Morgunblaðið - 21.03.1950, Side 1
37. árganguT
67. tbl. — Þriðjudagur 21. mars 1950.
PrentsrmCja Morgunblaðsins
Ospektir og verk-
föll á N-ltalíu
Mokkrir menn særast
Einkaskeyti til Mbl. frá Reutcr.
RÓM, 20. mars: — í dag kom til átaka milli verkamanna og
lögreglu í Terni fyrir norðan Róm. Hafði þar verið stofnað til
æsingafundar gegn innanríkisráðherranum, Mario Scelba,
vegna reglugerðar þeirrar, sem sett hefir verið til að auka á
öryggi þegnanna.
I átökum þessum særðust 5'*'
verkamenn og 2 lögreglumenn. j
Að undanförnu hafa kommún-
istar æst verkamenn allmjög til
óhæfuverka á Ítalíu, og þótti
því ekki annað fært en setja
nýja reglugerð, þar sem aukið
væri öryggi manna. M- a- er
lögregla landsins aukin og
bannað að halda æsingafundi.
Verkföll á N.-Ítalíu
morgun á ýmsum stöðum og
hurfu úr verksmiðjunum að
undirlagi kommúnista. Gætti
mótþróa þessa einkum í iðn-
aðarborgum N.-Ítalíu, svo sem
Milano, einnig í Bologna, Tor-
ino, Genoa og Flórens. — Á and
mælafundum, sem stofnað var
til, var hin nýja reglugerð vítt.
Talað um að skertur hafi verið
rjettur verkamanna. Strætis-
vagnar og sporvagnar stöðvuð-
ust í ýmsum borgum N.-Ítalíu.
Mikif var þessi
sprenging
STOKKHÓLMI, 20 mars. —
Geysileg sprenging varð í veit-
ingahúsi í suðurhluta Stokk-
hólms í morgun, svo að engu
var líkara en sprengja hefði lent
á húsinu. Sprengingin svipti
gluggunum úr og köstuðust þeir
langar leiðir, einn útveggur ó-
nýttist, feikistór ísskápur þeytt
ist um eldhúsið þvert, 25 kg.
krukkur með ávaxtamauki
flugu eins og skæðadrífa út um
gluggatóftirnar og höfnuðu
langt í burtu, allt var á tjá og
tundri og þakið glerbrotum.
Til allrar hamingju meiddist
enginn, en svo vel vildi til, að
sprenging þessi varð rjettum 5
mínútum áður en starfsfólkið
kæmi.til vinnu sinnar.
Talið er að hitavatnsgeymir
hafi valdið sprengingunni.
í andmælaskyni við þessar ^
nýju reglur lögðu þúsundir,
manna ólöglega niður vinnu í
Jessup er ekki komxn-
únisti &g heiir aldrei
verið hlynntur þeim
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter
WASHINGTON, 20 mars. — Einhver kunnasti Bandaríkja-
maðurinn nú, þeirra, sem við utanríkismál fást, er vafalaust
dr. Jessup, en hann er nýkominn heim úr veigamikilli sendi-
för til Austurlanda. Fyrir 10 dögum bar öldungadeildarþing-
maðurinn MacCarthy dr. Jessup á brýn óvenjulegt samband
við málstað kommúnista.
Jessup kom fyrir rannsókn-<
arnefnd öldungadeildarinnar
vegna þessa áburðar í dag.
Er ekki kommúnisti.
Sendimanninum fórust svo
orð: „Jeg vil endurtaka það ský
laust og afdráttarlaust, að jeg
er ekki kommúnisti og hefi
aldrei verið það. Jeg er ekki
og hefi aldrei verið hlynntur
kommúnistum".
Alvarlegur áburður.
Dr. Jessup sagði, að það væri
ákaflega „alvarlegt“, þegar
sendimanni Bandaríkjanna
væri brigslað um lygar og land-
ráð í áheyru alls heimsins. —
Hafði MacSarthy sakað fjöl-
marga embættismenn um
kommúnisma.
Hungursneyðin
í Kína
LONDON, 20. mars: — Þús-
undir manna hafa nú orðið
hungurmorða í sumum hjeruð-
um Kína, og vofa sömu örlög
yfir milljónum manna, ef ekk-
ert verður að gert. Taldar eru
ýmsar ástæður þessa ægilega
matvælaskorts. Drepsóttir hrjá
mannfólkið, og flóð hafa eytt
land og uppskeru. Þar við bæt-
ist, að kommúnistar hafa kraf-
ið bændur mikils hluta upp-
skerunnar og rænt þá þannig
matnum og viðleitninni til
sjálfsbjargar. — Reuter.
Verðhækkun vara bönnuð
nema verðlagsyfirvöldin
Sigfús Biöndal
Ijest s.l. sunnudag
Einkaskeyti til Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 20. mars.
- Sigfús Blöndal ljest í gær að
heimili sínu í Horsholm, Dan-
mörku. Hafði hann verið rúm-
liggjandi um mánaðarskeið og
þjáðst af hjartasjúkdómi. Ný-
verið fjekk hann svo lungna-
bólgu, er leiddi hann til bana.
í blöðunum er Sigfúsar-
Blöndal getið sem mikilhæfs
vísindamanns og bókavarðar,
er innti m. a. af höndum ágætt
og mikilvægt starf í Konung-
legu bókhlöðunni. — Páll.
Bandaríkjamenn
munu bráSlega
senda Brefum and-
mælaorðsendingu
NEW YORK, 20 mars. —
Bandaríkjamenn vinna nú að
orðsendingu til Bre.ta, þar sem
þeir krefjast þess, að þeir opni
markaði sína aftur fyrir olíu frá
Bandaríkjnum. Segir frá þessu
í blaði í New York í dag. Á
seinasta ári afrjeðu Bretar að
hætta að kaupa olíu frá Banda-
ríkjunum, en afla hennar þess
í stað frá sterlingssvæðinu.
Ráðsfefna blindia
í París
PARÍS, 20. mars: — í dag kom
saman í París ráðstefna, er
fjalla skal um málefni blindra,
en þeir eru nál. 7.000.000 í
heiminum. Ráðstefna þessi er
haldinn á vegum uppeldis- og
■fjelagsmálanefndar* S. Þ. og
mun aðallega vinna að því að
koma á samræmingu í rittákn-
um, er notuð eru í blindra letri.
heimili hana
Almenningur sýni béfsemi
Tilkynning frá ríkissfjórninni.
1 SAMBANDI við þá breytingu á skráningu krónunnar, sem
nú hefur gengið í gildi, vill ríkisstjórnin taka fram, að
bannaðar eru allar verðhækkanir á aðfluttum vörum, sem
nú eru í verslunum eða hjá innflytjendum og verðlagðar
hafa verið með samþykki verðlagsyfirvaldanna áður en
gengisbreytingin gekk í gildi. Sama gildir urn vörur ís-
lenskra iðnfyrirtækja og má engin hækkun á erlendum
vörum eða innlendum iðnaðarvörum eiga sjer stað nema
heimild sje gefin til þess af verðlagsyfirvöldunum.
Njósnarinn Fuchs
enn á dagskrá
LONDON, 20 mars. — Attlee
forsætisráðherra Breta lýsti því
yfir í neðri málstofu þingsins
í dag, að breska stjórnin hefði
ekki fengið neinar viðvaranir
vegna kjarnorkunjósnarans
Klaus Fuchs frá Kanadastjórn,
þegar rannsóknarnefndin sat
þar árið 1946.
Einn þingmanna ísaldsflokks-
ins spurði Attlee, hvort hann
vissi, að sendiherra Rússa í
Kanada á þeim tímum, er
njósnamálin voru þar á döfinni,
hafi verið eitthvað við rjettar-
höldin riðinn og að þessi sami
maður væri nú sendiherra
Rússa í Bretlandi og hafi nú
farið til Moskvu. Forsætisráð-
herrann svaraði því engu.
Klaus Fuchs var sem kunn-
ugt er fyrir skemmstu dæmd-
ur í 14 ára fangelsi fyrir að
hafa frætt Rússa um kjarn-
orkuleyndarmál.
— Reuter.
Stjórnarkreppan
í Belgíu torleyst
BRÚSSEL, 20. mars. — Forsæt-
isráðherra fráfarandi stjórnar í
Belgíu, Eyskens, átti allan dag-
inn í dag í samningum við
stjórnmálaleiðtoga landsins, ef
takast mætti að mynda stjórn,
sem væri sammála um framtíð
Leopolds konungs. Mun Eysk-
ens ekkert hafa orðið áengt.
Víðsvegar um landið leggja
menn niður vim.u til að and-
mæla því, að konungurinn
kæmi til ríkis á ný. í Ant-
werpen áttu t. d. 24.000 hafnar-
verkamenn og aðrir í verkfalli.
Fjöldi skipa beið afgreiðslu.
— Reuter.
’ Ríkisstjórnin mun gera sjer-
stakar ráðstafanir til að sjá um
að þessum fyrirmælum sje
fylgt og að fullri ábyrgð sje
komið fram gegn öllum er til-
raun gera til að ná óeðlilegum
og ólöglegum hagnaði í sam-
bandi við verslurarálagningu,
vegna gengisbreytingarinnar.
Vörudreifingin verði jöfn
Vegna þeirra takmörkuðu
vörubirgða, sem nú eru í land-
inu, skorar ríkisstj >r nin á versl
anir og iðnfyrirtætd um allt
land að dreifa þessum vörum
sem jafnast til neytenda og sjá
um, að vöruafhendingu til ein-
staklinga sje stillt svo í hóf, að
hver og einn fái sinn skerf, eft-
ir því sem frekasl er unnt,
meðan verðlagið er að ná jafn-
vægi.
Almenningur sýni hófsemi
Ríkisstjórnin beir.ir ennfrem-
ur þeim eindregnum tilmælum
til almennings, að hann sýni hóf
semi og stillingu í þessum efn-
um og öðrum er varða ákvæði
hinna nýju laga um gengisskrán
ingu o. fl., meðan efnahagsá-
standið í landinu er að leita jafn
vægis í samræmi wið þau lög.
Þjóðin á nú öll sem einn mað-
ur lífsafkomu sína undir því að
gengisskráningarlögin nái til-
gangi sínum. Hver sá er torveld
ar eðlilega framkvæmd lag-
anna, bregst því skyldum sín-
um gagnvart samborgurum sín-
um og sjálfum sje
Rjett enn njéfflir
í hjálöifdtinra
SOFÍA, 20. mars: — í dag voru
nokkrir Júgóslavar sakaðir um
„njósnir og spillandi starfsemi
í Búlgaríu“. Að sögn búlgörsku
frjettastofunnar höfðu þeir
verið sendir til Búigaríu til að
reka njósnir undir beinni
handleiðslu júgóslavneska ræð-
ismannsins. — Reuter.