Alþýðublaðið - 21.06.1920, Page 1
1920
Mánudaginn 21. júní
138 tölubl.
Það vill oft við brenna hjá and-
stæðingum Alþýðuflokksins, að
þeir ráðast á ait annað en það,
sem er stefnuskrá hans, sem þeir
þó telja stefnukrá hans. Einnig
verður því eigi neitað, að mörg-
um alþýðumanninum, bæði innan
og utan vébanda Alþýðuflokksins,
mun varla vera nægilega ljóst
^tefnumið flokksins. Oss þykir því
lilýða, að birta stefnuskrá flokks-
ins, svo menn viti móti hverju
þeir berjast, þegar þeir berjast á
móti íslenzka Alþýðuflokknum.
Stefnuskráin er skýr og Ijós, og
eftir voru áliti bezta pólitiska
stefnuskráin hér á landi. Raunar
verður eigi sagt, að beinir fjand-
menn vorir (kaupmenn, útgerðar-
menn etc.) hafi neina pólitiska
stefnuskrá, svo samanburður verð-
ur eigi við þá gerandi. Stefnuskrá
Frámsóknarflokksins svipar að
vísu nokkuð til vorrar, en tekur
e'gi eins af skarið. Um stefnuskrá
annara flokka og flokksleifa er
mönnum eigi eins kunnugt, enda
þeir pólitiskt dauðir.
1. Skattamál. Afnema skal alla
tolla af aðfluttum vörum. Fyrst
og fremst sykurtoll, kaffitoll og
vörutoll (um tóbak, sjá landsverzl-
un), en til að standast útgjöld
landsins séu lagðir á beinir skaít-
ar, að svo mikíu Ieyti sem arður
af ýramleiðslu og verzlun, er rek-
in sé fyrir hönd þjóðfélagsins, ekki
hrekkur til gjalda landsins.
Þessir beinu skattar séu:
a. Hækkandi eigna- og tekjuskatl-
ur, þar sem hæfilegur fram-
færslueyrir fjölskyldumanns sé
látinn vera uridanþeginn skatti,
en síðan fari skatturinn smá-
hækkandi og sé hlutfallslega
mestur á mestum fcekjum og
verðmestu eignum.
b. Verðhœkkunarskattur af öllum
ióðum og löndum að því leyti,
sem verðhækkunin stafar af
almennum framförum Iandsins
eða aðgerðum þjóðfélagsins.
Skattur þessi skiftist eftir á-
kveðnum hlutföllum milli Iands-
sjóðs og sveitar- (eða bæjar-)
sjóða.
2. Landsverzlun og -framleiðsla.
Landið taki að sér einkasölu á
ýmsum vörutegundum, fyrst og
fremst: steinolíu, kolum, salti og
tóbaki, taki þátt í atvinnu- og
framleiðslufyrirtækjum, svo sem
stórskipaútgerð til fiskveiða og
fiutninga, stóriðnaði, námugrefti
og þess háttar.
Þegar hvalveiðar verða teknar
upp aftur, skulu þær eingöngu
reknar af landinu.
3. Bankamál. Landið hafi um-
ráð yfir aðalpeningaverzlun lands-
ins; skal í því skyni auka og efla
Landsbankann.
Til að greiða fyrir hringrás
peninganna, skal með heppilegri
löggjöf stutt að stofnun sparisjóða
og lántökufélaga með samvinnu-
sniði víðsvegar um landið.
4. Samvmnumál. Samvinnufé-
lagshreyfinguna skal styðja í bar-
áttunni við kaupmannavaldið, bæði
með hentugri löggjöf og ríflegum
fjárveitingum til að útbreiða þekk-
ingu á henni.
5. Samgöngur. Áherzla skal
fyrst og fremst lögð á að koma
samgöngum á sjó í gott lag, eink-
um með bættum strandferðum.
Frá kauptúnum skal leggja vel
gerðar og breiðar akbrautir til
sveitahéraðanna. Hættulegar og
illfærar ár brúaðar og erfiðir fja.ll-
vegir bættir og yarðaðir. Járn-
brautir, sem verða lagðar í land-
inu, skulu lagðar og reknar fyrir
opinbert fé.
011 samgöngutæki séu þjóðar-
eign. Einnig síma- og Iofskleyta-
tæki.
6. Sjávarútvegsmál. Mikil á-
herzla skal lögð á að bæta lend-
ingar og gera bátahafnir alstaðar
þar, sem bátautvegur er rekinn.
Nákvæmt eftirlit sé haft með út-
Afgreiðsla
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í síðasta Iagi kl.
10, þann dag, sem þær eiga að
koma í bkðið.
búnaði skipa og báta. Vitar séu
bygðir og sjómerki aukin. Veður-
athugunarstofa sett á stofn. Líf-
trygging sjómanna sé aukin og
endurbætt stórvægilega frá því,
sem nú er.
7. Landbúnaðvrmál. Til þess
að efia hinn aðalatvinnuveg þjóð-
arinnar, landbúnaðinn, og til þess
að koma í veg íyrir of mikið að-
streymi fólks úr sveitunum tií
kaupstaðanna, skal varið nægilega
miklu fé til tilraunastöðva og til
að útbreiða ókeypis hagkvæma
búnaðarþekkingu.
Ábúðarlöggjöfinni sé breytt leigu-
liðum í hag; landsetum landssjóðs
sé veitt Iífstíðarábúð, en þjóðjarða-
og kirkjujarðasölu hætt.
8. Alþýðumentun. Kappkosta
skal að bæta hana, sérstök áherzla
Iögð á að kenna mönnum hag-
fræði og félagsfræði.
9. Dómsmál. Umboðsvald og
dómsvald sé aðskilið. Meðferð
sakamála fari fram opinberjega og
munnlega.
10. Hegningarl'öggjöjinni sé
breytt í mildari og mannúðlegri
átt og stefnt að því, að bæta þá
brotlegu fremur en að hegna þeim.
11. Trúmál. Trúarbrögð eru
einkamál og hinu opinbera óvið-
komandi, komi þau eigi í bága
við þjóðfélagslífið.
12. Eftirlaun. Eftirlaun embætt-
ismanna, eins og þau eru nú, séu
afnumin.
13. Verndun manHslífa. Lög
séu afnumin, er komi í veg fyrir
að mönnum sé misboðið með iilri
og ómannúðlegri vinnu, hvort
heldur á sjó eða Iandi.