Morgunblaðið - 20.02.1951, Page 1
38. árKangui
42. tbl. — Þriftjudagur 20. febrúar 1951.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Verkcslýðsfjelögin eru
rjetti sneydd í lönd-
um konanaúnistanna
SANTIAGO, Chile, 19. febrúar. — Á morgun (þriðjudag) kem-
ur efnahags- og fjelagsmáianefnd S. Þ. saman til fundar í
Santiago. Þar verður m. a. fjallaá um kæru á hendur Rússlandi
og hjáríkjum þess, þar sem þau eru sökuð um nauðungarvinnu
og brot á rjettinaum verkalýðsfjelagamia.
I Kóreu virðist buráttuþróttur
kommúnistu lumuður um sinn
Ekki treystandi
Fyrir þinginu liggja upplýs-'j
ingar frá 8 stofnunum, þar á
meðal skjal frá Sambandi
frjálsra verklýðsfjelaga, þar
' sem því er haldið fram, að rjett
indi verklýðsfjelagarma hafi
verið brotin í tjeðum löndum.
í þessu alheimssambandi eru
samtök 60 þjóða með 51 millj.
fjclagsmanna.
HJETTINDI VERKALÝÐSINS
FYRST SKERT
í skýrslu stofnunarinnar seg-
ir m. a.: ,,Hve nær sem Rúss-
ar færa út kvíarnar, þá eru
það rjettindi verklýðsfjelag- j
anna, sem þeir afnema fyrst!
af öllu. Af því má marka, hve
geysiveigamikið mál hjer er
um að ræða. Það er fyrst og
fremst af þeirri ástæðu, sem
telja verður, að ekki sje ein-
vörðungu um innanríkismál að ]
ræða. Við gaumgæfilega rann- [
sókn á þeim upplýsingum, sem
siast út fyrir járntjaldið, verð-
ur komist að þcirri niðurstöðu,
að allar þjóðir, sem búa við of-
ríki Rússa, hafi verið neyddar
til að afnema alla heilbrigða
starfsemi verklýðsíjelaganna.
.... Allar upplýsingar í skjal-
inu styðjast við öruggar heim-
ildir og eru þær aðallega af
rússneskum uppruna.“
ÞEIR SKAMMTA VERKA-
LÝÐNUM AÐ EIGIN
GEÐÞÓTTA
í skjalinu segir frá harðrjetti
því, sem Rússar beita verldýðs-
' fjelögin og nauðungarvinnu í
Rúmeníu, Tjekkó-Slövakíu og
Ungverjalandi og heldur áfram:
,,AlIt er þetta órækt vitni um,
að sama helsinu hefir verið
smeygt á þær þjóðir, sem
kommúnistar oka og Rússa
sjálfa. Alls staðar eru verka-
mennirnir sviptir vernd heil-
brigðra verklýðssamtaka. Það
eru einræðisherrarnir, sem
segja fyrir um kjör verkamann-
anna og hag allan, múgurinn
er hljóður og verður að sam -
þykkja.
Verkalýð frjálsra þjóða ætti
að vera kunnur þessi sannleiki.
Ekkért er betur fallið til að
styrkja þann verkalýð í trúnni
á samtök sín, en að járntjald-
inu sje vikið til hliðar.“
Forsetl fslamb enn í
Landsspífðlanum
FORSETI íslands, herra Sveinn
Björnsson, dvclst enn í Lands-
spítalanum. Hann er með inflú-
etisu, þungí kvef og allháan
hita. Mun sjúkrahúsvist hans
því lengjasí nokkuð frá því sem
búist var við í íyrstu.
(Frá forsetaritará).
Kasmírdeilan
í 3 ár hjá S. Þ.
LAKE SUCCESS, 19. febr. —
Á miðvikudaginn kemur örygg-
isráðið saman á fund. — Þar
verður Kasmírdeilan rædd. —
Dögum saman hafa Bretar og
Bandaríkjamenn unnið að
ályktunartillögu, sem þeir
hyggjast bera fram í samein-
ingu í málinu. Deilan milli
Pakistans og Indlands um
Kasmir hefur nú legið fyrir ör-
iggisráðinu til úrlausnar rúm-
lega 3 ar. — Reuter-NTB.
Enn hafa þeir saml
ógrynni liðs á að
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB.
TÓKÍÓ, 19. febrúar. — Ridgway hershöfðingi, yfirmaður 8.
bandaríska hersins í Kóreu, skýrði frá því í dag, aö hersveitir
S. Þ. hafi brotið á bak aftur gagnsókn kommúnista og hafi nú
aftur tögl og hagldir á vígvöllunum. Kínverjar og N-Kóreu-
menn hafa goldið mikið afhroð, er þeir reyndu að rjúfa fylk-
ingar herja S Þ. Hafa þeir orðið að hörfa, svo að stöðvar þeirra
eru nú norðar en áður en gagnsókn þeirra hófst.
Bækistöðvar Eisen-
howers í Frakklandi
PARÍS, 19. febrúar. — Sagt var
frá því í París í dag, að aðal-
bækistöðvar Eisenhowers verði
til húsa á stað, sem er
milli Versala og Saint German.
Enn er ekki fullráðið, hvenær
hafist verður handa um húsa-
smíðina, en talið er, að hún taki
ekki nema 3 mánuði frá því, er
gerðir hafa verið uppdrættir að
henni. Því lýkur væntanlega í
lok vikunnar. Reuter-NTB
IRENE JOLIOT CURIE, dótt-
ir hinnar frægu frú Curie,
radium-vísindamanns, hefir
starfað í atomnefndinni frönsku,
en nú cr talið að liún verði að
víkja úr þeirri stöðu vegna þess
hve húti cr ákafur kommúnisti
og því ckki treystandi í svo
mikilvægu embætti. Maður
hennar varð að láta af embætti
í atomrannsóknarnefndinni
frönskn í fyrra af’sömu ástæð-
um. — Önnur dóttir frú Curie,
sem Eva lieitir, er jafn ákaf-
; ur andkommúnisti og systir
ihennar er fylgjandi Stalins.
Mikil fjölgun í Banda-
ríkjunum
WASHINGTON, 19. febrúar. —
í janúar s.l. voru 153,085,000 í-
búar í Bandaríkjunum. — Her-
menn þeir, sem erlendis dvelj-
ast eru taldir með, svo að fólks-
fjöldinn hefur aukist um 1,935,
000 síðan 1. apríl í fyrra.
Danakonungur fer
til Grænlands
Kemur máske við hjer
Einkaskeyti til Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 19. febr.
— Politiken skýrir svo frá, að
Danakonungur muni væntan-
lega fara í heimsókn til Græn-
lands í júnílok, en ennþá sje
óráðið, hvort hann noti tæki-
færið til þess að heimsækja ís-
land.
Danski forsætisráðhferrann
mun taka þátt í þessu íerða-
iagi.
Konungur verður viðstadJur
fund í landsráðinu, er fyrsta
landsráðið, sem kosið er fyrir
allt Grænland, kemur saman.
Ðanskir og erlendir frjetta-
menn, þar á meðal bandariskir,
munu væntanlega taka þátt í
Grænlandsferðinni.
Vemdari símamanna
PÁFAGARÐI, 19. _febr. —-
Gabríel, erkiengill, hefur verið
gerður vei'ndari símamanna. —
Áður hefur verið tilkynnt í
Páfagarði, að hann væri vernd-
ari útvarps, þar eð það var
hann, sem boðaði Maríu mey,
að hún væri þunguð.
í Kóreu veila 27 ríki
3. Þ. að mélum
LAKE SUCCESS, 19. febrúar.
Nú taka 27 lönd þátt í vörnum
S. Þ. gegn árás kommúnista
í Kóreu. I skýrslum S. Þ. um
þetta atriði segir, að 14 ríki
leggi til landher, og fallist hef-
ur verið á að taka boði þriggja
að auki. Þá leggja 9 þjóðir til
flota, 8 flugher og 12 vopn og
vistir. Hjálpin kemur frá 25
ríkjum, sem aðild eiga að S. Þ.
og tvei nur, sem standa utan
þeirra, iialíu og Kóreulýðveld-
inu. ________________
Ernsl Reuler
síaddur í Höfn
KAUPM.HÖFN, 19. febr. —
Yfirborgarstjóri Berlínar, Ernst
Reuter, kom loftleiðis til Hafn-
ar í dag. í kvöld hjelt hann fyr-
irlestur um þýsk málefni í jafn
aðarmannafjelagi borgarinnar.
! Á miðvikudag fer hann áfram
l loftleiðis til New York. NTB
“*VÍGSTÖÐVAK VIÐ IIAN
I Undanfarin 3 dægur hafa
hersveitir S. Þ. sótt fram
siyndrulaust.Þannig hafa bresk
ar sveitir náð að bökkum Han-
fljótsins, sem er á ísi, 27 km
austan Seoul. Herr.”eitir S. Þ.
hafa nú á valdi sínu 55 km með
fram fljótinu. Á einum stað
stendur herjum lýðvoldismanna
nokkur ógn af kommúnistum,
það er suðaustan Wonju á mið-
vígstöðvunum, þar sem þeir
hafa sótt í áttina til Checon.
Nú hefir þó lýðveldismönnum
tekist að hrinda árásum þeirra
af höndum sjer í bili.
MIKIÐ TJÓN KOMMÚNISTA
Ridgway ljet vel af baráttu-
þreki lýðveldismanna. Sagði
hann, að tjón kommúista hefði
verið gífurlegt að undanförnu.
Hefði þeir jafnan misst 4 þús.
dag hvern og á rriðvikudag-
inn var hefði manntjón þeirra
numið 11 þús. En ’rommúnist-
ar hefði samt mikið lið, sunn-
an 38. breiddarbaugsins væri 6
til 7 kínverskir herir. Ekki
kvaðst hershöfðinginn hafa brot
ið það mál til mergjar, hyort.
haldið skyldi yfir 38; breiddar-
bauginn eða ekki. „Aðalatriðið
er að leggja eins marga Kín-
verja og N-Kóreumenn að velli
Svar Vesturveldanna
aihent í Moskva í gær
Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter—NTB.
PARÍS, 19. febrúar. — í dag afhentu sendiherrar Þríveldanna
í Moskvu Vishinsky utanríkisráðherra, svar ríkja sinna við
seinustu orðsendingu Rússa um fjórveldafund. í svarinu er
lagt til, að fulltrúar utanríkisráðherra fjórveldanna komi sam-
an í París í öndverðum marz og fjalli þar um dagskrá slíks
fundar. —
Á BREIÐUM GRUNDVELLI
Þá er og lagt til, - að rædd
verði á ráðstefnunni öll þau
mál, er viðsjám valda á alþjóða
vettvangi, en hún einskorði sig
ekki við Þýskalandsmálin ein.
í 5 LIÐUM
Svarorðsendingin er í fimm
ajiriðum. Er þetta 6. orðsend-
ingin, sem fer milli Vesturveld-
anna og Rússlands síðan 3. nóv.
í fyrra, er Rússar hófu máls
á því, að kveðja skyldi saman
fjórveldaráðstefnu um Þýska-
landsmálin.
Síldarafli tlorð-
manr.a nél. 7 milj. hl
BERGEN, 19. febr. — Vetfar-
síldaraflinn í Noregi nemur
6,336,486 hl., en var 6,147,100 í
fyrra. Auk þess veiddust frá
föstud. til sunnud. 612,364 hl.
vorsíldar, svo að heildaraflinn
var þá kominn upp í nál. 7
millj. hl. Heildaraflinn seinustu
viku var 1,916,393 hl. — NTB.
og okkur að eins
litlu og verða má.
kostnaðar-
SOTT FRAM
í dag var lítið um bardaga á
vígvöllunum, en lýY/eldismenn
hjeldu áfram og urðu varla
fyrir nokkra viðnámi frá Wonju
til Kyongan. Á einum stað fóm
hersveitirnar yfir Han-fljótið
og komust til staðar, sem er
ekki nema 3 km frá samgöngu-
bænum Höngsong. Á austur-
ströndinni eru S-K.óreumenn
ekki nema 29 km frá 38. breidd
arbaugnum. Loftherinn var at-
hafnasamur. Herskip hjeldu
uppi skothríð á Wonsan, 130
km norðan 38. breiddarbaugs-
ins.
Aríðandi skjöium síoiið
PARÍS, 19. febr. — Blaðið
France-Soir skýrir frá því, að
nokkrum feikilega veigamikl-
um skjölum, sem varða land-
varnir Frakklands hafi verið
stolið. Hurfu þau úr bifreið
starfsmanns í lan^varnaráðu-
neytinu. — Reuter-NTB.