Morgunblaðið - 16.05.1950, Page 1

Morgunblaðið - 16.05.1950, Page 1
37. árgany. 110. tbl. — Þriðjudagur 16. maí 1950. Preutsmiðja Murgunbiaðsin* Atlanfshafsráðtð FUNDUR utanríkisráðherra Atlantshafsríkjanna hófst í Lond- on í gær og stendur í fjóra daga. Dean Acheson, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, er í forsæti. Hjer sjest Ernest Bevin bjóða hann velkoniinn til Englands. Friðartal kommúnista er ekki af heilindum mælt FulHrúar sfærsfu hernaðarsamsteypu Evrópu vafasamir formælendur friðarins. Einkaskeyti til Mbl. KAUPMANNAHÖFN, 15 maí. — Nú eru fyrstu vopnin, sem Danir fá samkvæmt Atlantshafssáttmálanum, komin til lands- ins. Kommúnistar höfðu mikinn viðbúnað og hvöttu verka- mennina til að neita að skipa þeim upp. Verkamenn ljetu kom- múnista samt ekki hafa sig að ginningarfíflum og fór upp- ■skipun vopnanna fram án þess til nokkurra vandræða drægi. Hedtoft, forsætisráðherra* hefir komist svo að orði vegna þessa brölts kommún- ista, að áróður þeirra hafi engin áhrif á hugsandi verka menn. Oheilindi og friðarhjal Ráðherrann sagði, að sama máli gengdi í friðarmálunum. Menn hljóta áð verða tortryggn ir á allt friðarhjal komma, þeg- ar þess er gætt, að þeir eru fulltrúar stæltustu hernaðar- samsteypu Norðurálfunnar, og þó láta þeir skína í, að þeir sjeu einir um að berjast fyrir frið- inum. — Páll. Sænsk sprengjuflugvjel hrapar GAUTABORG, 15. maí: — í dag hrapaði sænsk sprengju- flugvjel yfir S.-Svíþjóð. Fór- ust 2 menn af áhöfn hennar. Ráðsfefna samveldis- landanna í Sidney SIDNEY, 15. maí: — í dag hófst í Sidney í Ástralíu ráðstefna bresku samveldislandanna um efnahagslega aðstoð til S.-A,- Asíu. Mun hún að nokkru vera árangur ráðstefnunnar í Kol- ombo á Seylon á s. 1. vetri. — Á þeirri ráðstefnu voru menn á einu máli um, að þessi heims- hluti þyrfti hjálpar við, eink- um í því skyni að gera kom- múnistum erfitt uppdráttar, því að það var skoðun fundarins, að þeir fengi ekki þrifist þar, sem kjör fólksins væri góð. Á fundinum í dag Ijet einn ræðumanna svo um mælt, að ástæðurnar væri nú enn verri í S.-A.-Asíu en þær hefði verið um þær mundir, er ráðstefnan í Kólombó stóð yfir. — Reuter. Fundir Atlantshufs- ráðsins hófust í gær IVfeginatriðið að treysta varnir þátttökuríkjanna Einkaskeyti til Mbl. frá NTB LUNDÚNUM, 15. maí. — í dag hófust fundir Atlantshafsráðs- ins undir forsæti Achesons. Fundina sitja m. a. utanríkisráð- herrar Atlantshafsríkjanna 12 og voru þeir allir komnir tii Lundúna, er fundir hófust. Fyrri hluta dags í dag munu við- ræðm-nar eingöngu hafa snúist um gang „kalda stríðsins“, en fundir ráðsins munu standa 4 daga, eða einum degi lengur en. ætlað hafði verið. Lie og Stalin MOSKVA, 15. maí. — Útvarpið í Moskvu skýrði frá því í kvöld, að Trygve Lie, aðalritari S. Þ., hefði gengið á fund Stalins í dag. Var Molotov viðstaddur fund þeirra. Lie kom til Moskvu á fimtu- dag, og hefir þegar átt tal við Vishinsky, utanríkisráðherra og Grómýkó, aðstoðarmann hans. Transjórdaníu verð- ur ef lil vil! vikið úr Arababandalaginu KAIRO, 15. maí: — Stjórn- málanefnd Arabaríkjanna situr á fundi í Kairo og ræðir um hvaða afstöðu skuli taka til Transjórdaníu vegna sameining arinnar við Araba-Palestínu. í kvöid krafðist Egyptaland, Saudi-Arabía, Lebanon og Sýr- land þess, að Transjórdaníu yrði vikið úr Arababandalag- inu. Iraq og Yemen hafa enn ekki látið skoðun sína í ljós í málinu. — Reuter. Ríkisdagurinn fær málið lil meðferðar Einkaskeyti til Mbl. KAUPMANNAHÖFN, 15. maí. Kaupdeila danskra landbúnað- arverkamanna hefir nú verið lögð fyrir Ríkisdaginn og mun þingið úr því skera, hvort gerð- ardómur fær málið til meðferð- ar eða önnur leið verður far- in. Stjórnin vill ekki, að gerðar- dómur fjalli um málið. Er á- stæðan sú, að sósíaldemókratar hafa alltaf verið andvígir slíkri lausn í vinnudeilum. Fyrir nokkru var borið fram sáttaboð, sem verkamennirnir fjellust á, en bændur höfnuðu og óskar stjórnin að það verði lögbund- ið. — Hins vegar er búist við, að Ríkisdagurinn samþykki, að gerðardómur fái málið til úr- skurðar. Ekki ætla menn, að stjórnin segi af sjer, þótt sú verði raunin, heldur muni hún beygja sig fyrir úrlausn meiri- hlutans. — Páll. Lýðræðisflokkurinn sigraði í Tyrklandi ISTAMBUL, 15. maí: — Lýð- ræðisflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu í Tyrklandi, virðist hafa unnið stórsigur í kosningum þeim, sem fram fóru í landinu í gær. — Ekki munu þó endanleg úrslit verða kunn fyrr en á morgun — (þriðjudag). Lýðræðissinnar munu fá % þingmanna kjörna, en undan- farin 25 ár hefir þjóðflokkur- inn setið að völdum. Lýðræðis- sinnar munu nú geta myndað stjórn, en ekki mun nein stefnu breyting verða í utanríkismál- um. —>Reuter. Serefse er fædd dótfir LUNDÚNUM, 15. maí: — í dag ól Ruth, drottning í Bechuana- landi, dóttur og heilsast mæðg- unum vel. Seretse Khama kvæntist þessari hvítu konu í fyrra. Af ýmsum ástæðum og þeim sumum alltortryggilegum, þóknaðist Bretanum að svipta Seretse völdum í 5 ár að minsta kosti, svo að hann dvelst nú í útlegð frá konu sinni og þjóð. í dag var þó sú rausn sýnd að leyfa manninum að sjá konu sína og dóttur. — Reuter. * Yfirgangur Rússa í dag flutti Acheson ræðu og kom víða við. Meginefni ræð- unnar var það, að þörf er sam- eiginlegs átaks Vesturveldanna til að stemma stigu fyrir yfir- gangsstefnu Rússa. Verkefni ráðstefnunnar Meginverkefni ráðstefnunnar er að fjalla um, hvernig varnir þátttökuríkjanna verði treystar sem best og hvernig það verði gert án þess kjörin rýrni í við- komandi löndum. Varnirnar þola cnga bið Þessi ráðstefna Atlantshafs- ráðsins er í beinu framhaldi af fundum utanríkisráðherra Þrí- veldanna í fyrri viku. Þar var því slegið föstu, að Atlantshafs ríkin verða að vinda bráðan bug að því að vinna að varnar- áætlunum sínum, vegna þess, hve horfur í alþjóðamálum eru nú ískyggilegar. Hópgöngu sundrað Áður en fundir hófust í Lancester House í dag, varð lögreglan að sundra hópgöngu stúdenta, sem báru áletruð spjöld. Áletranirnar voru í þess um dúr: „Einn heim eða eng- an ella“. Ekki þóttust hóp- göngumennirnir vera kommún- istar, og ekki kom til neinna óeirða, er lögreglan sundraði þeim. Nú laka fléðiii að sjatna í Kanada LUNDÚNUM, 15. raaí: — Nú er talið, að flóðin í Kanada hafi náð hámarki sínu. Þykir ekkí ólíklegt, að þau taki að sjatna upp úr hádegi á morgun, ef leys ingarnar aukast ekki á ný. Yfir 80 þús. manns hafa ver- ið fluttar frá Winnipeg, þar sem Rauðáin hefir gert mikinn usla og flæðir víðsvegar. Stofna þeir til nýrra vinnudeilna í Finnlandi? Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. HELSINGFORS, 15. maí. — í fyrri viku varð það að sam- komulagi milli vinnuveitenda og verkalýðssambands sósíal- demókrata í Finnlandi, að verkamönnum skyldi leyfð 15% launahækkun áður en kaupið yrði fest og látið fylgja fram- færsluvísitölu síðan. Kommúnistar ljetu sjer sam- komulag þetta ekki vel líka. — Höfðu þeir ætlað að stofna til allsherjarverkfalls, og kváðu hækkunina ekki hóga, er til samkomulagsins dró. Hafna samkomulaginu manna við leðuriðnaðinn sam- komulaginu, en kommúnistar ráða þeim samtokum. Telja verkamennirnir launahækkun- ina ékki nóga. Fleiri stjettar- sambönd, sem eru undir stjórn kommúnista, hafa hótað að í dag hafnaði samband verkahafna samkomulaginu. Frá heilbrigðismálastofnuninni LAKE SUCCESS: — Nýlega gerðist Nicaragua aðili að al- heimsheilbrigðismálastofnun S.Þ. Er þetta 69. þjóðin, sem stað- festir stofnskrána. Hinsvegar hafa 8 A.-Evrópuríkin rofið sam- vinnuna á þessum vettvangi und- ir forystu Rússa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.