Morgunblaðið - 20.02.1951, Qupperneq 6
[
MORCUNBLAÐIÐ
Þi'iðjudagur 20. febr. 1951
ÍJtg.: H.f. Arvakur, Reykjavik.
‘■VainJrvjrtj.: Sigfús Jónsson
Hitstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarxn.)
Frjettaritstjóri: ívar GuSmundsson.
Lesbók: Arni Óla. sími 3045
\uglýsingar: Árni GarSar Kristmsson.
Ritstjörn, auglýslngar og afgreiðslar
\usturstræti 8. — Sírru 1600
rtsiiriftargjald kr. 16.00 á mánuSi. mnanianda.
I laojasölu 75 aura eintakiS. 1 króna með Lesbök.
k grundvefli bfekkinganna
VíkYe,iiskrifar: ÚR DAGLEGA liriNU
SAMTAL það, sem Stalin mar-
skálkur átti fyrir skömmu við
eitt af máigögnum sínum í
Moskvu, geíur mjög glögga hug
mynd um þann grundvöll, sem
kommúnisíar byggja áróður
sinn á. Kjarni þessa samtals er
það, að meginorsök þeirrar
hættu, sem nú steðjar að heims-
friðnum sje sú, að Sameinuðu
þjóðirnar cg lýðræðisríkin hafi
gerst sek um að hefja árásar-
styrjöld í Kóreu.
Sameinuðu þjóðirnar, og þá
fyrst og fremst Bandaríkja-
menn, hafi ráðist á Norður-
Kóreu. Kínverskir kommún-
istar hafi síðan neyðst til þess
að grípa til vopna til þess að
verja landamæri Kína fyrir
árásarliði hinna vestrænu lýð-
ræðisþjóða.
Á þessum grundvelli byggði
marskálkurinn röksemdafærslu
sína. Og á honum byggja komm
únistar um allan heim áróður
sinn um þessar mundir.
Það er erfitt að gera sjer
I hugarlund, að nokkur and-
lega heilbrigður maður í lýð
frjálsu þjóðfjelagi, þar sem
almenningur hefur mögu-
leika til þess að vita, hvað er
að gerast í heiminum, geti
aðhyllst málstað, sem bygg-
ir jafn feimnislaust á lygi og
blekkingum og hinn rauði
marskálkur gerir í þessum
staðhæfingum sínum. Allur
hinn frjálsi heimur veit að
kommúnistar í Norður-
Kóreu hófu þá styrjöld, sem
nú hefur senn staðið í 8
mánuði í Kóreu. Þeir rjeðust
á lýðveldi Suður-Kóreu-
manna og ruddust suður fyr-
ir 38. breiddarbaug. Rússar
neituðu að miðla málum í
þossari deilu. Þeir snjerust
jafnframt gegn viðleitni Sam
einuðu þjóðanna til þess að
stöðva ofbeldisaðgerðirnar.
Þeir lýstu yfir stuðningi sín-
um og velþóknun á innrás
kínverskra kommúnista í
Kóreu og styrjöld þeirra við
Sameinuðu þjóðimar.
Svo kemur Stalin marskálk-
ur og byggir „friðarsókn" sína
á þeirri heimslygi, að lýðræð-
isþjóðirnar hafi rofið friðinn í
Asíu með árásarstyrjöld á Kín-
verja og Norður-Kóreumenn!!!
Er hægt að tréysta einu orði
af munni manna, sem byggja
málflutning sinn á slíkum
grundvelli? Sannarlega ekki.
★
Hinn lýðræðissinnaði heimur
vill allt til vinna til þess að
friður haldist og ógnum nýrr-
ar heimstyrjaldar verði bægt
úr vegi. En það er sannarlega
ekki undarlegt, þó að nokkurar
svartsýni verði vart um að það
takist, þegar að stórum hluta
mannkynsins er varnað að vita
annað um gang heimsmálanna
en það, sem fram kom í þessu
samtali Kremlbúans við blað
sitt. Mestur hluti rússnesku
þjóðarinnar veit sannilega ekki
annað, en að Sameinuðu þjóð-
irnar hafi átt upptökin að
Kóreusyrjöldinni. Svipuðu máli
gegnir um Kínverja og þær þjóð
ir aðrar, sem Isestar eru í svart
holi kommúnismans.
Það er í skjóli þessarar
vanþekkingar og blekkingar,
sem að kommúnistar eru að
grafa undan friði og öryggi
í heiminum. Ef að styrjöld
verður ekki umflúin og þjóð-
unum verður hrint út í hyl-
dýpi nýrrar ógæfu bera þau
myrkravöld á því alla á-
byrgð, sem byggja áróður
sinn á ranghverfingu sann-
Ieika og staðreynda.
Vernd
fiskimiðanna
AFKOMA íslensku þjóðarinnar
hefir um langan aldur að veru-
legu leyti byggst á sókn henn-
ar á fiskimiðin umhverfis land
hennar. Þessi mið hafa verið
ein hin auðugustu í heimi. Þau
hafa þess vegna skapað þjóð-
inni möguleika til þess að bæta
hag sinn og brjótast úr sárri
fátækt til nokkurra bjargálna.
Ef að þessi uppspretta þornar,
ef að miðin bregðast, þá er vá
fyrir dyrum.
Sú staðreynd verður því
miður ekki sniðgengin, að á
hinum íslensku fiskimiðum
hefir á undanfömum ára-
tugum verið framin skefja-
lí^us rányrkja. Á þau hefir
sótt geysilegur floti erlendra
veiðiskipa, búinn fullkomn-
ustu veiðitækjum hvers
tíma. Þessi floti hefir stund-
að rányrkju sína svo að segja
upp í landsteinum. Afleið-
ingar þess verða Ijósari með
hverju árinu, sem líður. —
Grunnmiðin umhverfis land
ið eru í stórkostlegri hættu.
Fiskigöngur á þau verða
tregari og tregari, Það er
ckki mælt af mikilli svart-
sýni, að allt bendi til þess,
að þau verði innan skamms
algerlega þomuð, ef ekki
verður rönd reist við þeirri
rányrkju, sem þar já sjer
stað.
Aukin vernd fiskimiða okk-
ar er í dag eitt stærsta hags-
munamál íslendinga. Um það
verðum við að sannfæra þær
þjóðir, sem um langan aldur
hafa ausið miklum auði úr
skauti hafsins umhverfis land-
ið. Rányrkjan upp við land-
steina verður að hætta, land-
helgin að víkka.
Lokatakmarkið verður að
vera friðun alls landgrunnsins.
ÁGÆT SKEMMTUN
ÞAÐ þykja jafnan tíðindi þegar góð skemmti-
un er í útvarpinu eins og var á sunnudags-
kvöldið, er útvarpað var frá „Bláu stjörn-
unni“. Hlustendur biðja um meira af slíku og
það er alveg furðulegt, að okkar ágætu gam-
anleikarar skuli ekki koma oftar fram í út-
varpi en raun ber vitni.
Útvarpið frá „Bláu stjörnunni“ hefði þó
getað verið enn betra, ef vandað hefði verið
betur til upptökunnar, sem var afleit, eink-
um fyrst í stað, því á köflum var erfitt að
skilja það, sem fram fór. Virðist stálþráðs-
mönnum útvarpsins oft vera mislagðar hend
ur, eins og t. d. jólaupptökurnar, sem fóru
fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum vegna
slæmrar upptöku.
•
ATRIÐI, SEM EIGA AÐ BÍHA
SJÓNVARPSINS
NOKKUR atriði voru það á skemmtiskrá
„Bláu stjörnunnar“, sem ekki var til neins
að útvarpa. — Atriði, sem verða að bíða sjón-
varpsins til þess að menn hafi gagn af þeim
og gaman. Er þar átt við danssýningar og
töfrabrögðin hans Baldurs Georgs.
Þeir, sem sjeð hafa þessi skemmtiatriði í
Sjálfstæðishúsinu vita, að þau eru góð, en
útvarpshlustendur úti á landi, sem heyra
ekki nema undirleikinn undir dansinum og
hlátrasköll áheyrenda þegar Baldur er að
galdra, fá ekki einu sinni „reykinn af rjett-
unum“.
•
NÓG AÐ FÁ ÚRVALIÐ
NÆST þegar revýu verður útvarpað er nóg
að taka úrvalið úr henni og það, sem hentar
fyrir útvarpið. Það er til lítils, að útvarpa
dansi og töfrabrögðum, eða svona álíka og
bjóða hlustendum upp á nokkur lög hjá
„málleysingjakórnum“, ef slíkur söngflokkur
væri til.
En þrátt fyrir að kastað var höndunum til
upptöku skemmtiatriða „Bláu stjörnunnar“
var þessi útvarpsdagsskrá með þeim betri,
sem boðið hefir verið upp á lengi.
BÖRN í LEIKHUSINU
ÞAÐ var hjér eitt kvöldið er Þjóðleikhúsið
sýndi „Snædrotninguna“, að þremur stálpuð-
um börnum var leyft að fara í lcikhúsið, án
fylgdar fullorðinna. Faðir barnanna ók þeim
í leikhúsið og ætlaði sjer að sækja þau í bif-
reið að leikslokum. Hann spurði því dyra-
vörðin hvenær leiknum myndi ljúka og fjekk
það svar, að það mvndi verða um klukkan
10.30. En leiknum lauk raunar fyr eða kl.
10.15. —
LEIÐINLEG ÓNÆRGÆTNI
BÖRNIN þrjú, sem fyr getur, voru ekki
þannig klædd, að ætlast væri til að þau væru
útivið, en út á gaddinn urðu þau ao fara samt
eins og aðrir og bíða þar til faðir þeirra kom
í bílnum á þeim tíma, sem honum hafði verið
sagt, að leikurinn \ræri úti.
Má geta næri'i, að honum varð ekki vel við
er hann hitti börn sín köld utandyra.
Líklegt er, að þannig hafi verið ástatt um.
fleiri börn þetta kvöld, þótt ekki fari af því
sögur. — Hjer urðu leiðinleg mistök hjá
dyravörðum leikhússins, að levfa ekki litlu
leikhúsgestunum, að vera í húsaskjóli, þar til
þeir voru sóttir.
EKKI EINS OG FULLORÐIÐ
FÓLK
STARFSFÓLK Þjóðleikhússins er einstaklega
hjálpsamt og alúðlegt í allri framkomu við
leikhúsgesti og þannig á það að vera. En dyra
verðirnir hafa ekki athugað, að þegar barna-
sýningar eru verður að sýna meiri nærgætni
við leikhúsgesti, en þegar um er að ræða
fullorðið fólk, sem getur sjeð um sig sjálft.
Hjer er sagt frá þessu litla atviki til þess,
að benda á mistök, sem stafa af hugsunarleysi
en eiga ekki að kqma fyrir oftar.
En þökk sje Þjóðleikhúsinu fyrir barna-
leikritið „Snædrottninguna“. Börnin munu
kunna að meta þessa viðleitni leikhússtjórn-
arinnar.
Rcssolimo vann
á afmælismóli
TaflfjeEagsins
AFMÆLISMÓT Taflfjelags
Reykjavíkur lauk s.l. sunnudag.
Franski skákmeistarinn Nichol-
as Rossolimo varð efstur með
IVz vinning. Hann tapaði engri
skák, en gerði þrjú jafntefli,
við Guðjón M. Sigurðsson,
Baldur Möller og Ásmund Ás-
geirsson.
Úrslit urðu annars þessi:
1. N. Rossolimo...... 714 v
2. F. Ólafsson....... 6 v
G. M. Sigurðsson .. 6 v
4. Baldur Möller .... 414 v
5. G. S. Guðmundsson . 4% v
Asm. Ásgeirsson . . 414 v
7. Árni Snævarr .... 314 v
Eggert Gilfer....... 3 v
9. Steingr. Guðmundss. 2 v
10. Sturla Pjetursson .. 2 v
Baldur Möller og Steingrím-
ur Guðmundsson eiga enn ólok-
ið skák sinni úr síðustu umferð,
þannig að vinningatala þeirra
getur breytst eftir úrslitum
hennar.
Miðskóladeild M. A.
FRUMVARP um miðskóla-
deild Menntaskólans á Akur-
eyri var til 2. umræðu í Neðri
deild Alþingis í gær.
Breytingartillaga sú, sem
menntamálanefnd flutti, var
samþykkt.
Frumvarpinu var vísað til 3.
umræðu með 13 atkv. gegn 9,
Komin er, fram breytingai'-
tillaga um miðskóladeild fái
einnig að starfa við Mennta-
skólann í Reykjavík, ef ástæða
þykir tjl. Mun sú tillaga koma
til atkvæða við 3. umræðu.
Landshöfn í Rifi
á Snæfellsnesi
SJÁVARÚTVEGSNEFND
Neðri deildar flytur á Alþingi
frumvarp um landshöfn á Rifi
á Snæfellsnesi.
í greinargerð segir að frumv.
sje flutt að beiðni ríkisstjórn-
arinnar og fylgir því svohlj.
greinargerð:
„Til sjávarútvegsnefndar hef-
ur verið vísað frv. til laga um
ráðstafanir vegna hafnarfram-
kvæmda í Rifi á Snæfellsnesi
á þskj. 670. Rjettara þykir, að
sá háttur verði á hafður, að
um þessa hafnargerð verði sett
nánari lagafyrirmæli nú þegar,
heldur en gert er ráð fyrir í
frv. á þskj. 670, og því er þetta
frv. flutt. Er þá ekki gert ráð
fyrir, að hitt frumvarpið verði
sjerstaklega afgreitt frá nefnd-
inni. Hjer eru þrædö að mestu
lög þau, er sett voru 1946, um
landshöfn í Keflavík og Njarð-
vík, með þeim breytingum
þó, sem við eiga vegna breyttra
staðhátta. Með þessari hafnar-
gerð í Rifi, er að því stefnt að
leysa meðal annars til frambúð-
ar þörf Ólafsvíkur og Hellis-
sands til hafnarbóta“.
Undirbúin verði
öryrkja'lofmm
FRUMVARP Gísla Jónssonar
um breytingu á erfðalögunum,
var afgreitt á Alþingi í gær með
rökstuddii dagskrá.
Var tillagan á þá leið að S
trausti þess að ríkisstjórnin
Ijeti fyrir næsta Alþingi undir-
búa löggjöf um öryrkjastofnun
'sem sjeð væri fyrir nægum
tekjumöguleikum, tæki deildin
, fyrir næsta mál á dagskrá.
Aðalfundur Fjelags
flugvallarsfarfsmanna
AÐALFUNDUR Fjelags flug-
vallastarfsmanna Ríkisins var
haldinn 15. febrúar s. 1. — Fór
fram stjórnarkosning og hlutu
eftirtaldir menn kosningu:
Arnór,Hjálinarsson, formað-
ur, Björp Jónsson, varaformað-
ur, Friðrik Diego, ritari, Mar-
grjet Jóhannsdóttir, brjefritari
og Gústav Sigvaldason, gjald-
kerL
Brjef:
Svar frá Gísla
Sigurbjörmsyni
NAFNLAUS „íþróttamaður“ er
ekki svara verður, en vegna
þeirra, -em lesið hafa fyrirspurn
hans til mín í Morgunblaðinu s.l.
sunnudag er rjett „ð taka fram:
1. Jeg sótti ekki um vínveit-
ingaleyfi þau, sem hann spyr um.
2. Jeg veit ekki hver sótti um
þessi leyfi, enda var aldrei neitt
talað um þau í nefndinni og því
engar ákvarðanir teknar þar um.
3. Nefndin skipti með sjer verk
um og sáu sumir nefndarmanna
um þessa dansleiki án afskipta
minna eða hinna nefndarmann-
anna.
Formaður Afengisvarnamefnd
ar Reykjavíkur er Þorsteinn J.
Sigurðsson, kaupmaður.
Gísli Sigurbjörnsson.
Aðstoð
NEW YORK — Vísinda- og
meiihtaráð S. Þ. hefur afráðið
að senda sjerfræðinga til Indo-
nesíu, til þess að aðstoða yfir-
voldin þar við endurbætur 4
fræðslukerfinu.