfrjálsum löndum? rar: Uíhuerji áhripa ÚR DAGLEGA f % ~ i Á .. ~ L ■ ~ -< LIFINU Jólatrje í hverjum bæjarhluta HÓLMFRÍÐUR biður um, að hún sje frædd á því, hvað orð- ið hafi af jólatrjenu, sem setja átti upp á Hlemm — þar sem gamla vatnsþróin var. Það var fallið frá, að setja Bergen-trjeð upp á þessum stað og i stað þess var það sett upp á Laugarnestorgi og þykir sóma sjer þar vel. Nú virðist vera vaknaður á- hugi í ýmsum bæjarhlutum fyr ir að fá jólatrje og er ekki nema gott eitt um það að segja útaf fyrir sig, en þó því aðeins, að íbúar hverfanna vilji eitthvað gera sjálfir til að koma trján- um upp og skreyta þau. • Greniskógur Reykvíkinga FYRIR SKÖMMU var bent á það hjer i Morgunblaðinu, að íslendingar geti sjálfir ræktað öll þau jólatrje, sem þeir þurfa að nota og vel það. Og það tek- ur ekki svo ýkja langan tíma að koma upp jólatrjám af þeirri gerð, sem nú prýða Austurvöll, Lækjargötuna og Kirkjubóls-, torgið. Þess var getið, að trjeð, sem Oslo gaf Reykjavík, kæmi úr skógi Osloborgar. Nú ættu Reykvíkingar að koma sjer upp eigin jólatrjes- skógi og hver veit, nema að við gætum í framtíðinni sent jóla- trje, að gjöf til borga úti í heimi, auk þess, sem við þyrft um ekki til annara að sækja í þeim efnum? • En þá er að byrja strax OG EKKI er eftir neinu að bíða, því fyr sem trjánum er plantað, því fyr verða þau orðin nógu stór til að þau komi að gagni. Við ættum því að hefjast handa þegar á næsta vori og hefja gfenirækt í Heiðmörk. í skóginum gæti hvert hverfi bæjarins haft sinn reit og þegar börnin, sem nú eru í barnaskól unum eru oi'ðin fullorðið fólk fengju þau ánægjuna af að sjá ávöxt sinna verka. Falleg og gagnleg ljósaauglýsing VEGFARENDUR um Austur- stræti um helgina fylgdust af athygli með nýrri ljósaauglýs- ingu, sem verið var að setja upp á húsi Ragnars Blöndals h.f. Er það skrautlegt og marg- lit sporöskjulagað merki, sem snýst í hringi. Öðru megin eru einkennisstafir fyrirtækisins, en hinum megin rafmagns- klukka, sem sjest endanna á milli í strætinu. Þetta er bæði gagnlegt og skrautlegt merki og ef þess verð ur gætt, að klukkan gangi rjett. En á því hefir orðið misbrest- ur, að klukkur, sem settar hafa verið upp á almannafæri, gengju rjett. „Hervörður“ við Tröllafoss ÞAÐ HEFIR vakið talsvert um- tal í bænum, að þegar Trölla- foss kom frá New York á laug- ardaginn var, stóðu tollvörður og lögregluþjónn við landgang inn og meinuðu mönnum að fara um borð. Er þeir voru að því spurðir, hvernig á þessari nýbreytni stæði, sögðust þeir „eiga að koma í veg fyrir flæking fólks um borð í skipið“. Ekki mun það vera á rökum reist, að eitthvað sjerstakt hafi verið um að vera, sem gæta þurfti með þessum ,,herverði“. En hitt er rjett, að fólk þyrpist um borð í skipin þegar þau koma erlendis frá, þótt það eigi lítið, sem ekkert erindi. Tefur sá erill fyrir mönnum, sem eru við vinnu og gerir alla af- greiðslu skipsins torveldari. Knattspyrnuveð- banki BÆJARBLÖÐIN birta við og við og til skiptis frjettir um, að nú ætli íslendingar, að taka upp veðbankastarfsemi í sambandi við knattspyrnu, að hætti margra erlendra þjóða. — En aldrei verður neitt úr þessum fyrirætiunum, þótt heimildir sjeu fyrir hendi. Mjer datt þetta í hug í sam- bandi við verksmiðjustúlkurnar ensku, sem unnu sem svarar einni miljón krónum í slíkri veðmálaþátttöku á dögunum. • Styrkur fyrir íþróttastarfsemina ÍÞRÓTTASTARFSEMIN ís- lenska gæti haft mikinn fjár- hagslegah styrk af slíkri veð- bankastarfsemi. Vitað er að allmargir íslendingar taka þátt í knattspyrnuveðmálum, bæði á Norðurlöndum og í Englandi, þótt ekki sje vitað til, að neinn hafi dottið í lukkupottinn og hlotið stórfje ennþá. Þá er það einnig vitað, að nokkuð er um veðmálastarfsemi meðal manna á íþróttavellinum á sumrin, þótt ekki fari það hátt. Ekki fá iþróttaf jelögin neinn skatt af þeim veðmál- um. Forystumenn íslenskra íþróttamála ættu að athuga þetta mál gaumgæfilega og ekki láta sjervisku, eða íhaldssemi aftra sjer frá að koma þessum veðbanka upp. Það er með þetta eins og svo margt fleiri, að betra er að hafa það opinbert, en í pukri. 4 ......................................................................... | MEÐAL ANNARA ORÐA .... •* ..........................iiiiiniiniumimiMimnmmummmimniimimianÉl Iðnframleiðslu Júgóslavíu er mjög ábólavant Eftir frjettamann Reuters. BELGRAD: — Aðalmálgagn kommúnistaflokks Júgóslavíu, Borba, birti nýlega kvartanir yfir, hve verksmiðjuvörum í landinu væri ábótavant um gæði og fjölbreytni. • • LJÓT OG FÁ- BREYTT FRAM- LEIÐSLA BLAÐIÐ fór hörðum orðum urti amlóðaháttinn í þessum efnum og komst svo að orði, að hann ynni gagngert að sóun þjóðarauðsins. Borba sagði, að vandinn væri oft svo til kom- inn, að verksmiðjurnar eyddu allri orku sinni í að framleiða það magn, sem þeim ber eftir 5 ára áætluninni, svo að lítt er hugað að gæðum vörunnar og fjölbreyttni. Blaðið bætti því við, að ó- hemjumagn af skófatnaði, sem framleiddur er í þjóðnýttum verksmiðjum Júgóslavíu væri óseldur, vegna þess, hve þar er um Ijelega vöru og óásjá- lega að ræða. Blaðið benti í þessu sambandi á verksmiðju í Boravo, sem „lofar framleiðslu ljelegra skóa aðeins til að hægt sje að fylgja áætluninni um framleiðslumagn“. Sama verð- ur ofan á hvarvstna, og skýrir það raunar, hversvegna „ljótar vörur, klæðnaður, illa gerð leik föng, verkfæri og húsgögn eru allsstaðar á vegi rnanna". • • FLEIRI ÁSTÆÐUR BORBA telur, að fleiri rætur liggi að því, hve mikið skortir á, að vöruvöndunin sje viðlít- andi. 1) Stjórnendur sumra fyrir- tækja gefa ekki nægan gaum smekk viðskiptavinanna. 2) Sölustofnanir og kaupfje- lög taka við nýframleiðslunni án þess, að gengið sje úr skugga um, að hún sje samkeppnishæf. 3) Eftirlit stjórnarinnar hef ir „skipt sjer af frekar fáum málum þessa eðlis, og refsað örsjaldan misindismönnunum fyrir að sóa þannig þjóðarauðn um“. • • SUMUM REFSAÐ TIL að mynda hefir ekki nema 20 mönnum, sem bera ábyrgð á framleiðslunni, verið hegnt i Serbíu til þessa. Að vísu var þessi tala nokkru hærri í Sló- veníu og Króatíu. En í Make- dóníu og Svartfjallalandi hefir ekkert verið að þeim sorfið. • • BETRA SUMSSTAÐAR EKKI er þó allt illt um fram- leiðslu Júgóslavíu að segja. Borba bætti því við, að „betri og fjölbreyttari vörur“ væri búnar til í mörgum öðrum verk smiðjum og framleiðsla lands- ins hafi aldrei verið eins mikil og nú. í mörgum „samvinnu- smiðjum verkamanna“ er háð áköf barátta fyrir vöruvöndun, sagði blaðið. í klæðaverksmiðj- unni í Barteks voru til að mynda greindar og skoðaðar vörur þær, sem hver hópur verkamanna hafði búið til. • • ftórða hver SPÝTA VAR ÓNÝT í eldspýtusmiðjunni í Osijek var framleiðslunni svo áfátt, að fjórða hver spýta var ónýt. En á þessu hefir orðið bót, svo að nú er ekki nema 30. hver eld- spvta ónýt. í verksmiðju einni í Belgrad, ,,Proletar“, var aðeins búin til ein skógerð 1947. Árið 1948 voru þær orðnar 9 og þetta árið verða gerðirnar 11. 70 m. skíðastökk. NOREGSMEISTARAKEPPNIN í skíðastökki fer fram í vetur í , Skuibakken" við Osló. — Stökk brautin var reynd í gær, og var stökklengdin 70 m. þótt aðrennslu brautiii hafi aðeins verið „stutt“. — GA.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.