Morgunblaðið - 11.02.1950, Síða 1

Morgunblaðið - 11.02.1950, Síða 1
16 síður 37. árgangui 35. tbl. — Laugurdagur 11. fe])rúar 1950. Prentsmiðja Morgtmbla5sms Heimsiriðnum brúð hættu búin vegnu skipt- ingar Þýskulnnds Martin Hiemöller kveður sjer hljóðs Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. WIESBADEN, 10. febrúar: — Martin Niemöller, endurtók enn í dag áskorun sína um, að herafli á vegum S. Þ hernæmi Þýska- land, svo að endir yrði bundinn á núverandi skiptingu landsins. Niemöller var kafbátsforingi í heimsstyrjöldinni fyrri, Hitler skipaði á sínum tíma, að honum skyldi haldið í fangabúðum í átta ár, enda hefir hann um skeið verið einn nafntogaðasti kennimaður Þýskalands. Niemöller segir: „Skiptingu® Þýskalands verður ekki lokið á annan hátt en þann, að herlið á veg'urn S. Þ. hernemi allt land ið. Þessi klofning, sem nú er, verður að teljast ein mesta ógn- un við friðinn. ,,Járntjaldið“ fjelli Ef 5000 sænskir hermenn tæki við hersetu landsins frá vesturlandamærunum til Oder- Neisse-línunnar, þá yrði það ekki aðeins til þess, að járn- tjaldið fjelli, en mundi og greiða götu sameiginlegum kosn ingalögum fyrir allt landið. Bráð hætta Þjóðverjar verða sífellt meira og meira gestir í eigin landi, og það er bein ógnun við friðinn, að halda því skiptu í tvennt. — Það er skelfilegt til þess að vita, að það eru ekki aðeins Vestur- veldin, en líka íbúar V.-Þýska- lands, sem þegja um þenna háska og telja mönnum trú um, ,að varanleg lausn hafi verið fundin með stofnun v.-þýska 'sambandslýðveldisins“_ Merkileg byggmg brennur til kaldra kola RÓMABORG, 9. febrúar: — í gærkveldi kom upp eldur í ráð- ‘húsi Caterina Albanese-borgar á Suður-Ítalíu. Varð þetta mik- ill bruni. í alla nótt voru bruna liðsmenn að berjast við eldinn, en við ekkert varð ráðið. Er ráðhúsið, sem var gömul og merkileg bygging, nú brunnið til kaldra kola og að nokkru hrunin. Grunur leikur á, að hjer hafi verið um íkveikju að •ræða. — Reutér. Smádýrum fækkar í Noregi BERGEN. 10. febrúar. — Alls konar villt dýr eru nú að verða næsta fátíð hjer vestan lands. Það er næstum viðburður, ef menn sjú ijúpu, orra eða hjera. Hafa tekjur af veiðum þessara dýra, næi með öllu horfið að undanfömu NTB. Seldi leyndartnálin í hetidur Rúsuim LONDON, 10. febrúar. — Dr. Claus Fuchs, sem starfað hefur að kjarnorkurannsóknum um árabil, hefur játað að hafa selt Rússum í hendur upplýsingar um kjarnorkuna. Fuchs var þýskui kommún- isti og' flýði land undan Hitl- er. Sökum kunnáttu sinnar var honum falið ábyrgðarstarf við kjarnorkurannsóknir. Þá vakn- aði upp í honum þjónslundin við rússnesku kommúnistana. Tvívegis seldi hann upplýsing- ar af hendi fyrst í Bandaríkj- unum 1945 og í Englandi 1946. —Reuter. Lindström og Ingrid Bergman skilja HOLLYWOOD, 10. febrúar. — Vinur Peters Lindström. sem er maður Ingrid Bergman, skýrði frá því í dag, að hann mundi sækja um skilnað við konu sína jafnskjótt og lögfræðingar þeirra koma sjer saman um skifting eignanna og hvoru beri 11 ára dóttur þeirra, Pia. —Reuter. Rændu flótfamanni og rrseldiírr Rússum VÍN, 10. febr.: — Yfir- menn Bandaríkjamanna sltýrðu frá því í dag, að tveir menn úr herlögreglu Bandaríkjamanna í Vínar borg hefði verið teknir höndum fyrir að ræna flóttamanni nokkrum og ,,selja“ hann Rússum. — Fengu þeir 7000 austur- ríska schillinga fyrir manninn, sem er Þjóð- verji. — Reuter. Flýja unnvörpum undan a-þýskum kommúnistum Verður hún drottning! Rækileg hreingeming í undstöðuflokkunum Fje seit li! höfsiðs flótiamöitnunum. Einkaskeyti til Mbl. frá NTB BERLÍN, 10. febrúar. — Flóttamannastraumurinn frá A-Þýska- landi til V-Berlínar hefir farið mjög í vöxt eftir áramótin. Flóttamannaskrifstofa borgarinnar skýrði frá því í dag, að í janúar hafi 2142 flóttamanna komið til vesturhluta borgar- innar, á móti 1500 í des. s. 1. FULLYRT er nú , að þessi stúlka verði drottning. Farouks Egyptalandskonungs. Hún er aðeins 16 ára gömul og heitir Narriman Sadek. ióflóð verður manns á bana PARÍS, 10 febrúar. — í dag sópaði snjóflóð með sjer tveim fjallakofum við Tignes í frönsku Ölpunum Munu níu manns hafa látið lífið af vöid- um flóðsins, þar á meðal eitt barn. Seinast er frjettist, höfðu björgunarmenn grafið upp 5 lík, þar af þrjú af konum. — Einnig grafið eitt barnslík og annað bain er vart var hugað líf. Rúmlega tveggja m-etra djúpur snjór tálmaði mjög björgunarstarfinu og hætt var talið við nýjum skriðum. —Reuter. Bensín skammtað enn þá í Indlandi NÝJU-DELHT, 10. febrúar, — Stjórn Indlands mun ekki fylgja dæmi Ástralíumanna með því að afnema skömmtun á bensíni, en sem kunnugt er, var bensínskömmtun feld nið- ur í Ástralíu hinn 8. þ. mán. Telur Indlandsstjórn sig ekki hafa tök á að eyða þeim erlenda gjaldeyri (dollurum), sem af- nám skömtunarinnar hefði í för með sjer. — Reuter. Hernámssijóri Breta í Lundúnum LONDON 10. febrúar. — Brian Robertson, hernámsstjóri Breta í Vestur-Þýskalandi er nú kom- inn heim. í dag gekk hann á fund Bevins og flutti honum skýrslu urn Þýskalandsmálin og framvindn þeirra, meðan utan- ríkisráðherrann var fjarverandi á samveldislandaráðstefnunni — Reuter. Engsr auðmenn nje efnafólk og kjör fátæklinga þrengd Rekur að því, að allir Tfekkar búi við örbirgð Seinustu daga lielir verið lát- laus straumur embættismanna og stjórnmálamanna, sem ekki eru kommúnistar, frá hernáms- svæði Rússa. Andstæðingar kommúnista verða að hverfa. I dag leitaði skrifstofustjóri a-þýska verslunarmálaráðu- neytisins hælis í V-Berlín. Hann er í kristilega demókrataflokkn um í A-Þýskalandi. Fer nú fram hreinsun í þeim flokki. Allir þeir, sem andvígir eru kornm- únistum í flokknum. verða að hverfa. Enn fremur varð kunn- ugt í dag, að verkamálaráð- herrann í Saxlandi, sem er í sama flokki, hafi nýlega fengið skipun frá kommúnistum urn að draga sig í hlje. Þakka kommúnistum. Málgagn kristilegra demó- krata í A-Berlín, Neue Zeit, flyt ur kommúnistunum í dag þakk- ir fyrir aðstoð þeirra og hjálp við að hreinsa til í flokknum. Fá verðlaun. Austur-þýska innanríkisráðu neytið veitir þeim lörgeglu- mönnum verðlaunum, sem hendur hafa í hári stjórnmála- flóttamanna, er þeir reyna að flýja frá A-Þýskalandi til V- Berlínar eða V-Þýskalands. Talið er að árið sem leið hafi 34,000 flóttamanna leitað frá kommúnistaógninni vestur á hernámssvæði Vesturveldanna. Óeirðir í Kaikútia NEW YORK: — Frú Papa- nek, kona fyrrverandi sendi- herra Tjekka í Bandaríkjun- um, lijclt nýlega ræðu á fundi í New York. Papanek skýrði frá því, að undanfarin tvö ár hefði 27 þús. Tjekka, flúið land til að fá að njóta frelsis Vestur- landa. Þeir, sem lánast hefir að flýja nýlega, hafa hvorki haft föt, fje nje atvinnu í heimalandi sínu. Og frú Papanek hjelt á- fram; „Síðan kommúnistar hrifsuðu til sín völdin í föð- urlandi mínu, hefir kjörum manna síhrakað. Einu sinni voru þau þó talin best í Tjekkóslóvakíu í allri Mið- Evórpu. Brátt mun þar koma að allir lifa í örbirgð. Auð- menn og efnað fólk er ekki framar til. Nú er svo komið, að fátæklingarnir eru sviptir því litla, sem þeir áftu“. NÝJU-DELHI, 10. febrúar: — í dag kom enn til átaka milli Hindúa og minni hluta Mú- hameðsmanna í Kalkútta_ Lenti mönnum saman með grjótkasti og bareflum. Lögreglan varð að skakka leikinn nokkrum sinn- um með skothríð. Hafa fjórir látið lífið og 50 særst, að því er talið er. í dag skoraði Nehru á borg- ara Kalkútta að binda enda á óspektir þessar i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.