Morgunblaðið - 05.12.1950, Page 8

Morgunblaðið - 05.12.1950, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þríðj'udagur 5. dés. 1950. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna, með Lesbók. ^kveríiskrita,: ÚR DAGLEGA LÍFINU Jöfnuður og sósíalismi 1 ÁGÆTRI grein, sem Ólafur Björnsson prófessor ritar í tímaritið Stefni, sem nýlega er komið út, ræðir hann sósíal- ismann sem hugsjón og veruleika. Kemst hann þar m. a. þannig að orði: „Það hefur komist inn í íslenskt mál, að kalla sósíalismann jafnaðarstefnu. Þessi þýðing á hinu erlenda orði er þó engan veginn heppileg. Sósíalismi og jafnaðarstefna í eiginlegri merkingu þess orðs, á í rauninni lítið skylt hvað við annað. Jafnaðarstefnan er markmið, en sósíalisminn leið að mark- miði. Og það er síður en svo líklegt, hvað þá heldur víst, að sósíalisminn sje öruggasta leiðin tjl þess að tryggja jöfnun tekjuskiptingarinnar. í sósíölsku þjóðfjelagi eru yfirvöldin einráð um það, hvernig tekjunum milli þjóðfjelagsborgar- anna er skipt. Þau gætu auðvítað notað aðstöðu sína til þess að jafna tekjuskiptinguna, en einnig til hins gagnstæða. Og vegna þess að sósíalisminn leiðir einmitt, eins og hjer á eftir verður sýnt fram á, til algers einræðis á sviði efnahagsmála, er einmitt mjög hætt við því að þetta einræðisvald yrði mis- notað til þess að ívilna sem mest þeim einstaklingum og starfsstjettum, sem valdaaðstaða yfirvaldanna fyrst og fremst byggist á.“ Síðan færir Ólafur Björnsson rök að því að öll þjóðnýting atvinnutækjanna leiði óhjákvæmilega til hins algerasta ein- ræðis, sem hugsast geti. Einstakhngurinn verði í slíku skipu- lagi svo háður yfirvöldunum um efnahagsafkomu sína að hann hafi enga aðstöðu til þess að gagnrýna þau eða veita þeim nokkra andstöðu. í áframhaldi af þessum ummælum kemst hann þannig að orði: „En aðstaðan til þess að gagnrýna stjórnarvöldin er frum- skilyrði og hornsteinn hinna lýðræðislegu mannrjettinda. Af þessu leiðir að því fer svo fjarri, að sósíalisminn sje spor í áttina til aukins lýðræðis, að hann er beinlínis ósamrýman- legur lýðræðishugsjóninni. Hvernig verður t. d. með prent- frelsið í þjóðfjelagi, þar sem ríkið á allar prentsmiðjur og enginn getur fengið neitt prentað, nema með leyfi fulltrúa þess?“ Höfundur gerir ennfremur samanburð á hugsjón sósíalism- ans og framkvæmd hennar, veruleikanum. Farast honum þá þannig orð: „Markmið sósíalismans er framkvæmd hugsjóna, sem meg- inþorri fólksins í hinum frjálsu löndum heimsins aðhyllist. Þær hugsjónir eru velmegun, öryggi, jöfnuður og lýðræði. En alls staðar, þar sem sósíalismanum hefur verið komið á, hefur reyndin orðið örbirgð, ójöfnuður og takmarkalaust ein- ræði. Og enda þótt tekist hafi að tryggja atvinnuöryggi, þá hefur í stað þess komið hið persónulega öryggisleysi, sprottið af sífelldum ótta fólksins við hina alráðu ríkislögreglu.“ Skýringin á þessari niðurstöðu kveður Ólafur Björnsson felast í því að úrræði sósíalista sjeu ekki fær um að skapa það rjettlæti og öryggi, sem þeir segjast stefna að. Hjer er ekki rúm til þess að rekja nánar hina gagnmerku grein hagfræðingsins. En allir, sem hafa áhuga fyrir að kynna sjer eðli þjóðfjelagsmála, ættu að lesa hana og hugleiða. Kjarni málsins er sá að flestir menn vilja sem jafnasta tekjuskiptingu og lífskjör samborgara sinna ásamt sem fyllstu atvinnuöryggi þeirra. Allur þorri manna í lýðfrjálsu landi, hvort sem þeir aðhyllast einkarekstur, samvinnurekst- ur eða þjóðnýtingu, kýs einmitt að þessu takmarki verði náð. Þeir, sem fylgjandi eru einkarekstri og fjelagsrekstri, telja hins vegar að þjóðnýtingarstefna sósíalismans sje ekki fær um að tryggja það. Hún leiði hins vegar til frelsisskerðinga og ánauðar, sem sje ósamrýmanleg mannrjettindahugsjón nútímans eins og reynslan hafi greinilega sýnt í þeim lönd- um, þar sem kommúnistar hafi komist til valda. Til þess ber brýna nauðsyn að almenningur í lýðræðislönd- um kynni sjer til hlítar þau rök, sem fram eru flutt með og móti sósíalismanum. Engum dylst að sjereignarskipulagið hefur marga ókosti og að þar þrífst margskonar misrjetti. En í frelsi þess og mannrjettindum felast möguleikarnir til um- bóta og þróunar í rjetta átt. Sósíalisminn lokar þeim dyrum hins vegar og leiðir svartnætti kúgunar og hrörnunar yfir fólkið. JOLASKREYTINGAR KOMINN er sá tími er búast má við að kaup menn og aðrir fari að setja upp jólaskreyt- ingarnar og eru þær þegar komnar fram á nokkrum stöðum. Það er svo að sjá, sem raf- virkjarnir hafi besta aðstöðuna til að skreyta hjá sjer verslanir sínar með mislitum ljós- um og á undanförnum árum hefir þeim sum- um hugkvæmst að setja upp hjá sjer einkar smekklegar skreytingar, sem vekja athygli á verslunum þeirra og setja sinn jólasvip á borgina. Jólaklukkan er kominn á sinn stað við raf- tæk j aver slunina á Vesturgötu 2. Innan skamms koma jólatrjen á Austurvöll, á Hlemmtorgið og væntanlega í Bankastrætið eins og í fyrra. • JÓLATRJE í TJARNARHÓLMANLM BÆJARSTJÓRNIN er að tala um að fegra í kringum tjörnina og er þeim fyrirætlunum að vonum tekið vel í bænum. En sú fegrun, seni bæjarstjórnin hefir í huga, kemur varla til framkvæmda fyr en með vorinu. En er ekki tilvalið tækifæri að fegra til við tjörnina með því t. d. að setja upp stórt og fallegt jólatrje í Tjarnarhólmann núna á jólaföstunni? Það myndi sannarlega setja sinn jólasvip á tjörnina og umhverfið. Vafa- laust gætu rafmagnsfræðingar okkar leyst úr tæknilegu hlið málsins, að leiða rafmagn í hólmann án stórkostnaðar. • BÁGI.EGA GENGLR AÐ SPARA VATNIÐ HITAVEITUNOTENDUR, sem láta sírenna hjá sjer heitt vatn að næturlagi, eiga bágt með að skilja, að bannað er að nota heita vatnið að nóttu til frá klukkan 11 að kvöldi til kl. 7 að morgni. Þrátt fyrir aðvaranir um lokun og ábend- ingar um hættu þá, sem stafar af því, að láta heita vatnið renna að nóttu til, hefir nætur- notkunin sáralítið minnkað. Ein alvarlegasta afleiðing næturnotkunar er, að menn eiga á hættu ryðmyndun í mið- stöðvarofnunum sínum, vegna þess að súr- efniseyðingartækin eru ekki í gangi að næt- urlagi. ENGIN MISKUN SYNI) EN NÚ verður næturnotendum heitavatnsirís ekki sýnd nein miskun í framtíðinni. Ráðnir hafa verið sex menn, sem ganga um bæinn með hlustunartæki og hlera eftir því hvort vatn er látið renna í húsum á næturnar. — Þessir eftirlitsmenn gefa síðan skýrslur um hvar vatn hefir runnið og verður þá orða- laust lokað fyrir vatnið í þessum húsum, fyrst í einn sólarhring og síðar lengur, ef mikil brögð verða að næturnotkun, þrátt fyrir aðvaranir. Best hefði verið, að hægt hefði verið að komast hjá þessum ráðstöfunum, en svo mikið er í húfi vegna heildarinnar, að ekki er hægt að láta einstaklinga komast upp með að eyðileggja not hitaveitunnar fyrir öðrum, með óhófi og óþarfa eyðslu. • RAFMAGNSSKÖMMTUN INNAN SKAMMS RAFMAGNSSPENNAN er orðin ískyggilega lág á mesta armatíma dagsins, en það er rjett fyrir og um hádegið. Eins og áður hefir verið skýrt frá hjer í dálkunum og samkvæmt heimildum raf- magnsstjóra, eru allar líkur til að gripið verði til þess ráðs, að takmarka rafmagn og þá á þann hátt, að bænum verði skift í hverfi og rafmagnið tekið af einu hverfi í einu ákveð- inn tíma dags, eð.a rúmlega klukkustund í senn einu sinni í viku. Eftir ástæðum er ekki hægt að segja, að knappt verði skammtað. • ÞAKKAB FYRIR HUGULSEMI SJÚKLINGUR hefir sent „Daglega lífinu“ línu til þess, að þakka góðar undirtektir öku- manna við beiðni um að aka hljóðlega fram hjá sjúkrahúsunum að næturlagi. — „En það versta er, að þessi hugulsemi stendur ekki nema tiltölulega stutt, eftir að bent hefir verið á það í blöðunum. Eftir nokkra daga er allt komið í sama farið aftur. En það sýnir að hægt er að aka hljóðlega framhjá sjúkra- húsunum ef menn vilja. Best væri, ef öku- menn gerðu sjer að reglu að sneiða hjá þeim götum, sem sjúkrahúsin standa við, eftir að kvölda tekur“. BÓKMENNTIR áfhyglisverð bók BJÖSSI Á TKJESTÖÐUM. Skáldsaga eftir Guðmund L. Friðfinnsson. Utgefandi: ísa- foldarprentsmiðja h.f., Reykja vík 1950, 167 bls. í 8 blaða broti. ÞESSI SAGA er um dreng, sem mun hafa slitið bamsskónum laust eftir miðja öldina sem leið. Og höfundur hennar er Guðmundur L. Friðfimis- son, bóndi á Egilsá í Skagafirði. Mjer er ekki kunnugt um, að maður þessi liafi kvatt sjer hljóðs á „skáldaþingi“ fyrr. Og með því að sagan snart nýja strengi í brjósti minu, langar mig tr þess ótilkvaddur að vekja á her.ni athygli með nokkr- um orðum. Aðalpersóna sögunnar er Bjössi, sem sagan er kennd við. Hann er hálf munaðarlaus, foreldrar hans hafa flosnað upp fyrir fátæktar sakir, og fjölskyldan sundrast. Höfundur lætur drenginn tala i fyrstu persónu, svo að framan af gæti milfeur haldið, að hann væri að lýsa bemskudögum sín- um. En brátt skilst manni, að svo getur ekki verið. Aldarhátturinn, sem höf. lýsir er á ofanverðu ljábanda- timabilinu, og á titilblaðinu er tekið fram, að þetta sje skáldsaga. En hvað um það. Þetta er vel sögð saga, svo vel, að furðulegt er, af frumsmið að vera. Það er ekki aðeins, að maður kom- ist hjer i kynni við lítinn dreng, sem fær varla í sig og getur trauðla hulið nekt sina, dreng, sem hefur sínar áhyggjur og á einnig sínar gleðistundn*. Höfundur dregur for- tjald sögannar tjl hliðar og sýnir lesendtmum inn i heim, sem bessi drengur og samtíðarmeim hans bjuggu við. SkýrUm myndum er brugðið upp af heimilisvenjum, sveitarbrag og aidarhætti, Maður er allt í einu orðinn þátttakandi í lífsbaráttu, gleði og sorgum langafa og langömmu. Sagan talar, áin niðar, það er ilmur úr grasi, og það andar köldu í áhlaup- um og hretum. En allt þetta stenst hinn narðgerði, æðrulausi kynstofn. „Það er þeirra saga og okkar líf“. Vitað er, að bók þessi er unnin sem hjáverk einyrkja bónda, raunveru- lega búsettur á „Kjálka“. En höfunda hamingja hans hefur verið honum það hhðholl, að í bók hans er áþekkur lífsilmur og í bókum Eyjólfs hrepp- stjóra á Hvoli i Mýrdal. Sumum þykir sem börn vor hafi á undanfömum velmaktarárum, bú- ið við ofgnægð í vissum skilningi, gersamlega firrt því að hafa nokk- urt skyn eða skilning á því, hvað það raunverulega er, að fullnægja lífsþörfum sintm á einfaldan og mannsæmilegan hátt. Og þau eru algerlega ókunn því, hve harða bor- áttu forfeður þeirra urðu að heyja fyrir lífi sinu og sinna. En „rótarslitinn visnar visir“, Stendur þar. Og það þarf ekki að kalla það neinar hrakspár, þó að minnt sje á, að þeir tímar geti enm yfir land vort komíð, er reyni meira á þolrifin og knýji menn til að hugsa betur fynr morgundeginum en gert hefur verið nú um sinn. Bók þessi er þess vegna hollur lest ur fyrir böm og unglinga. Og marg- ur, sem kominn er af bemskuskeiði, mun verða þakklátur eftir lesturinn, biðjandi um meira frá þessum böf- undi, sem hefur sloppið svo gæfulega við vixlspor og áföll í þessari frum- smið sinni. 27. nóv. 1950 ísak Jónsson. „Sumar í Suðurlöndum ri Um bók Guðmundar Daní- elssonar Sumar í Suður- löndum. Helgafell 1950. ÞEGAR Guðmundur Daníels- son gaf út ferðabók frá Ame- ríku árið 1948, en þá fór hann þar víða um, varð mönnum það ljóst, að honum lætur einkavel að skrifa ferðasögur. Síðan hef- ur þessi ferðalangur farið suð- ur um Evrópu og þessi bók, sem ber nafnið Sumar í Suðurlönd- um, er um þá ferð. Hann fer fyrst fljúgandi til Skotlands, en síðan með járnbrautalestum og bifreiðum suður Bretland, Frakkland og ítalíu. — Hann staldrar hvergi við nema í borg um, svo sem London, París, Florenz, Róm. Þar hittir hann margt skemmtilegt og skrýtið fólk,.sem hann fjallar um og lýsir fjörlega og lifandi. Frá- sögn hans er alltaf vakandi og hressileg, gjörsneydd öllum tepruskap og mærð. Hann læt- ur hiklaust skoðanir sínar á list um og málefnum í Ijós, segir t.d. að ein af höggmyndum Thor valdsens sje lítil list og að Bern ini sje lítill listamaður, — þann ig horfir málið við frá hans sjónarmiði og hann þorir að segja sitt álit. Aldrei skrifar hann upp úr leiðbeiningabók- um ferðafjelaga eins og mörg- um ferðasöguhöfundum hættir við að gera. Það eru hans eigin viðhorf sem maður fær, lifandi andblger og hressandi leikur um mann við lestur þessarar Frh. á bls. 12,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.