Morgunblaðið - 30.08.1950, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLIT. FAXAFLÓI:
SUPAUSTAN gola. Rigni.ng,
__________________
lúmi. 200 puaida hámerar
veiddar á sföng vi Reykjanes
FYRIR rúmri viku hófust suður við Reykjanes mjög óvenju-
legár veiðar á opnum trillubát. Það eru hákarlaveiðar á stöng
Hafa nú fimm hákarlar veiðst, hver yfir 200 pund og þeir fryst-
ir. Verið er að athuga um möguleika á að selja væntanlega
hákarlaveiði til útlanda, en erlehdis mun þessi hákarlategund
vera að fullu nýtt til manneldis. >
Það mun einkum vera
atbeina Tryggva Ólafssonar, for
stjóra hjer í bæ, að þessar veið-
ar hafa verið reyndar. ’Notast
' er við svonefnda túnfiskastöng
og línan er 112 punda fiskilína,
600 metra löng. Beitt er síld.
Róðrarnir.
Farið hefur verið frá Höfn-
um, siglt í eina klst. út með
landinu, en á þessi mið hafa sjó
xnenn bent hákarlaveiðimönn-
unum. Farið hefur verið í þrjá
róðra og hafa þeir yfirleitt geng
ið vel, þó báturinn sje ekki sem
heppilegastur og að nokkrir
hafi sloppið. Hjer er enn um til-
raun að ræða. í fyrradag veidd-
ust tveir hákarlar, en þrír
slupþu.
Þessi hákarlategund, sem heit
ir Hámeri, getur orðið allt að
1000 pund, en Hámerarnar, sem
veiðst hafa, eru allar um og yfir
200 pund og um tveggja metra
langar.
Tvo tíma verið að þreytk.
Því er þannig varið með þess-
ar veiðar, að ekki eru hafðar
nema tvær stangir á bát. Það
tekur alllangan tíma að þreyta
slíkar 200 punda skepnur eftir
að þær eru komnar á og átökin
eru snörp. Hafa þær dregið bát-
inn fram og aftur upp undir
tvo tíma. Allan tímann hafa
veiðimennirnir dregið fiskinn
nær bátnum og nær, tommu
fyrir tommu. Góðar ífærur
þarf til að innbvrða fiskana.
Stöngin.
Túnfiskastöngin er úr trje. —
Hún er sett í sjerstakan stól og
frá henni eru svo ólar sem
spenntar eru aftur fyrir bak
veiðimannsins, því ekki er það
á neins manns færi að halda
stönginni.
Mánaðar vertíð.
Aðalveiðin er nú fram undir
lok september mánaðar. Hafa
hákarlaveiðimennirnir mikinn
hug á að ná sjer í hentugri bát,
15—20 feta, og þai'f stýrishús-
ið og vjelin að vera fyrir fram-
an miðju, því aftast er nauð-
synlegt að hafa gott pláss. Bát
þessu líkt vilja þeir leigja.
Aðal hákarlaveiðimennirnir
auk Tryggva Ólafssonar, eru
þeir Albert Erlingsson í Veiði-
manninum og Sigmundur Jó-
hannsson starfsmaður hjá Lvsi
h.f.
Litla telpan
gieymdi sjer
í GÆRKVÖLDI lýsti lögreglan
eftir sex ára telpuhnokka, sem
farið hafði að heiman um há-
degi. en var ekki komin heim
klukkan að ganga 11.
Skömmu eftir að lýst hafði
verið eftir telpunni ,kom hún
fram. Hún hafði gleymt sjer í
góða veðrinu við leik með jafn-
öldrum og vinum.
Engin síldveiði jjó
veður sje hagslætt
SIGLUFJÖRÐUR, 29. ágúst —
í dag er batnandi veður og er
flotinn allur að streyma. úr
höfn. Litlar frjettir hafa borist
af hafinu nema hvað nokkur
skip hafa orðið vör við upsa og
hefur frjest að Rifsnes hafi feng
ið um 1000 mál og íslendingur
500 mál við Grímsey.
Flugvjel var látin leita á vest
ursvæðinu og flaug alla leið að
Horni og er það í annað skípti
í sumar, sem hægt hefur verið
að fljúga svo langt vestur í síld-
arleit vegna þoku. Flugvjelin
varð hvergi vör síldar.
í kyöld verður leitað á aust-
ursvæðinu.
Þetta sem sást af upsa í morg
un var á grunnu vatni og gátu
ekki kastað á hana nema þau
skip. sem hafa grunnnætur.
____________—Guðjón-
Ufanríkisráðherrafundur
í New York
WASHINGTON, 29. ágúst. —
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Bandaríkjanna
koma saman til fundar í New
York dagana 12. til 14. sept.
n.k. Fylgja þeir þannig þeirri
áætlun sinni að hittast tvisvar
á ári til að ræða „sameiginleg
hagsmunamál“.
Seinna verða þeir Bevin,
Schuman og Acheson viðstadd-
ir setningu allsherjarþings S.Þ.,
er kvatt hefur verið saman 19.
september. — Reuter.
Kennarar frá Evrópu á
námskeiði í Kanada
NEW YORK, 29. ágúst. — Land
fræðikennarar 30 talsins, hafa
ferðast undanfarna daga um
Bandaríkin og lýkur ferð þeirra
þar með heimsókn til bæka-
stöðva S.Þ. Kennararnir eru frá
18 löndum þar á meðal nokkrir
Norðurálfumenn. Áður en hóp-
urinn kom til Bandaríkjanna
voru kennararnir á 6 vikna
námskeiði í Quebec. .
A sýningaferð um Evrópu
og N-Afríku
WASHINGTON, 29. ágúst. —
Bandarískur balletflokkur er
um þessar mundir á 5 mánaða
ferð um-Evrópu og N.-Afríku.
Fyrsta sýning hans í ferð þess-
ari fór fram í Edinborg, og hef-
ur honum verið forkunnar vel
tekið, bæði þar og annars stað-
ar. í flokknum eru 60 manns.
AÞENA. — Nýlega voru 12
Grikkir dæmdir til dauða i
Aþenu. Herrjettur dæmdi þá fyr-
ir að starfa í leynihreyfingu
kommúnista, sem hafði að mark-
miði að myrða Papagos, yfir-
hershöfðingja og fleiri landa
sína.
TÆKI, sem mjög er notað í hernaði gegn leyniskyttum, er tæki
sem spýr eldi langai* leiðir. svonefnd eldvarpa. I Danmörku
hefur þetta tæki verið notað í þágu garðyrkjunnar. Hjer sjest
l-.var arfa er eytt við eld, sem tækið spýr, en hann myndar um
1000 gráðu hita á þeim bletíi sem hann leikur um.
Morræn hljómiistarhátíð
i Helsingfors í september
Verk ísl. tónskálda verða iluti þar
í SAMBANDI við 400 ára afmæli Helsingforsborgar, verða þar
i borg haldnir norrænir hljómleikar, þar sem hljómlist frá öllum
Norðurlöndunum, að Færeyingum undanskyldum, verður kynnt.
Þessi norræna hljómleikahátíð
til 19. sept.
Þar verða fluttir symfóníu-
hljómleikar, kammermúsik,
kirkjuhljómleikar og hátíðar-
sýning verður í Finnsku óper-
unni.
Hvert land hefur sinn á-
kveðna dag á þessUm hljóm-
leikum. Fyrsti dagurinn verð-
ur helgaður Svíum, annar Nor-
egi, hinn þriðji Danmörk og
síðasti íslandi.
Dagur íslands.
Symfóníuverkið, sem leikið
verður á degi íslands við þessa
tónlistarhátíð, er: Concerto
Grosso eftir Jón Norðdal og
symfónía eftir Jón Leifs, sem
þarna verður flutt í fyrsta
skifti. Það er hljómsveit Hels-
ingforsleikhússins sem þessi
hljómsveitarverk flytur. Hinn
frægi finnski Sibelíusar-kvart-
ett mun leika Strokkvartett eft
ir Helga Pálsson.
Kirkjuhljómleikarnir.
Kirkjutónleikar verða fluttir
þann 16. Mun dr. Páll ísólfs-
son leika orgelverk eftir Jón
Leifs, og eftir sjálfan sig.
Tiio er fær m aó verja
Júgósiavíu
BLED, Júgóslavía, 29. ágúst. —
Aðstoðarutanríkisráðherra Bret
lánds, Ernest Davies, hitti Tito
marskálk, að máli í gær, og
„fór mjög vel á með þeim“. —
Snæddi ráðherrann hádegis-
verð með Tito að sveitasetri
hans. Segir Davies, að Tito sje
öldungis sama sinnis og áður
en Kóreustríðið braust út, en
þá ljet hann þá skoðun í ljós,
að heimsstyrjöld væri ekki yfir
vofandi. Kveðst Davies treysta
Tito vel til að verja Júgóslavíu
fyrir hvers konar ógnunum.
— Reuter.
hefst 15. sept. og stendur yfir
Fjölda Hull-logara
hefur verið lagl
UM það bil fimta hluta fisk-
veiðiflotans í Hull hefur yenð
lagt vegna efnahagsörðuglcika
fiskiðnaðarins. Mikið magn af
óseldum fiski hefur verið látið
í fiskimjölsverksmiðjur. Frá
þessu var slfcýrt nýlega í breska :
blaðinu Time, þar segir enn- í
fremur:
Togaraeigendur í Hull og
Grimsby hafa ákveðið að gera
tilraun til að koma í veg fyrir
tap á fiskveiðunum með því að
koma nýju skipulagi á úthafs-
fiskveiðar frá báðum borgun-
um. Sameiginleg nefnd hefur
fengið málið til meðferðar.
Hlífið nýgræðingn-
um í Keiðmörk
FYRIR nokkrum dögum var á
það minnst hjer í blaðinu, að
fólk væri farið að nota ný stór-
virk tæki við berjatínslu, sem
kynni að gera gróðurtjón.
I gær barst sú fregn til blaðs-
ins, að ungplöntur í Heiðmörk
hafi orðið fyrir usla og senni-
lega hafi þær tínt tölunni í all-
miklum mæli í sumum skóg-
ræktarreitunum.
Þess er getið til, að um sje
að kenna hinni nýju aðferð við
berjatínsluna. Ef svo er þarf
fólk, sem tínir ber í Heiðmörk,
að gæta meiri varúðar og forð-
ast tjón á hinum verðmætu trjá
plöntum.____________
BUENOS AIRES. — Erlend fyr-
irtæki í Argentínu verða hjer
eftir að greiða hærri skatta en
fyrirtæki innlendra manna sam-
kvæmt nýjum lögum.
Á BLS. 2 er sagt frá komlj
norræna utanríkisráðherranna,
........................ 'Hl
Úlför þeirra sem 1
fórusf í shrlðunni ’j
fer fram í dag
í DAG fer fram útför Ingibjarg-
ar Magnúsdóttur og barna henn
ar fjögurra, er fórust í hinu
ægilega skriðufalli er fjell fyni
laugardag. Útförin hefst kl. 2
frá Seyðisfjarðarkirkju. Yngsta
barn Ingibjargar, var lagt meft’
henni í kistuna, og voru kisturn
ar fjórar fluttar til kirkju í
fyrradag. Sameiginleg gröf var
tekin.
Þó vafalaust verði fjölmennt
við útförina, þá munu þeir samt
margfallt fleiri sem hugsa til
þeirra Aðalbjarnar Jónssonar
og hinnar 15 ára gömlu dóttur
hans, og votta þeim feðginum
samúð sína á þessari stundu.
Hálverfcasýning
á Akureyri
AKUREYRI, þriðjudag. — Mál
verkasýningu opnaði s.l. laug-
ardag að Hótel KEA, — Rotary
salnum —• ungur maður, Garð-
ar Loftsson, ættaður frá Bögg-
viðsstöðum í Svarfaðardal.
Á sýningu hans eru 60 vatns
litamyndir, 17 olíumálverk og
6 svartiitamyndir. Til þessa
hafa sótt sýninguna á þriðja
hundrað manns og má það telj-
ast góð aðsókn eftir því, sem
hjer gerist þegar um málverka-
sýningar er að ræða. Hafa nút
þegar selst 9 myndir.
Myndirnar á sýningunni eru
frá Eyjafirði, Mývatnssveit,
Vaglaskógi og víðar.
Garðar byrjaði ungur aS
teikna og mála. Á sýningum
frístundamálara hafa verið
nokkrar myndir eftir hann —
bæði hjer á Akureyri og í
Reykjavík. Og hafa myndir
hans fengið mjög göða dóma.
— Sýningin verður enn opin í
nokkra daga. — H. Vald.
Flugvjelar á leið fil
Auslurlanda
VALETTA, 29. ágúst. — Breska
flugvjelaskipið Warrior kom til
Möltu í dag, en það er á leið til
Austurlanda með vörur og flug
vjelar. —NTB.