Morgunblaðið - 21.03.1950, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.03.1950, Blaðsíða 8
8 MORGVNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 21 mars 1950. - Þjóðnýting i | r íl! Frh. af bls. 7. rjtari T. U. C. Kaup það, er hjann hafði fyrir störf sín í þágu verkalýðssamtakanna, héf ur að vísu verið hækkað eitt- hvað lítilsháttar, en er þó iangt frá því að standast samanburð við það, er hinn þjóðnýtti iðn- aður býður. i Hæst launuðu verkalýsleið- tþgarnir, þar á meðal aðalritar- aþ stærstu verkalýðssamtak- ahna, hafa aðeins sem svarar til 1560 sterlingspundum í árs- tekjur. Ekkert samkomulag. i Ejckert sámkomulag hefur ofðið um það, hvort verkalýðs- leiðíogarnir ættu að miða laun sín við svipuð störf annarsstað- a:, eða það hvort þeir ættu í eltt skipti fyrir öll að neita að taka við hærri launum, þótt þsir taki við störfum innan þjóð n í'tingarinnar. En eins og tim- ahiir eru nú, ætti aðeins síðari leiðin að vera faranleg. rtæfni manna — róttaekar breytingar. Deilurnar standa um hæfni mannanna til starfa og hafa verið mikið ræddar í dagblöð- unum og af stjórnmálamönnum verkalýðssamtakanna á síðari árum hafa heyrst háværar radd ií innan verkalýðssamband- anna, og þá helst frá hinum óbreyttu meðlimum þeirra, um það að vitneskja sje fyrir því, að ýmsir af verkalýðsleiðtog- um síðari ára, hafi ekki verið eins hæfir til forustu og skipu- laginingarstarfa, eins og þeir hafi viljað láta og þörf hefði verið á. Og aðeins róttækar ráð stafanir til þess að þjálfa upp menn til forustustarfa, gætu bjargað verkalýðshreyfingunni frá þessari hættu. Mikill skorfur á sykri og fe í Bretlandi LONDON, 17. mars. — Morris Webb, hinn nýi matvælaráð- herra Bretlands átti fyrsta fund sinn með frjettamönnum í dag. Hann talaði um það að vonandi yrði bætt úr vöruskortinum í Bretlandi á næstu mánuðum. Þó sagði hann, að litlar líkur væru til að rættist úr með skort á sykri og te. Harn kvað geysi- miklar tilraunir hafa verið gerð ar til að auka tekaup í Asíu, en það hefur reynst ókleift. — Reuter. MiiiiiiiliiiiiiiiiiiiMiMimiiiiiiiiiiiiiitaiiifiiiiiiiiimiiiiu, I Takið effir f Tái að mjer að sauma sniðna | kvpn-vinnusloppa, 'kvenblússur i og'undirföt. Helst fyrir versl.in- 1 ir eða verksmiðjur. Tiiboð iegg- | ist inn á afgr. blaðr.ins fyrir | föstudagskvöid merkt: .,Vand- i virkni — 466“. Sveif Hciga JáBisonar bridge- meistarat Hafnar- fjarðar Hafnarfirði 18. mars. SÍÐASTA umferð meistara- keppni Biidgefjeiags Hafnar- fjarðar vax spiluð í gærkv., í Sjálfstæðishúsinu hjer í bæn- um. í keppni þessari voru alls spilaðar 5 umferðir. en sex sveit ir tóku þátt í henni. Sigurveg- ari keppninnar, og þar með bridgemeistarar Hafnarfjarðar 1950, va,-ð sveit Uelga Kristjáns sonar, en auk Helga eru í sveit- inni Gunnar Magnússon, Guð- laugur B. Þórðarson, Reynir Eyjólfsson og Guðmundur Atla son (varamaður). Keppni þessi er bikarkeppni og er keppt um bikar, sem Jón Mathien kpm. hjer í bænum gaf á fvrsta ári Bridgefjelagsins. — Handhafar bikars þessa hafa áður verið: Sveit Jóns Guðmundssonar ’47 og ’48 og ;veit Arna Þorvalds- sonar 1949. I gærkvöldi fóru leikar svo að sveit Hclga Kristjánssonar, vann sveit Jóns Einarssonar, sveit Jón= Guðmundssonar vann sveit Ey.stems Einarsson- ar, en sveitir Arna Þorvalds- sonar og Olafs Guðmundssonar gerðu jafntefli. Stisatala sveitanna að keppn inni lokinni. varð því sú, að sveit Heiga Kristjánssonar hlaut 9 stig. sveit Jóns Guð- mundssonar hlaut 8 stig, sveit Eysteins Einarssonar hlaut 6 st., sveit Arna Þorvaldssonar 4 st., sveit Ólafs Guðmundssonar 3 st. og sveit Jóns Einarssonar 0 stig. Samkv. iögum Bridgefjelags ! Hafnarfiarðar falla tvær neðstu sveitirnar niður í 1. fl. Kennni við Selfossinga. Ákveðin hefur verið keppni milli Bridgefjelags Hafnar- fiarðar og Brideefjeiagsins á Selfossi. Fer sú keppni fram n. k. sunnudag að Selfossi. Keppt verður á fimm borðum. IIIIIMIf 1111 IIIIHMIIIIIIIIIIIIIH Fundiir jafeaíar- iiamra í HaiSmp HASTINGS, 18. mars. — Hjer í borg eru sarnankomnir á fundi nokkrir leiðtogar jafnað- armannaflokka Evi’ópu. Fund- urinn er undir forsæti Morgan Phillips, ritara breska verka- mannaflokksins. Verkefni fund- arins er að vinna að sameigin- legri stefnuskrá og samvinnu við að ná markmiðum jafnaðar- stefnunnar. — Reuter. 'HIIIHIHIHMHHIIHfllHltlMIIIMHIIIMIHIHMHMIHIIIHHMI SKAP.TGKIPAVERSIXN Signrþór Jóirison & Go. : Hafnarstræti 4. Fjölbreyttar tœkifœrisgjafir Saumasfúlkur Nokkrar vanar saumastúlkur geta fengið atvinnu. Upp- lýsingar í verksmiðjunni VERKSMIÐJAN DÚKUR H.F. BRAUTARHOLTI 22 Guðbjörg Ágúihdéffir P. 1. ás-iíst 1947 — 14. mars ’50 Frú Jóhanna Jóhannes- dóttir prestsekkfa frá Bergsstöðum — IHinning LITIÐ barn kveður þenna heim. Foreldrar, bróðir, ættingjar og vinir eiga erfitt með að átta sig á þessari staðreynd. I dag verður þessi litla elsku- lega stúlka lögð sofandi í skaut móður jarðar. Saga hennar varð skemmri en vonir ástvina stóðu til, en þessi stutta saga er fögur, og hvergi fellur skuggi á sólfagra minn- ingu. Við skiljum og tökum innileg- an þátt í sorg foreldra og bróður, en við viljum um leið horfa fram og hugleiða það sem gerst hefir. Lítið barn hefir sofnað hinum meiri svefni. Yfir fáu hvílir jafn- mikill yndisþokki og ró, jafnmik- ill friður og kyrrð og yfir sofandi barni, það vita allir foreldrar. Það má vera nokkur huggun að vita það, að engar þrautir nje á- hyggjur fái nokkru sinni þjáð þann sem maður syrgir. Við lifum í heimi sívaxandi tækni, en um leið sívaxandi tor- tryggni og ótta um framtíð mann kynsins. Hvað er framundan? — Hvað bíður barna okkar? Spurn ingar sem enginn getur svarað, sem betur fer. Það er mikill vafi á því að slíkt svar gleddi okkur. Við trúum því samt sem áður að við sjeum á leið til meiri broska og fullkomnunar og að jarðiífið sie aðeins áfangi á óend anlegri leið. Við trúum því að okkar bíði æðri og þroskasamlegri störf að lokinni veru okkar hjer, þó að við sjeum eðlilega misjafnlega vel undir það búin. Eitt er víst, að sá sem ekkert rangt hefir að- hafst og engri veru mein gert er til þess hæfur að gegna miklu og göfugu hlutverki, og við erum öss um það, að þessi blessaða litla stúlka, sem við kveðjum í dag um stundarsakir sje kölluð til þess að gegna veglegu starfi í sumarlandi lífsins sjálfs. — Það "etur hjálpað okkur til þess að sætta okkur við burtför hennar hjeðan að hennar hafi verið meiri börf á öðrum stað og við önnur skilyrði sem enn bstur hæfðu barnslegu sakleysi hennar og blíðu, aðdáanlegri starfsorku og starfsgleði jafn ungs barns. Foreldrar og bróðir mega vera þess fullviss að þegar þau að lokinni þjónustu sinni við þetta líf, nálgast strönd þess fagra lands sem við ekki eygjum með okkar jarðnesku augum, þá stend ur litla elskaða stúlkan þeirra þar og rjettir þeim litlu hendina sína. Það verður hennar endur- gjald fyrir þá ástúð og um- v,'"'rgju sem þau veittu henni hjer. Blessuð sje minning hennar hjer og blessuð veri starf henn- ar og framtíðí þar sem hún dvelur nú. Jón Agnars. MJER verður hugsað norður í Húnavatnssýslu. Þar eru í aust- ur sýslunni dalir krappir og lang- ir, skjólarsamir að vísu, en þröng ir milli fjalla. í einum þeirra, Svartárdal, eru Bergsstaðir, prestssetur áður fyrr. Þar breikk- ar dalurinn nokkuð og undir- lendi verður ögn víðáttu meira, grundirnar meðfram Svartá meiri fyrir sjer og umhverfið vinalegt og hlýlegt. Vorið 1889 kom þangað ungur prestur, efnismaður hinn mesti, ljúfur í umgengni allri og prest- ur hin besti. Hann setti þar bú saman, af litlum efnum þá. En á þeim tímum þótti það jafn mik- il fjarstæða, að ungur prestur tæki ekki sjálfur prestsetursjörð- ina til hirðu og umbóta, ef unnt var, eins og hann vanrækti em- bættið. Svo nátengd var andlegt líf gróðurmoldinni og samlífi við náttúruna, og svo ólíkt var lífið í þá daga því upplausnar ástandi og andlega hordauða, sem nú er lifað. Þessi ungi prestur var sjera Guðmundur Helgason frá Svína- vatni í Svínavatnshreppi. Hann kvæntist 1890 Jóhönnu Jóhann- esdóttur óðalsbónda á Brekku í Þingi. Og verður* hennar hjer minnst með örfáum orðum, því að hún verður til moldar borin í dag í Fossvogskirkjugarði. Sambúð þessara ungu prests- hjóna varð sorglega stutt, því að eítir 5 ára samveru missti frú Jó- hanna mann sinn frá 4 sonum þeirra, er voru sinn á hverju ári, allir börn í vöggu að heita mátti. Þetta var mikil og þung alda, er skall á fleygi ungrar konu, er var lítt efnum búin. Hinir ljúfu samverudagar voru liðnir. Það hafði aðeins verið örstuttur sólskinsdagur. Framundan var þung ábyrgð, dimmir dagar og þrotlaust starf og stríð. Og — eins og þá var í haginn búið með afkomu ekkr.a og munaðarlausra — næstum óyfirstiganlegir erfið- leikar. Það, sem barg þessari mikilhæfu konu best í þessu harmanna skammdegi var það, að svo hafði samlíf hjónanna fljettast í sorg veikindanna og vissunni um burtför hans, að henni fannst sem hollráð hans og huggunarorð kveða sjer sífellt í eyra. Og hún hagaði lífi og fyr- irætlunum eftir hverju því hug- boði, sem að handan kom. Hún vissi, að það var guðsrödd með kveðju kærleikans frá vininum horfna. Þegar frú Jóhanna, verið eftir lát manns síns, flutti frá Bergs- stöðum og varð að skila af sjer því, er við hafði verið tekið staðn um viðkomandi, var bú hennar lítið og skuldir nokkrar, þar á meðal gamlar skólaskuldir, sem hið skammvinna líf unga prests- ins hafði ekki enst til að lúka. Einn vina frú Jóhönnu sagði við hana í bestu meiningu, að hún yrði að gera bú sitt gjaldþrota, því að þetta, ásamt uppeldi barn- anna, yrði henni algerlega um megn. En hún svaraði, að ekkert væri sjer fjær skapi og fyrst af öllu myndi hún greiða þá skuld- ina, er manni sínum hefði verið hugleiknast að losna við. Svo stórbrotin og gagnheiðarlegur var hugsunarháttur þessarar konu. Frá Bergsstöðum flutti hún að kirkjujörðinni Blöndudalshólum og bjó þar nokkur ár. Þar lagði hún á sig allt það erfiði, sem hugsanlegt er að kona geti af hendi leyst. Hún hafði tekið að sjer tveggja starf, og hún ætlaði ekki að bregðast því. Þegar drengirnir hennar voru komnir að skólaaldri, fluttist hún alfarin úr Norðurlandi til Suður- lands, þar sem styttra var og að ýmsu leyti hægara að ná til menntastofnanna. Bjó hún þá í nágrenni Reykjavikur, þar á með al á Varmá í Mosfellssveit i r.okk ur ár. En á seinni árum keypti hún Arnarnes í Garðahreppi. Syni sína þrjá kostaði hún í latínuskólann og til framhalds- náms og einn á búnaðarskóla. Allir höfðu þeir miklar gáfur og góða námshæfileika. Ekki verð- ur annað sagt, en að þetta hafi verið mikið lífsstarf einstæðrar ekkju. En þess ber að geta, að ! við hlið hennar stóð önnur kona, svo sjerstök að trygglyndi og fórnfýsi, að mjög er sjaldgæft. Á fyrsta ári hinna ungu prests- hjóna kom til þeirra að Bergs- stöðum Ragnheiður Gísladóttir frá Litladal í Svínadal. Þessar tvær konur skildu aldrei uppfrá því. Þær lögðu saman hin miklu störf sín, fórnfýsi og- mannkosti. Þannig liðu árin og drengirnir fjórir komust upp. Að vísu var gangan erfið og á brattann að sækja, en markmiðið var göfugt og gott. Ýmsir erfiðleikar og harmar í sambandi við ástvinamissi urðu enn á vegi frú Jóhönnu. Yngsti sonur hennar, Ingvar, andaðist 1939, og Helgi læknir í Keflavík, elsti sonur hennar, ljest að Vífils- stöðum árið 1949 eftir langa van- heilsu. Síðustu árin dvaldi hún í skjóli sonar síns og tengdadóttur á Laugavegi 143 og átti þar góða og rólega daga. Hún var nú orðin aldin að árum, en móðurást henn ar og umhyggja var enn heit og ung, og tryggð hennar til ætt- menna og vina hin sama og allt- af. — S. 1. sumar, þá 91 árs, fór hún með Steingrími syni sínum orður að Bergsstöðum, til þess að yfirlíta frágang á leiði manns síns, þar sem hún hafði látið setja legstein og að öðru leyti búa varanlega um legstað lians. Þá er hún hafði kvatt þennan stað, er háfði að geyma mestu gieði og stærstu sorg hennar, sagði hún, að nú væri sjer ekk- ert að vanbúnaði að kveðja heim, sem verið hafði henni harð- ur skóli, en „gerðist loksins sig- urbraut". Hún var minnug á allt, sem verið hafði henni til hjálp- ar og gleymdi aldrei þeim vin- um sínum, sem á einhvern hátt böfðu greitt götu hennar. — Sjálf mun hún ekki gleymast þeim, sem skildu lífsstarf henn- ar og meta kunna mannkosti hennar, heilsteypta skapgerð, af- burða þrek og fórnarlund. Frú Jóhanna var fædd að Brekku í Þingi 19. júní 1858. For- eldrar hennar voru merkishjónin Sigurlaug Eiríksdóttir og Jó- hannes Eyjólfsson. Gamall Húnveíningur HHHHIHHIHHHMHHMMHHHIIHHHHHIMHHHHHIMIHHII | Sbúð éskasl | I 1—2 herbergja íbúð óskast til i z leigu, strax eða síðar. Tveimt : 1 fullorðið i heimiii. Tilbuð sem § i tilgreini mánaðarleigu og aðra I | greiðsluskiimála, senclist til ..Igr. : : blaðsins fyrir föstudagskvcld i i merkt: .Tvennt fullorðið ■— 486“ i IJÓSMV ðDASTOFA h'.mu & F.iriks er i Ingólfsapóteki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.