Morgunblaðið - 05.08.1950, Page 6

Morgunblaðið - 05.08.1950, Page 6
6 HORGVNBLAÐIB Laugardagur 5. ágúst 1950 Otg.: H.f. Arvafcur, Reykjavflt. Framkv.stj.: Sigíús Jónsson. fcitstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgQanB.1 Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. 4uglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Histjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstrœti 8. — Sími 1600. Lcsbók: Arni Óla, siml 3045. Áskrlftargjald kr. 14.00 á mánuði, innsnisnds. I lausasflla 9® aura sintakið. 85 aura mtO Lcsbók. Framfarir og kynning Á ÞESSU sumri hafa komið til landsins óvenjulega margir erlendir gestir úr ýmsum áttum. Tiltölulega fleiri málsmet- andi menn en oftast áður. Forvitni erlendra fer sýnilega vaxandi á því, hvernig landið okkar er, og hvað það hefir að geyma, hvernig smáþjóðin lifir og hvernig högum hennar er háttað. Sumir láta sig dreyma um það, að straumar skemtiferða- fólks hingað til lands, kunni með tímanum að geta gefið okkur þær gjaldeyristekjur sem um munar, Það kann að vera að þessi draumur geti ræst. En mikið fjármagn þarf að leggja í gistihús og annan viðbúnað,. til gestamóttökunnar, áður en tekjur af ferðamönnum verða verulegur liður í þjóðartekjunum. Og sennilegt að auka þurfi aðdráttaraflið að landi voru, með því t. d. að hjer verði starfræktar heilsulindir í sambandi við jarðhitann, til þess að aðsóknin að landinu megi verða nokkuð örugg. En þó hinir erlendu ferðamenn sem hingað koma, lát’ ekki aftir sig mikinn gjaldeyri samanlagt, verða komur þeirra áberandi á annan hátt. Margir þeirra láta þess getið, hvernig þeim líst á landið og þjóðina sem hjer býr. £ru þessi ummæli yfirleitt lofsamleg. Flestir þessara ferðalanga hafa mjög litla vitneskju haft um land og þjóð, áður en þeir koma hingað. Og fæstir þeirra hafa kríngumstæður til að fá náin kynni af því, sem hjer er að gerast, þótt þeir fegnir vildu. Um gagnrýni í orðsins fylstu og bestu merkingu, er naumast að ræða. Enda fæstir þessara manna, sem kærðu sig um að benda á þau atriði í fari þjóðarinnar, sem þeir kunna að hafa rekið augun í og þeir telja til miska eða vanvirðu. íslendingar hafa hingað til verið svo afskekt þjóð, og kynni þeirra af erlendum verið svo einhæf, að okkur hefir alt af hætt til að taka meira tillit til þess sem erlendir menn segja, en innlendir. Og öllum þykir lofið gott. En skyldi það ekki vera holt fyrir þessa fámennu þjóð, að taka með varúð því lofi, sem henni berst til eyrna frá ferðamönnum, sem hingað koma og hafa hjer skamma við dvöl? En kunna kannski að kríta liðugt í lofinu um það, sem þeir sjá hjer og heyra. Og myndi það ekki vera hollt fyrir okkur, að temja okkur gagnrýni á því, sem um okkur er sagt? Spyrja sjálf okkur, hvort hjer fari ekki meira aflaga en ferðalangarnir segja? Hefir okkur ekki hætt til þess á undanfömum árum, að ofmeta framfarirnar. Telja t. d. að mentun og menning þjóð- arinnar hafi aukist og eflst í beinu hlutfalli við fjölgun skólanna og lenging kenslutímans? Eða skyldu afköst og orka kynslóðarinnar hafa vaxið að sama skapi, og metaafrek íþróttamannanna hafa orðið glæsilegri? Svo aðeins nokkur atriði sjeu nefnd. Fyrir skömmu var okkur á það bent t.d. að mikið vantaði á, að útfluttar sjávarafurðir okkar fengju þá meðferð, sem skyldi. En fátt er betri mælikvarði á verklega menning þjóða, en útflutningsvörur þeirra. Sjeu þær vandaðar, eru þær dagleg auglýsing um vandvirkni og þrifnað þjóðanna. En benda á það gagnstæða, ef útaf ber. Og hvaða máli tala „útigangs“-vinnuvjelar er legið hafa árlangt í vindi og regni íslenskrar veðráttu, til gesta, sem um þjóðvegina fara, og fá yfirsýn um þenna þátt íslenskrar verkmenningar? Væri ekki hollt, að færustu menn þjóðarinnar tækju sig til, og skrifuðu yfirlit um framfarir þjóðarinnar en ekki út frá því algenga sjónarmiði, að bera saman hvernig ástand- ið var, áður en kyrstaðan var rofin og framfarir hófust, heldur gerðu sanngjarnan og rjettan samanburð á því, hvar við erum á vegi staddir, á miðri tuttugustu öldinni, í hverri grein, samanborið við aðrar þjóðir? Slíkt sjónarmið snýr fram á við, vekur og hvetur til dáða. En sífeldar endurtekn- ingar á þvi, hvað mikið hefir gerst og hversu erlendir eru hrifnir af okkur, getur með tímanum orðið einskonar svefn- þorn á framfaraáhuga landsmanna. Víkmjiskrjjar: R DAGLEGA LÍFINU JARÐARFÖR — BÁLFÖR — ÚTFÖR DR. MED. Árni Árnason, hjeraðslæknir á Akranesi, sendir eftirfarandi hugleiðingar, sem menn hafa gott af að velta fyrir sjer: ,,Út af pistli í „Daglega lífinu“ 26. f. m. um orðin útför og bálför, ætla jeg að láta verða af því, að senda yður nokkrar línur um ís- lenskt mál. Orðið útför merkir að mínu viti för jarðneskra leifa hvers manns út af heim- ili hans til þess staðar, þar sem líkinu er komið fyrir. ANNAÐ HVORT, EÐA — ÚTFÖRIN getur verið annað hvort jarðarför, eða bálför, eptir því, hvort líkið er grafið, eða því eytt í bálstofu. Þeim orðum má því ekki rugla saman, heldur verður að nota það þeirra, sem við á, ef ekki er notað orðið útför, sem á við um hvorttveggja. • SLETTUR OG ■ SMEKKLEYSUR „JAFNFRAMT þessu, heldur dr. Árni Árna- son áfram, vil jeg benda á þrjár slettur og smekkleysur, sem jeg hef. opt hnotið um í blöðunum og því miður einnig í útvarpinu. Hin fyrsta er þessi: Borgin (bærinn) telur svo eða svo marga íbúa. Það mun ekki eiga sjer stað, að heilar borgir eða bæir sitji við að telja íbúa sína, heldur eru ákveðnir menn látnir annast manntalið. Þeir komast síðan að þeirri niður- stöðu, að íbúar borgarinnar (bæjarins) eru svo eða svo margir að tölu, sem er rjett“. • ÖNNUR OG ÞRIÐJA AMBAGAN „ÖNNUR ambagan er orðtakið „að nota sjer af einhverju“, í stað þess að nota sjer eitt- hvað, og þarfnast ekki frekari skýringar. Þá er í þrið-ja lagi: „Ekki ósjaldan“, sem er orða- tugga. Ósjaldan merkir ekki sjaldan, og „ekki ósjaldan“ merkir því „ekki ekki sjaldan“, sem er vitanlega sama sem sjaldan og hefur þá þetta orðasamband öfuga merkingu við það, sem höfundarnir ætlast til. Ekki ætti að þurfa að brýna það fyrir menntamönnum vorum, að tunga vor er einhver dýrasti arfur vor og eitt dýrmætasta þjóðlega verðmæti. Blöðunum er að vísu ekki ætlað, að vera skóli í móðurmálinu, en svo verður þó að miklu leyti í reyndinni, því að þau eru al- mennast lesin af öllu rituðu mál. Það er al- varlegt mál, ef sá skóli reynist Ijelegur. Virðingafyllst Árni Árnason“. • ÁRÓÐUR OG ÁRANGUR ENGUM er það jafnvel ljóst og einmitt ís- lenskum blaðamönum hve æskilegt það væri, að geta dundað við að skrifa það, sem kem- ur í blöðunum og fága málið, líkt og þeir ættu að geta, sem rita í tímarit og bækur. Blöðin gera margskonar ráðstafanir til að bæta máli og draga úr prentvillum, en það hefur reynst seinunnið verk. En hitt er einnig satt, að oft er blöðunum kennt um það, sem þau ekki eiga og gagn- rýnin oft lítið sanngjöm nje byggð á rjett- látum dómi viðkomanda. Nú þykist hver og einn eiga til þess nokkum rjett, að skamma blöðin fyrir slæmt málfar og skal jeg hjer segja eitt dæmi. • LJÓTT HAFT FYRIR BÖRNUNUM FRÚ EIN, sem hafði fjargviðrast mjög út af meðferð blaðamanna á móðurmálinu — hin- um helgasta dómi þjóðarinnar, kvartaði sár- an yfir þeim áhrifum, sem blessuð börnin yrðu fyrir í blöðunum. „Jeg læt ekki mín börn komast í blöðin til að spilla málfari þeirra“, sagði frúin og reigði sig lítið eitt um í stólnum. — Eigið þjer mörg böm frú? varð mjer að orði: „Jeg á tvö börn“. — Hvað eru þau gömul? „Eins árs og þriggja ára“. „HRCHÍALEGAR KOMMUVILLUR“ SAMA frú hafði áður haldið fyrirlestur fyrir áheyrendum og til menntunar fyrir blaða- manninn, sem viðstaddur var, „að hræðilegt væri að sjá, að íslenskir blaðamenn kynnu ekki einu sinni að setja kommur, eða önnur greinarmerki á rjetta staði“. „Þjer kunnið vafalaust stafsetnignarregl- urnar og eruð alveg vissar hvar á að setja kommurnar í það og það skiftið“, spurði jeg. — Frúin virti mig varla svars. En af augna- ráði hennar og hvernig hún færði sig um set á bekknum var ekki um að villast, speki hennar í þessum efnum. Og nú getur frúin spreytt sig á að setja kommurnar á rjetta staði í pistlunum í dag. En vissara er að hún geri það meðan hvit- voðungarnir sofa. Norræn samvinna á svioi vjelaeflirlifs „VERKSMIÐJU- og vjelaeftir- lit“ hefur verið starfandi hjer á landi síðan árið 1929. Hefur Þórður Runólfsson verkfræðing ur haft það með höndum eða stjórnað því frá öndverðu. Samvinna við verksmiðju og vjelaeftirlit Norðurlandaþjóð- anna komst ekki á, fyrr en eft- ir styrjöldina. Með þeirri sam- vinnu hafa vinnuaðferðir þess- ara stofnana verið samræmd- ar á öllum Norðurlöndum. Fyrst í stað höfðu þessar stofnanir einkum með höndum, að hafa eftirlit með öryggisráð- stöfunum í sambandi við vjela- kost. En nú er eftirlitið ekki síður með því, að gerðar sjeu- fullnægjandi ráðstafanir til, að forða mönnum frá atvinnu- sjúkdómum, þ. e. a. s. sjúkdóm- um, sem.menn fá af alls konar óhollustu í sambandi við vinnu þeirra. í fyrra sumar var haldinn hjer í Reykjavík fundur í nefnd einni, sem starfar að bættu eftirliti á öllum Norðurlöndum. En fyrir nokkru sátu allir for- stjórar þessara Norðurlanda- stofnana á ráðstefnu hjer í Reykjavík. Starfsemi verksmiðju og vjelaeftirlitsins hjer á landi hefur aukist mjög á síðari ár- um, fyrir forgöngu og undir stjórn Þórðar Runólfssonar. Með kynnum þeim, sem hann Frásögn af fundi í hefur haft af þessari starfsemi meðal nágrannaþjóðanna, sem lengra eru komnar í þessum efnum, hefur starfið hjer orðið auðveldara cn ella. Legið hefur fyrir 2 síðustu þingum frumvarp til laga um öryggi á vinnustöðvum. Hafa lögin ekki mætt neinni veru- legri mótspyrnu en ekki fengið afgreiðslu. Morgunblaðið hefur snúið sjer til Þórðai Runólfssonar og spurt hann, hvað gerst hefði á fundi hinna norrænu forstjóra og skýrir hann svo frá: FUNDUR eftirlitsstjóra vinnu- eftirlitanna á Norðurlöndum var haldinn hjer dagana 25.— 27. júlí. Mættir voru á fundin- um eftirlitsstjórar allra Norður landanna, A. E. Járvenpea frá Finnlandi, Erik Dreyer frá Dan- mörku, Olav Hindahl frá Nor- egi, Edvin Pelow frá Svíþjóð og Þórður Runólfsson frá ís- landi. Verkefni fundarins: 1. Að ræða um samræmingu áhættuflokkaskiptingarnar við vinnuna, en það auðveldar mjög samræmingu á kröfum um ör- yggisbúnað, hollustuhætti og vinnutilhögun í hinum ýmsu starfsgreinum. Reykjavík 2. Að ræða um samræm- ingu á ársskýrslum eftirlitanna. í öllum löndunum nema íslandi eru skýrslur þessar gefnar út og fylgjast jafnt verkamenn, sem vinnuveitendur af áhuga með þeim. í skýrslum þessum er margt að finna, sem er lær- dómsríkt á sviði öryggis og heilsuverndar verkamanna, auk hagfræðilegra skýrslna um slys og atvinnusjúkdóma. Var helst hallast að því að taka upp form alþjóða verka- málaskrifstofunnar (I.L.O.) á skýrslum þessum og hefur Sví- þjóð þegar gert það að nokkru leyti. 3. Rætt um rannsókn norsku vinnuverndarnefndar- innar á því að takmarka vinnu- tíma við mjög erfiða eða heilsu- spillandi vinnu, gn eftirlitin £ Noregi, Svíþjóð og Danmörku hafa nú heimild til þess. Var rætt um hvaða tegundir vinnu væri þá helst um að ræða og á hvern hátt bestum árangri yrði náð. 4. Rætt um störf norrænu starfandi tvær. Önnur þeirra, sjernefndanna, en þær eru nú sem einungis er skipuð fulltrú- um frá Danmörku, Noregi og Framh. á bls. 7.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.