Morgunblaðið - 20.12.1949, Síða 14

Morgunblaðið - 20.12.1949, Síða 14
14 MORGUISBLAÐIÐ Þriðjudagur 20. des. 1949. Framhaldssagan 39 SEKT OG SAKLEYSI Eftir Charlotte Armstrong Í,,Mjer datt í hug, að spyrja yður, hvort þjer hefðuð sjeð bíl fara hjey um“, sagði hún. ,,En úr því þjer voruð ekki hjer. .“. ,,Jeg var á númer sextíu og átta“, sagði hann og spýtti. „Hvar?“ ,,Þarna“. Hann benti vfir í næsta garð. „Jeg vinn þar á fimmtudögum og hjer á föstu- dögum“. ,,Þá sáuð þjer ef til vill þenn- an bíl. Það stóð D P.W. á hon- jf um. Það var í gærmorgun". ,,Já“, sagði hann og spýtti 1 aftur. • I „Sáðu þjer hann?“ „Já, víst sá jeg hann“. Það | var einhver leyndardómsfull- I ur svipur á andliti hans, eins j og hann vissi meira, en hann | mundi segja ef hún hefði ekki || vit á að spyrja um það. „Var annar maðurinn að bíða | eftir áætlunarbílnum?" „Það veit jeg ekkert urp“. „Það skiptir heldur ekki ! máli. En í hvaða átt fór bíll- f inn?“ „Þessa“, sagði hann og benti. „Fór hann beint áfram, eða beygði hann inn hliðargötu?11 Hún hugsaði um leið: Þetta i tekst aldrei. Það er vonlaust að jeg finni hann nokkurn tím- ann. „Hann beygði inn á Dabney- Street“, sagði hann. „Nú .... nú, já. Þakka yður kærlega fyrir“. Hún ætlaði að v íeggja af stað en sneri við aft- ur. „Tókuð þjer eftir nokkru .... nokkru sjerstöku?“ „Nei, jeg tók ekki eftir neinu sjerstöku“, sagði hann, en I henni fannst hún geta lesið úr svip hans, að hann hjeldi ein- hverju leyndu. Það var víst eitt I hvað undarlegt við þetta, hugs- ! aði hún. Hún þakkaði honum fyrir aft : ur og gekk hratt niður 'að horn inu á Dabney-Street. — Hvað ; átti hún að gera núna? Ætti hún að fara til lögreglunnar? og segja þeim frá bílnum? Lög reglan mundi ábyggilega geta haft upp á öllum bílum, sem voru þannig merktir. Þessir bíl ar hlutu að vera eign bæjarins. I' Hún hljóp til baka. Garðyrkjumaðurinn var ekki í enn farinn að vinna aftur. Hann stóð enn í sömu sporum og horfði á eftir henni. „Mig langar t.il að spyrja um eitt ennbá“, sagði hún. „Var bíllinn ekki hjeðan. — Jeg á við. hvort bærinn hjer hafi ekki átt hann“. „Jú, iú“, sagði hann. Hann dró beiglaðan hattinn neðar á ennið og tók til að klippa aftur. Hann gaf henni ekki frekari gaum. Mathilda gekk aftur niður götuna. Hún sneri til vinstri við Dabney-Street, eins og bíllinn hafði farið. Bíllinn sem Francis hafði farið í, eða sem Kún hjelt að Francis hefði farið í. Það var að minnsta kosti mögukiki. .— Iiún gekk nokkur skref til bess að komast úr augsýn garðyrkju mannsins. Svo nam hún staðar. Hún vissi ekki, hvað hún ætti , til bragðs að taka. j ,Gángst|jetjtm ggt elfki jlejð- “ééint! néniii néitf.' iíúsxú njer stóðu heldur nær götunni .... og þó. Hvernig ætti nokkur að muna það, þó að bíll hafi ekið hjer framhjá í gærmorgun? — Hvar átti hún að spyrja? Henni fannst hún vera ákaf- lega lítil og hjálparvana. Það þýddi ekkert að ganga áfram eftir Dabney-Street. — Hún mundi ekki hafa neitt upp úr þvi. Lítill drengur sat á þríhjóli og virti hana fyrir sjer. Hann var á gangstjettinni fyrir fram an húsið á horninu. Hann var líklega nálægt því að vera þriggja ára. Mathilda gekk í áttina til hans. Hún ætlaði að spyrja hann. Nei, hugsaði hún. Þetta er bara krakki. Hann veit ekk- ert. Hún tvístje óákveðin við hiiðið fyrir framan stíginn upp að húsinu. Dyrnar opnuðust skyndilega og móðir hans kom út. Hún leit tortryggnislega á Mathildu, eins og hún grunaði hana um að hafa eitthvað illt í hyggju. Hún kom niður gangstjettina. Hún var bara í þunnum ljereftskjól og flýtti sjer, því að vorloftið var svalt. „Gigi.. . .“. * Gigi hafði ekki augun af Tyl. „Lofaðu mjer að sjá hendurn ar á þjer“. Hann rjetti fram óhreina lófana. Konan stakk höndunum ofan í vasana á kápu barnsins. Hún leit yfir öxlina á Tyl. „Vilduð þjer mjer eitthvað?" sagði hún og reyndi að vera kurteis. „Jeg... .“. Tyl vafðist tunga um tönn. „Mig langaði til að spyrja um dálítið", sagði hún. „En jeg veit bara ekki hvern- ig jeg á að fara að því. — Jeg ætlaði að spyrja litla drenginn yðar að því, en jeg held að hánn sje of lítill til að muna það“‘. „Muna hvað?“ „Bara .... hvort hann mundi eftir sjerstökum bíl, sem fór hjerna framhjá í gærmorgun". „Hann man það ekkert“. „Nei, jeg bjóst líka við því“, sagði Tyl. Hún ætlaði að halda áfram en nam staðar aftur. „Komdu og lofaðu mjer að þurka á þjer hendurnar“, heyrði hún að konan sagði. — „Hvar í ósköpunum.......náð- irðu í meira af þessu .súkku- laði?“ „Jam“, sagði Gigi. „Tíndirðu það aftur upp af götunni og stakkst því upp í þig?“ „Jam“. „Manstu ekki hvað mamma var búin að segja við þig?“ „Jam“. „Hann er svo mikill óviti“, sagði konan afsakandi við Tyl, sem enn stóð á gangstjettinni. „Hann tínir upp í sig hvað sem er og það er svo hættulegt. — Gigi, jeg sagði þjer að þú ættir að fleygja þessu brjefi“. Konan tók eitthvað upp úr litla vasanum og fleygði því frá sjer. Gigi rak upp hljóð. „Þú mátt ekki geyma þetta. Þetta er óþverri, sem einhver En Mathilda var komin að henni og spurði með öndina í hálsinum: „Hvenær fann hann þetta súkkulaði? Var það í gær?“ „Já, það var í gær“, sagði konan undrandi. „Ó, þakka yður fyrir", hróp- aði Mathilda. „Þakka yður kær- lega fyrir. Það var einmitt það, sem ieg burfti að víta“. Hún bevgði sig mður og tók upp brjefið. Það var marglitt í sterkum litum, og sást vel í grasinu. Hún sljetti úr því. Þarna var hollenska merkið í horninu. Þetta var brjef utan af einum molanum úr kassanum, sem hún hafði gefið Grandy. Francis hafði tekið handfylli af molunum í herberginu henn- ar um kvöldið. Hann hafði stungið þeim í vasa sinn. Það gat enginn verið nema Francis eða Grandy sém hafði týnt eða. fleygt þessu. Og bíllinn hafði beygt hjer inn Dabney-Street. Francis! Hún var kohiin á slóðina. „Ó, þakka yður fyrir. Þakka yður kæidega fyrir“. Tyl hlióp niður á götuna. Konan stóð agndofa af undrun og horfði á eftir henni. Tyl gekk áfram eftir Dabney Street. Hún ríghjelt um brjefið í vasa sínum. Ó, Francis. Hann hefði ekki verið ráðalaus. En þetta sýndi líka að hann hafði ekki farið upp i bílinn af frjáls um vilja. Eða því skyldi hann annars fleygja út súkkulaði- molum til þess að hægt væri að rekja slóðina? 28. KAFLI. Eða kannske hafði hann tekið upp molann til að borða hann og misst hann óvart — Kannske átti líka einhver ann- ar hollenskt súkkulaði. En . . nei. Nei. Að minsta kosti verð jeg að ganga áfram eftir Dab- ney-Street og vita hvort jeg finn ekki fleiri, hugsaði hún. . Hún gekk áfram og horfði niður fyrir fætur sjer og með- fram göturæsinu. En þetta var í gær. Það gat eins verið að önnur börn hefðu fundið mol- ana. Henni datt í hug Hans og Grjeta í ævintýrinu og fugl- arnir, sem átu bÆuðmolana, svo að þau rötuðu ekki heim aftur. A næsta götuhorni nam hún staðar og hugsaði sig um. Bíll, sem beygir, er hægra megin á götunni. Francis mundi líklega hafa setið hægra megin í bíln- um. Hún gekk fyrir hornið. Þar var ekkert. Þá hugsaði hún með sjer, að ef bíllinn hefði j beygt til vinstri, þá hefði ; Francis verið þeim megin, sem sneri út að götunni. Hún leit- aði meðfram grasræmunni, sem var í miðri götunni. Ekk- ert þar. Hvað átti hún nú til bragðs að taka? Leitin varð enn von- lausari, eftir því sem hún gekk lengra. í hvert skipti og hún kom á gatnamót, mundi hún þurfa að velja um þrjár göt- ur, og ef hún hjeldi áfram, mundu möguleikarnir enn þre- faldast. Þetta mundi vera til— gangsláust. A iieimseiMÍa köldum Eftir frú Evelyn Stefánsson, konu hins heimsfræga landa okkar Vilhjálms Stefánsscnar, í þýðingu Jóns Eyþórs- sonar veðurfræðings, cr bókin, sem allir bókavinir kjósa sjer. Prentimi&jan (/)</J' l.j. Beslu jólagjaiabækur handa unglingum Prentsmiðja Austurlands h.f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.