Morgunblaðið - 22.02.1950, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.02.1950, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 22. febr. 1950. UORGVNBíLAÐíÐ Ti Barnarán kommúnista í Grikk- landi vekja viðbjóð um allan heim Hvernig geta ísl. konur mælt því tiltæki bót? Sjötugur: Jén Stefáns- son bóndi s Möðrudai ÞEGAR MINNST hefir verið á borgarastyrjöldina í Grikk- landi á undanförnum árum hjer í blaðinu, þá hefir það verið viðkvæðið hjá Þjóðviljanum, að þetta væri gert til þess, að komast hjá því, að tala um nokkuð það, er kæmi islensku þjóðinni við. En menn gæta ekki að því, að sá flokkur, er þar hefir ver- ið að verki, nær líka til ís- lands. Hjer er starfandi ein deild úr hmum alþjóðlega kommúnistaflokki. Þetta hefir líka greinilega komið í ljóg, í öllum umræðum Þjóðviljans um Grikklandsmál- in. Þar hefir aldrei verið farið í launkofa með, að Þjóðviljinn væri sammála öllum aðgerðum kommúnista gagnvart grísku þjóðinni. Hafi einhverjir verið í vafa um, að það sem gerst hefir í Grikklandi, komi íslendingum Við, hafa þeir ekki þurft ann- að en að líta í Þjóðviljann til að sjá, að hjer er um málefni að ræða, er varðar íslendinga, að svo miklu leyti, sem sami flokkur og þar, hefir starfað og starfar hjer, þó skiiyrðin til að koma vilja sínum og stefnu í framkvæmd sje talsvert öðru- vísi hjer en þar. Barnaránin valda mestum sviða íslenskur menntamaður, sem gisti Aþenuborg á síðastliðnu hausti, skýrði frá því,- að barna- ránin væri þær aðgerðir komm- únista, er grísku þjóðinni sviði naest, sem eðlilegt er. Eins og öllum heiminum er kunnugt, hafa kommúnistar í nágrannaríkjum Grikklands rænt um 30 þús. börnum, flutt þau úr landi og sett þau í upp- eldisstofnanir kommúnista- flokksins í norðlægari Balkan- löndum. Þing Sameinuðu Þjóðanna hefir gert samþykktir viðvíkj- andi þessum hermdarverkum, þar sem þess er krafist, að börn unum verði skilað aftur til for- eldra sinna. Fyrst í stað ljetu stjórnir hinna svonefndu „alþýðulýð- velda“ líklega í þessu máli, Ijetu sem þær vildu styðja að heimsendingu barnanna. En þetta reyndist ekki vera annað en látalæti eða tvöfeldni, eins og oft kemur fram úr beirri átt. Kommúnistar hafa reynt að svæfa þetta mál eða kveða nið- ur kröfurnar um það, að börn- unum verði skilað. Viðbárurnar fjarstæður einar I þessu máli sem oft endra- , nær nota kommúnistar þær að- ferðir, að ákæra aðra fyrir þau brot, er þeir sjálfir hafa fram- ið. — Kommúnistablöðin um heim allan eru að sjálfsögðu á sama máli og yfirboðarar þeirra. Ým- ist halda þeir því fram, að alls ekki hafi verið um nein barna- rán að ræða, eða, að börnin hafi verið flutt á brott með sam- þykki foreldra sinna(!) ellegar að farið hafi verið með börn- in til annarra landa, til þess að forða þeim frá hörmungum styrjaldarinnar(l) Og loks er fjórða viðbáran sú, að gríska stjórnin hafi gert sig seka um alveg sömu afbrot og kommún- istar (!!!) Allar þessar viðbárur hafa það sameiginlegt, að þær eru helber uppspuni. Eftir að þing Sameinuðu Þjóð anna gerði sínar ályktanir um þessi mál, hafa kommúnistar veigrað sjer við að mótmæla því, eins og þeir gerðu fyrst að barnaránin hefðu átt sjer stað. Hið sanna í málinu En þegar kommúnistar halda því fram, að börnunum hafi ver ið rænt með samþykki foreldr- anna, þá er sannleikurinn í mál inu sá, að það ,,samþykki“ for- eldranna fjekkst, þegar ræn- ingjarnir hótuðu að myrða börn in, eða pína þau til dauða, hefðu þeir ekki fengið að fara með þau á brott. Það eru líka staðreyndir, sem ekki verður á móti mælt, að oft kom það fyrir, að þegar mæðurnar neituðu að farið yrði með börnin frá þeim, þá voru þær fyrir þennan mótþróa sinn teknar af lífi. Fáránlegastar eru þó stað- hæfingar kommúnistanna um það, að farið hafi verið með börnin úr landi til þess að „vernda þau frá hörmungum styrjaldarinnar“. „Vernd“ þessi hefir, í sann- leika sagt, tekið á sig undar- legar myndir, þegar 14—15 ára drengir voru settir í bardag- ana í fjöllunum nálægt landa- mærunum eftir að þeir höfðu fengið nokkra tilsögn og æfingu í vopnaburði í næsta nágranna- landi við Grikkland. Vitnisburður 15 ára „stríðsmanna“ Balkannefndin hefir tekið nokkuð af þessum drengjum í yfirheyrslu eftir að þeir höfðu verið teknir til fanga, ellegar þeir hafa sjálfviljugir gefið sig fram við landa sína. Af vitnisburði þeirra er hægt að fá vissu sína um það, í hvaða tilgangi þeir hafa verið teknir úr umsjá foreldra sinna og æfðir í vopnaburði. Það er rjett, að gríska stjórn- in varð að flytja 200.000 manna frá landamærahjeruðunum við norðurtakmörk landsins, og þar á meðal um 20 þús. barna. — Kommúnistar eru gramir yfir því, að þeir skyldu ekki hafa getað náð öllum þessum fjölda fólks á sitt vald, og farið með það allt eftir geðþótta. En þeir þegja vandlega yfir því, að mikill hluti þessa flótta- fólks hefir nú getað sest að aft- ur í þessum landamærahjeruð- um, er allt flóttafólkið hefði nú getað verið komið til heim- kynna sinna, ef skæruliðasveit- ir kommúnista hefðu ekki eytt byggðinni og farið þar ráns- hendi um allt, sem hægt var að flytja þaðan á brott. Gríska þjóðin hefir í sann- leika sagt unnið hjer stórvirki og þrekvirki í endurreisnar- starfi sínu í landamærahjeruð- unum. Það er alveg stórfurða, hvað þar hefir mikið áunnist, eftir allar þær hörmungar og vandræði og erfiðleika, er gríska þjóðin hefir átt við að búa og orðið að brjótast í gegn um, á undanförnum árum. Eftir 9 ára styrjöld, kom her- nám óvinaþjóðar, og þar á eft- ir kommúnistaárásin. Ættu að tala sem minnst um mannúð Svo leyfa kommúnistar sjer að segja, að það hafi verið af „mannúðarástæðum", að börn- in hafi ekki verið og sjeu ekki send heim til sín aftur, Það er beinlínis hlálegt, að heyra kommúnista tala um mannúð. Það orð fer illa í þeirra munni, þar sem mannúðin er ávöxtur af menningu Vestur- landa, sá ávöxtur, er kommún- istar með öllum ráðum hugsa sjer og ætla sjer að útrýma. Grísk stjórnarvöld gera sjer jafn annt um börn, sem eiga kommúnista að foreldrum eins og hin börnin, sem bjargað hef- ir verið úr klóm kommúnista. Því hefir vissulega aldrei verið haldið fram, að þau börn, er kommúnistarr rændu og fluttu úr landi, eigi við lakari viður- væri að búa heldur en hin, sem eftir urðu heima. En hinn vestræni heimur mót mælir því, hvernig uppeldi hin- um rændu börnum er búið. þar sem þau eru alin upp í þeim anda, að hata ættland sitt, og menningu þess. Þau eru alin upp í hreinni villimennsku til þess að þau seinna geti orðið að árásarher, er beint verði gegn ættjörð þeirra og þjóð. Augu manna opnast Síðustu tvö ár hefir gríska þjóðin unnið að því að opna augu heimsins fyrir þessari hryllilegu meðferð, er börn þeirra hafa orðið að þola. Fyrst framan af var erfitt að koma fjarstöddu fólki í skilning um þetta, vegna þess, að aðgerð- irnar og atburðirnir þykja svo ótrúlegir. En smátt og smátt er skilningur þjóðanna á þessu orðinn svo skýr, að fólk perir sjer fulla grein fyrir, hvað þarna hefir gerst. Þær 50.000 manna, sem stiga- menn kommúnista hafa myrt í Grikklandi, verða ekki kallað- ar til lífsins að nýju. En börn þau, sem rænt hefir verið, gætu komist heim. Er það ekki einkennilegt, að íslenskar konur, sem daglega ganga með mannúð og marm- kærleika á vörunum, skuli geta fengið af sjer að vera ár eftir Frh. 4 bls. 8 JÓN Aðalsteinn Stefánsson er fæddur 22. febr. 1880 að Ljósa- vatni í Þingeyjarsýslu. Foreldr- ar: Stefán Einarsson frá Brú á Jökuldal óg kona hans Arnfríð- ur Sigurðardóttir frá Ljósa- vatni. Fluttist Jón með foreldrum sínum á fymta ári frá Ljósa- vatni að Möðrudal á Jökuldal, og ólst þar upp síðan. Möðru- dalsheimilið var annálað í bú- skapartíð foreldra Jóns, og þeirra systkina — stórmannleg rausn í búnaði og umhvggja í besta lagi fyrir líðan og þörfum skepnanna hverju sinni. Rausn húsmóðurinnar í allri stjórn hins fjölmenna heimilis, var viðbrugðið Má í því sambandi ekki gleyma umhyggju hennar fyrir gestum og gangandi og rausnarlegum útlátum, er end- aði venjulega með því, að stinga nestisböggli í vasa gests- ins, er lagt vur af stað, ef farið var að hausta. eða vetur geng- inn í garð, — því langleiðir miklar eru til beggja handa Möðrudal,' Skjöldólfsstaðir, Grímsstaðir. I þessum merkilega skóla ólst svo Jón Aðalsteinn upp og þau systkini og þykir tvímæla- laust hafa kcmið hjer fram hið fornkveðna, að „sjaldon fellur eplið f jarxi eikinni". Lögðu þau systkini, er fram liðu stundir, næsta drjúgan skerf til upp- byggingar og viðhalds hinu trausta heimili. Jón Aðalsteinn giftist 31. maí 1903, Þórunni Vilhjálmsdóttur Oddsen. Hófu þau hjón búskap í Víðidal sama ár. Bjuggu svo á nokkrum stöðum næstu ár- in, Arnórsstöðum. Rangalóni, en þó lengst í Víðidal þar til þau fluttu alfarin í Möðrudal 1918, en þá var faðir Jóns. Stefán Einarsson látxnn fyrir tveimur árum. Varð þeim hjónum sjö barna auðið. Eru nú fjögur af þeim á lífi Brátt komu í ljós ágætir mannkostir Jóns bónda Aðal- steins, óvenjulegur dugnaður og starfsfjör, enda dró konan ekki úr ánægjulegum árangri sam- starfsins Vax hún rausnarkona hin mesta og húsmóðir í fremstu röð. Starfsoika þeirra hjóna og búrausn, gat þá fvrst farið að njóta sín til fulls er þau fluttu heim að Möðrudal Þar var Jóni bónda allt kunnugt og kært. Þar var fyrirheitna landið, þar voru fyrir hondi hin ákjósan- legustu skilvrði til þróunar þeirra bestu kosta. Möðrudalur er algerlega sier stæð jörð svo að sambærileg hliðstæða her.nar mun ekki vera til á landi hjer. Víðlendi afar- mikið. en þó skarpt afmarkað af gróðurlausum fjöllum og belj andi jökulvötnum Þarna geng- ur búfje Möð udalsbónda út af fyrir sig, í eigin landi, besta kjarnlandi árx ágangs utan frá. Möðrudalsbór.di lendir því að nokkru utan við lög og rjett, að því er tekur til venjulegra lögskila Það má bera það í hug sjer að þarna sje ofurlítið ríki í ríkina. Menn og málleysingjar njóta þarna meira frjálsræðis, meira frelsis en venjulega ger- ist. Sagan sýnir að þetta hefir vel gefist Þarna eru bestu skil- f yrði til þess að manndómur sroskist, og að fjeð verði fullt og feitt. Þessa sjerstöðu staðháttanna skildi Stefán bóndi Einarsson manna best og kunni sjer vtr aí> notfæra. Hið sama má segja um Jón Aðalstein bónda. Hann kunni fuli skil á öllum „einkamálum,'• Möðrudals. Sást brátt á öllu a<t nú var Jón bóndi kominn heim. Hann leysti þegar út erfðahluta systkina sinna og eignaðist þar með alla jörðina. Endurreisti bæ sinn fljótlega og önnur hús og reisti siðar sjálfstætt myndarlegt steinhús. Jón bóndi rak ávalt stórt og afurðagott bú í Möðrudal. Synir hans þrír, Vilhjálmur, Þórhallur og Stefán unnu framan af heima á búi föður síns og áttu fjölda fjár, enda allir dugnaðarmenn og upplagðir fyrir fjárrækt og bú- skap. Þórhallur er enn í sám- vinnu við föður sinn. Þótt engjalönd í Möðrudal sýndust ekki árennileg fyrir vjel- ar, fjekk Jón sjer þó brátt sláttu- vjel. Eru nú fleiri vjelar á staðn- um, notaðar með fullum árangri, enda hafa engjar batnað mikið á síðari árum, meðal annars vegna vj eianotk unarinnar. Sá, sem þekkti Möðrudalsheim- ili fyrrum og kynnist nú hinni einstæðu höfðinglegu gestrisni og búrausn þeirra hjóna, Jóns Að- alsteins og Þórunnar, sannfærist þegar um að þau hafa trúlega borið uppi og viðhaldið hinni landlægu Möðrudalsrausn. Kemur nú til kasta barna Jóns Aðalsteins, að henda merkið á lofti og halda uppi rausn stað- arins, þeirri, sem áður var og enn viðhelst. Þrjú íbúðarhús úr steini eru nú risin á staðnum. Tvö af börnurn Jóns búa nú sjálfstætt þarna heima. V-ilhjálmur, giftur Mar- grjeti Sveinsdóttur og Jóhanna, gift Jóni Jóhannessyni. Hvoru- tveggja hjónin eiga margt barna. Er því mannfleira í Möðrudal nú en áður var. Ef tímar breytast til hins betra, um rækt fólksins til óðala og ættarslóða — og vissulega breytast tímarnir — mætti hugsa sjer að þar í Möðru- dal risi upp heimagerð nýlenda — heimagerð — „Hollast er heima hvat“. Ekki vantar land- rýmið, ekki vantar ,.bætiefni“ í moldina, ekki vantar svigrúm til athafna í fullu sjálfræði og frelsi. Sterkustu þættirnir í skap- og manngerð Jóns bónda er óvenju mikill starfsdugur, borinn uppi af síkviku fjöri og glaðvakandi áhuga, sem stundum getur orðið að aðsúgsmiklum ákafa — sjald- gæf fjölhæfni og hugkvæmni * störfum og loks vökul listhneigð á fleiri sviðum. Fylgjum Jóni bónda að verki einn eða tvo daga. Hann tekur nál og þráð og stangar leðrið, hefil og sög og fellir saman timbrið, hamar og smiðju og slær járnið — meðan það er hpitt, múrskeiðina og límir steininn og fágar. Nú — þarna er hann þá kominn með málaraburstann, til að festa í minni svip og sýn, geng ur svo að orgelinu og leikur og syngur. Allstaðar er Jón með á nótunum. Listhneigðin tekur fjör kippi, og heimtar sínar fórnir. Jón hefur engan frið, en hann hefur þann dásamlega eiginléika, að geta brotið sig í mola, og skift sjer, þátt fyrir þátt, milli ólík- ustu viðfangsefna — og komið heill af hólmi, að öllu búnu. Framh. á bis. 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.