Morgunblaðið - 30.08.1950, Síða 1
16 síður
37. árgangur
197. tbl. — Miðvikudagur 30. ágúst 1950.
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Utanríkisráðherrar Norðurianda
Harðar orrustur geisa
iyrir norðan Pohang
Sunnanherirnir sækja á við suðursfröndina
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB
TÓKÍÓ, 29. ágúst. — Miklir bardagar geisuðu norður af borg-
inni Pohang á austurströnd Kóreu í dag. Gátu Bandaríkjamenn
komið í veg fyrir, að borgin vaeri umkringd ,og tefldu fram
bæði fótgönguliði og skriðdrekum í því skyni. Norðanmenn
misstu veginn frá Pohang til Taegu og drógu sig til baka til
hæðardraga litlu norðar.
CJtanríkisráðherrar Norðurlandanna þriggja, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, komu með flug-
vjel til Keflavíkur í gærdag og tók Bjarni Bcnediktsson utanríkisráðherra á móti þeitn. Myndin
var tekin við komu ráðlierranna og sjást á henni talið frá vinstri: Guslav Rasmussen utanríkis-
ráðherra Dana, Östen Lndén utanríkisráðherra Svíþjóðar, Halvard Lange utanríkisráðherra
Norðtnanna og Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra íslands. Frásögn á bls. 2.
(Ljósm.: Filmphoto).
Flugsveif frá S-Áfríku
fil Kóreu
I WASHINGTON, 29. ágúst. — í
• bardögunum í Kóreu taka þátt
flugvjelar frá Bandaríkjunum,
Bretlandi og Ástralíu. Nú hef-
l ur S.-Afríka boðist til að
! leggja til orustuflugvjelar og
! hefir herstjórnin þekkst það
boð. Ekki hefur enn verið skýrt
j frá, hve margar flugvjelar þess
ar verða nje hve nær búast
megi við, að þær taki þátt í
bardögUm.
jr
„Arás á Formósu“ eða
um innras
ii
„kvörtun
Frá fundi öryggisráðsins í gærkveldi
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LAKE SUCCESS, 29. ágúst. — Öryggisráðið sat á fundi í
kvöld. Var samþykkt að ræða Formósumálið. Þegar fundur var
settur tilkynnti forseti, Rússinn Jacob Malik, að á dagskránni
yrði ákæra kínversku kommúnistastjórnarinnar á hendur Banda
ríkjunum um „árás á Formósu". Það er Chou en Lai, utan-
ríkisráðherra kommúnista í Kína, sem kærir. Fulltrúi Banda-
ríkjanna andmælti því, að málið yrði rætt með þessu heiti, en
kvaðst vera reiðubúinn að ræða málið, ef það væri kallað ,,um-
kvartanir varðandi Formósu.“ Fulltrúi Breta' studdi þá tillögu.
Hafa ekki kvartað
Fulltrúi þjóðernissinna í
Kina var því hinsvegar and-
vígur, að málið yrði tekið á dag
skrá. þar sem stjórnin á For-
mósu „vissi ekki til, að Banda-
ríkin hefði haft þar nokkurn
yfirgang í frammi“, og hún
heföi alls ekki kvartað. í ræðu
sinni sagði fulltrúinn, að kín-
verska alþýðustjórnin væri ekk
ert annað en „leikfang í hönd-
um Moskvamanna“.
indverska fulltrúans um, að
málið skyldi kallast „kvörtun
um innrás á Taiwan“ (For-
mósu). Var tillagan samþykkt
rneð 7 atkvæðum gegn 2. Finn
sat hjá. Kínverski þjóðernis-
sinnafulltrúinn og fulltrúi Kúbu
greiddu atkvæði gegn tillög-
unni. Egypiar sátu hjá.
Áflanfshafsráðið kemur
saman 15. sepfember
WAS \ INGTON, 29. ágúst. —
j Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna tilkynnti í dag, að utan-
ríkisráðherrar Atlantshaísríkj-
anna muni koma saman til
fundar í New York 15. sept. í
haust, eða skömmu áður en
allsherjarþing S.Þ. verður sett-
__________________— Reuter.
Nýr landskjátffamælir
í öppsölum
STOXKHÓIMUR, 29. ágúst. —
Verið er að taka í notkun nýjan
landíkjálftamæli við veðurstof-
una í Uppsölum. Á hann að
geta magnað 10 þús. sinnum,
en mögnunarhæfni mælis þess,
sem har.n kemur í staðinn fyrir,
var 2C0. Landskjálftamælirinn
var smíðaður í Stokhólmi.
Herskyidutíminn senni-
iega lengdur í Breflandi
LONDON, 29. ágúst. — Attlee,
forsætisráðherra Bretlands. tal-
ar í útva.-pið annað kvöld (mið-
vikudag). Er búist við, að hann
skýri þá frá ráðagerðum um að
lengja herskyldutimann úr 18
mánuðum í 2 ár. Á morgun
(miðvikudag), hittast þeir að
rnáli Attlee og Bevin, utanrík-
isráðherra. Munu þeir þá ræða
alþjóðamálin með hliðsjón af
Kóreustríðinu. — Reuter.
Borgin í hættu
Sóknarþungi Norðanmanna
að Pohang er þó alltaf sá sami,
og er nokkur hætta á, að varn-
irnar verði brotnar á bak aft-
ur.
Verjast vel við
Naktongfljót.
Á miðvígstöðvunum er svo
ástatt, að kommúnistar stefna
liðsauka í áttina til Hyonpung
við Naktongfljótið. Þá reyna
þeir að koma liði yfir fljótið
nokkru sunnar, en allar þær
tilraunir þeirra hafa verið unn-
ar fyrir gýg.
Vinna á að sunnan.
Þá eru suðurvígstöðvarnar
en þar eru allsnörp átök 20 til
25 km. fyrir vestan borgina
Masan. • Annars eru kommún-
istar að herða sóknina þarna,
en Bandaríkjamenn hafa gert
2 gagnáhlaup í dag, og unnið
aftur það, sem þeir misstu í
gær. __________________
Pakistan leggur ekki fil
her í Kóreu
KARACHI, 29. ágúst — Pak-
istanmenn ireystast ekki til að
leggja S. Þ. lið í Kóreu, hvorki
her nje herbúnað. Hins vegar
láta þeir korn af hendi rakna.
V-Berlin 12. ríki þýska
sambandslýðveldisins
Kosningar fara Iram í borginni 3. des. n. k.
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB.
BERLÍN, 29. ágúst. — Berlínarborg hefur fengið ný stjórnlög.
þar sem hernámshlutum Vesturveldanna eru veitt ríkisrjettindi
í sambandslýðveldinu þýska. Yfirmenn Vesturveldanna í V-
Berlín lögðu blessun sína á þessi nýju lög í dag.
„Vopnuð innrás“
Malik tók til máls og sagði,
að fyrir ráðinu lægi ekki
ræða mál Formósu almennt
vopnaða innrás Bandaríkja-
manna á eyna. Þá kvaðst hann
ekki geta fallist á' heiti þessa
dagskrárliðar eins og Banda-
ríkin vildu kalla hann.
Kvörtun um innrás
Loks var samþykkt tillaga
Ðeiiumál Yemen og Bref-
iands fil umræðu
að (LONDON, 29. ágúst. — í dag
en hófust í London viðræður milli
fulltrúa frá Bretlandi og Ye-
men. Ekki verður skýrt frá ár-
angri viðræðnanna fyrr en þeim
er lokið. Risið hefur upp deila
um landamæri Yemen og Aden,
sem er undir vernd Breta, og
er ætlunin að útkljá þau mál
nú. — Reuter.
Sfkriðdrekasmiði stór-
aukin í Bandaríkjunum
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. '
WASHINGTON, 29. ágúst. — Frá því var skýrt í dag, að Tru-
man forseti, hefði fallist á áætlun um að leggja fram 500 millj.
dala í því skyni að auka skriðdrekaframleiðslu í Bandaríkjun-
Fer fram á fjárveitingu
í vetur.
Carl Vinson, formaður her-
málanefndar fulltrúadeildarinn
ar gekk á fund forsetans í
Hvíta húsinu í dag. Að viðræð-
um þeirra forsetans loknum
skýrði Vinson svo frá, að í jan.
n.k. mundi Truman fara fram
á, að þingið veitti umrætt fje
til aukningar skriðdrekasmíð-
um í landinu-
Telja þeir, að hjer sje um að
ræða veigamikið skref á leið
til sjálfstjórnar V.-Berlínar.
12. sambandsríkið
í brjefi þeirra til borgar-
stjórnarinnar, segir samt, að
þeir hafi orðið að setja j'mis
skilyrði fyrir 1. gr. þessara nýju
laga, en samkvæmt henni verð-
ur V -Berlín 12. ríki sambands
lýðveldis V.-Þýskalands.
H
Kosningar 3. desember
Þessi nýju stjórnlög gera ráð
fyrir, að borgarstjórnin, sem
kjörin verður 3. desember, geti
fengið lögum sambandslýðveld-
isins gildi í V.-Berlín að und-
angegnum venjulegum umræð-
um og atkvæðagreiðslu.