Morgunblaðið - 19.02.1950, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.02.1950, Qupperneq 1
16 sáður og Lesbók S7. árgangu* 42. tbl. — Sunnudagur 19. íebrúar 1950. Prentsmiðja Morgunblaðsins Oguriegt járnbruutur- slys í Handarákjunum A.m.k. 29 fórust, ó ann- að hundrað slösuðust Ekill annarrar iesfarinnar sakaður m manndráp NEW YORK, 18 febrúar. — I gærkvöldi rákust á 2 járnbrautar- lestir um 20 mílur frá New York. Var þarna um mjög harðan árekstur að ræða, svo að önnur lestin sópaðist gersamlega af sporinu. Margir fórust og aðrir slösuðust. Bretar og Bandaríkjamenn andmæla rjettarofsóknum -«> 29 fórust. * A. m. k. 29 manns fórust og einnig særðust á annað hundrað manns, sumir mjög alvarlega. Varð að höggva sundur sætin til að ná ýmsum farþeganna úr þeim, þar sem þeir voru skorð- aðir fastir. Kærður fyrir manndráp. Læknar og hjúkrunarlið unnu að björgun úr brakinu í alla nótt. Og að björguninni lokinni var stjórnandi annarrar lestar- innar tekinn höndum, sakaður um manndráp. Hafði hann ekið fram hjá stöðvunarmerki án þess að sinna því, og mun það skeytingarleysi hans hafa orðið til þess, að hið hryllilega slys varð. — Reuter. Þjóðernissinnar kyrrsetja skip LONDON, 18. febr. — Þjóð- ernissinnarnir kínversku nafa nú sett bann við að breskt skip, sem statt er í höfuðborg For- mosu, Taipeh, sigli á brott. — Skip þetta er 4400 sml. að stærð. Enga ástæðu hafa þjóð- ernissinnarnir nefnt fyrir at- ferli þessu. — Reuter. Ráðstefna um flug- mál í næstu viku PARÍS, 18. febr. — í næstu viku koma 56 þjóðir saman á ráðstefnu í París um flugmál. Er ætlunin að ná þar sam- komulagi um allsherjarflug- reglur, en hingað til hafa regl- ur þessar verið mjög sundur- leitar og í molum. Ekki senda Rússar menn á ráðstefnu þessa_ — Reuter. Litið inn á kosninga- skrifstofuna LONDON. 18. febr. — í nótt var brotist inn í kosningaskrifstofu Herbert Morrison, leiðtoga verkamannaflokksins, og öllu umturnað þar. Engum pening- um mun hafu v'erið stolið, en í skrifstofuiium voru afar veiga mikil og leynileg skjöl. - —Reuter. Frjettabrjef Brefa gert upptæk! í Prag PRAG, 18, febr. — Frjetta- bæklingur sá, er Bretar gefa út hjer í Prag, var í dag gerð- ur upptækur. Ástæðan er sú, að í honum er skýrt frá and- mælum þeim, er Bretar sendu ungversku stjórninni vegna rjettarhaldanna yfir breska verkfræðingnum Saunders. — Reuter. Rokossovsky marskálkur I Allir hafa sakborning- nrnir játnð við sýniar- rjettarhöld í Ungver jal. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BÚDAPEST, 18. febrúar. — Rjettarhöldunum í Búdapest hjelt áfram í dag. Fór svo sem vænta mátti, að allir hafa sakborningarnir 7 játað sig seka um ákæruatriðin, sem eru njósnir og skemmdarverk. Hefur frekari rjettarhöldum verið frestað til mánudags án þess kveðinn væri upp nokkur dómur. Iljer getm a?< líta marskálkinn ! rússneska, Rokossovsky, sem gerður vai að hermálaráðherra Póllands í vetur. Þótti mönn- um sem með komu hans hyrfu þær leifar, sem enn voru eftir af frelsi einstaklingsins. (Sjá grein á 2. síðu). Umbætur í nýlend- um Belgíumanna BRÚSSEL, 18. febr. — Belgiska stjórnin hefur nú á prjónunum miklar umbætur í belgisku Kongó. Er hjer um 10 ára áætl- un að ræða, og verður um 140 milljónum punda varið til á- ætlunarinnar. Megináhersla verður lögð á lagningu vega og járnbrauta svo og samgöngubætur á vatni. — Reuter. iisan er óánægður ADDIS ABEBA 18. febr. — Haile Selassie, keisari Abessiníu sagði í dag frjettamanni, að hann væi i þeirrar skoðunar, að Italir taki nú við verndargæslu fyrrverandi nýlendu sinnar, „í því skyni einu að hefja árás- arstríð". Sagði keisarinn, að sú ráð- stöfun S. Þ. að fá ítölum í hend ur verndargæslu í Tandinu um 10 ára skeið, væri órjettlát og móðgandi. — Reuter. Rússum skortir viljann til samkomulagssegirAttlee Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LONDON, 18. febrúar. — Forsætisráðherra Breta, Clement Attlee, talaði í útvarp í kvöld. Svaraði hann m. a. ræðu Churchill á dögunum, þar sem hann hvatti mjög til frið- samlegrar viðræðu við Stalin. Um það atriði fórust Attlee m. a. orð á þessa leið: „Við erum reiðubúnir til samstarfs við Rússa á alþjóðavettvangi, og' það hvenær sem er,“ „En jafnræðis verður að gæta um allt samstarf, því að við viljum ekki gerast annarra þjónar nje breyta lifnaðarhátt- um okkar að annarra vild. Hin nýja ógn Tilbúningur kjarnorku- sprengjunnar skapaði heimin- um nýja ógn. Upp úr viðræð- um mínum og Trumans og Mac Kenzie-King spruttu tillögurn- ar um alþjóðlegt eftirlit með kjarnorkunni. Ef farið hefði verið að þeim tillögum, þá væri þessi hætta, sem af kjarn- orkunni stafar, ekki fyrir hendi í heiminum nú, en Rússar vildu ekki eiga þar hlut að máli. •— Allt, sem þarf til að leysa þessi mál, er viljinn, og hann er reiðu búinn hjerna megin járntjalds- ins“. Bandaríski fjesýslumaðurinn^ Vogeler, kom fyrir rjett í dag, ásamt 3 Ungverjum. í gær höfðu hinir þrír, Bretinn Saund ers og tveir Ungverjar játað. Þjálfaður i njósnaskóla Vogeler kvaðst hafa verið þjálfaður í skóla upplýsinga- þjónustunnar bandarísku og hafa verið sendur að því búnu til Ungverjalands til að afla þar ýmis konar upplýsinga, einkum tæknilegra, en síðar hernaðarlegra. Starf sitt þar í þágu einka- fyrirtækis kvaðst hann hafa haft að yfirskini, svo að hann mætti óáreittur stunda iðju sina í þágu upplýsingaþjónust- unnar. Vogeler nefndi ýmsa bandaríska starfsmenn í Buda- pest, sem hann kvaðst hafa af- hent þær upplýsingar, sem hon um hefði tekist að afla. Var auðsveipur Vogeler var hinn auðsveip- asti í rjettinum. ,,Játaði“ allt afdráttarlaust og kvaðst harma það, að hafa orðið til þess arna. Bað hann sjer vægðar og sagðist vona, að dómuiinn yrði ekki mjög þungur. Enn tortryggnir Bretar og Bandaríkjamenn oru mjög efins um gildi „játn- inganna“. Hafði breska ræð- ismanninum aldrei verið leyft að vitja Saunders þá þrjá mán uði, sem honum var haldið í gæsluvarðhaldi. í Washington er þess getið til, að föngunum hafi verið haldið matar- og drykkjar- lausum að undanförnu til að búa þá undir rjettarhöldin_ •— Ekki þykir heldur loku fyrir það skotið, að þeim hafi verið gefin lýf til að slæva vilja- þrek þeirra, og tryggja þannig „játningar" þeirra. Andmæli utanríkis- ráðuneytanna Utanríkisráðuneyti Banda- ríkjanna og Bretlands hafa borið fram andmæli vegna rjetarhaldanna í Búdapest. — Segja Bandaríkjamenn, að í raun og veru hafi dómur í máli sakborninganna verið ráðinn fyrir fram. Atvinnuleysið eykst enn í V.-Þýskalandi BONN, 18. febrúar. — í V- Þýskalandi er nú afar mikið atvinnuleysi, og fer það sífelt í vöxt. Hinn 15. þ. m. voi’u at- vinnuleysingjarnir orðnir nál. 2,018.000 eða um 460.000 fleiri en í lok seinasta árs. í V-Berlín er talið, að 3 hverra 20 vinnuhæfra manna sjeu atvinnulausir nú. Sambandsstjórnin hefur nú á prjónunum ráðstafanir til að draga úr atvinnuleysinu. — Reuter. Námumenn eiga enn í verkialli NEW YORK. 18 febr. — Ekki hefir enn dregið til samkomu- lags með námaeigendum og þeim 400j000 námamanna, sem nú eiga í verkfalli í Bandaríkj- unum. Var viðræðum frestað í dag, þai eð þær báru engan ár- angur. Á mánudag munu námu eigendur og leiðtogi náma- mannanna, John Lewis, ræðast við á ný. Verkamennirnir fara fram á kjarabætur sem náma- menn hafa ekki enn gengið að, og er talið, að verkamennirriir muni ekki hverfa til vinnu 4 ný, fyrr en samningar hafa náðst. — Reuter. Frjálslyndi flokkurinn London. — Aða’stefnumál frjálslynda flokksins í Bretlandi í kosningunum: Aukið persónu- frelsi, frjáls yerslun, sjerstakt þing fyrir Wales og Skotland.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.