Morgunblaðið - 03.01.1951, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.01.1951, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 3. jan. 1951. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. , Framkv.stj;: Sigfús Jónsson. ;y i Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1000. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna með Lesbók. ,ll'"'iiÚR DAGLEGA LÍFINU IVfjárskveifja liðsforingjans EINN af fremstu liðsforingjum hinnar íslensku Fimmtuher- deildar Einar Olgeirsson al- t>ingismaður, var meðal þeirra •stjórnmálamanna, er rituðu áramótagreinar í blað sitt. Langhundur þessi var um fátt merkilegri en annað, sem frá þessum sendimanni Moskva- valdsins kemur. Nema hvað hann var ákveðnari, sýndi greinilegra en áður, hvert hlut- verk þessum manni og fjelög- um hans er ætlað í hinu ís- Jenska þjóðfjelagi. I þessari áramótagrein sinni kveður Einar skýrar að því, en hann hefir áður gert, að hann er alveg á Lenins Stalins-lín- unni, að valdaklíka kommúnista í Rússlandi eigi ekki að hætta við hálfunnið verk, heldur skuli hún stefna beint að því, að kúga undir sig allar þjóðir heims. Hann kveður svo að orði að ..auðvalds skipulag Gamla heimsins sje að líða undir lok, og kommúnistar hafi þegar lagt \indir sig þriðjung alira þjóða, sem uppi eru nú á jarðkringl- unni. Svona hcldur þetta áfram, að því er Einar heidur fram. Áður en öldin er úti, munu kommún- istunum takast að leggja undir sig það sem eftir er af hinum frjálsa heimi. Þetta er það fyr- irheit sem Einar Olgeirsson gef- ur, í tilefni þess að 20 öldin rr hálfnuð. Útaf fyrir sig er það lofs- vert, að þessi liðsforingi Fimtu herdeildarinnar hjer á landi, skuli hafa svo afdráttarláust viðurkent, að hann sje stuðn- ingsmaður hinnar austrænu h eimsvaldastefnu. Hann kveðst aðhyllast þá undirokun, sem gerist með frið- sömu móti, sem eðlilegt er. Hann vill sem sje sem góður og geen fimtuherdeildarmaður láta þjóðirnar deyia að innanverðu frá, án mikilla og áberandi á- taka. Sósíalisminn á að leggja þjoðina að velli, ef þess er nokkur kostur. Það sem hann' hallar hinar vinnandi stjettir. eiga, að taka völdin í sínar. hendur. Hver þjóð að afklæðast ’ persónuleikanum, og ganga1 hinni austrænu harðstjórn á hönd. Þetta kallar Einar Olgeirsson, að bióðimar öðlist frelsí, það eftirsóknarverða frelsi, sem góð skáld okkar hafa kveðið tegurst um og forvstumenn bióðorinnar á undanförnum öldum hafa unnið að. Að hans dómi öðlast hinar vinnandi stjettir frelsi, með því að afsala sjer öllum mannrjettindum, eins og Jiið vinnandi fólk hefir orðið að gera, í hverju landinu eftir annað, fyrir austan Járntjald. í hugleiðingum sínum um liðiia tímarin, kemst Eiriar m.a. tarinig að orði: „Keisarar auðvaldanria drotft uðu af Guðs náð. Ríki þeirra voru eilíf. Ef skríllinn skyldi dirfast að hreyfa sig, þá vár herinn og byssurnar til taks, ef forheimskvunin og fanga- búðir ekki dugðu“. En hvernig væri að renna huganurn snöggvast til eins arftaka keisaranna, sem nú sit- ur að völdum? Hvernig fer í Rússlandi og leppríkjum Moskvavaldsins, er „skríllinn dirfist að hreyfa sig“? Og for- heimskvunin dugar ekki til? Þá eru það fanagbúðirnar, sem bíða þeirra allra, er mögla. Eða byssurnar. Öllum rjetti rænt frá verkalýðnum, svo enginn get- ur framar ráðið því, hvað eða hvar hann vinnur. Og komi ' menn of seint til vinnunnar tvisvar á tveim mánuðum, þá bíður hinna „brotlegu“ hrein þvingunarvinna. Svona er frelsi „alþýðunnar“ í löndum þeim, sem „frelsuð“ hafa verið undan „auðvaldinu“. Og hvernig er svo mannfyr- irlitning valdhafanna, sem Ein- ar Olgeirsson hugsar sjer, að taki að sjer stjórn heimsins. Einar ráðleggur alþýðu manna að kynnast því, sem best hvernig umhorfs er í hinum sósíalistiska heimi kommúnista. Nýlega er t. d. komin út bók eftir rúmenskan mann, þar sem lýst er lífinu í fangabúðum þeim, er tíðkast í löndum kommúnista. Hefir bókin vakið mikla athygli. Frásögn höfundar er hroða- i leg af því, hvemig fólk er bug- að í þrælabúðunum. Margir flýðu vestur eftir álfunni, til þess að revna að komast und- an veldi Asíumanna. En kom- ust ekki nægilega langt, og hafa orðið innilokaðir f raddavirs- girðingum harðstjómanna, heimilislausir, vonlausir, um- komulausir með öllu og rjett- lausir orðnir einsog ómálga dýr í höndum skepnuníðinga. | Þeir hafa verið afklæddir öll- um persónuleika. Þeir eru orðn- ir að vinnuhjörðum, þar sem enginn munur er gerður á sek- um og saklausum, hætt að spyria um hversvegna þetta vesalingsfólk er þarna niður komið. sem sokkið hefir í díki ofbeldis og mannvonskunnar. i Það er vonlaust verk fyrir Einar liðsforingja Olgeirsson að halda forheimskvun sinni áfram á þann hátt, sem hann hefir lagt stund á þá iðju undanfar- ið. Er hann revnir að felja fólki trú um, að frelsun albvð- únnar, frá bví lýðræði, sem fs- ' lendin«ar búa við og yfir í hinn s^efialausafc. kommúnisma, sje Islendinfrum eftirsóknarverð. j Samkvæmt því, sem að ofan er ritað, leggur Morvunblaðið bá fyrirspurn fvrir Einar al- ! þineismann Olgeirsson: | Telur hann, að það sje eða yrði fengur fyrir íslenska þióð, éf íslendingar káernust í ' sömu aðstöðuna. einsog hinar balt- neskú þjóðir þrjár, ér' komm- 1 úniStar hafa undirokáð, og svift öllu frelsi á undanföi’rium ár- um. ROLEG ARAMOT ÁRAMÓTIN voru óvenju róleg hjer í bæn- um, segir lögreglan. Ærsl voru ekki teljandi, ölvun með minna móti og ekki hefir frjettst um nein slys á mönnum. Þetta eru að sjálf- sögðu gleðifrjettir, en þó er engin ástæða til að falla í stafi út af þeim. Á dögunum var vikið að því hjer á þessum stað, að skrílslætin sem oft hafa orðið hjer á gamlárskvöld, kynnu að vera einskonar barnasjúkdómur í ungri og vaxandi borg, en sem myndu fara af með tímanum. Þessi orð virðast ætla að reynast sönn. Hitt var líka til skammar, að fólkið skyldi tryllast eins og það gerði hjer áður fyr. Við skulum vona, að þessi „barnasjúkdómur“ sje læknaður til fulls. FOLKIÐ LÆRIR AÐ SKEMMTA SJER SAGT hefir verið að íslendingar kunni ekki að skenimta sjer. Vínnautn þeirra flestra sje úr hófi fram. Þannig kann þetta að hafa verið, en nú er að verða mikil breyting á. Það sást á áramótadansleikjunum núna um helgina. Á sumum þeirra sást ekki vín á einum einasta manni, þótt nægilegt áfengi væri á boðstólum. Yfirleitt fóru dansleikirn- ir vel fram. Allir í góðu skapi, eins og sjálf- sagt er, þar sem fólk kemur prúðbúið til að gera sjer dagamun. • DREGUR ÚR SKEMMTANAFÍKNINNI AÐSÓKNIN að áramótadansleikjunum var ekki eins mikil að þessu sinni og hún hefir verið undanfarin ár. Gæti það bent til þess, að eitthvað sje farið að draga úr skemmt- anafíkn almennings. En hitt gæti einnig verið ástæðan fyrir dræmri aðsókn að skemmtistöð- unum, að fólk hefir ekki jafn mikið fje á milli handanna og áður, eða það er orðið gætn ara í peningamálum. Það er ekki nema eðlilegt, að menn horfi í, að greiða aðgangseyri frá 100 og upp í 350 krónur fyrir karl og konu, að einum dans- leik. Einnig var minna um flugelda en oft áður á gamlárskvöld og er það skiljanlegt þegar rakettan kostar 30 krónur stykkið. • „ELSKU RUT“ GÓÐKUNNINGI okkar skrifar rjettilega eftirfarandi um Leikfjelagið og starfsemi þess: „Mig langar til að færa Leikfjelagi Reykja víkur þakkir fyrír að sýna stórhug og dirfsku núna á jólunum með sýningu sinni á merki- legu skáldverki, sem lengi hefir legið óbætt hjá garði. Þó að mjer væri nokkur vonbrigði, að því, að fá ekki að sjá „Marmara“ á annan dag jóla og Leikf jelagið þannig brugðið út af áralangri venju, hjelt jeg uppteknum hætti og fór í leikhúsið með fjölskyldu minni á annan dag jóla. Þar var sýnt leikritið „Elsku Rut“, og það verð jeg að segja, að jeg hefði ekki á betri skemmtun kosið. Með ákvörðun sinni, að halda áfram að sýna þennan prýði- lega gamanleik, hefir Leikfjelagið í raun og' veru stofnað til tveggja jólaleikrita, sem bæði eru þess virði, að maður fórni þeim kvöld- stund sjálfum sjer til uppbyggingar og skemmtunar. • ÞÖKK FYRIR SKEMMTUNINA ÞAÐ VAR sagt í haust, að Leikfjelagið færi vel af stað með því að velja ljettan gaman- leik til sýningar, En það hefir ekki nándar nærri verið lögð nægileg áhersla á það, að „Elsku Rut“ skarar langt fram úr flestum ef ekki öllum ljettum gamanleikjum, sem hjer hafa verið sýndir í seinni tíð, bæði að efni og meðferð leikenda. Það er svo ljett og bjart yfir leiksviðinu í Iðnó, að maður smitast af kátínunni handan Ijósanna. Efni leiksins er ekki veigamikið, en það er tekið svo skemmti lega á því, að það nægir til að halda hugan- um föstum stutta kvöldstund. Það á ekki við, að þakka neinum sjerstökum hina ágætu skemmtun. Góð leiksýning er sameiginlegt átak margra aðilja, frá höfundi til mannanna, sem skipta um leiktjöld. Mjer sýndist allt þetta vera í besta lagi hjá Leikfjelagi Reykja víkur, sem góðu heilli heldur áfram braut- ryðjendastarfi sínu á sviði leiklistarinnar í þessum báe“. Eru svikin nokkur einsdæmi 44 99 ÞEGAR borið hefur við að ein- stök heildverslun hefur gerst sek um verðlagsbrot hafa and- stæðingar verslunarstjettarinn- ar ætíð reynt að notfæra sjer það með því að reyna að varna skugga á innflytjendur í heild. Þetta gerðist t. d. á dögunum, þeear Fransk-íslenska verslun- arfjelagið varð uppvíst að stór- felldu verðlagsbroti. Sem betur fer er það ekki algengt að inn- flytjendur gerist sekir um verð laesbrot og síst svo að alvarleg geti talist og er brot Fransk- ísl. verslunarfjelaffsins alffer- lega einstætt í sinni röð. Allt um það reyndi „Þjóðviljinn“ þó að læða því inn hjá lesendum sínum, að slík brot væru á hverju strái, þau kæmust aðeins ekki upn o. s. frv. Þióðviliinn snvr: „Eru svikin nokkur eins- dæmi“, og svarið er að svo sje ekki og geneur út frá að allir, sem við verslun fást setji sig ekki úr færi um að svíkja vöru og verð. Slíkar dvlgjur eru auð- vitað aHtaf eómsætar fyrir þá, sem vilia trúa hinu versta um nánneann og þá sjerstaklega verslunarst.iettina. En beir. sem til bekkía og líta á málin af sannmmi vita að bess’.t er öðru- vísi farið. í verslunarstiettinni er vfirleitt heiðarlegt fólk sem ekki má vamm sitt vita, eins og er um aðrar atvinnustjettir landsins. Hitt er svo annað máí, að innan um kunna að vera oin- staklingar, sem er á annan veg farið og er það hið sama og gerist um alla aðra hópa þjóð- fielágsins að misáfn sauður er í mörgu fie. Það riettlætir aft- ur ekld að reyna að gera allan hópirtn tortryggilegan þó upp komist um misferli eins eða fleiri einstaklinga. Ef farið væri með aðrar stjettir en verslunarstjettina á líkan hátt og Þjóðviljinn ger- ir mundi ekki verða fagurt um að litast í þjóðfjelagi voru. Tök- um dæmi af siómannastjettinni. Allmargir sjómenn hafa orðið uppvísir að því að smygla til landsins allskonar varningi, sem seldur er við okurverði. Frjett- ir berast um leitir tollvarða og f”ndi beirra í skipi eftir skipi. Riettlætir betta, að öll sjó- mannastjettin sje stimpluð smyglarar og leynisalar? Tök- um svo dæmi af opinberum rekstri, sem hefur all-marga verkamenn og smiði í þjónustu sinni. Við athugun á þessum ’ækstri kemur í liós, að vinnu- brögðin eru með þeim hætti að unnt er að snara stórfje ýmist með því að skifta um menn eða fækka starfsliði. Væri sann- gjarnt að slá því föstu í eitt skifti fvrir öll í sambandi við svona tiívik, að verkamenn og iðnaðarmenn svíki yfirleitt störf sín hiá hinu opinbera og krefj- ast allsherjarrannsóknar á slík- um rekstri. Svona mætti halda áfram svo að segja í það óendanlega. Þeir sem reyna að tortrvggja alla verslunarstjettina fyrir brot ein stakra manna vita þetta ofur vel en árásir þeirra eru póli- tísks eðlis og fá svip sinn af bví. Hinsvegar ætti hver ein- staklingur, sem dylgjurnar les eða heyrir að athuga máiið vel og stinga hendinni í eigin barm og hugleiða hvernig dæmið liti út, ef svipuðum ásökunum væri snúið að hans eigin hóp eða stjetf. II íl' Landafræði og ást leikið á Húsayík HÚSAVÍK, 2. jan. — Leik- fjelag Húsavíkur hafði frum- sýningu s. 1. laugardag á sjón- leiknum „Landafræði og ást.“ eftir Björnstjerne Björnssón undir leikstjórn frú Ingibjarg- ar Steinsdóttur. Þetta mun vera eitt af bestu verkum Björnsson, og er ekki gamanleikur eins og margir munu halda heldur fjallar harin um daglegt vandamál fortiðar og nútíðar. Leikendur eru: Tygesen próf. Njáll Bjarnason, frú Tygesen frú Aðalbjörg Jónsdóttir, Helga dóttir þeirra, ungfrú Guð’-ún Ingólfsdóttir, Virfit Rorne, frú Guðríður Hermannsdóttir, Tur- mar prófessor Einar M. Jó- hannesson, Henning listmálari Stefán Þórarinsson, Malla frú Auður Aðalsteinsdóttir, , Anna ungfrú Margrjet Karlsdóttir. Þykja leikendur allir fara vel með hlutverk sín og sumir ágæt lega. Má það þakka góðri kennslu og leikstjórn frú Ingi- bjargar, sem starfað hefir hjá Leikfjelaginu s. 1. mánuð og jafnframt undirbúið næsta við- fangsefni fjelagsins, en það verður gamanleikurinn Terigda pabbi. Að endingu frumsýningar- innar var leikendum og léik- stjóra ákaft fagnað og þau öll kölluð fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.