Morgunblaðið - 05.12.1950, Síða 9

Morgunblaðið - 05.12.1950, Síða 9
Þriðjudagur 5. des. 3930. MORGUNBLAÐID Spánverjar VIÐSKIFTI eru að hefjast við Spán að nýju. Fjöldi íslenskra kaupsýslumanna era því ný- komnir frá Spáni, eð'a á föriyn þangað. Þetta eru yfirleitt ung- ir menn, sem eru fljótir að átta sig, og þurfa því ekki langa vidvöl. Með mjer í flugvjelinni suð- ur, var heill hópur. Þeir fóru allir til Barcelona. Hún er höf- uðborg Cataloniu, eins og allir Vita, og þar er mestur iðnaður Spánar. Þetta vita þessir menn, og því er kapphlaup um að vera fyrstur þangað. Þetta minnir ofurlítið á kapp hlaup guilgrafaranna til Klon- dyke hjema um árið. En þessi Jæti eru ástæðulaus, það leggur enginn undir sig viðskifti við Barcelona á einni viku. Í MADRID Jeg einn fór til Madrid, og dvaldi þar í sex vikur. Þótt Barcelona sje stór borg, þá erl eami munur á henni og Madrid eins og Reykjavík og Akur- eyri. Höfuðborgir hafa ávalt sitt- h\rað fram yfir aðrar borgir. í Madrid er ríkisstjómin, versl-j unarráðið, iðnráðið. Þar eru gefin út öll leyfi, bæði innflutn ings og útflutningsleyfi. Og þar sem stjórnin hefur afskifti af. er allt verðlag ákveðið. í Madrid hafa öll stærri fram leiðslufyrirtæki Spánar og versl unarhús skrifstofur sínar. í Barcelona er maður því á út- kjálka en í Madrid í hjarta við- skiptanna. GETA EKKI FULLNÆGT EFTIRSPURNINNI Jeg spyr Magnús hvernig spánskar vörur sjeu að verði og gæðum. | Því er fljótt svarað, segir hann. Spánskar vörur eru yfir- leitt mjög smekklegar og góðar, og verðinu í hóf stillt. Afleiðingin er sú, að þær eru mjög eftirsóttar. Þjóðin getur alls ekki fullnægt eftirspurn-! inni. Það er því hreint ekki svo auðvelt fyrir okkur að skipta við Spánverja. Þeir sækjast ekki eftir nýjum viðskiptum því þeir geta ekki fullnægt sínum .gömlu viðskiptavinum. — Þeir framleiða svo að segja allt milli himins og jarðar, þótt sumt sje aðeins fyrir heíma- markaðinn, svo sem linoleum og persil. — Aðalútflutningsvörur þeirra eru ávextir og vín. HVERNIG ERU SPÁNVERJAR? Hvernig geðjaðist þjer að fólkinu og hvemig leit það út? Jeg hefi komið til Spánar áð- ur. Fyrir 16 árum ók jeg í eigin bíl um Spán þveran og endi- langan. En jeg hafði ekki kom- ið til Madrid fyrr. Fólkið er dásamlegt. Jeg á ekki annað orð yfir það. í Mádrid er það líka glæsilegt. Hjer er ekki sama fátæktin og í Suður-Spáni. Hjer er fólkið frjálsmannlegt og vel og smekk jega klætt. Hvernig á líka annað að vera í jafn stórglæsilegri borg. Jeg hef komið í 12 höfuðborgir í álfunni, og jeg held að Madrid sje þeim fegurst. Hvar er annað eins málverka safn og Prado? Og Escorial, eitt af undrum veraldar, aðeins 50 kra. frá Madrid. Þar eyddi jeg heilum degi, en tveim í Prado, undir ágætrj leiðsögn stúdénta, sem jeg hitti af tilviljurt. Þeir gáfu mjer að skilnaði merki há skólans í Madrid. Fljúgandi svon raeð gullkórónu. eru elskuleg þjóð, segir IUagnús Kjaran Stofnar til viðskipta við Spán Magnús Kjaran. ÞEIM LIGGUR EKKI Á Jeg er nú kominn út fyrir það sem við vorum að tala um, viðskpiti við Spán. Þau eru eins og jeg sagði hreint ekki auðveld. Spányerjanum liggur ekkert á. Biðji maður um tílboð í eitt eða annað, þá er svarið: „Maniana“. Það er á morguh. En reyndin er á Spáni sú að „maniana“ getur þýtt vika eða mánuður eða meir. „Maniana, ■■ maniana“ er að gera út af við mann þar. Og það versta af öllu er, gð það er gjörsamlega ó- mögulegt að reiðast þessu fólki, það er svo elskulegKEn það tal ar helst ekkert nema spönsku. Þegar jeg eitt sinn sagði við kaupsýslumann: Hvers vegna talið þið ekki ensku. Þá rjetti hann úr sjer og sagði stoitur: „Englendingar geta lært spönsku“. Hvernig er mataræðið? Það er ágætt, en erfitt að venja sig á matartímann. Spán- verjar eru árrisulir og fá sjer sjálfsagt árbít. En hádegisverð eta þeir kl. 2 og miðdegisverð ekki fyrr en kl. 10 að kvöldi. Það fjell mjer illa, þá vildi jeg vera háttaður og sofnaður. Næt urrölt varð jeg þó ekki var víð, og bjó jeg þó í hjarta borgar- innar. BLAÐAVIÐTAL Við heyrðum í útvarpinu hjer að sþánskt blað hafði við- tal við þig. Já það var „Arriba“, „Morg- unblað“ Spánar, stærsta blaðið og aðal stjórnarblaðið. Madrid er borg með 1,800,000 íbúa. En þar koma út aðeins 3 blöð og ekkert þeirra er stærra en Moryinn. Allt sem í blöðum þessum birtist er því bókstaf- lega lesið orð fyrir orð. Eftir þetta viðtal með þriggja dálka fyrirsögn og mynd af mjer var jeg þekktur maður í Madrid. En það hafði tvær hlið ar. Síminn stansaði ekki af dát- um, sem vildu hafa gagn af mjer. Hinu skal svo ekki neit- að, að jeg hafði stundum gagn af þessu líka. Kunningi minn einn sagði við mig, að margur Spánverji myndi vilja greiða 100,000 pe- seta fyrir svona auglýsingu. Jeg fór að athuga hvort jeg hefði ráð á að fleygja frá mjer 100.000 pesetum. Ekki síst þar sem jeg var alvarlega auralaus. Er ým- islegt skemmtilegra en það í framandi landi. firma með Spánverja. Firmað heitir: Kjaran & Monteliu Importación y Exportación . Avda. José Antonio 50 Madrid. Við höfum skrifstofur í hjarta borgarinnar, á fyrstu hæð, við aðalgötu Madridar. Við kaupum ekkert og selj- um ekkert fyrir eigin reikning. Vinnum aðeins á umboðssölu- grundvelli. Fyrir þær spánskar vörur, sem við útvegum til íslands; tök um við ekkert aukagjald af við skiptavinum okkar. Fáum okk- ar litlu þóknun frá þeim, sem við erum umboðsmenn fyrir. Vitanlega langar okkur til að fá tækifæri til að selja íslensk- ar afurðir. En slíkt er víst ekki auðvelt. Þó trúi jeg því ekki fyrr en reynt verður, að mjer verði ekki gefið tækifæri til að selja eitthvað. Annars skoðaði jeg þetta sem hreina nauðsyn t^l að sjá um kaup og afgreiðslu á þeim vör- um, sem við útvegum. Að öðru leyti er þetta tilraun, sem jeg er viss um, að er rjett, þótt við höfum ef til vill ekkert upp úr þessu, því „því fáir njóta eld- anna, sem fyrstir kveikja þá“, eins og þar stendur. V. St. Breskur togari stór- skemmdist í óveðrini ÍSAFJÖRÐUR, 2. des. — Breski togarinn Frobisher frá Fleet- væod varð fyrir áfaili s.l. föstudagskvöld. Fjekk skipið þrisvar á sig brotsjó og laskaðist mikíð. Meiðsli á mönnum urðu furðu lítil. MAN EKKI ANNAÐ 4 EINS VEÐUR Togarinn kom inn til ísafjarð ar um kl. 3 á laugardag. Var stjórnpallur skipsins mikið brotinn. Stálþilið neðan glugg- anna að framan lagðist inn, en rúður og trjeverk sópaðist burt. Loftskeytatæki skipsins biluðu og báðir dýptarmælar þess. — Stálþilið lagðist ofan á vjelsím- ann, svo hann varð ónothæfur. Mennirnir, sem í brúnni voru meiddust furðu lítið eftir at- vikum. Skipstjórinn, sem er vanur veiðum við ísland, segist oft hafa verið á sjó í vöndum veðr- um, en slíkt veður hafi hann aldrei hreppt. Rómaði skipstjórí mjög hina góðu höfn á ísafirði. SKEMMDIR í LANDI í óveðrinu urðu litlar skemmdir á mannvirkjum í landi. Þó rifnaði járn af hús- þökum á nokkrum stöðum í ná- grenninu. Um helmingur af járni á þaki skála Skíðafjelags Isafjarðar í Seljalandsdal fauk af og margar rúður í skálanum brotnuðu. Hærra aðgönp- miSaverð aðeins á fyrsfu sýningii ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur frum- sýningu á „Konu ofaukið", eft- ir danska skáldið Knud Sönd- erby, annað kvöld. Hingað til hefur leikhúsið selt aðgöngu- miða að fyrstu sýningum hvers leikrits hærra verði en nú er ákveðin sú breyting, að ekki verður hærra verð á aðgöngu- miðum nema á fyrstu sýningu. Hinsvegar gilda áskriftir að fyrstu f jórum sýningum eins og verið hefur. En áskriftargestir eru ekki fleiri en svo að jafnan eru til um 150 aðgöngumiðar á fyrstu sýningu og um 200 miðar á næstu sýningar, auk áskrift- anna og fá þeir, sem fyrstir koma þá miða keypta. Um áramótin renna út áskrift ir þessa árs að fyrstu sýning- um leikhússins og mun bráð- lega verða tilkynnt hvenær menn geta farið að sækja um áskriftir fyrir næsta ár. Góð sikhreföi á nnaodag, en lífil í gær Á SUNNUDAG öfluðu rekneta' bátarnir yfirleitt mjög vel. Þá bárust um 2000 tunnur til Akraness, 1700 til Sandgerðis og 1000 til Keflavíkur. Þrír Akranesbátar voru þá með yfir 200 tunnur, Svanur 253, Sveinn Guðmundsson 243 og Keilir 235. Ársæll Sigurðs- son var aflahæstur þeirra báta, er lönduðu í Sandgerði, með 200 tunnur. Valur var með 160 funnur og Hagbarður 150. And- vari var aflahæstur Keflavík- urbáta með 200 tunnur. j í gær brást veiðin nær a'lveg og lóðuðu bátar svo til enga síld. Er álitið, að hún hafi lagst óvenju djúpt. Aðeins 6 af 30 bátum, sem komu til Sandgerð- (is, urðu varir, voru með 20—50 tunnur. | 200 tunnur bárust til Akra- ness í gær af fjórum bátum. Keilir var með 75 tunnur. 150 tn. komu til Keflavíkur af 5 bátum. Jón Guðmundsson var {með 80 tunnur. 100 tunnur bár- ust til Hafnarfjarðar. J Veiðiveður er nú gott, og fór allur flótinn á veiðar í gær. | Norskt flutningaskip lestaði 8400 tunnur í gær, sem fara eiga til Finnlands. Færð þyngist nú á vegum VEGNA hinna miklu símabil- ana, sem urðu í ofviðrinu um daginn, hefur reynst örðugt uii fá fulla vitneskju iyn, hvaðh fjallvegir eru orðnir ófærir bíl- um, en víða á vegum er færð nú óðum að þyngjast. Fært er norður í Skagafjorð, en erfitt er að komast þar um láglendið vegna snjóþyngsla. —» Ekki er full vissa fengin um, hvort Öxnadalsheiði er ófær, þótt reikna megi með að færcJ sje þar ekki góð, ef heiðin er þá ekki alveg ófær. Fróðárheiði á Snæfellsnesi ei’ ófær, én Brattabrekka í Dölum er slarkfær og fært er um Kerl- ingarskarð til Stykkishólms. Ekki er velkunnugt um veg- ina austan Akureyrar, en snjór er nú allmikill á Vaðlaheiði. Bílvegir á Suðurlandsundir- lendinu eru enn allir færir. Enn biðskák hjá Guðmundi ÚRSLIT 17. umferðar á al- þjóðaskákmótinu eru nú kunn, Dr. Euwe vann Kramer. Jafn tefli gerðu van den Berg og Pilnic, Donner og Pirc, Kottn- auer og Tartakower, Foltys og Rossolimo, en biðskákir urðu hjá Guðmundi S. og O’Kelly, Szabados og Reshevsky, Glig- oric og van Sheltinga, Golom- beek og Trifunovic, Najdorf og Stahlberg. Najdorf er en efstur með 13 vinninga og biðskák, Stahlberg og Reshevsky hafa 12 vinninga og biðskák báðir, dr. Euwe hef- ur 11 vinninga og Gligoric 10% pg biðskák. Tvær umferðir eru nú eftir í mótinu. NYTT FIRMA Jeg stofnaði þvi mitt eigið I Aukið eitirlit naeð út- flutningi til kommn Eínkaskeyti til Mbl. frá Reuter. WASHINGTON, 4. desember — Bandarísku stjórnarvöldin boð- uðu í dag, að þau mundu enn herða á eftirliti sínu með vöru- flutningum frá Bandaríkjunum til Rússlands, leppríkja þess í Fvrópu, Kommúnista-Kína, Hong Kong og Macae. Með eftirliti þessu er stefnt ’ ENDURSELT að því að koma í veg fyrir, að vörur, sem nota má til styrj- aldarreksturs, komist í hendur Hong Kong og Macao eru á „svarta listanum", sökum þess að vitað er, að ýmislegt, sem kommúnista frá Bandaríkjun- þangað er selt, er endurselt til ura. I kínverska meginlandsins. syngja undir sfjérn Jóns Þórarimsonar KARLAKÓRINN Fóstbræður hjelt söngskemmtun í Gam'la Bíó í gærkvöldi, í fyrsta sinn undir stjórn hins nýja söng- stjóra síns, Jóns Þórarinssonar, en svo sem kunnugt er, Ijet Jón Halldórsson af þeim starfa síð- astliðið sumar, eftir að hafa annast hann í 35 ár. Við hljóðfærið var Carl Bill- ich. í tilefni af 80 ára afmæli Árna Thorsteinssonar, tón- skálds, sem var 15. október síð- astliðinn, söng kórinn fyrst syrpu af lögum eftir hann, radd settum eftir Jón Þórarinsson, en í hljeinu hylltu áheyrendur hið aldraða tónskáld. Einnig voru á söngskránni lög eftir Palmgren, Sibelius, Mendelssohn, Hindemith, Or- lando di Lasso, Schubert og Brahms. Söngskemmtun þessi var fyr- ir styrktarmeðlimi kórsins. Hús fyllir var og kórnum og stjórn- anda hans ágæta vel tekið. Næsta söngskemmtun kórs- ins verður í kvöld, einnig fyrir styrktarmeðliroi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.