Morgunblaðið - 30.08.1950, Page 8
8
MOR.GUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. ágúst 1950
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Áskriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók.
Rá ðh errafun d urinn
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Norðurlandaþjóðanna þriggja,
Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar eru komnir hingað til að
sitja fund með utanríkisráðherra íslands. Þeir komu hingað
i gær. Fundur þeirra hefst á morgun.
Á fundi þessum verður rætt um sameiginlega framkomu
Norðurlandaþjóðanna í alþjóðamálum, m. a. á þingi Sam-
einuðu þjóðanna.
Allir íslendingar fagna því, í hvert sinn sem vináttu-
böndin verða treyst, milli Norðurlandaþjóðanna innbyrðis.
Það er einlægur vilji íslendinga að samstarf þjóða þessara
verði sem öruggast og samhugur sem einlægastur.
Naumast hefur útlitið nokkru sinni verið eins ískyggilegt
fvrir smáþjóðir heims, eins og' einmitt nú. Þeim mun smærri
sem þjóðirnar eru, þeim mun greinilegar finna þær til
þess, hversu samhjálp og gagnkvæmur stuðningur er þeim
mikils virði.
Fyrst í stað eftir stofnun hins íslenska lýðveldis árið 1944,
kom það fyrir, að frændur okkar á Norðurlöndum virtust
vera í vafa um, hver væri stefna okkar íslendinga. Þeim
kann að hafa fundist í nokkuð mikið ráðist af ekki fjöl-
mennari þjóð, að efna til lýðveldis sem tryði á mátt sinn
og megin, eins og sumir forfeður okkar gerðu, hver fyrir
sig. Efi þeirra í þessum efnum stafaði af ókunnugleika á
íslenskum þjóðaranda. Þegar forfeður okkar lögðu skipum
sínum á haf út, fyrir rúmlega 1000 árum, var framtíð þeirra
í mesta máta óviss. Þeir undu ekki ófrelsinu, sem þá ríkti
heima fyrir. Frelsishugurinn var þeim sú leiðarstjarna, sem
þeir öruggir fylgdu. Saga og þróun íslensku þjóðarinnar
hefur markast af sama hugarfari. Landnámsmennirnir veltu
ekki vöngum yfir því hvort þeir myndu nokkurn tíma finna
hið fyrirheitna land sitt langt úti í hafi. Allt fyrir það var
sú langferð eina leið þeirra til lífsins.
fett ÚR DAGLEGA LfFINU
ÓLJÚFIR NÆTURTÓPÍLEIKAR
ENGU er. líkara, en að líinir söngéisku menn'
þessa bæjar sjeu eingöngu á ferli að næturlagi,
en þá fara þeir heldur ekki dult með hæfileika
sína, heldur þenja sig fullum hálsi svo engum
verður svefnsamt í mörg hundruð metra fjar-
lægð, þar sem þeir fara um. Og ekki er það svo
sem söngur, eða ljúfir tónar hjá þeim sumum,
sem hefja upp raddir sínar, eftir að menn eru
almennt komnir í ró, heldur öskur.
•
SKÝRING Á ÓSÓMANUM
FURÐA margir sig á hvaða hljóð mannbarkinn
getur framleitt, er þeir heyra öskrin að nætur-
lagi. Það ætlar að ganga illa að uppræta götu-
óhljóð að næturlagi. En nú er jeg búinn að fá
eina skýringu á hversvegna menn ieyfa sjer
þessi skrílslæti.
•
LÖGREGLAN BANNAR EKKI
EINA nóttina, fyrir skömmu, vaknaði kona við
þessi líka litlu öskur á götunni. Hún býr í fjöl-
mennu íbúðarhverfi og hafa vafalaust fleiri
vaknað^við óhljóðin, því það var engu líkara,
en verið væri að drepa marga menn, eða að
ljónahópur væri þarna með ,,jam-session“.
Oskuraparnir fóru sjer hægt um götuna og
það dró ekki hið minnsta niður í þeim er lög-
reglubíll ók framhjá hópnum — enda skiftu
lögregluþjónarnir sjer ekkert af hinum öskr-
andi lýð. .
•
HUGSAÐ TIL
LÖGREGLUSAMÞYKKTARINNAR
ÚENNILEGA er þá leyfilegt, óátalið, að halda
öskurkonserta á götum borgarinnar á hvaða
tíma sólarhringsins sem er og þá kannski helst
að næturlagi, því komið hefir það fyrir, að
lögreglumenn hafa tekið fasta drukkna menn,
sem hafa haft í frammi óhljóð á almannafæri
um hábjartan dag.
Eitthvað á þessa leið hugsaði konan, sem
horfði á þetta afskiftaleysi lögregluþjónanna um
nóttina. — „Og jeg sem var að hugsa um að
fara að hringja á lögregluna til að biðja um að
öskurfólkið yrði fjarlægt til að hægt væri að
sofa. — Það hefði svo sem ekki verið til neins,
því sennilega stendur ekkert um það í lögreglu-
samþykkt bæjarins, að bannað sje að raska
svefnró manna.
•
BÆÐI SKÖMM OG GAMAN
FRÁ SÖMU heimildum hefi jeg aðra sögu um
næturgöltara, sem bæði er skömm og gaman
að, fen sem sýnir að oft er fjörugt næturlifið á
götunum í höfuðstaðnum. — Það var um miðja
nótt, að heimildarmaður rhinn vaknaði við
þessa líka litlu skruðninga. Það var eins og
risahrossabrestir hefðu verið settir í gang.
Þegar að var gáð, voru það tvær stúlkukind-
ur, innan við tvítugt, sem hávaðanum ollu. —
¥fir þvera götuna höfðu gatnagerðarmenn sett
tómar stáltunnur til að varna bílaumferð, en
telpurnar höfðu ráðist á virkinn og börðu þeim
nú saman eða veltu, með fídonsanda miklum.
•
„JETTAN SJÁLFUR“
í ÞESSUM svifum bar mann að, sem virtist
blöskra aðfarir þessara skjaldmeyja tuttugustu
aidarinnar. Hann kallaði til þeirra, að því er
virtist, sefandi orðum. — En svona er að skifta
sjer af því, sem manni kemur ekki við. — Yfir
mannaumingjann dundu þær sóðalegustu
skammir, sem til eru í málinu. „Jettan sjálfur"
og allt tilheyrandi.
•
KJALLARINN EKKERT
ÓTTALEGUR
MAÐURINN hröklaðist undan og orðaði eitt-
hvað að rjett væri að kalla á lögregluna. Telp-
urnar, sem sennilega hafa ekki verið fermdar
fyr en tveimur árum eftir að lýðveldið var
stofnað, ljetu sjer ekki bregða við þá hótun,
heldur sungu hástöfum, að það væri þá ekki
svo leiðinlegt að reyna þennan kjallara lög-
reglunnar eina nótt.
Þetta og því um líkt fá þeir stundum að sjá
og heyra, sem vakna við næturgöltið. En flestir
mundu heldur kjósa svefninn.
•
SKEMJITIFERÐ GAMLA
FÓLKSINS
NÚ ER ákveðið að fara í skemmtiferð með
gamla fólkið til Þingvalla á laugardaginn kem-
ur. að eru einkabílaeigendur, sem leggja til
vagna, en ekki yrði jeg hissa, þótt fleiri byðu
fram fyrirtæki sin. Þannig lánaði Steindór
Einarsson í fyrra stórann bíl endurgjaldslaust
til ferðarinnar, en gamla fólkinu finnst meira
gaman að ferðast í litlum bílum.
Nú er að sjá hve margir bílar verða boðnir
fram í afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir kvöldið
í kvöld, því þá fyrst er hægt að fara að bjóða
í ferðina. En takmarkið er að ná saman, sem
allra flestu eldra fólkí í þessa ferð.
Þrá íslendinga til frelsis er sem kunnugt er, ekki sprottin
af neinni andúð til fyrri sambandsþjóðar okkar, Dana. Það
vita þeir að sjálfsögðu vel. Enda hefur stofnun lýðveldisins
aukið samúð og bræðraþel milli þjóðanna. Sem og vilja ís-
lendinga til samstarfs við frændþjóðirnar allar.
Samstarf íslendinga við aðrar Norðurlandaþjóðir er ýms-
um erfiðleikum bundið sakir fjarlægðarinnar. Vegna henn-
ar eigum við erfiðara með að sækja norrænar samkomur og
fundi. Qg stærðarmunurinn felur í sjer örðugleika að sjálf-
sögðu. Þar sem íslenska þjóðin er að fólksfjölda til einn
áttugasti til einn þrítugasti af fólksfjölda hinna þjóðanna
hverrar fyrir sig.
★
En einmitt sakir þess, að við íslendingar óskum eftir að
samskifti okkar við frændþjóðirnar aukist og eflist, er koma
hinna norrænu utanríkisráðherra okkur gleðiefni.
í för þeirra hingað sjáum við viðurkenning þeirra á þeim
fornu sannindum að „til góðs vinar liggja gagnvegir, þótt
hann sje firr of farinn." Og þó fundur hinna norrænu ráð-
herra marki engin djúp spor í sögunni, þá.verður hann vænt-
anlega til þess að staðfesta það, að Norðurlandaþjóðirnar
marka samstöðu sína í samfjelagi hinna stærri og voldugri
lýðræðisþjóða.
Einhuga óska íslendingar eftir því, að hin fornu menn-
ingartengsl við hinar Norðurlandaþjóðirnar verði sem öfl-
ugust í framtíðinni. Að við megum, frá þróttmikilli nýmenn-
ing þessara frjálsu lýðræðisþjóða hljóta margskonar styrk
og uppörfun í hverskonar menningarmálum. í þeirri von
að sjálfsögðu að þau áhrif verði gagnkvæm svo hjeðan megi
í framtíðinni koma einhver sá skerfur, á hinu andlega sviði,
er getur komið þeim þjóðum að gagni, sem okkur eru skyld-
astar.
Við íslendingar fögnum komu hinna norrænu ráðherra,
og teljum hana sem virkan samúðarvott, gagnvart íslandi,
að þeir menn sem hafa með höndum utanríkismál þjóða
sinna hafa valið sjer Reykjavík að fundarstað, þegar um-
ræðufundur er haldinn um sameiginlega framkomu Norður-
landa á þingi hinna Sameinuðu þjóða.
ÍÞRÓTTIR
Keflavík vann Sel-
foss í frjálsíþrótfum
SUNNUDAGINN 27. þ. m. fór
fram bæjarkeppni í frjálsum í-
þróttum, milli Keflavíkur og
Selfoss, á hinum nýja íþróttavelli
á Selfossi, keppt var í 100, 400
og 1500 m. hlaupum, 4x100 m.
boðhlaupi, hástökki, langstökki,
þrístökki, kúluvarpi, kringlu-
kasti og spjótkasti.
Keflavík vann keppnina með
11298 stigum á móti 10884.
Nýtt Suðurnesjamet setti
Kristján Pjetursson, Keflavík, 5
kringlukasti, kastaði 40.37 m. —
Einnig setti Ingvi Jakobsson,
Keflav., Suðurnesjamet í spjót-
kasti, kastaði 51,51 m. Þá setti
Sigfús Sigurðsson, Selfossi, nýtt
Selfossmet í kringlukasti, kastaðx
39.07 m.
Besta afrek mótsins var kúlu-
varp Sigfúsar Sigurðssonar, kast
aði 14.45 m., sem gefur 863 stig
Þess má geta að þetta er í ann-
að sinn sem þessir bæir keppa.
S.l. sumar fór keppnin fram í
Keflavík og vann þá Selfoss.
Úrslit í einstökum greinum:
100 m. hlaup: — 1. Matthías
Guðmundsson S 11,9 sek. 2. Böðv
ar Pálsson K 12,1 sek. 3. Þor-
bergur Friðriksson K 12.6 sek
4. ísleifur Jónsson S 12,6 sek.
400 m. hlaup: — 1. Böðvar Páls
sno K 56.6 sek. 2. Matthías Guð-
1 mundsson S 57.1 sek. 3. Kol-
| beinn Kristinsson S 59.2 st&. 4.
[Friðjón Þorleifsson K 59.2 sek.
1500 m. hlaup: — 1. Einar
Gunnarsson K 4:48.0 mín. 2. Þór-
hallur Guðjónsson K 4:49,0 mín
3. Þór Vigfússon S 4:51,0 mín. 4.
Hafsteinn Sveinsson S 5:01,6 mín.
4x100 m. boðhlaup: — 1. Kefla-
víkursveit 49.0 sek. 2. Selfoss-
sveit 49,1 sek.
Hástökk: — 1. Kolbeinn Krist-
insson, S 1.76 m. 2. Jóhann Bene-
diktsson K 1.67 m. 4. Eggert Vig-
fússön S 1.55 m.
Langstökk: — 1. Ingvi Jakobs-
son K 6.14 m. 2. Friðrik Friðriks-
son S 6.08 m. 3. Einar Frímanns-
son S 6.07 m. 4. Holgeir Guð-
mundsson K 6.03 m.
Þrístökk: — 1. Kristján Pjet-
ursson K 12.31 m. 2 Helgi Daní-
elsson S 12.17 m. 3. Sveinn Sveins
son, S. 12.10 m. 4. Jóhann Bene-
diktsson K 12.02 m.
Kúluvarp: — 1. Sigfús Sigurðs-
son S 14.45 m. 2. Þorvaldur Ar-
inbjarnarson K 12.55 m. 3. Helgi
Daníelsson S 12.32 m. 4. Ólafur
Helgason K 11.91 m.
Kringlukast: — 1. Kristján
Pjetursson K 40.37 m. 2. Sigfús
Sigurðsson S 39.07 m. 3. Einar
Þorsteinsson K 37.11 m. 4. Árni
Einarsson S 29.22 m.
Spjótkast: — 1. Ingvi Jakobs-
son K 51.51 m. 2. Vilhjálmur
Þórhallsson K 47.35 m. 3. Tage
Olesen S 43.53 m. 4. ísleifur Jóns
son S 39.05 m.
S.
Platínum til Bandaríkjanna.
LUNDÚNUM. — Sendinefnd
efnahagssamvinnustofnunarinnar
í Bretlandi hefur skýrt frá því,
að Bretar hafi selt allmikið af
platínum til Bandaríkjanna.
Leikarar ósammála
um átramhaldandi
Starfsemi Leikfjel.
AÐALFUNDUR L. R. var hald-
inn mánudaginn 28. þ. m. í
Iðnó. Formaður fjelagsins, Þor-
steinn Ö. Stephensen, skýrði frá
starfsemi fjelagsins á liðnu leik
ári, en sýnd voru tvö leikrit,
,,Hringurinn“ og „Bláa kápan“,
samtals 48 sinnum við mjög
góða aðsókn. Rekstui’safgangur
varð á árinu um kr. 6000,00,
þegar greiddar höfðu verið
nokkrar upphæðir, sem komu
óvænt til útgjalda frá tíð fýrri
stjórnar. Endurskoðaðir reikn-
ingar fjelagsins voru sam-
þykktir samhljóða. — Þessu
næst skýrði formaður frá at-
hugunum og niðurstöðu fram-
kvæmdarráðs um framtíð fje-
lagsins, þar sem meiri hluti ráðs
ins hefði lagt til, að lögum fje-
lagsins yrði breytt og starfsem-
inni haldið áfram, en minni
hluti, Gestur Pálsson, leikari,
hefði ekki getað fallist á það og
bæri hann því upp tillögu um
fjelagsslit. Urðu miklar umræð
ur um tillögu Gests og var hún
að lokum borin upp til atkvæða
og felld að viðhafðri skriflegri
atkvæðagreiðslu með 22 atkv.
gegn 11, einn seðill auður. —
Lýsti nú formaður inntöku-
beiðnum frá 15 leikurum, sem
allar voru samþykktar sam-
hljóða. Þar sem mjög var liðið
Frh. á bls. 12