Morgunblaðið - 19.02.1950, Side 9

Morgunblaðið - 19.02.1950, Side 9
Sunnudagur 19. febrúar 1950 MORGVNBLAÐIB 9 RE YK r T /f T?“T y i tc r\ r 3 tr\ K f t 1/1 1 *4 1 1 $ w .1,.. J. JL .m 5Í|ollii'!i íslcndingar Jiir.y hefir *• < § EV Laygardagur 18. febrúar Aflinn og gæftirnar FISKIVEIÐAÞJÓÐIR verða að gera ráð fyrir, að afkoma þeirra verði misjöfn. Afli get- ur brugðist, og eins gæftirnar, í svo harðviðrasömu landi, sem okkar. Við höfum unnið að því, að tryggja okkur gegn aflaleysi, með því að fá sem fullkomnust tæki, til veiðanna. Verður naum ast lengra farið í bili á þeirri braut, að því leyti, sem tekur til hinna nýjustu togara okkar. Þjóðir, sem hafa fleiri fram- leiðslumöguleika en við, og skil yrði til f jölþættari atvinnuvega myndi að sjálfsögðu varast, að byggja tilveru sína og afkomu á svo ótryggum grundvelli, sem sjósókn, nema að takmörkuðu leyti. Við höfum byggt vonir okkar, að níu tíundu hlutum, um útflutning, á sjávaraflan- um. En á þessu sviði erum við, að öllu sjálfráðu, samkeppnis- færastir við aðrar þjóðir, sakir þess, hve miðin okkar eru að jafnaði fiskauðug. En þegar fengin eru hin hent ugustu og bestu fiskiskip, verð ur næsta sporið, útgerðinni til öryggis, að lögð verði öll mögu leg áhersla á, að rannsóknum á fiskigöngum miði sem best á- fram. Sannkepnisfært morkaðsverð EN EINS og allir vita stafa erf- íðleikar íslenskrar útgerðar og þjóðarinnar, ekki aðeins af því, að afli er tregari, en hann hefir að jafnaði verið undanfarin ár, heldur af því, að framleiðslu- Verð aflans eða kostnaðarverð hans þegar á markaðstaði kem- ur, er of hátt, til þess að vera samkeppnishæft_ Eftir því sem frjetst nefir frá Bretlandi t.d. liggja þar miklar birgðir óseldar af hrað frystum íslenskum fiski frá fyrra ári. Og samanborið við verð á annari matvöru þar, er íslenski fiskurinn svo dýr, að foreskar húsmæður verða að neita sjer um þá fæðutegund, og kaupa t. d. heldur fuglakjöt og annað góðgæti í staðinn. Málgagn Fimtuherdeildarinn ar heldur því að vísu fram, að það sje hægðarleikur, að selja íslenskar sjávarafurðir, fyrir austan Járntjald. En allt það geip hefir við ekkert að styðj- ast. Eins og margsannað er, og allir vita, bæði áhangendur og erindrekar Moskvavaldsins sem aðrir. Að koma fótum undir framleiðsluna f NOKKURN tíma hafa tillög- ur frá ríkisstjórninni, og sjer- fræðingum hennar verið tilbún ar um það, hvernig koma skuli fótum að nýju undir fram- ieiðslu landsmanna. Hverfa skuli frá styrkjapólitíkinni, sem allt ætlar að keyra í kaf. — Og skapa hjer framleiðslu, sem get ur orðið samkeppnisfær á er- Jendum markaði. Fiskiskipin geti komist á veiðar, án þess eigendur þeirra safni skuldum. Og hægt verði að nýju að treysta fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. ala þær vonir í brjósti, að sam- vinna flokkanna megi takast, um þessar lifsnauðsynlegu um- bætur. „Kæfum bjargráðin“ EN erindrekar Moskvavaldsins hjer á landi hafa þegar mótað baráttu sína gegn hagsmunum þjóðarinnar, með einkunnar- orðunum: „Kæfum bjargráðin í fæðingunni“. Eins og það er eðlilegt að all ir, sem hugsa um hag þjóðar- innar, og bera hann fyrir brjósti, sameinist til átaka um þau bjargráð, sem duga, eins kemur hinn eðlilegi hugsunar- háttur kommúnista skýrt fram í ofannefndu vígorði hans. Kommúnistar vilja engin bjargráð. Ef þeir vildu þau og ef þeim dytti í hug að fylgja þeim fram í verki, þá vikju þeir gersamlega frá stefnu sinni. Þá sviku þeir stefnu sína, húsbændur sína, og sitt andlega fósturland. Það væri álíka skynsamlegt, að ætla sjer, að búast við holl- ráðum og umbótum frá hendi kommúnista, eins og ef vegmóð ur ferðamaður á Nílárbökkum leitaði athvarfs í faðmlögum við krókódíl. Skilningurinn á kommúnistum fer dagvaxandi HJER hefir verið á það'minst, hversu margir Islendingar eru seinir, til þess að skilja starf og stefnu kommúnista, viður- kenna að með íslensku þjóðinni er manntegund, af annari gerð, en áður hefir þekkst hjer. Menn sem vinna fyrir valdhafa ann- arar þjóðar og hafa kosið sjer fjarlægt land, sem sína andlegu fósturjörð. Menn, sem hafa skuldbundið sig til, að vinna fyrir þessa fósturhjörð sína, hvert það verk, sem fyrir þá er lagt þó verkið sje unnið ís- lendingum til óþurftar og bölv- unar. — Það er vitað, að allar flokks deildir kommúnista í Vestur- Evrópu eiga nú, samkvæmt þeim fyrirmælum, sem send hafa verið út frá Kominform, að vinna að því, að fjárhagur lýðræðisþjóðanna verði sem verstur, atvinnuvegir þeirra standi höllum fæti, atvinnu- leysi verði þar sem mest, og kjör almennings sem bágborn- ust. Samkvæmt þessum fyrirmæl um vinnur íslenska flokksdeild in, alveg eins og hinar_ Hvaða leið skyldi kommúnistum vera auðfarnari til þessa takmarks en einmitt sú, að koma því til leiðar, að afurðir landsmanna seljist ekki, verði svo dýrar að þær verði óseljanlegar, og at- vinnuleysi blasi við þjóðinni? Vinna fyrir fósturjörðina ÞAÐ þykir hverjum manni sómi, að vinna vel og dyggilega fyrir fósturjörðina. HvorÞ held ur sem hún er fámenn og fá- tæk eða meðal stórvelda heims. En menn verða að taka tillit til þess, að hugtakið „fóstur- ^agngerðum breytingum á síðustu áratugum, þegar kommúnistar eiga í hlut. Þegar hinn breski atómsjer- fræðingur dr. Fuchs ljóstrar upp öllum þeim leyndarmálum, sem hann getur komist yfir, í eyru rússneskra þegna, og þjóna Moskvastjórnarinnar, og heldur þessu áfram óslitið í 7 ár, þá gerir hann sjer lengi vel ekki grein fyrir því, hvaða trún aðarbrot eða glæpi hann drýg- ir. Sovjetríkin eru, eftir því sem hann sjálfur segir, í hans augum hans fósturjörð. — Og það er ,.skylda“ hans, að vinna fyrir hana, enda þótt hann sem flóttamaður úr Þýskalandi hafi fengið breskan þegnrjett. Fróðír menn telja, að þessi eini svikari, dr. Fuchs, hafi get að flýtt fyrir Moskvastjórn- mm um eitt ár í þrotlausri viðleitni hennar til þess, að geta framleitt ægilegra eyðingar- og tortímingarvopn en nokkur önnur þjóð. Hann var einn af hinum al- ræmdu iaumukommúnistum. Menn, sem eru í þeim flokki, hafa sína „fósturjörð“, þeir helga heimsvaldaáformum Moskvastjórnarinnar krafta sína. Dr. Fuchs hafði enga sam- visku af því, ár eftir ár, þó hann sviki þjóð sína. Eða þó hann með njósnum sínum og erirtd- ismensku herti á vígbúnaðar- kapphlaupi stórveldanna. Hvað munar kommúnista um það, ef þeir þjóna Sovjetríkjunum, og fara að vilja Sovjetstjórn- arinnar? Þannig er hugsunarháttur kommúnista, hvar í veröldinni sem þeir starfa, og hvar sem þeir eru fæddir og uppaldir. Skyldur þessara manna við ætt jörð og þjóð eru einskis virði í þeirra augum. Þannig verður að líta á þessa menn og starf þeirra. Um sjálfstæðar skoðanir þeirra er ekki að ræða í venju- legum skilningi. Þær eru ósjálf- ráðar, fjarstýrðar. Þeir hafa, að dæmi Þórbergs Þórðarsonar, af- klæðst persónuleika sínum, eru ekki annað en smáagnir, í hinni kommúnistisku hópsál. Skipulagt samsæri í EINU af víðlesnustu blöðum Norðurlanda er komist svo að orði fyrir nokkrum dögum um kommúnistana: Menn verða að hafa það hug- fast, að kommúnistarnir hjerna eru ekkert handahófs samsafn af andstæðingum lýðræðis og frelsis, heldur eru þeir skipu- lagður flokkur manna, sem geta haft hægt um sig, eða risið upp með offorsi, alt eftir því, hvern ig fyrirskipanirnar eru, sem til þeirra koma erlendis frá. Gegn skipulögðum fjandmönn um þjóðfjelagsins er skipulögð vörn nauðsvnleg, segir blaðið, og bendir síðan á, að allar vest- rænar þjóðir verða að koma sjer saman um sameiginlegar varnir gegn skemmdaverkum flokksdeilda kommúnistaflokks ins. „Ætlunarverk Fimmtuherdeilö- anna“ SVO heitir forystugrein x aðal- málgagni danskra Sósíalista fyrir nokkruw. -.ÞarVSegir. m. a. að það megi erindrekar Komin- form eiga, að þeir sjeu hættir að fara í launkofa með starfs- svið sitt og ætlunarverk. Þegar þeir, segir í blaðinu, hefja baráttuna fjrnir innanbæj- armálum, og þykist bera hag verkafólksins fyrir brjósti, þá spyrji þeir fyrst: „Ertu með eða á móti Atlantshafssáttmálan- um?“ Það er þeim aðalatriðið, hvernig sem á stendur, og hvað sem kjörum og kaupi verka- manna líður. Eins og gefur að skilja, seg- ir ennfremur, er afstaða og starf hinnar dönsku flokksdeildar kommúnistaflokksins, harla lít- ið atriði i hinu mikla skák- tafli Moskvastjórnarinnar um heimsyfirráðin. Og þá mætti hið sama segja hjer á landi. Það sem hin ís- lenska flokksdeild kommúnista kann að geta útrjettað fyrir Kominform og húsbændur sína verður varla þungt á metun- um, í hinu skipulagða heims- tafli Sovjetstjórnarinnar. En vissulega hefir Moskva- stjórnin unnið mikla sigra í heimstaflinu síðustu missii'i. — Henrti hefir tekist, að leggja undir sig Kínaveldi, landshorn- anna á milli, og er nú að und- irbúa meiri landvinninga í Aust urálfu. En á meðan Moskvamenn hafa getað hrósað stórsigrum í austri, hefir barátta þeiri'a ver- ið með öðrum svip í Norður- álfu, vestan Járntjalds. Þeir hafa haldið áfram að tryggja ofbeldis- og ógnarstjórn sína í austanverðri álfunni. En hvarvetna í Evrópu þar sem al- menningur má um frjálst höfuð strjúka, þar hefir fylgi komm- únista hrakað síðasta ár. Peðin á íaflborði Moskvavaldsins I UMRÆDDRI grein í blaði Sósíaldemókrata segir ennfrem- ur, að vitaskuld verði yfirráða- stefna Sovjetstjórnarinnar að miða að því, að grafa undan efnahagsstarfsemi lýðræðisvikj anna. Þvi bættur f járhagur með vestrænum þjóðum, komi í veg fyrir vöxt kommúnistaflokks- ins þar. Viðstöðulaust öskri mál pípur Moskvamanna um stríðs- æsingamenn Vesturveldanna og hrópi hástöfum um það, að Sovj etstjórnin sje eina valdið í heiminum, sem geti unnið að því, að friður haldist. En allir vita, að Sovjetríkin hafa öflugasta herafla af öilum ríkjum heims. Kommúnistar grenja sig hása um vetnissprengjuna og hætt- urnar af styrjöld, þó Sovjet stjórnin ein hafi komið í veg fyrir, að nothæft eftirlit fáist með kjarnorkuvopnum til þess að koma í veg fyrir eyðingar stríð. Kommúnistar eru látnir æpa um árásaráform Vestur- veldanna, þótt Sovjetríkin ein allra ríkja í heimi hafi á sið- ustu árum lagt undir sig hverja þjóðina af annari, og þanið út veldi sitt. Aiveg eins og hjema SÍÐAN SEGIR í hinu danska blaði: Flokksdeild kommúnista hjer í landi hefur sitt verk að vinna fyrir heimsvaldástcfna Sovjetríkjanna. Flokksmennirnir streitast við, allt hvað þeir geta: Að graía undan lýðræði okkar og frelsi, 3Ó þjóð okkar hafi þá eim» stefnu í alþjóðamálum: Að frið- ur og frelsi megi haldast. Sama máli gegnir hjer ú íandi, þó þátturinn í heimspóii- tíkinni, sem ís^enska flokks- deildin rekur, sje ennþá smíerri, en sá, sem flokkssystkinin í Danmörku hafa með höndum. Og blaðið heldur áfram: Það er fyi'ir löngu orðið deg- inum ljósara, að kommúnista- flokkurinn hjer er „herdeilð'*' („kolonne") og leiðtogar henri- ar láta stjórnast af hagsmun- um erlends stórveldis. „Leiðtog ar ,,deildarinnar“ viðurkenna aetta nú orðið fullkomlega'1. Alveg eins og hjer á landl allt saman, nema það eitt, rið hjer hafa leiðtogar kommúnista ílokksins hvorki hreinskilm nj« hugrekki til að meðganga, íyr- ir hverja þeir vinna. En felu- Ieikur þeirra eða laumuspjl kemur þeim skki lengur -dö nokkru haldi. A afmæli Stalins • A SJÖTUGSAFMÆLI Stahnn ritaði sagnfræðingur kommún- ista, Sverrir Kristjánsson, loí- gerðargrein um einvaldinn, n.c-5 þeirri undirgefni, sem haéfir skoðanalausum Fimtuherdeild- ardindli. Hann taldi Stalin m. a. þaðt til ómetanlegs gildis, að hánn hefði frá öndverðum stjórn- málaferli sínum kveðið á um það, hvernig Rússar ættu að koma fram gagnvart smáþjóð- unum, sem væru innan Rússa- veldis. Lenin sjálfur hafði falið honum þetta mikilvæga og göf- uga starf. Stalin byrjaði með því, að láta í veðri vaka, að þjóðir þær og þjóðarbrot, sem ættu heim- kynni innan endimarka Rússa- veldis, ættu að fá tækifæri til, að ráða sjer sjálfar. Þangað til ái’ið 1929. Um stefnubreyting- una er Stalin tók þá, segir Alf Högh í norska „Morgenbladeti* nýlega. Eftir því sem kommúnism- anum óx fiskur um hrygg, taldi Stalin að allar þjóðir myndu ,,viðurkenna“, að þeim væri það fyrir bestu, að yfirgefa tungu sína og þjóðlega menningu. All- ir ættu að taka upp rússneska tungu, og rússneska mennmgu. Allt annað væri brot gegn vel- sæmi í hinum kommúnistiska heimi. Ef þá ekki beinlínis hæri að skoða það sem glæp. Þi'óun menningarinnar varð, að kenningum Stalins og ráða- manna í Kreml, að vera stjórn- að að öllu leyti frá Moskvu. — Þjóðir, sem lutu valdi Kreml- manna, máttu að vísu um skeifí bera nokkurn svip af þjóðerni sínu og þjóðlegri menningu sinni. En allt varð að gerast eins og Mosk\nimenn fyi'irskip- uðu. Væri vikið frá því, var það ekki í hinum í'jetta sósial- istiska anda að þeirra dómi. Moskvastjórnin ein gat sagt hver væri hinn rjetti „sósíalist- iski andi“. Framh. á fols. 12,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.