Morgunblaðið - 22.02.1950, Side 1

Morgunblaðið - 22.02.1950, Side 1
DJWM 17, 4rgangur 44. tbl. — Miðvikudagur 22. febrúar 1950. Prentsmiðja Morgunblaðsins U.S.A. slítur stjórnmálasambandi við Búlgaríu „Njósnamáli“ lokið í Badapest. Nýtt heSst í Sofía Sanders fjekk 13 ára fangelsi Vogeler IS ár Tveir dauðadóm Formaður kjarnorkunefiidar Einkaskeyti til Mbl. frá Reutcr. BUDAPEST, 21. febr. — í dag var kveðinn upp dómur í njósna- málinu ungverska. Voru allir hinir ákærðu fundnir sekir um njósnir og Um að hafa stofnað öryggi Ungverjalands í hættu. Breski ríkisborgaririn Edgar Sancjers var dæmdur í 13 ára fangelsi, Bandaríkjamaðurinn Vogeler í 15 ára fangelsi. Tveir Ungverjanna voru dæmdir til lífláts, tveir í 10 ára fangelsi og einn í fimm ára fangelsi. Öllum þessum dómum hefur verið áfrýjað til æðra dóms. Breska stjórnin gaf í dag út skýrslu um þetta mál, þar sem segir, að engum vafa sje undirorpið, að hinir ákærðu hafi verið pyntaðir til að játa á sig ýmsa gíæpi, sem þeir hafi aldrei drýgt. Er í heild litið á dóma þessa sem hræðilegar rjettarfarsofsóknir. Játningin ful! af ósamræmi. í skýrslu breska utanríkis- ráðuneytisins er sagt, að eng- inn vafi sje á, að játning breska verslunarmannsins Sanders, hafi verið fengin fram með sjer stökum pyndingum og með því, að þreyta hann með löngum yfirheyrslum Er þetta ályktað a£ orðalagi játningarinnar, sem sje svo yfirfult af ósannindum, rökleysum og rangfærslum, að enginn sakbo’mingur gæti með nokkru móti gefið slíka játn- ingu af frjálsum vilja. Enginn mátti tala við Sanders. Þá er bent á það í skýrslunni, að starfsmönnum bresku ræðis- mannsskrifstt funnar var, þrátt fyrir ítrekaða beiðni breskra stjórnvalda neitað um viðtal við Sanders. Slíkt bann er óskilj- anlegt og gagnstætt alþjóða- venjum og hlýtur því að hafa kómið fram af þeirri ástæðu einni, að Ungverjar óttuðust, acySandejs skýrði frá þeim pynt ingum, sem hann hefði orðið fýrir í fangelsinu Kom aldrei nærri njósnum. Bandaríska símafjelagið, sem Vogeler starfaði fyrir, hefur lýst því yfir, að hægt sje að bera fram sannanir fyrir þvi, að það er rangfærsla ein að Vogeler hafi verið skipaður í starf sitt fyrir fjelagið í Ungverjalandi, til njósna. Hann er sem sagt gamall starfsmaður fjelagsins, sem hefur unnið sig upp úr lægri stöðum og hefur aldrei komið nærri neinum njósnum. Góð gjöf frá nafnlausum BERGEN, 21. febr. — Kristi- lega stúdentafjelagið í Bergen, fekk skemtilega sendingú fyrir nokkrum dögum. Það fekk 50 þúsund króna gjöf frá ónafn- greindum manni. Var ákveðið, að sjóði bessum skyldi verja til byggingar fjelagaheimilis. NTB Kaupdeilur og verkföll í Frakklandi PARÍS, 21. febrúar. — Kaup- deilur standa nú yfir í frönsk- um bifreiðaverksmiðjum. Er allmikil ólga meðal verka- manna, og varð vinnustöðvun í dag, í sumum bifreiðaverk- smiðjum í nágrenni Parísar- borgar. — Verksmiðjueigendur buðu verkamönnum 5% launa- hækkun, en við atkvæðagreiðsl- ur, sem fram fóru í Renault verksmiðjunum og Rosengart og Ford verkrmiðjunum, hafn- aði meirihtuti verkamanna þessu boði, <n halda enn fast við hærri kröíur. 31 000 verka- menn í Renault verksmiðjun- um hafa þegar lagt niður vinnu. Truman Bandaríkjaforseti hefur skipað Charlcs Luckman formann kjarnorkunefndar Bandaríkjanna. Tekur hann við því embætti af David Lilient- hal. — Myndin hjer að ofan er af Luckman. 6óð veiði í Lofoten SVOLVÆR, 21. febr. — Upp- gripa fiskafli er nú í Lofoten. (Er góð veiði á öllum miðum, þegar gefur á sjó. Síðustu viku j voru því miður litlar gæftir. | Samt er aflir.n nú betri en síð- asta vetur á sama tíma. Nemur aflinn nú um 5000 smálestum, en á sama tíma í fyrra um 4900 smálesÞr. NTB. Mikiar óeirðir í Eritreu Shiffa-menn kasfa handsprengjum á líkfylgd. ASMARA, Eritreu, 21. febr. — 11 manns ljetu lífið og enn fleiri særðust í óeirðum sem brutust út í smábænum Ambadero, sextíu kílómetra suður af Asamara, höfuðborg Eritreu. Óeirð- irnar brutust þannig út, að óeirðarmenn úr flokki þeim, sem vill sameiningu við Abbyssiníu, köstuðu handsprengjum á hóp múhameðstrúarmanna, sem hópuðust saman við jarðarför. Morð stöðvarstjórans. Flokkur sá, sem vill að Eritrea sameinist Abbyssiníu er kallaður Shifta. í gær rjeð- ust Shifta-menn á járnbrautar- stöðina í Ambadero og drápu stöðvarstjórann. Fór jarðarför hans fram í dag og söfnuðust um fjögur þúsund múhameðs- trúarmenn saman við jarðarför- ina til þess að votta samúð sína og um leið til að votta and- styggð sína á morði þessu. Harðvítugur bardagi. En nokkrir Shifta menn köst- uðu handsprengjum yfir lík- gönguna. Ljetu nokkrir menn lífið þegar en aðrir særðust. — Dróu Múhameðstrúarmenn þá fram sverð og kuta og rjeðust á árásarmennina. Fleiri Shifta- menn söfnuðust þá saman og sló í harðvítugan bardaga. I/ög- reglulið og auk þess herflokk- ar voru þegar kallaðir á stað- inn og tókst þeim að stilla til friðar. Annars er alltaf að koma betur og betur í Ijós, að þeir eru í miklum meirihluta í Eri- treu, sem vilja sjálfstæði lands- ins. — Heath scndiherra í Sofia var kaílaður njósnari og stórglæpamaðnr Einkaskeyti til Mbl. frá Reuler. SOFIA og WASHINGTON, 21,/ebr.: — í dag hófust í Sofia, höfuðborg Búlgaríu, „njósnarjettarhöld“ yfir fimm Búlgör- um, þar á meðal tveim, sem áður voru starísmenn við bandaríska sendiráðið í borginni. í ákæruskjalinu, sem var birt opinberlega í öllum helstu blöðum Búlgaríu í dag, voru endurteknar allar þær aðdróttanir, sem þessi blöð hafa við- haft um Heath, sendiherra Bandaríkjanna í Búlgaríu og um bandaríska sendiráðið í borginni. 1 ákæruskjalinu, sem var birt opinberlega 1 öllum helstu blöðum Búlgaríu í dag, voru endurteknar allar fyrri aðdróttanir, sem þessi blöð hafa viðhaft um Heath sendiherra Bandaríkjanna í Búlgaríu og um bandaríska sendiráðið. Með tilliti til þessa og til þess hve starfssvið sendiherrans hefur verið takmarkað, auk þess sem telja verður að búlgarska stjórnin hafi hvað eftir annað brotið friðarsamningana frá 1947, þá ákvað stjórn Banda- ííkjanna að kalla sendiherra sinn heim og slíta öllu stjórn- málasambandi við Búlgaríu. Sagt að sendiherrann * sje njósnari. Búlgararnir fimm eru ákærð- ir fyrir að hafa starfað að njósnum undir forustu banda- ríska sendiherrans Mr. Heath. í ákæruskjalinu segir, að Heath hafi verið yfirmaður stór- felldra njósna Bandaríkja- manna í Búlgaríu. Segir og að hann hafi unnið að því að efna til mótspyrnuhreyfingar í land- inu og skemmdarstarfa. Kallaður stórglæpamaður. Undanfarið hafa árásir búlg- arskra blaða á sendiherrann aukist mjög. Hefur hann verið kallaður njósnari og bandarísk- ur stórglæpamaður og sagt hef- ur verið að bandaríska sendi- ráðið hafi unnið að því leynt og ljöst að auka áhrif og völd Bandaríkjanna í samræmi við núverandi heimsveldastefnu þeirra. Mótmælum svarað með útúrsnúningum. Þá hafa miklar takmarkanir verið settar á starfssvið fulltrúa sendiráðsins, m. a. hefur þeim verið bannaðar ferðir um land- ið eða að hafa samskipti við búlgarska þegna. Bahdaríska stjórnin hefur nokkrum sinn- um áðúr borið fram ströng mót- mæli við búlgörsku stjórnina vegna brota á friðarsamningun- um, sVo sem varðandi rjettar- morðið á Kostov og varðandi hernaðarlegan stuðning við grísku uppreisnarmennina. Þess um mótmælum hefur búlgarska stjórnin svarað öllum á einn veg með útúrsnúningum og enn frekari móðgunum. Stjórnmálásamband slitið. Bandaríska utanríkisráðuneyt ið lítur svo á, að við svo búið verði ekki lengur unað. Telur það búlgörsku stjórnina hafa margbrotið öll alþjóðalög með svívirðilegum hætti og telur að eina svarið við þessu sje að kalla sendiherra sinn heim og slíta öllu stjórnmálasambandi við Búlgaríu. Fjórir sækja um bæjar- sfjórasföðuna á Siglufirðí SIGLUFIRÐI, þriðjudag. — Forseta bæjarstjórnar hafa bor ist fjórar umsóknir um bæjar- stjórastöðuna, og eru þær frá eftirtöldum mönnum: Alfons Jónssyni, Jóni Kjartanssyni, PjetrLLaxdal og Sigurjóni Sse- mundssyni. — Guðjón. Sólbletiir trufla út- varpssendinpr LONDON, 21. febrúar. — Vís- indamenn hafa undanfarna daga orðið varir við fjölda marga sólbletti, sumir þeirra eru stærri en jörðin. Þeir hafa valdið miklum truflunum á stuttbylgju útva.pi og þó eink- um í Norður-Ameríku. Talið er, að blettirr.ir og truflanirnar muni enn aukast í tvo þrjá daga en þá fari að draga úr þeim. —Reuter.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.