Morgunblaðið - 07.01.1950, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.01.1950, Blaðsíða 6
6 MORGUNPLAÐIÐ Laugardagur 7. janúar 1950. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbðB. j|[ kr. 15.00 utanlands. Vjelbátaútgerðin og til- lögur ríkisstjórnarinnar RÍKISSTJÓRNIN hefur nú í samræmi við yfirlýsingu for- sætisráðherra í nýársboðskap hans á gamlárskvöld lagt fram frumvarp á Alþingi um bráðabirgðaráðstafanir til þess að gera vjelbátaútgerðinni mögulegt að hefja vetrarvertíð. — Miða þessar ráðstafanir eingöngu að því að tryggja rekstur þessarar þýðingarmiklu atvinnugreinar þar til tími hefur unnist til þess að afgreiða löggjöf, sem feli í sjer varanlega lausn á vandamáli atvinnulífsins í heild. Ríkisstjórnin hefur marglýst því yfir að það sje ásetningur hennar að leggja íram tillögur, sem feli slíka lausn í sjer. Er enda vitað að uppbótaleiðin til tryggingar rekstri atvinnutækjanna er orð- in ófær. Hvorki fjárhagur ríkisins nje gjaldgeta borgaranna fær risið undir þeim gífurlegu útgjöldum, sem af henni leiða. Aðalatriði þeirra tillagna, sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi eru þau að ríkissjóður ábyrgist vjelbátaútgerð- ínni ákveðið verð á útflutningsvörum hennar í janúar og febrúar. Ef löggjöf hefur ekki verið sett 1. mars, er að dómi ríkisstjórnarinnar leysi til frambúðar rekstursvandamál báta útvegsins þá framlengist ábyrgð ríkissjóðs á afurðaverðinu þar til slík löggjöf hefur verið sett þó eigi lengur en til 15. maí 1950. I þessum bráðabirgðatillögum ríkisstjórnarinnar er jafn- hliða gert ráð fyrir því að ríkið ábyrgist hraðfrystihúsunum útflutningsverð afurða þeirra. I sambandi við þessar tillögur er ástæða til þess að leggja áherslu á það, að þeim er fyrst og fremst ætlað að koma í veg fyrir það tjón, sem af því hlyti að leiða fyrir þjóðar- heildina, ef bátaútvegurinn og hraðfrystihúsin stöðvuðust gjörsamlega um lengri eða skemmri tíma. Á það er rjettilega bent af ríkisstjórninni að fullvíst er að það tæki Alþingi langan tíma að afgreiða löggjöf, sem felur í sjer varanlega lausn á vandamálum íslensks atvinnu- og efnahagslífs í heild. Það tekur ríkisstjórnina einnig lengri tíma en hún til þessa hefur haft að undirbúa slíka löggjöf í hendur Al- þingis. Af þessum ástæðum átti ríkisstjórnin einskis annars úrkostar en að leggja fram tillögur um bráðabirgðaráðstaf- anir, sem kæmu útgerðinni af stað upp úr áramótum. Ríkisstjórnin hefur því í hvívetna farið rjett að. Hún frestaði að bera fram tillögur sínar um bráðabirgðaráðstaf- anir þar til óskir útgerðarinnar og hraðfrystihúsanna lágu Ijósar fyrir og tækifæri hafði gefist til þess að fá yfirsýn um möguleika til þess að koma henni af stað. En hún vinnur jafnhliða að því af fullum krafti að undirbúa ráðstafanir, sem leysi ekki aðeins vanda útvegsins og hraðfrystihúsanna, heldur atvinnulífsins í heild. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst því yfir að hann álíti að uppbótaleiðin sje ófær orðin til þess að tryggja rekstur út- flutningsatvinnuveganna. Þess vegna ber ekki að líta á þess- ar bráðabirgðatillögur hans sem stefnu flokksins. Þær eru þvert á móti „troðin slóð“ eins og Ólafur Thors forsætis- láðherra hefur orðað það. Stefna Sjálfstæðisflokksins og nú- verandi ríkisstjórnar er afnám uppbótarleiðarinnar og halla- laus framleiðslustarfsemi í meðalárferði, afnám hafta og banna og verslunarfrelsi. En í sambandi við hina tímabundnu ríkisábyrgð á út- flutningsafurðum bátaútvegsins verður ekki hjá því komist að benda á skyldu Alþingis til þess að sjá fyrir tekjum til þess að standa undir þeim útgjöldum, sem hún kann að baka líkissjóði. 1 frumvarpi ríkisstjórnarinnar er að sjálfsögðu gert ráð fyrir tekjustofnum í því skyni. Það bæri vott full- komnu ábyrgðarleysi ef þingið samþykkti slíkar ábyrgðar- skuldbindingar á ríkissjóð án þess að tryggja jafnframt fje til þess að standa undir þeim. Verður því ekki að óreyndu trúað að meirihluti Alþingis leiki slíkan leik. Ríkisstjórnin mun leggja allt kapp á undirbúning varan- legrar lausnar vandamála atvinnulífsins og telur höfuðnauð- syn bera til þess að þær hafi verið samþykktar fyrir 1. mars eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi hennar um bráðabirgða- láðstafanir vegna útvegsins. Þau áform hennar verða að njóta skilnings og atbeina allra ábyrgra afla í þjóðfjelaginu. \JílwerjL ólripar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Skemmdarverk FYRIR nokkrum dögum stóð bifreið erlends fulltrúa í einu af sendiráðunum í Reykjavík fyrir utan hús nokkurt við f jöl- farna götu. Hinn erlendi fulltrúi var í boði. Bifreiðin var greinilega merkt með stöfunum ,,C.D.“ sem þýðir að eigandinn sje starfsmaður erlends sendiráðs. Á bílnum voru einnig merki bifreiðaeigendafjelaga í nokkr- um löndum, þar sem sendifull- trúinn hafði dvalið áður. Meðal annars merki danska bifreiða- eigenda fjelagsins. Merkið er skrautlegt, eins og títt er um þessháttar merki. Þegar eigandinn kom að bíl sínum, tók hann eftir því, að búið var að saga danska merk- ið frá vatnskassahlíf bifreið- arinnar. Þjófnaður Á DÖGUNUM komu nokkrir menn til að borða saman kvöld- verð í veitingahúsi hjer í bæn- um. Ekkert sjerstakt var um að vera í sölum veitingahússins þetta kvöld og fengu mennirn- ir lítið herbergi út af fyrir sig til að borða í. Þeir skildu yfirhafnir sínar og höfuðföt eftir frammi í fata geymslu, en enginn var þar vörðurinn að þessu sinni. Er þeir fjelagar fóru heim um kvöldið vantaði einn frakk- ana. Einhver óráðvandur ná- ungi hafði komið inn af göt- unni og stolið frakkanum. • Rifrildi og tætingur FRAMANGREINDAR smásög- ur, sem nýlega áttu sjer stað hjer í bænum eru sönn dæmi um það rifrildi og tæting, sem á sjer stað svo að segja dag- lega víðsvegar í bænum. Skemmdarverkin eru vandal ismi, eða sjúkdómur, því varla getur nokkur maður haft gagn af að stela merki erlends fje- lags. En ekki er fyrirhöfnin spöruð, því skemdarverkamað- urinn hafði ekki rifið merkið frá, heldur klippt með stáltöng um, eða sagað festinguna í sundur með járnsög. Frakkaþjófnaðurinn er vafa- laust annars eðlis, en þó varla framkvæmdur af þörf, eða neyð. • Ergilegt öryggisleysi SKEMDARVERKIN og smá- þjófnaðirnir valda borgurunum ergilegu öryggisleysi. Menn geta ekki verið óhult- ir um eignir sinar. Oþokkar brjóta trje í görðum manna, rífa og tæta alt laust og fast hvar sem það er. Hart er að geta ekki skilið eftir yfirhöfn í fatageymslu á opinberum stað, án þess að eiga á hættu að henni sje stol- ið. — Virðingarleysið fyrir eign- arrjettinum er tímanna tákn, segja sumir og ypta öxlum. En það er engin lausn á mál- inu að segja slíkt, heldur verð- ur að gera ráðstafanir til að uppræta þenna fjára. • Ánægjuleg jólatrjesskemtun FYRIR áramótin vjek jeg að því, að vel væri það, ef einhver góður fjelagsskapur stofnaði til jólatrjesskemtunar fyrir þau börn í bænum, sem ekki ættu þess kost, að sækja slíka gleði- fundi, sem daglega eru haldnir um þessar mundir fyrir yngstu borgarana. Nú hefir það verið gert. — Oddfellowreglan gekkst fyrir jólatrjesskemmtun núna í vik- unni fyrir börn, sem varla hefðu átt þess kost, að sækja skemtanir annara fjelaga. Varð þetta hin besta skernt- un og til ánægju bæði fvrir börnin og þá er að henni stóðu. • Um 400 börn á skemmtuninni ODDFELLOWAR höfðu þá að- ferð er þeir buðu börnunum til fagnaðarins, að leita aðstoðar mæðrastyrksnefndar, fram- færslufulltrúa bæjarins og ann ara líkra stofnana um hverjum skyldi bjóða. Var rjettilega tal- ið, að með því myndi helst nást til þeirra, sem út undan yrðu frá öðrum skemmtunum. Eíga Oddfellowar þakkir skyldar fyrir að eangast fvri-r skemmtun fyrir börnin og veitá þeim gleðilega kvöldstund. Utivera unglinga á kvöldin ÞAÐ FER ekki hjá því, að bæj- árbúar hafi véitt því eftirtekt, að fjöldi unglinga, stundum í stórhópum, er á flækingi, eða að leikjum á götunum löngu eftir það sem talin hefir verið eðlilegur háttatími unglinga innan við fermingu. • Lögreglusamþykktir VIÐ EINA íbúðargötuna í vest- urbænum mætti jeg strákahóp klukkan að ganga 11 í fyrra- kvöld. Voru þeir með ærsl, eins og gengur er strákar koma sam an, en eneinn beirra mun hafa verið eldri en 12 ára. Sama kvöld rakst jeg á ann- an strákahÓD á líku reki í öðru bæjarhverfi. Lögreelusambvktin mun setja einhveríar reglur fyrir útiveru unelinea á kvöldin, ef þeir eru elrVi f fvled með full- orðnum, eða í ákveðnum erind- um. Væn fró^leet að fá að vita hversveena hessum fyrirmæl- um löeroffiusamþykktarinnar er ekki fylgt. yiiiiuiiiniiiiiiiiiiuiiiiiuimiiinniiiiniiiiiiiiiiininiiiiuiniiiiumiuiiiiiiiiuuiiiiiiiiinnniMninn^n^iniiiininniiuiimuimuMunnDniiiiiii' nm 1111111111111111111111111111*1 MEÐAL ANNARA ORÐA .... 1 a 1 iiimiimitiiisiiiiiiMeMimiriiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiit,miMliiii",,""M'""i,i"iiiiiiiiimiiiiiiiiMiiiiii? > Menn skyldu kynnasJ tengdaforeldrum sínum iímanlega Frá frjettaritara Reuters. KAUPMANNAHÖFN: — Áður en þú tekur lokaákvörðun um að giftast stúlkunni, máttu ekki láta hjá hða að virða móður hennar vel fyrir þjer. Það sama á við um stúlkuna: hún skyldi ekki gleyma því að velta tengda föðurnum tilvonandi rækilega fyrir sjer. Þessi h’eilræði er að finna í bókinni „Vi skal giftes“, sem út kom hjer í Kaupmannahöfn í síðastliðnum mánuði. • • MÁLSHÁTTUR SEX karlar og konur'standa að þessari bók. Markmið hennar er, að taka til ítarlegrar athug- unar ýmiskonar vandamál, sem höfundarnir telja að fylgi trú- lofunum og giftingum. í formála að „Vi skal giftes" er vakin athygli á eftirfarandi málshætti, sem mun vera rúss- neskur: „Signdu þig einu sinni, áður en þú gengur til orustu; signdu þig tvisvar sinnum, áð- ur en þú ferð til sjós; en signdu þig þrisvar sinnum, áður en þú giftist". • • ÞARF AÐ KYNN- AST FJÖLSKYLD- UNNI í KAFLA með heitinu „Ef gift- ingin á að heppnast", ritar lækn ir meðal annars: „Karlmaður- inn skyldi kynnast tilvonandi tengdamóður sinni, áður en lokasporið er stigið. Og stúlkan ætti fyrir sitt leyti að krefjast þess áð fá að kynnast tengda- föðurnum tilvonandi". ‘ Enda þótt það verði að vísu ekki fullyrt, að viðkomandi ætli að ganga að eiga alla fjöl- skyldu makans, segir læknir- inn ennfremur, ber að leggja áherslu á nauðsyn þess, að hver aðilinn fyrir sig kynnist fjöl- skyldu hins og heimilisástæð- um. Á þann hátt er hægt að afla sjer talsverðrar vitneskju um, hvernig unnustinn eða unn ustan muni „taka sig út“, er fram líða stundir, og hvernig hann eða hún muni verða á silfurbrúðkaupinu. • • TRÚLOFUNAR- ÁSTANDIÐ LÆKNIRINN bætir því við, að ekkert hjónaband geti blessast, nema hjónin skilji til hlýtar kosti og vankosti hvers annars. Lögfræðingur, sem skrifar í bókina, ritar heldur þurrlega um „sæluástand" trúlofunar- tímabilsins. Lögfræðingurinn yptir öxlum yfir „unaðslegu kvöldstundunum", „angurværu músíkinni" og „daufu lampa- ljósunum“, sem ýmsir nefna í sambandi við trúlofunina, en segir í þess stað berum og ó- sköp „órómantískum“ orðum: „Trúlofun er samkomulag karls og konu um að ganga í heilagt hjónaband að einhverjum tíma liðnum". Hann lvkur orðum sínum með því að vekja athygli á því, að ef tn'tTofnn sie slitið, hafi báðir aðilar lagaleaan rjett til að krefjast bess. að öllum þeim gjöfum sio skilað aftur, sem gefnar hafi verið með þeim for- sendum. að viðkomandi ætli að ganga að eigást. Drísk börn frá Júgóslavíu BELGRAD, 6. jan. — Það er alkunna, að grískir kommún- istar rændu þúsundum griskra barna, meðan borgarstyrjöldin geisaði, og komu þeim til ná- grannaríkjanna til kommúnis- tisks uppeldis. Nú hefur stjórn Júgóslavíu tilkynnt, að hún muni ieyfa þeim grískum börnum, sem þar eru í haldi, að fara til foreldra sinna, þeirra er flytjast til Ástralíu. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.