Morgunblaðið - 03.02.1951, Side 6
6
MUKCUNBLAÐII*
Laugardagur 3. febrúar 1951.
'lf
■'•Ki
CJtg.: H.f. Arvakur, Reykjavík
- 'it' , '
c>amkv.stj.: tjigfus Jonsson. v
,'c :jy y>** jjg rjl’ TJSr.. .. ^ 'í. .i-'.h. ,|á& ^ v*|
ftitgtjórir Valtýr Stefánsson (ábyrgðarni.»
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Lesbók: Ami Óla. sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garöar Kristmsson
Rítstjórn, auglýsuigar og afgreiðsla-
Austurstræti 8 — Sími 1600
Askriítargjald kr. 16.00 á mánuði, mnanlancts.
t lausasölu 75 aura eíntakiö. 1 króna með Lesbók
Kapp er best með forsjá
ÞVÍ hefur verið haldið fram
hjer í blaðinu, að gert hafi ver-
ið ráð fyrir því, er Alþingi sam-
þykkti fyrir jólin breytingu á
gengisbreytingarlögunum, að
greiðsla verðlagsuppbótar á
laun í landinu, yrði allt árið
1951 miðuð við 123 vísitölu-
stig.
Þennan skiining hefur Al-
þýðusamband íslands nú fje-
fengt og krafist þess að verð-
lagsuppbót verði nú og fram-
vegis greidd í samræmi við
vísitölu hvers mánaðar.
í þessu sambandi er athygl-
isvert að athuga afstöðu sam-
takanna til þessa máls er um-
rædd lagabreyting var til af-
greiðslu á Alþingi. Þegar lögin
höfðu verið samþykkt birti Al- |
þýðublaðið svohljóðandi fyrir-
sögn:
„Afnám allrar frekari dýr
tíðaruppbótar samþykkt á
Alþingi.“
í grein, sem fylgdi þessari
fyrirsögn er svo birt álykt-
un frá stjórn Alþýðusam-
bands íslands, þar sem því
er slegið föstu að með þessari
breytingu gengislaganna sje
svo kveðið á „að frá 1. febr.
1951 skuli laun ekki taka
breytingum samkvæmt á-
kvæðum gengislaganna um
vísitöl uuppbót.“
Auðsætt er af þessu, að
fyrir jól, hafði stjórn AI-
þýðusambandsins og Alþýðu
flokkurinn, nákvæmlcga
sama skilning á þessum mál-
um og Morgunblaðið hefur
túlkað undanfarið. Nefnilega
þann, að greiðsla verðlags-
uppbótar á laun árið 1951
skyldi miðast við 123 vísi-
tölustig og að breytingar á
kaupgjaldi eftir 1. febrúar
gætu aðeins orðið að undan-
gengnum nýjum samningum
milli verkalýðssamtaka og
atvinnurekenda. Þess vegna
segir Alþýðublaðið þann 20.
desember að „allar frekari
dýrtíðaruppbætur“ hafi ver-
ið „afnumdar.“
Það er líka vitað að allur
almenningur hefur gert ráð
fyrir því að verðlagsuppbót á
laun þetta ár yrði miðuð við
vísitölu 123 alveg á sama hátt
og ríkisstjórnin, Alþýðusam-
bandið og einstök launþega-
samtök reiknuðu með.
Hitt eru svo auðvitað engar nýj
ar frjettir að þrátt fyrir þetta
hafa launþegasamtökin frjálsar
hendur um að semja við at-
vinnurekendur um hækkað
grunnkaup án íhlutunar lög-
gjafarvaldsins. Það hefur held-
ur enginn dregið í efa. Á það
hefur hinsvegar verið bent, að
eins og atvinnuástandi væri nú
háttað með þjóðinni sje hækkun
grunnkaups engan veginn lik-
leg til þess að bæta afkomu
lí unþega. Leiðin til aukins at-
vinnuöryggis og bættrar af-
komu væri sú, að efla. fram-
leiðsluna, áuka þjóðártekjurp-
ar og skapa raunveruleg áukjn
verðmæti til skipta á niilli at-
vinnustjetta þjóðfjelagsins.
Verkalýðssamtökih í okk-
ar landi' hafa mikið vald.
Það mega þau ekki misnota.
Kapp er best með forsjá.
— Verkalýðssamtökin bæta
ekki hag meðlima sinna með
þvt að stuðla að stöðvun
framleiðslunnar. Þau verða
þvert á móti að taka höndum
saman við öll þjóðholl öfl
um eflingu hennar.
Heimskan
á hástigi
BLAÐ pínu litla flokksins jafn-
ar í gær þeim ráðstöfunum, sem
ríkisstjórnin hefur heitið vjel-
bátaútgerðinni, við hina dönsku
einokunarverslun á íslandi. —
Með öðrum orðum, fyrirheit
ríkisstjórnarinnar til bátaút-
vegsmanna um ráðstöfunarrjett
á helmingi gjaldeyrisandvirðis
afurða þeirra á þorskvertíð, er
að áliti Alþýðublaðsins, svipaðs
eðlis og sú plága, sem verst
hefur gengið yfir íslensku þjóð-
ina og hafði nær riðið henni að
fullu!!!
Virðist nú ekki öllu venju-
legu fólki sem heimska þessa
blaðs hafi náð hástigi? — Svo
sannarlega.
Jafnhliða þessari' staðhæf-
ingu Alþýðublaðsins fullyrðir
það að „skipverjar vjelbátanna
verða sviknir um þeirra hluta
gjaldeyrishagnaðarins."
Hvemig samrýmist nú þetta
raunveruleikanum?
Fyrir nokkrum dögum
birti Landssamband ísl. út-
vegsmanna tilkynningu um
að það mæli með því við út-
vegsmenn að þeir hef ji veið-
ar nú þegar og kaupi aflann
af skipverjum á verulega
hækkuðu verði frá því, sem
verið hefur. Þetta verð er
kr. 0.96 pr. kgr. af þorski
slægðum með haus, en kr.
1.25 pr. kgr. hausuðum.
Á ýsu slægðri með haus
leggur Landssambandið til
að verðið, pr. kgr., verði kr.
1.05 og kr. 1.35 pr. kg. af
henni hausaðri. Verð á öðr-
um fisktegundum hækki í
samræmi við þetta.
Svo kemur blað pínulitla
flokksins og segir að svíkja
eigi sjómenn um þeirra hluta
gjaldeyrishagnaðarins!!!
Hjer er bersýnilega um vís-
vitandi blekkingu að ræða af
hálfu blaðsins. Að sjálfsögðu
hefur aldrei annað komið til
greina en að fiskverðið hækkaði
til sjómanna og að þeir nytu
þess hagnaðar, sem útgerðin
hefur af ráðstöfunarrjetti á
hluta gjaldeyrisins.
En þessi málflutningur AI-
þýðublaðsins sýnir, húersu
gjörsamlega samviskulaust það
er j andstöðu sjnni ,i við, allar
raunhæfar ráðstafanir jil þess
að tryggja rekstur útvegsins og
atvinnu alinennings við sjáv-
arsíðuna. . .. r
fíkveríi,kritar: ÚR DAGLEGA L'ÍFI
?
SKORTUR Á ÍSLENSKUM
ÍILJÓMPÍ.ÖTUM
OFT ER kvartað yfir, að ékki skuli ýbra 'tií’
meira af íslenskum hljómplötum en raun ber
vitni. Vildu margir eiga hljómplötur með ís-
lenskum söngvurum, kórum og annari hljóm
list. Þessi skortur á íslenskum hljómplötum
er það mikill, að þegar kjörræðismaður ís-
lands í fjarlægu landi var beðinn að útvega
íslenska hljómlist á hljómplötum til að út-
varpa frá þekktri útvarpsstöð, var honum
sagt, að ekki væri einu sinni hægt að útvega
íslenska þjóðsönginn á hljómplötu.
Eitthvað mun rætast úr þessu ástandi á
næstunni, en ástæðan fyrir plötuskortinum
er meðal annars lítill markaður fyrir slíkar
plötur á árum áður.
MOTIN VORU EYÐILÖGÐ
HARALDUR ÓLAFSSON, framkvæmdastjóri
„Fálkarts“, sem haft hefir milligöngu um
hljómplötugerð með íslenskri tónlist, segir, að
langflestar íslensku hljómplöturnar hafi verið
teknar 1933. Voru það aðallega kórlög, sem
tekin voru þá á plötur.
En salan var sáralítil á árupum 1933—’40
og þessvegna voru mótin eyðilögð. — Eru
margar þessara plata því ófáanlegar nú. Eftir
stríð tók Haraldur upp samning á ný við
„His Masters Voice“, en þá voru viðhorfin
það breytt, að ekki þótti borga sig, að senda
hingað verkfræðinga til að taka upp hljóm-
list á plötur.
•
VON Á PLÖTUM
EINSÖGVARA
UNDANFARIN ár hefir Ríkisútvarpið tekið
upp á plötur, söng allmargra einsöngvara og
er nú verið að gera plötur eftir þeirri upp-
töku. í næsta m.ánuði eða svo mun von á
plötum nokkurra íslenskra einsöngvara, þar
á meðal Stefáns íslandi og Einars Kristjáns-
sonar. Og innan skamms munu koma á mark-
aðinn plötur með söng MA-kvartettsins og
ætti ekki að þurfa að efa, að þær gangi út. En
æskilegt væri, ef hægt væri, að taka upp á
hljómplötur tónlist fleiri listamanna okkar og
þá ekki síst söngvara, sem tiltölulega sjaldan
koma fram opinberlega, en margir hafa unun
af að hlýða á.
SVO
SEINT KEMUR FANINN UPP
HJÁ SUMUM , « í
SVÖ'áð Segja á hverfi stöng Var íáhfdH%inn
í hálfa stöng hjer í bænum í gær vegna þeirr
ar þjóðarsorgar, sem ríkir vegna flugslyssins
mikla. Það átti við, því sannarlega tekur
hver einasti maður þátt í þeim harmi, sem
kveðinn er að vegna þessa sviplega slyss.
Hefði mátt ætlast, til þess, að ekki þyrfti að
minna fánaeigendur á, að draga fána í hálfa
stöng. En það fór á annan veg. Snemma í gær
morgun voru fánar komnir upp á allmörgum
stöðum, en annarsstaðar kom fáninn ekki
upp fyrr en undir hádegið.
•
ILLA GENGUR
ÞAÐ ÆTLAR að ganga seint, að kenna mönn-
um virðulega meðferð þjóðfánans. Trassa-
skapur í þessum efnum er þjóðarskömm.
Mætti segja, að mönnum sje nokkur vork-
un, þótt þeir kunni ekki einföldustu reglur
um meðferð fánans, því það mun ekki einu
sinni kennt í barnaskólum landsins og af
hverju sem það stafar virðist kennslumála-
stjórnin treg til að gefa út fyrirmæli um, að
íslenskur fáni skuli vera til í hverri kennslu-
stofu á landinu og virðing fyrir þjóðfána
tamin þar.
Væri þetta gert myndi brátt breytast
virðing manna .fyrir sameiningarmerki
þjóðarinnar.
ILLA FARIÐ MEÐ SKOFATNAI)
UNDANFARIÐ hefir salti verið stráð á gang
stjettir og götur í bænum í þeim tilgangi að
bræða snjó og ís og draga úr hættulegri hálku
Glöggur maður hefir bent á, að saltáburð-
ur þessi sje háskalegur skófatnaði manna og
ekki síst skófatnaði úr gúmmí svo sem skó-
hlífum. Bendir hann rjettilega á, að saltið
tæri bæði leður os gúmmí og hafi menn einu
sinni fengið salt á skó sína, sje varla nokkur
leið að ná því af.
Loks bendir sami maður á, að salt kosti
erlendan gjaldeyri og skófatnaður einnig, en
sandur, sem sje jafngóður ef ekki betri en
salt til að draga úr hálku, sje innlendur og
þurfi ekki að greiða með torfengnum erlend-
um gjaldeyri.
Bæjarst jórn skorar á menn
að kaupa skuldabrjef
Sogjsvi rkj unarinnar
EINS OG getið var lauslega í frjett í blaðinu í gær var borin
fram tillaga á fundi bæjarstjórnar í fyrradag, sem fulltrúar
allra flokka stóðu að, þess efnis að skora á bæjarbúa og aðra,
sem heima eiga á orkusvæði Sogsvirkjunarinnar, að kaupa
skuldabrjef Sogsvirkjunarinnar. Tillagan var þannig:
„Til þess að tryggja megi frarnkvæmd hinnar stór
felldu Sogsvirkjunar við Íraföss-Kistufoss, sam-
þykkir bæjarstjórn, að skora á bæjarbúa Reykja-
víkur og aðra íbúa á orkuveitusvæði Sogsvirkjun-
arinnar, að kaupa skuldabrjef Sogsvirkjunarinnar,
sem nú cru boðin með hinum hagstæðu kjörum.
Gunnar Thoroddsen, Jón Axel Pjetursson, Guð-
mundur Vigfússon, Þórður Björnsson“.
Borgarstjóri fylgdi tillögunni |.
úr hlaði með nokkrum orðum.
Minnti hann á hve stórkostleg-
ar framkvæmdir verið væri að
hefja með viðbótarvirkjun Sogs
ins, sem myndu hafa hina mestu
þýðingu fyrir heimili og iðnað
í Reykjavík og annarsstaðar á
orkusvæði Sogsins.
Benti brogarstjóri á, að þeg-
ar væri tryggt fjármagn, sem
þyrfti erlendis frá, en nú stæði
aðeins á innlendu fjármagni.
Tillagan var samþykkt með
samhljóða atkvæðum allra bæj-
arfulltrúa.
— SVFl þakkar
Framh. af bls. 4.
Garðinum, Sandgerði, Höfnun-
•slysavamadeildunum Keflavík,
um, Grindavík, Kjalarnesi.
Kjós, Akranesi, Borgarfirði,
Snæfellsnesi og víðar er brugðu
svo fljótlega við og spöruðu
sjer ekki meitt erfiði. Þó lýsir
stjórn Slysavam^fiela^s Islands
þakklæti sínu vfir vóðri og ná-
kvæmri leit f1""vie1a þeirra er
þátt tóku í leitinni.
Þeim sem vi* hetta hörmu-
lega slys hafa misst sina nán-
ustu vottar stið-n Plv-savarna-
f jelagsins sína innilegustu sam-
úð og hlutteknin'íu.
Slysavamafjel. íslands.
Skemmdarverk
SINGAPOORE. — Spellvirki
kommúnista í Singápoore og
grennd eru einkum í því fólgin
að kveikja í eða ónýta á annan
j hátt bifreiðir og önnur samgöngu
itæki. .
Ottast m útbreiðslu g arna-
veiki í nautgripum í Skagatirði
SAUÐÁRKRÓKI, 25. janúar: — Óttast er um að garnaveikin
sje nú komin í naútgripi á 2—3 bæjum í Skagafirði. Á síðast-
’iðnu hausti þótti ein kýr að Sleitustöðum í Skagafirði grun-
lamleg í sambandi við meinta garnaveiki. Eftir að henni hafði
verið lógað, kom í Ijós, að hún var sýkt af garnaveiki.
í desembermánuði síðastliðn-®'
um var gerð blóðprufa á öllum
nautpeningi á þeim bæjum í
Hóla- og Viðvíkurhreppi, þar
sem veikinnar hafði orðið vart
fyrir fjárskiptin, og leiddi sú
rannsókn í ljós, að mikil hætta
er talin vera á að þrjár kýr að
Hólum í Hjaltadal og ein í Kýr-
hobi í Viðvikursveit hafi tekið
veikina.
í ráði mun vera að fá Guð-
mu.nd Gíslason, dýralækni, norð
ur til þess að gera hjer frekari
rannsóknir. Bændur á þessu
svæði eru allkvíðafullir yfir að
hin illkynjaða veiki fari nú aft
ur að herja á búpening þeirra
strax eftir að fjárskiptin hafa
farið fram. — ,jón.
Uppreistarmenn gefast úpþ
RANGOON. — Burmastjórn seg-
ir, að 8000 uppreistarmenn kömm
únista hafi gefist uþp, síðán borg
arastríðið hófst í mafs 1948.
J