Morgunblaðið - 26.09.1950, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.09.1950, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 26. sept. 1950. ftfORGUNBT, AfílP 9 Iðjuféiagar ráku kommúnista af höndum sér Jóhanna S. Jónsdóttir. Jakobína Gíslason. Soffía Melsted. Sverrir Jónsson. Sigríður Þorvaídsdóttir. Jóhann Einarsson. Garðar Karlsson. Erlendur Jónsson. FulHrúar lýðræðts- sinna er kosníngu hlutu í !ðjuf ffelagi Reykjatfík Agætt hjeraðsmót SjáSfsfæðis- manna í Kjósarsýslu HJERAÐSMÖT Sjálfstæðismanna í Kjósarsýslu var haldið s.l. sunnudag og hófst kl. 9 síðdegis að Fjelagsgarði í Kjós. Var aðsókn að því eins mikil og hin miklu salakynni Ungmenna— fielagsins frekast leyfðu. Sóttu það bæði ungir og gamlir. — Ræðu fluttu þingmaður kjördæmisins, Ólafur Thors atvinnu- málaráðherra og sjera Kristján Bjarnason, Var ræðum þeirra ágætlega tekið. — Haraldur Á. Sigurðsson, Alfred Andrjesson f!g Soffía Karlsdóttir fóru m.eð ýms skemmtiatriði við góðar / «------------,-------- undirtektir og ánægju. FUNDUR UM jSTJÓRNARSKRÁRMÁLlÐ Áður en hjeraðsmótið hófst var þennan sama dag haldinn fundur í Sjálfstæðisfjelaginu Þorsteinn Ingólfsson. Honum stjórnaði formaður fjelagsins, Gísli Andrjesson, hreppstjóri á Hálsi, sem einnig stjórnaði hjer aðsmótinu. Á þessuhi fundi fiuttí' Ólafur Bjarnason, hreppstjóri í Braiit- arholti, skþrulega framsögu- ræðu um stjórnarskrármálið. — Síðar á fundinum flutti ÓÍafur Thors langa ræðu, þar sem hann vjek fyrst að stjórnar- skrármálinu, en ræddi siðan al- mennt um stjórnmálaástandið. Nokkrar frekan umræður urðu. Var bæði þessi fundur og hjeraðsmótið í alla staði hið á- nægjulegasta. Talstöðvar. LONDON -— Afráðið hefur ver- ið að sétja talstöðvar á mótor- hjóí umferðarlögregluþjóna í Lohdon. Tilraunir hafa verið gerðar méð þetta í sumar og þor- ið góðan árangur. komma í „Þréfli" á Siglufirði í GÆRKVÖLDI fór fram kosn- ing fulltrua á Alþýðusambands- þing í ,,Þrótti“ á Siglufirði. — Munaði aðeins 14 atkv. að kommúnistar töpuðu þessu höf- uðvígi sínu á Norðurlandi. — Hlutu þeir 187 atkv., en lýð- ræðissinnar 173. — 368 kusu af 640 á kjörskrá. í Verslunarmannafjel. Siglu- íjarðar var Gísli Jóhannsson, skrifstofumaður hjá S. R. kos- mn á Alþýðusamtaandsþingið. Hermenn kommÉnísla fóru ekki yfir (dndamærin RANGOON, 22. sept.: — Land- varnaráðherra Burma sagði í þinginu í dag, að engir aðrir en kínýerskir flóttamenn hefði farið ;Tir landamærin inh í N.- Burmá. En því háfði vérið hald- ið ; fram, að herfnenrt kín- verskra kommúhistá héfði fár- ið inn yfir landamærin. -— Reuter. Þýðingarmesfi sigur, sem lýð- ræðissinnar hafa unnið í verk- lýðshreyfingunni í Reykjavíh IÐJUFJELAGAR i Reykjavik ráku flugumenn kommúnista af höndum sjer og tryggðu lýðræðissinnum glæsilegan sigur í fúll- trúakjörinu til Alþýðusambandsþings. Fjekk listi þeirra 337 ctkv. og 9 fulltrúa kjörna, en listi kommúnista hlaut 310 atkv. Tapa fulltrúaráðinu Þetta er tvímælalaust ein- hver sá mesti ósigur, sem kommúnistar hafa beðið hjer á landi, þegar tekið er tillit til þess, að Iðja er þriðja fjöl- mennasta verkalýðsfjelag í land inu og með ósigri sínum í Iðju hafa kommúnístar tapað öllum -nöguleikum til að halda meiri- hluta sínum í Fulltrúaráði verkalýðsfjelaganna i Reykja- vík, en fulltrúaráðið \hafa kommúnistar notað s.l. tvó ár ;em áróðursmiðstöð kommún- istaflokksins innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Kommúnístar einangraðir Sigur lýðræðissinna í Iðju mun marka timamót i sögu verkalýðshre^’fingarinnar. — Kommúnistar hafa tapað öllum möguleikum til þess að vinna sig aftur til valda innan heild- arsamtakanna og eru að ein- angrast í tiltölulega fáum verkalýðsfjelögum, sem þeir halda þó naumlega og eftir ýtuttán, tima mun völdum þeirra með öllu lokið í verka- lýðssamtökunum. „Selíurnar" áttu að vinna Kosningin í Iðju fór fram á laugardag og sunnudag og greiddu 712 atkvæði og má telja það mjög góða kjörsókn. Kommúnistar höfðu dagana fyrir kosningarnar boðað til ..sellufunda“ um allan bæ og ílokksbundnir kommúnistar voru beðnir að mæta á skrif- stofu flokksins til viðtals. Var tilgangur með þessum fundum einungis sá að fá alla komm- únista til að vinna i Iðju. Á Dagsbrúnarfundi á fimmt- dag í s,l. viku skoruðu komm- únistar á Dagsbrúnarmenn að beita sjer fyrir sigri kommún- ista í Iðju. Baráttu kommún- ista var svo eins og vant er stjórnað frá Þórsgötu 1, þar sem leppar þeirra i Iðju höfðu kosn- ingaskrifstofu sína. Svikararnir gjalda verka sinna En það vakti athygli í kosn- ingunum að helstu kosningar- smalar komniúnista voru ung- kommúnistar, en ekki þeir menn, er fylgja þeim að mál- um í Iðju og stafar það af því, að yfirleitt eru þeir kommún- istar er starfað hafa í fjeíaginu svo óvinsælir af fjelögunum að kommúnistar vissu, að ekki þýddi að nota þá, og urðu þeir því að grípa til ennarra, sem ekki voru eins þokktir innan fjelagsins. Þessi stóri sigur lýðræðis- sinni mun leiða af sjer enn stærri sigra og sókninni á hend ur kommúhistum í verkalýðs- hreyfingunni verður ekki hætt fvrri én áhrif kommúnista eru þar að öllu leyti út þurrkuð. — Launþegár þekkja áf reynslu, að af hendi kommúnista er einskis að vænta annars en svika og landráða og til þess.að gera verkalýðssamtökin sterk verður að útiloka kommúnista frá öllum störfum. ★ Myndir af fulltrúum lýðræð- issinna í kosningunum í Iðju birtast hjer. Þó vantar eina. af Hróbjarti Hannessyni. • Prenlarar kusu lýð- ræðissinna HIÐ íslenska prentarafjelag kaus á sunnudaginn fulltrúa á Alþýðusamþandsþing. Lýðræðis sinnar báru sigur úr býtum og fengu fulltrúar þeirra 65 atkv., en 45 greiddu kommúnistum atkvæði. Fulltrúar lýðræðissinna er kosningu hlutu voru: Magnús Ástmarsson og Magnús Jonsson, Fylgi kommúnista í Hinu is- lenska prentarafjelagi hefur stöðugt farið minnkandi á und- anförnum árum. Sigur lýðræðissiuiii í Hveragerðl og Eyrarbakka Á SUNNUDAGINN fór fram kosning fulltrúa á Alþýðusam- bandsþing í verkalýðsfjelaginu í Hveragerði og fór kosningin þannig, að fulltrúi , lýðræðis- sinna, Aðalsteinn Steindórsson, hlaut kosningu með 18 atkv. —• Fulltrúi kommúnista fjekk 15 atkv. Einnig var lýðræðissinni kosinn frá verkamannafjelag- inu ,,Báran“ á Eyrarbakka. Hernámsstjérar Vesturveldanna ræða við Adenauer BONN, 23. sept. — Hernáms- stjórar Vesturveldanna í Vest-, ur Þýskalandi gengu í dag á fund Adenauers kanslara, til viðræðna við hann um fram- kvæmd þeirra ákvarðana, sem teknar voru viðvíkjandi vestur þýska lýðveldinu á utanríkis- ráðherrafundi þríveldanna am s.l. helgi. Þjóðverjar munu nú meðaL annars í fyrsta skifti í fimm ár táka upp stjórnmálasambancl við erlend ríki, þó aðeins bau, sem hernámsstjórarnir geta fallist á. Stofnað verður og vestur- þýskt utanríkisráðuneyti. Bandarískur lloli 1 í Miðjarðarhafi 1 LONDON, 22. sept Bándáiikin hafa nú 52 herskip í Miðjarð- arhafi. Eru skip þesái í hópum víðsvegar um Miðjarðarhafið, og fara mikið í kprteisisheim- sóknir. —Reutér. _j^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.