Morgunblaðið - 22.02.1950, Side 2

Morgunblaðið - 22.02.1950, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 22. febr. 1950. Sfir vegoa ummæla varð andi Heilsuverndarstöðina I Dagblöðin flytja þá frjett fr') bæjarstjórnarfundi 16. febr. Í 1 . I ngi R. Helgason, bæj- arfulttrú: Sósíalistaflokksins, líafi -agt á þeim fundi, að hann heyrt eftir fagmönnum, að :>uara mætti V3 af bygging- árkostnaði hi.nnar nýju heilsu- yen.Jíinarstöðvar með því, að breyti ytra útlíti hússins. Sjeu ijtran’ #h þessi rjett höfð eftir, þá e>: bjer um ali furðulega full- ýrðingu að ræða, og væri því aeskilegt að bæjarfulltrúinn mpplýáti hvaða fagmenn hafa fengið hann til þess að flytja bonn ,? fróðlcik é bæjarstjórn- arfundi, og að þeir gerðu al- m’emiingi nár.ari grein fvrir því, i hverju þessar miklu sparnað- artillögur þeirra sjeu fólgnar. i/erði bæjarfulltrúinn og fag- bienn hans ekki við þessum til- linælurh, verður að líta á um- mæli bæjai fulltrúans, sem stjó: nmálalegan áróður eða sem marklaust hjal. og skal því ekki rrett Aínar um þetta atriði að sinni : íf Bæjarfulltrúinn gagnrýndi einrng hversu langan tíma það fuifdi tikið að fullgera uppdrætt ina ið heilsuverndunarstöðinni. Jeg hygg að þessi gagnrýni bæj arfult'trúans stafi af ókunnug- tmka hana á þessu máli, þar serri har.n er nýliði í bæjar- st.jó) l’ Reykjavíkur, og hefur *#>v’ ' :kert um mál þetta fjall- að Hjer er um óvenjulega og vandasama byggingu að ræða og þvi óhjúkv æmilegt að r.okk- uð langan tíma þurfi til þess að leysa slíkt verkefni, og það di síst lasta að vanda vel fil siíks v'erks. * ' Heilsuverndarstöðva1 nefndin Íindirbjó mál þetta prýðilega, og vil jeg sjerstaklega geta um ósjerhiífni formanns nefndar- innar, Sigurðar Sigurðssonar, berklayfirlæknis, sem ávallt vár okkur húsameisturunum til þðstoðar. er með þurfti, að öðr- um nefndarmönnu.m ólöstuðum. ! Við húsameistararnir, Gunn- ar Ólafsson og jeg, höfum gcrt okkar ýtrasta til þess að ie.yr.a þetta verkefni vel og sam- jviskusamlega af hendi, en án pfa geta verið nokkuð skiptar iskoðiiu: um byggingu þessa, feins og flestar byggingar, og fekkt síst meðal fagmanna, því að ógerlegt er að gera öllum i.il hæfis. { Mjer vitanlega. hafa allir þeir iiðil j er með mál þetta hafa haft að. gera. virst vera áruegð- jr með uppd.ættina, og þar á ineðal fuiltrúar Sósíalista- hokköins. eða annað hefi jeg þkki heyrt | Að mínu áiiti skiptir það litlu tnáli, þótt- hægt hefði verið að ffullgera uppdrættina á nokkuð fekemrari tima, en aðalatriðið fcr það, hvort vel hefur tekist feð leysa þeíta verkefni eða ekki Jen um það atriðið verður fram- jtíðin a3 dæma, að verki loknu. Ifll. í Tímanum. þ. 17. og 19. fbr , ítefur gætt nokkurs mis- kiloúigs varðandi byggingu ftilsuvarndarstöðvarinnar, sem ijer tr.eð skal leiðrjettur: 1) Undanfarið hefur verið unm'5 að grefti íyrir bygging- unni, sem nú er að mestu lok- ið, og einnig að smíði undirstað- anna. Undirstöður fyrir álmu meðfram Barónsstíg, eru þegar steyptar, og mótasmíði fyrir aðr ar undirstöður bvggingarinnar er að mestu lokið. I útboði á byggingu Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, eru undirstöðurn ar og neðstu gólf byggingarinn- ar undanskilin, og verður þeirri smíði haldið áfram. meðan ver- ið er að leita tilboða og ganga frá þeim. Áður en greftri er lokið. er erfitt að gera tilboð i byggingu undirstaða, eins og reynslan hefur sýnt og því hef- ur þótt rjett að undanskilja þennan hluta verksins í útboð- inu. 2) Varðardi uppdiætti að járnabinding í heilsuverndar- stöðina, þá er það rjett hjá Tím- anum, að þeir uppdrættir eru ekki fullgerðir. Hins vegar er ^ekki venja h,,er á landi, þegar leitað er tilboða í byggingu húsa, að upfdrættir af járna- binding fylgi með útboði, þótt það kunni að vera nauðsynlegt, sje um ýrnis önnur mannvirki að ræða í útboðslýsingunni að Heilsu- verndarstöð Reykjavikur er gefið upp hversu mörg tonn af steypustyrktarjárni þurfi að nota í bygginguna, einnig hvernig reikna skuli út steypu- magn og á uppdráttum að hús- inu eru allir bitar og súlur sýnd ar. Vinnulaun vegna járnbind- ings er venja að áætla með meðalveiði á kg. steypiistyrkt- arjárns, þegar um venjulegan járnabinding er að ræða. Jeg vænti þess, að þessar upp lýsingar sjeu nægilegar til þess að fyrirbyggja allan misskiln- ing um þessi atriði, jafnt hjá Tímanum sem öðrum. Reykjavík, 20 febr. 1950. Einar Sveinsson. Venhinarmenn halda málfundi með sjer í KVÖLD kl. 8,30 hefjast að nýju hinir vinsælu málfundir verslunarmanna í Fjelagsheim ili v'erslunarmanna. Eru fundir þessir haldnir að tilhlutan skrif stofumannadeildar og af- greiðslumannadeildar fjelags- ins og er í ráði að fá menn sem hefur góða kunnáttu í fram- sögh og íæðumennsku til þess að veita fjelagsmönnum til- sögn. Ráðgert er að málfundir þessir standi fram á vor og verði fundir haldnir einu sinni á hálfum mánuði, á fimmtudög um. Tekin verða fyrir á fund- unum ýms fjelagsmál og jafn- framt almenn þjóðfjelagsvanda mál. Á fundinum í kvöld verður rætt um nánari tilhögun vænt- anlegra málfunda og al'menn fjelagsmál og er ekki að efa að verslunarmenn fjölmenni á fundinn og gerðist virkir þátt- takendur í þessum málfund- um. Veðrið olti óhöppum og íöfum í GÆR var yfirleitt norðvest- an átt með snjójeljum um land nllt, bjartviðri mun hafa verið á suð-austurlandi. Veðurhæðin var yfirleitt 6—8 vindstig, en í hríðarbyljunum nokkru meiri. Var fannkoman þá svo mikil, að ekki sá nema rjett fram úr augum. Af þesum sökum urðu margir árekstrar hjer í bænum í gær. Slys urðu þó engin. Mjól kurflutningabílarnir komu Krísuvíkurveg, eftir að hafa snúið við á Hellisheiði. í gær urðu tvö skip, að fresta för sinni. Var Laxfoss annað þeirra, en hitt Herðubreið, er fresta uiðu för sinni þar til í dag._________________ Togarakaupin sam- þjfkl í N. d. FRUMVARP rlkisstjórnaiinn- ar um togarakaup ríkisins var i gær samþykkt í neðri deild með 24 samhljóða atkvæðum og sent til efri deildar. Samkvæmt frumvarpinu er ríkisstjórninni heimilt að láta smíða 10 togara í Bretlandi og taka til þess lán að upphæð 32,7 milj. kr. eða 1.250.000 ster- lingspund. Við þriðju umræðu í neðri deild lágu fyrir allmargar breytingatillögur, en þær voru flestar felldar. Svohljóðandi breytingatillaga var samþykkt með 15 : 14 at- kvæðum: „2. gr. frv. orðist svo: Ríkisstjórnin skal gefa bæj- ar- og sveitarfjelögum þeim, sem þessa togara vilja kaupa, forgangsrjett að því að kaupa þá, ef þau ætla að kaupa þá til eigin rekstrar. Ríkisstjórninni heimilast að lána þessum bæj- ar- og sveitarfjelögum 75% af andvirði togaranna og nota til þess m. a. það lán, sem ríkis- stjórninni í þessum lögum heim ilast að taka, enda þarfnist við- komandi bæjar- eða hreppsfje- lag þessa fjárstuðnings. Lánið skal greiðast með jöfnum af- borgunum á 20 árum. Vextir sjeu hinir sömu og ríkisstjórn- in greiðir. Ríkisstjórninni hsim- ilast að taka þau lán til við- bótar, er þarf til að fullnægja þessari kvöð“. Sveifir Harðar og Árna efsfar EFTIR þrjár fyrstu umferðir meistaraflokkskeppni Bridge- fjelags Reykjavíkur, eru sveit- ir Harðar Þórðarsonar og Árna M. Jónssonar efstar með 6 vinninga hvor. Sveit Gunngeirs Pjetursson- ar er í þriðja sæti með 4 stig, I Sveit Róberts Sigmundssonar hefur 3 stig, sveitir Ragnars Jóhannessonar og Guðlaugs Guðmundssonar hafa tvö stig hvor, sveit Baldurs Ásgeirsson ar 1 stig og sveit Zophoníasar Pjeturssonar ekkert. í þriðju umferð fóru leikar þannig, að sveit Árna vann I sveit Baldurs, sveit Harðar I vann svejt Zophoníasar, sveit Gunngeirs vann svéit Róberts og sveit Ragnars vann sveit Guðlaugs. Brynjólfur Þorláksson fyrrv. Dómkirkjuorgan- isti — In memoriam MARGAR endurminningar, frá löngu liðnum dögum, líða í hug okkar aldraðra samborgara og samfjelaga á sönglistarbraut, er þessi vinur vor í dag er borinn til grafar. Brynjólfur heitinn var um langt skeið, meðan kraftar ent- ust, sjálfkjörinn leiðtogi og for- ingi sönglistar vorrar austan hafs og vestan. Kórstjóri, einleikari á orgel og einn af forgöngumönnum í út- breiðslu fagurrar tónlistar með þjóð vorri, er hún á fyrstu bernskuárum tók að feta sig fram á áður lítt kunnu listasviði. Allt þetta var tengt Brynjólfi og starfi hans. Fyrir eyrum margra gamalla áheyrenda hans munu í dag óma fagrir og snjallir hljómar söng- radda karla og kvenna, eða blíð- ir, angurværir tónar frá uppá- haldshljóðfæri hans, er þeir nú í Aiag minnast hans. Brynjólfur kunni flestum frem ur að fara þar með, sem við átti. Fór þar saman meðfædd smekk- vísi, næmur skilningur á hverju verkefni og sálræn tilfinning hans. Það var engin furða, að Brynjólfi tókst að heilla áheyr- endur sína er hann var slíkum kostum búinn fram yfir aðra. Hjer skal ekki frekar lýst á- hrifum þeim, sem áheyrendur hans urðu fyrir, hvort heldur að hann stjórnaði söngflokkum sín- um eða handljek harmoníið sitt. Brynjólfur ljek ekki eða stjórn- aði með yfirborðskenndum á- huga, heldur var hann sjálfur með líf og sál hinn góði og næmi túlkari, sem fann til með tón- unum og var umhugað um að aðrir, söngmenn eða áheyrend- ur, fyndu hið sama. Brynjólfur Þorláksson fæddist 22. maí 1867 á Nýjabæ, Seltjarn- arnesi. Faðir hans var Þorlákur Þorkelsson ,bóndi þar, en móðir Brynjólfs var Þórunn Sigurðar- dóttir. Þau hjón bjuggu síðar lengi á Bakka, Seltjarnarnesi. Ungur gerðist Brynjólfur rit- ari á Landshöfðingjaskrifstof- unni og var þar við störf um 20 ára skeið. Um tvítugt lærði hann söngfræði og harmoniumleik hjá Jónasi Helgasyni, Dómkirkjuorg anista. Síðar lærði hann á píanó hjá Frú Önnur Pjetursson,. — Leiknastur varð Brynjólfur þó á harmonium og skaraði í þeirri list langt fram úr öðrum á þeim tímum. Árið 1891 kemur Brynjólfur fyrst fram á sjónarsvið; er hann þá með drengjakór, sem nefnd- ist „Vonin“. Voru þar allt dreng ir innan fermingaraldurs og var það fyrir áeggjan Þorláks Ó. Johnsen, kaupmanns, að Bryn- jólfur tók að sjer stjórn þess. — Árið 1892 og næsta ár þar eftir tók Brynjólfur virkan þátt í söngfjelögum bæjarins undir stjórn annara og Ijek einleik á harmonium við góðan orðstír. 1897 veitti Alþingi honum styrk til utanfarar, til frekari menntunar í tónlist. Fór hann utan 1898 og lærði organleik hjá prófessor Nebelong. en tónfræði hjá P. Rasmussen, organleikara Garnisons-kirkjunnar í Kaup- mannahöfn. Stundaði Brynjólfur námið kappsamlega og fannst flestum hann hafa færst í aukana eftir aðeins vetrardvöl þar ytra. 1901 tók Brynjólfur við söngkennara- starfinu við Lærða skólann í Reykjavík og 1903 við organista- stöðunni við Reykjavíkur-dóm- kirkju, en því starfi sagði hann lausu árið 1912, áður en hann 1913 fór til Vesturheims. —- Eri söngstjórastörf hans um þetta skeið voru þessi: Árið 1900 stofn ar og stýrir Brynjólfur stórum söngflokk karla og kvenna, sem oft og lengi söng með mestu prýði, bæjarbúum til ánægju og ununar. Tveim árum síðar stofn- ar Brynjólfur, með öðrum góð- um söngmönnum, Karlakórinn „Kátir piltar“, var það úrvalslið, sem oft Ijet til sín heyra undir stjórn hans. Árið 1913 fór Brynjólfur vest- ur um haf, svo sem fyrr segir. Hafði hann þar 20 ára dvöl, sjer- staklega í Winnipeg og stjórnaði þar Karlakóri Vestur-íslendinga í nokkur ár, kenndi þar og söng harmoniumleilc og undirbjó og stofnsetti um 40 söngflokka víðs vegar í fslendingabyggðum. Brynjólfur hvarf aftur heim árið 1933. Síðan heim kom hefur hann kennt söng, lagfært og stillt hljóðfæri uns kraftar þrutu. Auk alls þess, sem hjer hefur verið nefnt, hafði Brynjólfur á hendi söngkennslu í ýmsum skól um, einkum fyrri ár sín hjer, t.d. barnaskólum, kvennaskóla, auk kennslu fyrir organleikaranema og prestsefna. Brynjólfur heitinn safnaði mörgum fögrum og frægum lög- um og gaf þau út í ’tveim heftum, sem hann nefndi Organtóna. —» Urðu hefti þessi afar vinsæl og eru svo enn á öllum heimilum landsins, þar sem harmoniun'. eru og músík um hönd höfð. -—. Textar fylgja lögum þessum svó> allir geta sungið þau og spilaé., Þegar Brynjólfur heitinn varS áttræður þ. 22. maí 1947, ritaðí jeg grein um hann í Morgun- blaðið og leyfi jeg mjer að vísa til hennar, ef eitthvað skyldi hjer á vanta. Brynjólfur var kvæntur, 1889» Guðný Magnúsdóttur frá Vogum á Suðurnesjum, hún andaðist ár- ið 1931. Þeim varð 8 barna auð- ið, en á lífi eru aðeins 3 dætur .: Kristín og Jóhanna, ógiftar, og Sigríður, gift yfirlækni á Rönt- gendeild Landspítalans, dr. Friðo rik Petersen. Eftir að Brynjólfur kom heim úr Vesturheimi, dvaldi hann á heimili tveggja dætra sinna, Kristínar og Jóhönnu, og naut þar stakrar umhyggju og ástúð- ar þeirra beggja fram til hinnstu stundar. Brynjólfur andaðist þ. 16. þ. mán., eftir langa og þunga legu, en einnig eftir langt og mikils- virt starf í þágu lands síns og þjóðar. Á. Tfl,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.