Morgunblaðið - 20.02.1951, Síða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. febr. 1951
Ástæðurnar eru aug!jósar
WASHINGTON: — Stjórnmálamenn ræða það nú fram
og aftur, hversvegna Stalin hafi látið Pravda birta áróð-
ursviðtalið við sig í síðastliðinni viku. Eftirfarandi ástæð-
ur eru helst nefndar:
• Misheppnuð tilraun kommúnista til að reka Samein-
uðu þjóðirnar frá Koreu.
® Misheppnuð tilraun Sovjetstjórnarinnar til að koma
í veg fyrir eflingu hervarnanna í Vestur-Evrópu.
• Sívakandi erfiðleikar kommúnistaflokkanna í Vestur-
Evrópu.
• Einbeitt andstaða almennings í Vestur-Þýskalandi
gegn tilraunum Rússa til að koma rauðliðum til valda.
• Aukin velsæld lýðræðisþjóðanna.
ISomanlagður herafli
mun
minni en Rússa einna
einnn
HINIR nýju heíSursfjelagar Varðar: Bjarni Benediktsson, Guðmundur Benediktsson, GunnaJP
Benediktsson og Magnús Þorsteinsson. (Ljósm. Pjetur Thomsen).
Sovjefríkin vilja aia á sundurlyndi í heiminum
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ILONDON, 17 febrúar — Talsmaður í breska utanríkisráðu-
r.eytinu rædd. í dag við frjettamenn um viðtalið við Stalin,
;æm Pravda hirti í gærdag. Lýsti hann meðal annars orðum
íinræðisherr ns sem auðsærri tilraun til að ala á sundurlyndi
í heiminum.
23.000 SKF iÐDREKAR
í samb ndi við friðarhjal
Stalins mnmti talsmaðurinn á
)t»á staðreynd, að rússneski lier-
ínn hefui mun meiri mannafla
ú að skipa en allir herir lýð-
yæðisríkjanna samanlagðir. —
Vitað vnnri til dæmis, að Sov-
jetríkir rjeðu yfir að minnsta
Iiasti 1/5 fullþjálfuðum her-
fylkjum, 20.000 skriðdrekum,
20.000 iierflugvjelum og stærsta
kafbá iflota veraldarinnar.
AND IGUR EFTIRLITI
St.lin, sagði talsmaðurinn
■ennf emur, hefði talað mikið
um afvopnun. En það sæti illa
á Rassum að hreyfa þessu máli,
joar sem þeir hefðu m. a. beitt
3 ..eitunarvaldi sínu til þess að
b-í na í veg fyrir alþjóðasam-
})>kkt um eftirlit með atom-
orku.
> ER OFT í BLÖÐIN
Að lokum sagði talsmaður-
i m, að rússneski einræðisherr-
. in hefði oftsinnis látið birta
\ ð sig blaðaviðtöl frá stríðs-
1 jkum. í fyrstu hefðu yfirlýs-
J igar hans í blöðunum verið
ieknar alvarlega, en segja
n aætti að því fleiri sem viðtölin
liefðu orðið því minna mark
jiefði verið tekið á þeim.
tcílirminnileg mynd
I Nýja Bíó
'UM þessar mundir er sýnd í
‘Nyja bíó, eftirminnileg tónlist-
armynd, sem vafalaust mun
verða vinsæl hjer, sem aðrar
slíkar hafa orðið. Mynd þessi
er sjerstæð fyrir það, að í henni
jeikur ítalska undrabarnið Ro-
1 >erto-Benzi, hljómsveitarstjór-
inn heimsfrægi.
í nyndinni, sem látin er ger-
• <st : Frakklandi, er að nokkru
/ tuðs við atburði úr frægðar-
ieili hins unga snillings og er
; ögoþráðurinn skemmtilegur
i.'k upphafi til enda.
Hljómlistin, sem leikin er í
ynyndinni er eftir Bach, Liszt,
Jlossini, Mozart o. fl.
Hskifjelag Islands
DavíS Ólafsson.
í DAG eru liðin 40 ár frá stofn-
un Fiskifjelags íslands.
Hier verður aðeins vakin at-
hygli á afmæli þessa merka f je-
lagsskapar. Allt frá stofnun og
fram á þennan dag, hefur þaf
einkennt starfsemi Fiskifjelagr
ins hve kappsamlega það hefur
unnið að öllum framfaramálum
á sviði sjávarútvegsmála okkar
íslendinga, enda hefur fjelagif
afrekað miklu á þessu sviði
sem orðið hefur þjóðinni ti'
mikils gagns.
Fiskifjelagið hefur sýnt mikla
trúfestu í starfi. Starfssvið þess
er: „Að styðja og efla allt þaf
er verða má til framfara og um-
bóta í fiskveiðum Islendinga ?
sjó, ám og vötnum, svo að þær
megi verða sem arðsamastar
þeim er hafa atvinnu af þeim
og landinu í heild“.
Margt þjóðkunnra manna
hefur fyrr og síðar starfað í
stjórn og innan Fiskifjelagsins
í núverandi stjórn eiga sæti:
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri,
en hann er formaður fjelags-
stjórnar, Emil Jónsson, alþingis
maður, Ingvar Vilhjálmsson, út
gerðarmaður, Pjetur Ottesen,
alþingismaður, og Þorvarður
Björnsson, yfirhafnsögumaður.
(liæsiSegt afmælismót Varðarfjelags-
ins á laiegardaginn var
Á LAUGARDAGINN var hjelt
stjórn Varðarfjelagsins afmæl-
ishóf sitt í Sjálfstæðishúsinu.
Var það fjölsótt og hið á-,
nægjulegasta.
Formaður Varðar, Ragnar
Lárusson, setti hófið og stjórn-
aði því. Fyrsti ræðumaður var
Jóhann Hafstein framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins. —
Flutti hann minni Varðarfje-
lagsins og vjek einkum að því,
í sinni stuttu gagnorðu ræðu,
hvernig umhvorfs hefði verið í
Reykjavík, ef landsmálafjelag-
ið Vörður hefði ekki verið starf
andi aldarfjórðunginn síðan fje
lagið var stofnað.
Næst tilkynnti formaðurinn
að fjelagsstjórnin hefði ákveð-
ið að gera f jóra menn að heið -
ursfjelögum, en á 20 ára af-
mælinu voru þeir fjórir, sem
heiðraðir voru á þennan hátt,
þeir Ólafur Thors, Jakob Möll-
er, Magnús Jónsson, prófessor,
en han” fvrcti forms^’”
lagsins og Bjarni Sigurðsson, er
verið hefir skrifstofustjóri Varð
ar síðan árið 1929.
í þetta sinn voru þeir gerðir
að heiðursfjelögum Bjarni Bene
diktsson utanríkisráðherra, Guð
mundur Benediktsson bæjar-
gjaldkeri, Gunnar Benedikts-
son forstjóri, en allir hafa þeir
verið formenn í Verði og Magn-
ús Þorsteinsson skrifstofumað-
ur, en hann hefir lengi átt sæti
í stjórn Varðar og unnið fyrir
fjelagið með framúrskarandi á-
huga og dugnaði. Allir þessir
menn fengu við þetta tækifæri
gullkross fjelagsins. Formaður
fjelagsins afhenti þeim heiðurs-
merkið með stuttri ræðu, en
Bjarni Benediktsson þakkaði
fyrir þeirra hönd.
Þá flutti Gunnar Thorodd-
sen borgarstjóri minni Reykja-
víkur. Gerði hann m. a. saman
burð á útnesinu, sem Ingólfuj:
byggði og Reykjavík, eins og
hún er nú, hhitdeild
Varðarfjelagið hefir átt í við-
gangi höfuðstaðarins á síðustu
25 árum,
Næst flutti Bjarni Benedikts-
son minni Sjálfstæðisflokksins,
Rakti m. a. aðalstefnumið
flokksins og brýndi það fyrir
mönnum, að ekki væri nóg að
hafa fögur fyrirheit á vörun-
um. Menn yrðu að sýna vilja
sinn í verki, eins og flokksmenn
hafa rjettilega skilið.
Þá flutti Ólafur Thors ræðu
fyrir minni íslands. Benti þar
m. a. á það breytta viðhorf, sem
hlýtur að skapast, þegar upp
er risinn stjórnmálaflokkur
með þjóðinni, sem beinlínis
vinnur gegn heill landsmanna,
og stefnir að skipulögðum
skemdaverkum. Hvatti hann
menn mjög að standa vel á
verði gegn þessum skemdaöfl-
um og halda vörð um sæmd
f óstur j arðarinnar.
Síðan færðu nokkrir veislu-
gestanna fjelaginu árnaðarósk-
ir og tók þá forseti Sameinaðs
þings, Jón Pálmason, fýrstur
til máls. Flutti hann kveðjur
frá Sjálfstæðismönnum utan
Reykjavíkur og þakkaði Verði
forystustarf í fjelagsmálum
flokksins.
Því næst flutti formaður
Heimdaílár, Ásgeir Pjetursson,
kveðju frá sínu fjelagi og færði
Verði vandaðan fundahamar að
gjöf. Þá flutti formaður Sjálf-
stæðiskvennafjelagsins Hvatar,
frú Guðrún Jónasson, kveðjur
og árnaðaróskir til Varðar, frá
fjelagi sínu.
Á milli ræðahna voru sung-
in ættjarðarljóð og var yfirleitt
ljett yfir mönnum.
Meðan á borðhaldinu stóð,
sungu þeir tvísöng Jakob Haf-
stein og Ágúst Bjarnason. En
síðar um kvöldið söng frk.
Soffía Karlsdóttir. Var að því
hvortveggja hin besta skemmt-
un.
Áður en staðið var upp frá
borðum las formaður Varðar
mörg skeyti, sem fjelaginu
höfðu borist í tilefni af afmæl-
inu, sum þeirra í Ijóðum. —-
Blómakveðjur bárust fjelaginu
frá Hvöt og fleirum.
FRÁ Vj*.»i»/íí’íAFMÆLIís, «j — i ormaður tj. „ .,aa.iar
Lárusson, notar hin nýja fundahamar í fyrsta sinn, sem fje-
Jagið fjckk að gjöf frá Heimdalli. Á myndinni sjest kona hans,
Andrea Jónsdóttir og Ólafur Thors, róðherra. — (Ljósm. Pjet-
ur Thomsen).
Fasteignum skilað
BONN — Tilkynnt var nýlega,
að um 7.000 fasteignum, serrt
Bandaríkjaher í Þýskalandi á sín
um tíma tók til eigin afnota,
hefði nú verið skilað aftur í
hendur eigendanna.