Morgunblaðið - 03.09.1950, Side 8

Morgunblaðið - 03.09.1950, Side 8
8 MORGUISBLAÐIÐ Sunnudagur 3. sept. 1950 Fimmtugur; Bergur Jónsson — Reykjavíkurbrjef FIMMTUCíUR er á morgun Berg- ur Jónsson, rörlagningameistari á Bjargarstíg 17. Bergur er fædd- ur 4. sept. árið 1900, að Klyfshaga í Axarfirði, sonur hjónanna Sig- ríðar Tómasdóttur og Jóns Snorra Jónssonar, sem bjuggu á Bjargarstíg 17, og allir eldri Reyk víkingar munu hafa þekkt, og það að góðu einu. Bergur fluttist til Reykjavíkur 1911, stuttu eftir að foreldrar hans voru sest þar að. Við sem yngri erum getum ekki gert okkur það í hugarltfnd, hvernig það var að lifa hjer í Reykjavík um og eftir aldamótin, fyrir fátæka og stóra fjölskyldu, þegar allt hjálpaðist að: heilsu- leysi, lítil og illa launuð vinna, ef hún þá fjekkst. Við þessar að- stæður óis-t Bergur upp, eins og svo mörg önnur alþýðubörn hjer á landi. Hann varð snemma að byrja að vinna, til að hjálpa pabba og mömmu, því systkinin voru mörg og hann með þeim elstu. Bergur vann alla þá vinnu, sem hann gat fengið, þangað til að hann fór að aka bíl 1921, fyrst hjá sjálfum sjer, síðan í mörg ár hjá B. M. Sæberg í Hafn- arfirði. Siðan lagði hann stund á rörlagningar til 1931, en þá sigldi hann til Danmerkur til að fullnema sig í þeirri iðn, og fór á námskeið við Teologisk In- stitut. Að því loknu byrjaði hann sjálfstæðai atvinnurekstur við rörlagningar í Danmörku, þar til hann kom, heim aftur 1946 og hefur sta-fað hjer við rörlagn- ingar síð.rn, við vaxandi vin- sældir viðskiptavinanna. Bergur tók mikinn þátt í fje- lagslífi íslendinga á Hafnar-árum sínum. Hann stofnaði, ásamt öðr- um, róðraíjelag og söngfjelag ís- lendinga og var í stjórn þeirra allan tímann meðan hann var úti. Bergur giftist 1930 danskri konu, Ellen Burmeister, góðri og merkri konu, sem stóð ætíð við hlið manns síns bæði í blíðu og stríðu í orðsins fyllstu merkingu, þar til hún andaðist skömmu eft- ir heimkomuna til íslands. Þeim varð tveggja sona auðið, Jóns og Leifs, serr, búa nú hjá föður sín- um. Og að lokum þetta, Bergur minn: Passaðu að láta ekki hrista af þjer hægri höndina, því að enginn má við margnum. Frændi. ur það fjörefni í framkvæmd- irnar, sem dugar. Á undanförnum frumbýlings árum höfum við vanið okkur á það, að líta á landbúnaðinn, sem atvinnuveg, er altaf þurfi á utanaðkomandi aðstoð að halda. Einbeina verður athyglinni að því, að notfæra sjer hin náttúr- legu landgæði þannig, að bú- skapurinn sje og verði fær um að standa alveg á eigin fótum, sje ekki eða þurfi ekki að eiga líf sitt meira og minna undir styrkjum, sem eiga í raun og veru ekki aðra stoð, en stopul- an og ótryggan sjávarafla. Þegar landbúnaður verður rekinn með þeirri tækni, sem rafmagnið leyfir, og hjer verð- j ur rekin köf nunarefnisverk- j smiðja, ætti viðhorfið að breyt- j ast mjög frá því sem áður hefir verið í búrekstrinum. Að því |þarf að stefna markvisst. Möguleikar á ræktun lands- ins eru ekki líkt því fullrann- sakaðir. Sandfaxið JEG TEK t. d. lítið dæmi um sandfaxið, sem reynt hefir ver- ið á Rangársöndum síðustu ár, aðallega í miðstöð sandgræðsl- unnar í Gunnarsholti. Með þessu fóðurgrasi er hægt á mjög ódýran hátt að breyta svörtum sandinum í grasmikl- ar sljettur. Og það að heita má á einu vetfangi. Engin jarð- jvinnsla kemur þar til. Sand- t urinn laus og glúpur, tekur við (fræinu og áburðinum og breyt- . ist í grassljettur. Þetta er svo einfalt, að það sýnist ótrúlegt, þegar maður } hefir það fyrir augunum. Mynd ’in, sem fyglir þessum línum, jgefur ofurlitla hugmynd um þetta. Þar sem er hið hávaxna ’gras annarsvegar. En hinsveg- ar hinn sama sem ógróni sand- ur, er getur á meðan hann er óræktaður, beinlínis orðið til tjóns, með því að hann fyki yfir gróið land í nágrenni sínu. Svona geta gerst ýms ævin- týr í búskapnum, þegar rjett er á haldið. Fræsöfnun í Alaska FÖR Einars Sæmundssen vest- ur til Alaskg hefir vakið mikla eftirtekt. Og er hún þó ekki ný- mæli í sögu skógræktarinnar hjer á landi. Hákon Bjarnason skógræktarstjóri hefir far-ið þangað áður til fræsöfnunar, og gert út menn til þess síðar. Svo fræsöfnunarferðir hafa verið farnar hjeðan tvær, áður en þessi. jhjeruðum, sem hafa sem alh’a líkast loftslag og er hjer á jlandi. Svo árangurinn af rækt- !un þessara trjáa sje alveg ör- 'uggur. Brusselríkin hraða land- varnaundirbúningi LONDON, 31. ágúst — Land- varnaráðherrar Brusselríkjanna 5 koma til fundar í London 5. sept. n. k. Er þetta 8. fundur- inn, sem ráðherrarnir sitja saman. Talið er, að þeir muni ræða, hvað áunnist hefir í þá átt að hraða vernarundirbún- ingi þessara rík.ia, síðan utan- ríkisráðherrar þeirra sátu fund í Haag í öndVerðum ágúst. Á þeim fundi var afráðið, að varn ir Brusselríkjanna skyldu aukn ar og þeim hraðað sem mest. —Reuter. Presfurinn fær ekki dval~ arleyfi í Rússlandi MOSKVU — Rússnesk yfirvöld hafa neitað að endurnýja dval- arleyfi Jean Thomas frá Frakk landi. Hann er rómversk- kaþólskur prestur og hefir þjónað við einu rómversk-ka- þólsku kirkjuna, sem er í Moskvu. l’resturinn fer til Par- ísar á naístunni eftir tveggja ára dvöl 1 Rússlandi. Einar Sæmundssen. En nýjungin í málinu er sú, að nú hefir allur almenningur skilið, hversu hjer er merkilegt málefni á ferðinni. Eftir því sem sitkagrenitrjánum fjölgar hjer á landi, eftir því sem þau teygja úr sjer, eftir því skilja menn það betur, hversu mikilsvert það er fyrir framtíð þjóðarinn- ar, að slík trjátegund verði rækt uð hjer á landi í stórum stíl. Og svo er það öspin sem reynd hefir verið hjer, og hef- ir svo öran vöxt, að hann er framt að því ótrúlegur í íslensku loftslagi. Þegar öspin er komin vel á veg, vex hún um og yfir alin á ári. Þess eru dæmi í sumar, að trje af Alaska öspinni, hafi vaxið að meðal- tali um einn sentimetra á dag, frá því í maí, og fram til þessa tíma. Er sprotinn þá kominn á annan metra á þessu tíma- bili. Eftir nokkra áratugi fara þau trje, sem vaxa upp af því fræi, er safnað er vestur í Alaska nú, að bera hjer fræ. Svo það er mikilsvert, að sá grundvöllur, sem hjer er lagður, sje hinn rjetti. Að fræinu sje safnað í Sigurður Krislófersson Fæddur 29. júní 1932. Dáinn 24. apríl 1950. MÓÐURKVEÐJA. Sit jeg hljóð og syrgi minn soninn hjartakæra, Ánægju jeg enga finn eða svefnstund væra. Hann var burt mjer hrifinn frá hjartað þungan stynur. í anda dvelurðu enn mjer hjá elskulegi vinur. Ungur fórstu úr heimi hjer háska frá og grandi. Víst mun betri verða þjer vist í friðarlandi. Hafðu þökk fyrir alit og allt, elsku góði drengur. Hjer er nú í heimi.kalt, í hjarta brostinn strengur. Sofðu í friði, Siggi minn, sakna þín allir heima. Fylgir þjer hann faðir þinn fagra ijóss um geima. Jónína Páls. Rithöfundar andmæla BUENOS AIRES. — Fjelag rit- höfunda í Argentínu hefur and- mælt lögum, sem Peron stað- festi á dögunum. I þeim er for- setanum heimilað að leggja 50% skatt á erlendar bækur, sem inn flytjast. Heimildin tekur og til höggmynda, málverka, kvik- mynda, Ijósmynda og önnur lista- verk. Hjeraðsmó! í frjáls- um fþróttum HJERAÐSMÓT í frjálsum íþrótt- um milli Ungmermasambands Eyjafjarðar og Ungmennasam- bands Skagafjarðar fór fram á Sauðárkróki sunnudaginn 27. ág. s.l. Veður var mjög slæmt og dró það úr árangri. íþróttakeppninni lauk með sigri Ungmennasambands Skaga- fjarðar, sem hlaut 61 stig. Ung- mennasamband Eyjafjarðar hlaut 59 stig. Stighæstu menn mótsins voru Árni Guðmundsson UMSS 21 3/4 stig og Gísli Sölvason UMSS 11 3/4 stig. Úrslit: 80 m. hlaup kvenna: — 1. Helga Árnadóttir E 11,5 sek. 2. Helga Þórsdóttir E 11,5 sek. 3. Hallfríð- ur Guðmundsdóttir S 12,0 sek. 4. Helga Hannesdóttir S 12,5 sek. 400 m. hlaup: — 1. Árni Guð- mundsson S 53,3 sek. 2. Trausti Ólason E 53,6 sek. 3. Reinald Þor- valdsson E 54,7 sek. 4. Hörður Pálsson S 64,4 sek. 3000 m. hlaup: — 1. Halldór Pálsson E 11:05,8 mín. 2. Snævar Guðmundsson S 11:07,6 mín. 3. Kári Steinsson S 11:18,6 mín. Þrístökk: — 1. Árni Magnússon E 13,16 m. 2. Hörður Pálsson S 12,60 m. 3. Jón Árnason E 12,38 m. 4. Sævar Guðmundsson S 12,17 m. Kringlukast: — 1. Gísli Sölva- son S 36,97 m. 2. Hjörleifur Guð- mundsson E 34,62 m. 3. Eiríkur Jónsson S 30,72 m. 4. Ragnar Guð mundsson E 30,45 m. 100 m. hlaup: — 1. Árni Guð- munds.son S 11,4 sek. 2. Trausti Ólason E 11,5 sek. 3. Reinald Þor valdsson E 11,6 sek. 4. Gísli Bjarnason S 11,8 sek. 1500 m. hlaup: — 1. Halldór Pálsson E 4:54,2 mín. 2. Olafur Gislason S 5:05,6 mín. 3. Lúðvík Halldórsson S 5:09,3 mín, 4. Vil- hjálmur Þórsson E 5:26,8 mín. 4x100 m. boðhlaup: — 1. úng- mennasamband Skagafj. 48,1 sek. 2. Ungmennasamband Eyjafjarð- ar 48,3 sek. Langstökk: — 1. Árni Guð- mundsson S 6,28 m. 2. Árni Magn ússon E 6,06 m. 3. Hörður Páls- son S 5,99 m. 4. Jón Arnason E 5,74 m. Kúiuvarp: — 1. Hjörleifur Guð mundsson E 12,54 m. 2. Haraldur Sigurðsson E 12,40 m. 3. Gísli Sölvason S 12,00 m. 4. Eiríkur Jónsson S 10,90 m. —Jón. Hástökk: — 1. Árni Guðmunds- son S 1,60 m. 2. Gísli Sölvason S 1,50 m. 3. Árni Magnússon E 1,50 1 m. 4. Jón Árnason E 1,40 m. BEYKJAVIK NEW YOBK Flugferð til New York 7. september LoMeiSir, LækjargÖtu 2 sími 81440 niiiiiiiiiiciiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiHiitima HUiiiiiiMiiiiiiiiim«itiiiii*iitiiimiiiiiiiii:iiiMiiHiiiH iimmnreiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiitiiH’iiiiiviiiiiriiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiinimi Markús & & Eftir Ed Dodd ^iiiii m“l | ld J . ÍCI5, I .YTft »_L rr ’OJ U 1 V Cf.WE Ov-CR HtSE..-t Aví yy 1-05T T'-iE EOME’ i-"NG TO SAy TO 50'.',' M FtLD T4IAL5, 1) — Hvað heldurðu um hann dýralæknir? Er hann mikið meiddur? 2) — Maður getur varla trú- að því sjálfur, en jeg get ó- mögulega fundið, að hann sje neitt hættulega slasaður. 3) Á meðan á keppnissvæð- inu. — Komið þið allir hingað, BACK AT THE FIELD TRIAL5 _ kunningjar. Mig langar til að segja nokkuð við ykkur. 4) — Jæja, svona fór nú það. Við töpuðum í keppninni, Mark ús. * — Já, en þú gerðir það sem var meira virði en að vinna. - Þú bjargaðir sennilega lífi pabba þíns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.