Morgunblaðið - 16.05.1950, Page 6
IUORGUNBLAÐ.IÐ
Þriðjudagur 16. maí 1950.
fí
Útg.: H.f, Arvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðanxL)]
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Áskriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók.
Lækkun skatta
á lágtekjur
RÍKISSTJÓRNIN lagði í síðustu viku fyrir Alþingi frum-
varp til laga um lækkun á lágtekjum. Ákveðst sú skatta-
iækkun þannig að tekjuskattur gjaldanda, sem hefur haft
20 þús. kr. hreinar tekjur og hefur konu og eitt barn á fram-
íæri, skal lækkaður um 33 % af hundraði.
í athugasemdum við frumvarpið er þess getið að sú að-
ferð að lækka álagða skattaupphæð hafi verið valin vegna
þess að skattanefndir muni nú víðast hvar vera að Ijúka
störfum. Hafi þótt hægra um vik að framkvæma hana en
t. d. hækka persónufrádrátt.
Um þetta frumvarp ríkisstjórnarinnar er annars það að
segja að það er sanngjarnt og eðlilegt. Skattar eru orðnir
geysiháir í þessu landi og hvíla með vxandi þunga á öllum
almenningi. Er óhætt að fullyrða að þess sje brýn þörf að
endurskoða mörg ákvæði núgildandi skattalaga. Nefnd
hefur að vísu unnið að slíkri endurskoðun undanfarin ár.
Mun starfi hennar langt komið. En samkomulag hefur ekki
ennþá tekist um að taka tillögur hennar og niðurstöður til
meðferðar á Alþingi.
Á s. 1. ári samþykkti Alþingi eina mjög skynsamlega og
vinsæla breytingu á skattalögum. Með henni var aukavinna
einstakiinga við byggingu eigin íbúða undanþegin skatta-
álagningu. Höfðu Sjálfstæðismenn forystu um þá breyt-
ingu. Hefur hún átt mikinn þátt í að greiða fyrir íbúða-
byggingum einstaklinga.
Meðal þeirra breytinga, sem löggjafinn hlýtur óhjá-
kvæmilega að gera á skattalögum er hækkun persónufrá-
dráttarins. í öðru lagi verður að gera þá breytingu á að
hann verði jafn allstaðar á landinu. Það er hvorki sann-
girni nje skynsemi í því að persónufrádrátturinn sje lægri
út á landi en í höfuðborginni. Til þess kunna að hafa
legið gild rök einhverntíma en þau eru áreiðanlega brottu
íallin nú.
Þetta og margt fleira verður löggjafinn að taka til at-
hugunar þegar að skattalögum verður breytt.
Með Stalin - Móti raforku
KOMMÚNISTAR um allan heim halda því fram að efna-
hagssamvinna þjóða Vestur-Evrópu á grundvelli Marshall-
laganna hafi leitt til ófarnaðar fyrir þessar þjóðir. Með
glórulausu ofstæki reyna kommúnistar ao telja almenningi
trú um að þessi staðhæfing þeirra hafi við rök að styðjast.
í þeim áróðri er allra bragða leitað. Hverskyns erfiðleikar,
sem bera að höndum, eru skrifaðir á reikning efnahags-
samvinnunnar. Jafnhliða er svo spiluð platan um hina ósánu
markaði í Sovjet-Rússlandi.
Það er ástæða til þess að benda sjerstaklega á það nú,
þegar tryggður hefur verið mikill hluti þess erlenda gjald-
eyris, sem þarf til Sogsvirkjunarinnar og Laxárvirkjunar-
innar, að kommúnistar hafa barist eins og þeir hafa getað
gegn þessum nauðsynlegu og glæsilegu framkvæmdum.
Þeir vissu að eina leiðin til þess að þrefalda órkuframleiðslu
þessara aflstöðva var að fá til þeirra Marshallíje. Engu að
síður hjeldu þeir áfram að berjast gegn efnahagssamvinn-
unni. Rússar voru á móti Marshall, þess vegna þurftu ís-
lenskir kommúnistar að vera á móti Marshall. Hitt skipti
engu máli þótt Reykvíkinga, Akureyringa og þúsundir af
fólki í norðlenskum og sunnlenskum sveitum og kauptún-
um, skorti raforku til lífsþæginda, iðnaðar og margskonar
starfrækslu. Það var að áliti kommúnista algert aukaatriði.
Ef að einhverjir þeir menn eru til á íslandi, sem ekki hafa
gert sjer það ljóst ennþá að hagsmunir Rússa eru kommún-
istum allt, en hagsmunir íslendinga ekkert, þá hljóta þeir
nú að hafa fengið óvjefengjanlega sönnun fyrir villu sinni.
íslendinga vantar raforku og fje til þess að byggja orku-
ver, ekki aðeins við Sog og Laxá, heldur víðsvegar um land.
Þeir munu leggja á það áherslu að fá eins mikið fje til slíkra
framkvæmda og þeir eiga kost á með tilstyrk efnahagssam-
vinnustofnunarinnar. Að sjálfsögðu munu kommúnistar
hamast gegn því.
war d
*ar;
krifa
ÚR DAGLEGA
Dýrin fara á
fyllirí
MENNIRNIR eru ekki þeir
einu, sem þykir sopinn góður.
Eftirfarandi frjettaklausur um
,alkoholisma“ meðal dýranna
birtust nýlega í kunnu erlendu
vikuriti:
— Bóndi í námunda við Van-
couver í British Columbia leit-
aði ráða dýralæknis, eftir að
kýr hans höfðu hvað eftir ann-
að komið svo dauðadrukknar
heim, að rjett með naumindum
var hægt að mjólka þær. Dýra-
læknirinn rannsakaði málið og
komst að því, að kýrnar höfðu
komist í epli, sem tekin voru
að gerjast.
•
Rúmliggjandi
HEFÐARFRÚ í Genf, Sviss-
landj, fann íkorna á rúminu
sínu. Hún hjelt í fyrstu að hann
væri dauður, en við athugun
kom í ljós, að hann dró enn and
ann. Ennfremur kom á daginn,
að ikorninn var fullur; hann
hafði borðað upp úr kassa af
vínfylltu konfekti.
Hann raknaði úr rotinu, þeg-
ar líða tók á daginn, og hentist
hixtandi út í buskann.
•
Mús í flöskunni
FANGAVÖRÐUR í lögreglu-
stöðinni í Galesburg, Illinois,
fann útúrdrukkna mús í vín-
flösku, sem einhver lögg var
eftir í. Músin hafði þrifist svo
vel og fitnað á sprúttinu, að
hún komst ekki út úr flöskunni
Vörðurinn braut flöskuna til
þess að bjarga krílinu úr fang-
elsinu, en sú litla komst aðeins
nokkrar músarlengdir — og
steinsofnaði svo.
•
Fyllisvín
OG þá sú síðasta:
— Lögregluþjónar í Tulsa,
Oklahoma, sáu hvar svínfullt
svín slagaðj niður eina af göt-
um bæjarins. Þeir urðu for-
vitnir og eltu, og ferðinni laus
svo, að svínið vísaði þeim leið-
ina að fyrsta flokks bruggunar-
tækjum.
Svínið fór í landann og brugg
arinn var handtekinn.
•
Nokkur orð um
einkaflug
ÓKUNNUGIR líta á einkaflug,
eins og það er kallað, sem nokk-
urs konar vængjað lúxusflakk.
Kunnugir vita þó, að áhuga-
menn um flug eru hverri þjóð
nauðsynlegir, þótt ekki geri
þeir sjer flugið að aðalstarfi.
Það er þannig ekki almennt
vitað, en mætti gjarnan spyrj-
ast, að einkaflugmenn hafa
hvað eftir annað veitt mikils-
verða aðstoð hjer á landi.
•
Sjúkraflug
í FJELAGI íslenskra einkaflug-
manna, sem stofnað var 1947,
eru nú um 70 meðlimir, sem
ráða yfír um 15 einka- og
kennsluflugvjelum. — Fjelagið
hefur fjelagsheimili á Reykja-
víkurflugvelli, þar sem með-
limir gera flugáætlanir. ,En
margir einkaflugmenn hafa þeg
ar lokið eða ætla sjer að ljúka
atvinnuflugmannaprófum.
Samkvæmt upplýsingum fje-
lagsins, hafa meðlimir þess flog
ið mörg sjúkraflug og sótt sjúkl
inga á ýmsa afskekta staði, þar
sem stærri flugvjelum hefur
ekki verið við komið.
•
Eftirlit
ÞEGAR rafmagnsbilanir hafa
orðið í Reykjavík vegna línu-
slita, hafa einkaflugmenn verið
fengnir til að fljúga með lín-
unni og finna bilunina. Þannig
hafa þeir flýtt fyrir, að hægt
yrði að gera við línubilanir, því
oft þarf að leita yfir land, sem
er mjög ógreiðfært að vetrar-
lagi.
Stundum hafa einkaflugmenn
farið í eftirleit að kindum, þar
á meðal á mæðiveikisvæðinu,
þar sem niðurskurður hefur far
ið fram.
Svo einkaflugið er ekki jafn-
mikið lúxusflakk og margir virð
ast ætla.
Litla telpan
og kápan
LÍTIL telpa varð . fyrir stórri
sorg rjett fvrir helgina. Faðir
hennar segir frá þessu í brjefi
til Daglega lífsins.
Telrian, sem er fimm ára
gömul, var að leika sjer á barna
leikvellinum við, Njálsgötu um
hádegisbilið s.l. föstudag. Þar
varð hún fyrir því óhappi að
gleyma kápunni sinni. En þeg-
ar kápan fannst um kvöldið, var
búið að skera af henni alla
hnappana.
í brjefinu segir: „Jeg trúi
ekki, að börn geri svona hluti,
en hvað heldur þú?“.
LÍFINU
Ljelegt eftirlit
,,ER eitthvað farið að slaka á
eftirlitinu með vínveitingum á
skemmtistöðum?", er upphafið
á stuttu brjefi frá manni, sem
oft hefur sent Daglega lífinu
línu. Siðan segir í brjefinu:
„Fyrir rúmlega viku kom jeg
í veitingahús, þar sem vín var
á boðstólum. Þar voru tveir gest
ir áberandi drukknir og reikuðu
á milli borðanna. Annar þeirra
hafði að líkindum reynt að
„kæla“ sig ofurlítið; hann var
með rennblautt hár, eins og
hann hefði stungið höfðinu und
ir vatnskrana.
•
Fjekk að fara
sínu fram
„SVONA á sig kominn ljek
hann á alls oddi í veitingahús-
inu og heimsótti menn við
•fjölda borða, hvort sem þeim
líkaðí ver eða betur. En þjón-
arnir skiptu sjer ekki af hon-
um og Ijetu hann fara sínu
fram, eins og hann væri alls-
gáður uppáhaldsgestur.
Þetta hefur komið mjer til
að ætla, að byrjað væri að slaka
eitthvað á eftirliti með vínveit-
ingum, en svo á að heita, að
best jeg veit, að ekki megi selja
þeim mönnum vín í veitinga-
húsum, sem orðnir eru áber-
andi drukknir. — 67“.
Draaa ve
GÍSLI JÓNSSON flytur í ið athafnalaust allverulegan
sameinuðu þingi þingsálvkt- tíma. Þá má enn fremur benda
unartillögu um sparnað á út-
gerðarkostnaði
skipsins Grettis. — Tillagan
hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að gera nú þeg-
ar raunhæfar ráðstafanir til
þess að draga verulega úr
rekstrarkostnaði dýpkunar-
skipsins Grettis og að skipu-
leggja þannig verkefni skips-
ins, að hafnarframkvæmdir
þær, sem skipið vinnur að,
verði sem ódýrastar fyrir við-
komandi aðila“.
Ýtarleg greinargerð fylgir til
lögunni, þar sem G. J. deilir
harðlega á vitamálastjórnina
fyrir rekstur hennar á skipinu.
Telur hann þar hafa gætt lit-
illar hagsýni og sparnaðar, sem
hafi leitt til þungra fjárhags-
legra útgjalda fyrir ríkissjóð og
hjeruð þau, sem eru að fram-
kvæma hjá sjer hafnar- og
lendingarbætur.
43 þús. kr. laun
á mann.
í greinargerðinni segir G. J.
m. a.:
Sem dæmi um það, hversu
lítillar hagsýni hefur verið
gætt í rekstri þessa skips; skal
bent á, að samkvæmt rekstrar-
reikningi þess á s. 1. ári, sem
birtur hefir verið, eru vinnul.
til skipverja 609 þús. kr. á ár-
inu, eða sem svarar rúml. 43
þús. kr. á mann að meðaltali.
Af þessu eru skipstjóralaun
nærri 86 þús., 1. vjelstjóra um
50 þús., matsveins yfir 40 þús.
og háseta um og yfir 40 þús.,
allt auk margvíslegra hlunn-
inda, svo sem trygginga, orlofs,
fæðis, sjúkrasamlagsgjalda 0.
fl. Er þó vitað, að skipið hefur
á því ári engan veginn verið
á, að lítt skiljanlegt er, að skip,
dýpkunar- sem mestallan tímann liggur
að starfi alla daga, heldur leg-að óþörfu.
við land og er notað miklu
meira sem áhald en sem fljót-
andi far, skuli þurfa að hafa 14
manna áhöfn, þar með taldir
tveir matsveinar til þess að
matreiða fyrir aðeins 14 menn.
Hár fæðiskostnaður.
Rjett þykir einnig að benda
á, að matvörur eða fæðiskostn-
aður er rúmar 148 þús. kr. á
árinu fyrir aðeins 14 menn eða
rúmlega 10 þús. kr. á hvern
mann. Er þá ekki reiknað með
öðru en efninu í matinn. Sje
við þetta bætt launum og fríð-
indum matsveina, eldsneytis-
og áhaldakostnaði og öðru, sem
tilheyrir, en sá kostnaður nem-
ur að minnsta kosti 60 þús. kr.,
er fæðiskostnaðurinn orðinn á
þriðja hundrað þús. kr. fyrir
þessa 14 manna fjölskyldu eða
um 15 þús. kr. á mann. Er
hjer um slíka ofrausn að ræða,
að full ástæða er að spyrja um,
hvað valdi. Má nærri geta,
hvaða launakjör þyrfti almennt
í þessu landi, ef hverri 5 manna
fjölskyldu ætti að tryggja 75
þús. kr. eingöngu til fæðisút-
gjalda. Loks má benda á, að
dráttarkostnaður sýnist vera
allhár, eða nærri V4 miljón kr.,
og svo er um marga aðra liði
í rekstrarreikningi skipsins.
Þau hjeruð, sem af mikilli
fátækt verða að standa undir
slíkum útgjöldum, eiga heimt-
ingu á því, að gerð sje grein
fyrir því hvefs vegna þetta
þarf að kosta slíkar upphæðir,
sem fáir munu trúa, að sjeu
raunverulegar, og að allt sje
gert til þess að bæta það fyr-
irkomulag, sem sýnist ríkja hjer