Morgunblaðið - 05.08.1950, Page 1
37. árgangur
177. tbl. — Laugardagur 5. ágúst 1950.
Prentsmið)* Morgunblaðsih*
Akveðnir í að verja Formosa
Fyrir noltkru brá Mac Arthur, hershöfðingi, sjer til Taipeh á
Formosa, til viðræðna við Chiang Kai-shek og herforingja kín-
verskra Þjóðemissinna. Hjer sjást þeir Mac Arthur og Chiang
Kai-shck mætast á flugvellinum við Taipeh.
Frestað samþykkt laga
um valdaafsal Leopolds
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BRÚSSEL, 4. ágúst. — Enn hefur talsvert hitnað í glóðunum í
Belgíu, þegar það var tilkynnt í dag. að þingið hefði ákveðið að
fresta samþykkt laga um valdaafsal Leopolds konungs fram
til þriðjudags í næstu viku.
Klofningur í kaþólska
flokknum.
Astæðan til þessarrar frest-
unar mun verá klofpingur í
kaþólska flokknum. Ekki er
opinberlega vitað með neinni
vissu, hvernig þeim klofningi
er varið, en talið að minnihluti
í fiokknum álíti, að meirihluti
flokksins hafi svikið konung-
inn og neytt hann til að segja
af.sjer.
Enn býr ólga undir.
Lýðveldissinnar og kommún-
istar hafa reynt að nota sjer
þessar fregnir til að efna til
áframhaldandi innanlandsó-
eyrða. Ólíklegt er annars að
komi til mikilla óeirða úr þessu
þar sem ekki er vitað annað en
að samkomulag þriggja stærstu
flokkanna standi enn. Margs-
konar flugufregnir ganga í
Belgíu um atvikin að valdaaf-
sali konungs. Forsætisráðherr-
ann Duvieusart hefur því að
gefnu tilefni lýst því yfir, að
hann muni gefa út greinargerð
um málið til að hrinda ósönn-
um flugufregnum.
STOKKHÓLMUR, 4- ágúst. —
Leikflokkur frá Þjóðleikhúsi
Noregs er nú í gestaleikför í
Svíþjóð. Ljeku Norðmennirnir
Hamlet í bláa salnum í ráðhúsi
Stokkhólms. —NTB.
Bandarísk hernað-
arsendinefnd á
Formosu
TAIPEH, 4. ágúst. — Það var
tilkynnt í bækistöðvum Chiang
Kai-shek á Formosa í dag, að
komið yrði á fót sjerstökúm
bækistöðvum bandarískrar hern
aðarsendinefndar á Formosa.
Verður Alfonso Fox, hershöfð-
ingi, gerður að sjerstökum full-
trúa MacArthurs á Formosa.
Jafnframt þessu er hafin send-
ing hergagna til Formosa frá
Bandaríkjunum. Komu 6 banda
rískar þrýstiloftsflugvjelar
þangað í gær. —Reuter.
Segja Grikki æsa
iil ófriðar
LONDON, 4. ágúst — Albanska
stjórnin sendi Trygve Lie aðal-
ritara S. Þ. i dag kæru vegna
þess, að grískir hermenn hefðu
fimm sinnum á tímabilinu
6.—29. júlí farið yfir landa-
mæri Albaníu. Segja Albanir,
að Grikkir sjeu alltaf að reyna
að æsa til ófriðar á Balkan-
skaga! — Reuter.
Skógareidar geisa enn
í Frakklandi
TOULON,’ 4. ágúst. Skógar-
eldarnir nálægt Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands geisa enn.
Hörðu menn um tíma von um
að hægt yrði að slökkva þá, en
í dag breiddist bálið enn mikið
út, þegar breytti um vindstöðu
og hvessti. Fólk hefur þegar
yfirgefið þorpið Le Rayol, 50
km. austur af Toulon. Ekki er
vitað til að neinn hafi farist í
eldinum. —Reuter.
IVfialik reynir að tefja
framgang mála hjá S.Þ.
Ausiin iordæmir að Maiik misbeitir íorsetavaldi
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter»
LAKE SUCCESS 4. ágúst — Þegar fundur hófst í kvöld í Öryggis
ráðinu stakk Malik fulltrúi Rússa upp á því, að vopnahlje yrði
samið í Kóreu og allt erlent lið flutt þaðan úr landi. Umræðurnar
fiölluðu samkvæmt tillögu Bandaríkjamanna, um árás N-Kóreu
á S-Kóreu.
100 farast í---------------------—
jarðskjálfta Fiugsveit tfi Kóreu
PRETORIA, 4. ágúust. — Stjórn
CARACAS, 4. ágúst. — 100 . S.-Afríku ákvað í dag að bjóða
manns fórust í jarðskjálfta, j S-Þ., að senda eina flugsveit or-
sem skall yfir borgina Tocuyo ustuflugvjela til hjálpar S.-
í Venesúela í morgun. t Kóreumönnum. —Reuter.
Bandaríska liið í varnar-
línu við Nðkfong-fi|ótið
Stórskotahríð miki! fyrir vesfan Taegu
Einkíjiskeyti til Mbl. frá Reuter.
TOKYO, 4. ágúst. — Á miðhluta vígstöðvanna í Kóreu var harka
leg stórskotahríð í dag. Bandarísku hersveitirnar hafa nú búio
tm sig í varnarstöðvum austan Nak'tong-fljóts. Á suðurhluta
vígstöðvanna hafa kommúnistar gert öflug áhlaup en banda-
ríska liðið hefur staðið fast fyrir. Hersveitir S-Kóreu halda
áfram sókn sinni norður af Yongdok á austurströndinni.
Verjast við Naktong. *
Fljótið Naktong kemur upp
nálægt borginni Hamchang við
norðurhluta vígstöðvanna. Fell-
ur það síðan beint jtil suðurs
skammt fyrir vestan Taegu en
,beygir svo að lokum til austurs
og fellur til sjávar yið Fusan.
Við þetta fljót rnunu Bandaríkja
menn ætla að verjast. Hafa þeir
dregið lið sitt til bakatyfir fljót-
ið alls staðar nema syðst, og
hefur víglínan styttsij við þetta.
Stórskotahríð hjá Taegu.
Hersveitir kommúnista
fylgdu þgar á eftir meðfram
fylgdu þegar á eftir meðfram
þeir voru snarstöðvaðir við
Naktong-fljótið og kom þar til
stórkostlegustu fallbyssuskot-
hríðar.
1000 kommúnistar falla.
Líkur benda til að kommún-
istar sjeu að auka lið sitt á suð-
urhluta vígstöðvanna. Er talið,
að þangað sje verið að flytja
tvö herfylki til viðbótar. Þótt
harðir bardagar hafi geisað aust
ur af borginni Chinju, hafa
bandarísku hersveitirnar hald-
ið öllum stöðvum sínum. Segir
í tilkynningu MacArthurs að
vígstaðan sje óbreytt þar. En
talið er, að allt að 1000 komm-
únistar hafi fallið þarna í
„sjálfsmorðsáhlaupum".
S-Kóreumenn ráða yfir
Yongdok.
Á austurströndinni ráða her-
sveitir sunnanmanna yfir borg-
inni Yongdok, sem þó er ein
rjúkandi rúst. Þeim hefur tek-
ist að sækja fram um nokkra
km. í dag.
Vill viðskipfabanda-
lag múhameðslrúar-
manna
CAIRO, 4. ágúst — Ghulam
Mohammed fjármálaráðherra
Egyptalands stakk í dag upp á
því, að öll múhameðstrúarlönd
mynduðu með sjer' viðskipta-
bandalag. Ráðherrann kom með
þessa! uppástungu skömmu áð-
ur en hann lagði af stað í við-
skiptaerindum til Karachi í
Pakistan. — Reuter.
Vill að (hurchill
verði forsæfis-
ráðherra
LONDON, 4. ágúst. - Einn
af þingpnönnum verka-
mannaflokksins, Mr. Ray-
mond Black-Brown, sagði
sig í dag úr verkamanna-
flokknum. Hefur flokkur-
inn því aðeins 4. atkvæða
meirihluta í neðri mál-
stofunni. Ástæðu til úr-
sagnarinnar sagði hann
vera þessa: „Jeg álít, að
Winston Churchill æiti að
verða forsætisráðlierra í
samsteypustjórn“. — Þó
þingmaðurinn hafi sagt
sig úr verkamannaflokkn-
uin ætlar hann ekki að
ganga í íhaldsflokkinn.
—Reuter.
^Ályktun S. Þ.
Bandariski fulltrúinn, Warr-
en Austin, hafði lagt fram álykt
unartillögu um að allar með-
limaþjóðir S. Þ. fordæmdu
árás N--Kóreu og öllum bæri
skylda til að beita áhrifum sín-
um til að bardagar yrðu stöðv-
aðir og hersveitir N.-Kóreu
drægju sig til baka norður fyr-
ir 38. breiddarbaug.
f
Vopnahlje með allri Kóreu
á valdi kommúnista
Jacob Malik, fulltrúi Rússa
í Öryggisráðinu, tók til máls.
Hann lagði eftirfarandi til í
ræðu sinni: — Að Pekingstjórn
in fengi fulltrúasæti í Öryggis-
ráðinu, að vopnahlje sje samið
í Kóreu og að allur erlendur
her verði fluttur burt frá Kór-
eu-skaga. Þetta kvaðst Malik
byggja á því, að í Kóreu væri
borgarastyrjöld, sem aðrar þjóð
ir ættu ekki að skipta sjer af.
Malik vildi bjóða N.-Kóreu-
mönnum að senda talsmann til
Öryggisráðsins.
(
Fordæmir tafir
Austin, fulltrúi Bandaríkj-
anna, tók til máls á eftir. Hann
sagði, að þessar tillögur Maliks
væru enn tilraun til að tefja það
mál, sem raunverulega væri á
dagskrá í Öryggismálinu. Þar,
sem Malik situr í forsæti Ör-
yggisráðsins, taldi Austin, að
það væri alvarleg misbeiting
forsetavaldsins, að reyna að
tefja fyrir þeim málum, sem til
umræðu væru. Sagði hann, að
venja væri að forsetar í ráð-
inu reyndu að flýta framgangi
mála.
v
N.-Kóreumenn eru
árásarseggirnir
Jebb, fulltrúi Breta, sagði, að
ekki kæmi til mála að kalla tals
mann frá N.-Kóreu eins og sak
ir stæðu til Öryggisráðsins. Það
væri upplýst með fullum sönn-
unum, að N.-Kóreumenn hefðu
hafið árásina og óhlýðnast skip
unum Örvggisráðsins um að
draga lið sitt til baka. Við slíka
árásarmenn hefði Öryggisráð-
ið ekkert að tala fyrr en þeir
hefðu hlýtt fvrirskipunum ráðs
ins.
Fundum Öryggisráðsins var
frestað fram til næsta þriðiu-
dags, án þess að það hefði kom-
ist að nokkurri niðurstöðu um
þetta mál.
Sprenging í póststofu.
BRUSSEL, 1. ágúst. — Sprengja
sprakk í póststofunni í Bressox f
grennd við Liege í dag, en enginn
meiddist, þar eð stofan var mannlaus<