Morgunblaðið - 28.12.1950, Side 10

Morgunblaðið - 28.12.1950, Side 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 28. des. 1950 —— Fi'amhaldssagan 30 .... TACEY CROMWELL SkáSdsaga effir Conrad Richfer. Hákon Hákonarson Jeg kom ekki h?im aítur fyrr en eftir hálft annað ár. Þá fór jeg heim um jólin og alla leiðina frá Montana var jeg að velta því fyrir mjer hvernig Seely mundj vera orðin. Þegar lestin rann upp að pallinum stóðu þær þar ungfrú Rudith og Seely, ásamt Calvin Day. Ung- frú Rudith rjotti mjer vangann til að kyssa á hann. Þegar jeg hafði farið að heiman, hafði jeg líka kysst Seely, en nú gerði hún sig ekki líklega til að kyssa mig og jeg þá ekki heldur. Við vorum bæði orðin eldri. Ilún hafði ekki hækkað og þreknað eins og jeg. Plún var meira að segja grennri en hún hafði ver- ið, en hún hafði þroskast. Það sá .ieg greinilega. Og hún var ekki eins freknótt á nefinu. Hún hafði breytst en jeg gat ómögulega gert mjer grein fyr- ir því að hvaða leyti. Stóra, rauða, bifreiðin, sem þingmaðurinn átti, beið eftir okkur og Calvin, sem var eini bílstiórinn í Bisbee, ók okkur heim. Mexikanski þjónninn hjelt á töskunum mínum upp á loftið og jeg fór á eftir honum til að sækja gjafirnar, sem jeg hafði keypt handa Seely og ung frú Rudith. En þegar jeg kom niður var Seely farin. „Hún er orðin fullvaxta stúlka núna og þarf um margt að hugsa“, sagði ungfrú Rudith. „En þú xærð ábyggilega að sjá mikið til hennar um jólin". „Hvað þarf hún eiginlega að hugsa um? Er hún að reyna að fá þa til þess að taka sig aftur á Clgrendon-skóIann?“. „Hvað áttu við?“. Ungfrú Rudith leit á mig. „Hún var rekin þaðan, eða var það ekki?“. Ungfrú Rudith lokaði bók- inni, sem hún hafði verið að lesa og mjer fannst koma sami svipurinn á hana og þegar jeg sá hana í fyrsta skipti, þegar við Gaye komum að heimsækja Seely. „Sestu niður, Nugget“, sagði hún og jeg hlýddi. „Jeg held að þú hafir heyrt orðróm og hann er sjaldnast cannur. Ef til, vill hefur Celiu skjátlast einu sinni eða tvisvar við Clarendon-skól- ann,,en þú vorður að muna að hún hefur aldrei áður farið að heiman. Hvað það var, skiptir ekki máli. Hún hefur byrjað á nýjan leik og strax og hún er húin með skólann hjá ungfrú Hedrick, þá fer hún til Vassar“. Hún sagði margt fleira á sinn rólega og sannfærandi hátt. Við sátum þarna ábyggilega í hálftíma og þegar Seely kom aftur, var hún svo sakleysisleg og hlýleg í framkomu að jeg skammaðist mín. Við kvöld- verðarborðið ".á jeg að ungfrú Rudith leit oft á hana með vel- þóknun. Að Ickinni máltíðinni, stóðum við öll upp og gengum fram í anddyrið. Jeg bjóst við að við mundum sitja saman öll í setustofunni og spjalla saman þetta fyrsta kvöld, en Seely nam staðar við skápinn þar sem yfirhafnirnar hjengu. „Langar þig ekki til að skoða þig um f b°°num“ spurði hún mig. „En það or komið kvöld, Celia“, sagði ungfrú Rudith. „Þá er einmittt skemmtileg- ast. Megurn við það ekki?“. ,JEf þið komið snemma heim“. sarr?ji "P,,,7’11, jeg sá það á henni að hún var vonsvikin. Seely svaraði ekki beinlinis. „Það er svo gott veður“. Hún klæddi sig í kápuna fyrir fram- an stóra spegilinn. Svo snjeri hún sjer við og kyssti ungfrú Rudith á vangann. „Fannst þjer ekki gaman að fara í göngu- ferðir þegar þú varst ung, mamma?“. „Jeg vona að þið skemmtið ykkur“. Svipur ungfrú Rudith var orðinn blíður og ástúðin skein úr augum hennar þegar hún horfði á Seely. Seely tók undir handlegginn á mjer þegar við komum út og um leið hvarf mjer öll feimni. Við gengum upp Main Street og hún talaði um það hvað jeg væri orðinn miklu stærri og karlmannlegri. Mjer hafði ald- rei fundist við eins samrýmd, ekki einu sinni þegar við vor- um í Brewery Gulch. Það var eins og við stæðum svo nálægt hvort öðru, að ekki einu sinni Tacey kæmist þar á milli. Seely minntist ekki á hana einu orði þegar við gengum þar fram hjá, þó að við sæjum ljós í gluggan- um hjá henni. Við gengum frám hjá Castle Rock og upp Tombstone Canyon. „Ó, jeg verð að sýna Herford hjónunum þig“, sagði hún eins og henni hefði allt í einu dottið það í hug og þegar jeg mót- mælti togaði hún í handlegg- inn á mjer og jeg varð að láta undan. Herford-hjónunum þótti gam an að sjá okkur, en Seely vildi ekki setjast niður. Hún sagðisl ætla að skreppa út til Mary Harris og jeg átti að bíða eftir henni hjá Herford-hjónunum. Jeg tók eftir því að þau urðu skrítin á svipinn þegar hún var farin, en jeg reyndi að halda uppi samræðunum, en það gekk illa. Tíminn leið en ekki kom Seely og jeg varð æ órólegn. Loks fór jeg og ætlaði að sækja Seely til Harris-fólksins, en jeg var rjett kominn út á götuna þegar jeg heyrði þrusk í skugg- anum og Ijett fótatak yfir göt- una. Jeg leit við og sá að þar var Seely komin. „Hvers vegna beiðstu ekki?“, sagði hún ásakandi. ' v • „Hvar varstu? Hvers vegna komstu ekki?“, spurði jeg. „Jeg var að koma núna“, sagði hún reið. „Ertu svona eig ingjarn og óþolinmóður, að þu getir ekki beðið eftir mjer?“. Jeg svaraði ekki, en mjer fannst þetta allt skrítið. Þegar við komum heim hlustaði jeg á hana gefa ungfrú Rudith ranga skýringu á þvi hvers vegna við komum svona seint og um leið leit hún svo blíðlega á mig að jeg gat ekki annað en samsinnt. Jeg velti því mikið fyrir mjer hvort hún hefði verið hjá Harris-fólkinu. Jeg efaðist um það, en þó gat jeg ekki ver- ið viss. Jeg mundi eftir því að einhver hafði sagt mjer að ung- ar stúlkur gæti aldrei haldið sjer við raunveruleikann og frá sagnir þeirra yrðu að vera róm- antískar og hálfpartinn uppi í skýjunum. Jeg hafði aldrei hugsað mjer Seely þannig, en nú var jeg ekki viss. Jeg vissi bara að hún hafði einhver ó- þægileg áhrif á mig og um leið vissi jeg að mjer þótti vænt um hana. Þegar jeg hugsa um það núna, þá veit jeg að það var eitthvað við Seely, sem gerði það að öllum þótti vænt um hana. Hún gat horft á mann með sakleysissvip eins og barn. Um jólin sveif hún eins og englabarn um húsið og á jóla- dasmorguninn kyssti hún okk- ur öll fyrir gjafirnar. Um kvöld ið fórum við til kirkju öll sam- an eins og ein fjölskylda. Mjer fannst hún þá lítið breytt frá því sem hún áður var. Jeg varð þess vegna undrandi þegar hún hallaði sjer að mjer, þegar ver- ið var að syngja jólasálminn og hvíslaði: „Viltu koma með mjer á nautatið á laugardaginn, Nugg- et?“. Þetta kom svo óvænt og augu hennar ljómuðu svo einkenni- lega að jeg vissi allt í einu hver það var, sem hún minnti mig svo oft á. Það var ekki bein- línis að þær væru líkar í útliti, en það var eitthvað annað. Hin persónan var kona, sem jeg hugsaði mikið um, ef til vill meira en um nokkra aðra mann eskju. Það var Taeey, Tacey, eins og hún hafði verið fyrir löngu síðan. Afgreiðsla bankans verður lokuð 2. janúar n. k. Víxlar, sem falla föstudaginn 29. desember, verða afsagðir laugardaginn 30. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS KOMIIMN IfEiH Skrifstofutími 9—12 og 1,30—6. HILMA8 FOSS löggiltur skjalaþýðari og dómtúlkúr, Hafnarstræti 11, sími 4824 Po«?f nfii nrtn-hren f 40. Þegar jeg var búinn að ganga um það bil klukkustund, opnaðist skógurinn og fyrir framan mig lá lítill vogur með tindrandi bláu vatni, Það var salt, svo að jeg hlaut að vera kominn niður að sjónum. Hinum megin við voginn voru lág fjöll. Jeg borðaði eina kókóshnetu og hjelt svo áfram meðfram vognum. Alveg niður við sjóinn sá jeg fuglahóp, sem gogg- uðu ákaft í eitthvað, sem lá undir trje. Það hefur vafalaust verið í fyrsta skipti, sem þeir sáu mannlega veru, svo að þeir urðu ekki hræddir. Þeir sátu alveg rólegir, þangað til jeg kom að þeim. Þá flugu þeir upp í trjeð. Það var stórt brauðaldin, sem þeir höfðu verið að narta í. Kjötið innan. í þykkum berkinum var hvítt og mjúkt. Uppi í trjenu hjengu mörg slík aldini. Brauðaldininð var ekki gott á bragðið, og jeg ákvað að leyna að steikja það. Það gat ekki verið erfitt núna þegar jeg var búinn að fá eldfærin. Jeg gróf holu í sandinn og kveikti bál. Þegar það var brunnið út, vafði jeg nokkrum blöðum utan um aldinið, lagði það á glæðurnar og jós dá- litlum sandi yfir. Svo kveikti jeg lítið bál uppi á því. Jeg hafði oft lesið um, að viliimenn steiktu brauðaldin á þennan hátt. Meðan ávöxturinn var að stikna, svipaðist jeg um við voginn. Mjer fannst svo fallegt þar, að jeg var að velta því íyrir mjer, hvort jeg ætti ekki að flytja þangað. Dálítinn spöl frá brattri íjallshlíðinni stóð trje. Það var svo risa- vaxið, að mjer hafði aldrei dottið í hug, að trje gæti orðið svo stórt. Jeg gekk hringinn í kringum það, og taldi átta- tíu skref. Nokkrar greinanna voru líka gríðarstórar, næstum tuttugu metrar á iengd. Allt í einu hrökk jeg við af skelfingu. Tvö leiftrandi augu horfðu á mig frá einhverjum stað á bak vio trjeð. Jeg sá strax, að þau tilheyrðu einhverju dýri af katta- ættinni. Allar sögurnar, sem jeg hafði heyrt um ljón og tígrisdýr, komu upp í huga minn, og jeg bjóst við því á hverju andartaki, að dýrið myndi stökkva fram. En það stökk alls ekki fram og það var næstum því ennþá verra. Það bara lá og starði á mig grimmúðlegum, leiftrandi aug- um. Kenuarinn: „Jú, jú, reiknaðu bet- iir. það mjTidu verða eftir nokkrar geitur í gii’ðingimni.“ Siggi: „Nei, það getur verið, að þú kunnir reikning, en þú þekkir ekki geitur.“ ★ T alleyrand, stjórnmálaxnaðu rinn mikli, sat eitt sinn a milli madame de Stael og madame Recmier, sem báðar voru nánar vinkonur hans og báðar frægar, i miðdegisverðarboði. „Þjer segið falleg orð við okkur báðar, en hvora okkar setjið þjer hœrra?“ „Frú, svona spurning er fráleit." „Svona, engin undanbrögð hjer. Hverja takið þjer fram yfir hina, mig eða vinkonu mína? Svona talið þjer, er þuð sxx dökka eða sú ljósa?“ ,.Þnð verður sú, sem heiðrar niig með augnatilliti." „Hvað, ennþá stjórnmálamaðurinn? Amerískur vetur. ★ „Segðu að þú elskir mig! Segðu það, segðu það! 1 Guðs bænum, segðu það!“ ,,Það!“ ★ Það var í París. Amerísk stúlka var í leikhúsi að horfa á frægt verk: Á milli þátta heyiðist hún segja: „Það er meira gaman að fara í leik- hús hjerna. á meðan maður skilur ekki frönsku. Þá er það likara hænu- gaggi.“ ★ „Jæja, Siggi“, sagði kennarinn. „Ef það eru ellefu geitur inni í girð- ipgu og sex stökkva yfir hana, hve , margar eru þá eftir inni?“ | ttF LOFTUIl GETUR ÞA0 EKKl c;-.-,: t?.,,,:., “ ; Jæja, jeg ætla að setja spurninguna öðruvisi fram. Hugsið ]>jcr yður, ef við værum að sigla á Signu í kvöicf, og bátnum hvolfdx og við væram hætt staddar, hvorri myuduð þjer hjálpa?" „Bnðum i einu, eða þeirri, sexxt v;eri i meixi hættu.“ „En, herra, verið lireinskilitm f eina skiptið á æfi yðar. Ef havttait væri nú nákvæmlega jöfn?“ „Jeg niyndi rjetta annari hægx’í hönd mina, en hinni þá vinstri.“ ..En ef þjer gætuð bjargað aðeins einni, aðoins annari okkar — skiljið þjcr?“ „Jæja, frú, þjei* sem kuxmið svo margt, jeg býst við að þjer kunnjð a5 synda“, svaraði Talleyrand.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.