Morgunblaðið - 02.03.1951, Side 12
Veðurúflií í dag:
AHhvasa SV ®|; V jeljaveJfuí
Bæjarsfjérn
Frjettir af fcœjarstjórnar-
fundi cru á blaðsíðu 7,
51. tbl. — Föstudagur 2. mars 1951
werði ákvæði um hámarkshúsaieigu og Borgarsfjóri gerir grein
bæjarmanna
THiaga Sjálhfæðismanna í bæjarsfjórn
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær, gerði Jóhann Hafstein grein
fyrir niðurstöðu skráningar þeirrar, á uppsögnum á leiguíbúð-
um í Reykjavík, sem fram fór dagana 17.—26. febr. 1951. Heild-
artala uppsagna í húsum, sem eigandi býr í, hefði orðið 251. —
Tala heimilisfólks í þessari 251 íbúð hefði verið 925. 24 þessarra
fbúða væri eitt herbergi og eldhús, 24 eitt herbergi með aðgangi
að eldhúsi, 115 tvö herbergi og eldhús, 6 tvö herbergi með að-
gang að eldhúsi, 63 með þrjú herbergi og eldhús, 12 með fjögur
tterbergi og eldhús, 6 með fimm herbergi og eldhús og 1 með
sjö herbergi og eldhús.
Sagði af sjer
SR’ÍT VERÐI ÁKVÆÐI UM
HÁMARKS HÚSALEIGU OG
FíMtGANGSRJETT BÆJAR-
bTANNA
Jóhann Hafstein. flutti síð-
an fyrir hönd bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksihstillögusem
«amþykkt var með 8:7 atkv.
íyrri liðurinn, en síðari liður-
4m> með 15 samhljóða atkvæð-
ótm. Tillagan er á þessa leið:
,vAð fengnum þeim upplýs
ingum um uppsagnir ó leigu
Jfjetti í íbúðum í Reykjavík
14. maí n. k., sem fram komu
við almenna skráningu. sem
Húsaleigunefnd stofnaði til
fyrir tilhlutun borgarstjóra
þann 17. fehrúar og haldið
hefir áfram síðan. — lýsir
bæjarstjóm yfir, að hún
vnuni ekki óska eftir, að á-
kvæði húsaleigulaganna um
bann við uppsögn leigusamn
rnga í húsum, seni húseig-
andi býr í sjálfur, haldi á-
fram gildí.
Hins vegar heinir bæjar-
stjóm þeirri áskomn til Al-
þingis og ríkisstjórnar, að
sett verði ákvæði um há-
mark húsafeigu, og ákvæði,
er tryggi forgangsrjett bæj-
armanna að-lei.guhúsnæði í
foænum“.
VERÖA LEIGÐAR AFTUR
I umræðum, sem urðu um
(þessa tillögu lagði Jóhann Haf-
stein áherslu á það, að þær
íbúðir, sem leigjendum hefði
verið sagt upp, myndí að sjálf-
sögðu verða Ieigðar aftur. Enn-
fremur myndu nýjar íbúðir
koma til notkunar jafnóðum og
|Wíím - yrði Iokið. Hann kvað
ekki ástæðu til þess að ætla,
pð húseigendur myndu al-
*nennt auka húsnæði við sjálfa
pig um þessar mundir, heldur
þvert á móti.
Hann benti ennfremur á, að
fitli ástæða væri til að ætla að
**eeira húsnæði yrði til leigu-
efnota í bænum framvegis, þar
■tsem rnargir húseigendur hefðu
verið tregir að leigja íbúðir í
tfústmr sínum með þeim skil-
yrðum, sem iögin hefðu lagt
'þetm- á herðar, það er að segja
►ffim hindrunum; - sem verið
'beíS’i í vegi frjálsra viðskipta
í þessum efnum.
SAMVINNA HÚSEIGENDA
OG LEIGJENDA
Jóhann Hafst.ein kvað ekki
óeðlilegt að gamla húsaleigan
hækkaði eitthvað, enda væri
jpfítf' fullkomið sanngirnismál.
'Hins vegar værí rjett og nauð-
synlegt að halda áfram skýr-
um ákvæðum í Iögum um há-
mark húsaleigunnar. Mjög I
osskilegt væri, að bæjarstjórr.l
stuðlaði að sem bestu samstarfi
forystúmanna samtaka húseig-
enda og leigjenda, til þess að
framkvæmd húsnæðismálanna
gæti orðið borgurunum sem
hagkvæmust. Gegn þessu atriði,
í ræðu J’óhanns-Háfsteins sner-
ist Sigfús Sigurhjartarson sjer-
staklega hart. Var auðheyrt, að
hann hafði lítinn áhuga fyrir
vinsamlegu samstarfi þessara
aðila í þessum þýðingarmiklu
málum, sem snerta hag mikils
fjölda manna.
Hallgrímur Benediktsson og
frú Guðrún Guðlaugsdóttir
tóku einnig til máls og tóku
mjög í sama streng og Jóhann
Hafstein.
S. L, raiðvikudag baðsf franski
forsætisráðherrann, René Ple-
veh, lausnar fýrir sig og ráðu-
neyti sitt. Hafói stjórnin þá far-
ið með völd í 231 dag. Pleven
gat ekki orðið við beim tilmæl-
um Auriols, forseta, að revna
að mynda stjórn, þar sem kona
hans er hættulega veik. George
Bidault reynir nú stjórnar-
myndun.
Kennsla fellur niður í
Laugarnesskóla
í GÆRMORGUR varð bilun í
dælustöðinni við Þvottalaug-
arnar, sem sjer Laugarnesskól-
anum fyrir heitu vatni.
Mun vatn hafa komist inn í
stöðina í hlákunni og skemmt
þar vjelar.
Búist hafði verið við, að við-
gerðinni yrði lokið í gærkvöiai,
en svo varð ekki, og skýrði
skólastjóri Laugarnesskólans
blaðinu svo frá, að öll kennslaj
myndi falla niður fynr hádegí
í dag.
Inflúenza og kvef-
sóff í rjenun
SAMKVÆMT skýrslu frá skrif
stofu borgarlæknis í gær voru
mun færri inflúenzutilfelli í
vikunni frá 18.—24. febrúar en
vikuna þar áður, eða 469 á móti
656.
Þá hefir kvefsótt einnig
minnkað mjög. í síðastliðinni
viku voru tilfelli 89, en 230 vik
una þar áður. Mislingar hafa
aftur á móti aukist nokkuð. 183
tilfelli voru í vikunni sem leið,
en 137 vikuna þar áður.
Skýrsla skrifstofu borgar-
læknis um farsóttirnar er birt
í heild í Dagbókinni.
Yfir loo keppendur á
skíðamófi Reykjavíkur
Móíið hehi með keppní í svigi n, k. sunnudag
SKÍÐAMÓT Reykjavikur hefst að Kolviðarhóli um næstu helgi
með keppni í svigi í öllum flokkum. Þátttakendur eru skráðir
107 frá sex íþróttafjelögum, Ármanni, KR, ÍR, Skíðadeild
skáta, Val og Vikingi.
Mótið hefst á laugardag kl.‘
5 e. h. með keppni í drengja-
flokki, en heldur áfrarft á
sunnudag kl. 10 f. h. Keppni í
A-flokki karla hefst kl. 3*síð-
degis á sunnudag.
í A-flokki karla eru 20 kepp
endur skráðir. Verða þar með
nær allir bestu skíðamenn
Reykjavíkur. Keppendur í B-
flokki eru 21, í C-flokkí 39 og
drengjaflokki 12. — í A-flokki
kvenna eru fjórlr keppenaur,
4 í B-flokki kvenna og 6 í C-
flokki kvenna. I
Ferðir á skíðamótið verða ’fi'á
Varðarhúsinu. Fólid til hæ'gð-
arauka verður það tekið við
Vatnsþró, Undraland og Lahg-
holtsveg.
Vísað á bug
LUNDÚNUM, 1. mars — í dag
var tjekkneska sendiherranum
í Lundúnum fengin orðsend-
ing bresku stjórnarinnar, þar
sem vísað er á bug ásökun
Tjekkóslóvakíu þess efnis, að
Bretar leitist við að endurreisa
þýska herveldið og hernaðar-
andann. Vikið er að því í orð-
sendingunni, að enginn vafi sje
á, að tjekkneska þjóðin líti með
ugg á. að rússnesku yfirvöld-
in hafi óhemjuhérafla bæði
heima fyrir og annarsstaðar.
—Reuter-NTB,
fyrir kröfum vagnsfjóra SYR
Vildi að þeir frestuðu verkfallsaðgerðum þar fil sjei
yrði fyrir um samninga annarra mk lýðsfjelaga
Á BÆ.JARSTJÓRNARFUNDI í gær bar verkfall strætisvagna-
bílstjóra töluvert á góma. Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri,
gerði nokkra grein fyrir kröfum vagnstjóranna og gangi máls-
ins. Hann kvað því hvað eftir annað hafa verið haldið fram, a$
vagnstjórar strætisvagnanna hafi aðeins gert kröfu Uni 17%
kauphækkun til samræmis við kauphækkun lögregluþjóna og
slökkviliðsmanna á árunum 1949—1950.
Þetta væri hvorttveggja rangt. Katip lögreglu-
þjóna, slökkviliðsmanna og annarra opinberr astarfs
manna hefði verið hækkað á árinu 1949 til nokkurs
samræmis við launaliækkanir, sem aðrar vinnandí
stjettir höfðu þá þegar fengið og strætisvagnstjórar
hjer í Reykjavík ekki srður en aðrir. Samtímis því,
að bæjarstjórnin tók við rekstri strætisvagnanna U
ágúst 1944. fengn vagnstjórar verulegar kauphækk-
anir. —
31% KAUPHÆKKUN SÍÐAN *--------——'-----------------
Þeir hefðu fengið rýmlega
31% kauphækkun beinlínis og
óbeinlínis, auk ýmissa annarra
kjarabóta, sem væru mun meiri,
en aðrar stjettir hefðu fengið
á sama tímabili. Til samanburð-
ar mætti geta þess, að Dags-
brúnarmenn hefðu fengið grunn
kaup sitt hækkað á þessu tíma-
bili um 25,71% í almennri
verkamannavinnu, bifreiða-
stjórar í almennri vinnu 20%,
bifreiðarstjórar á 7 tonna bíl-
um 30,91% og lögregluþjónar
og slökkviliðsmenn hefðu á
þessu tímabili fengið 22,03%
grunnkaupshækkun.
KRÖFUR VAGNSTJÓR-
ANNA NÚ
Kröfur vagnstjóranna nú
voru um beina grunnkaups-
hækkun, er næmi 26,55%,
auk þess hækkun á greiðslu
fyrir yfirvinnu og helgidaga-
vinnu.
Auk þess væri farið íram á
styttingu vinnutímans um einn
dag í hverri viku og ýms önnur
aukin fríðindi, svo sem stytt-
ingu nokkurra vinnudaga,
lengingu sumarfría og meirí
vinnufatapeninga. Væri óhætt
að fullyrða, að kröfur vagn-
stjóranna næmu ekki undir
45% á vagnstjórakostnaði
strætisvagnanna. Þá hefðu vagn
stjórarnir krafist fullrar dýr-
tíðaruppbótar á öll laun og
aukagreiðslur mánaðarlega.
Bærinn hefði ekki talið unnt,
eins og nú væri málum hóttað,
að samþykkja kauphækkanir
og heldur ekki greiðslu skv.
mánaðarlegri vísitölu. Væri ó-
eðlilegt, að bærinn gengi á iind-
an um slíkar launabreytingar
til handa fámennri stjett, um
60 manns, þegar vitað væri. aá
almennar kauphækkanir hlytu,
eins og nú horfir í atvinnu-
málum þjóðarinnar, að leiða til
vaxandi dýrtíðar og atvinnu-
leýsis. Þrátt fyrir þetta mætti
vel vera, að vagnstjórununi
veitti eklii af kauphækkunum,
En það væri staðreynd, að þeir
hefðu á undanförnum áruná
fengið meiri kauphækkanir en
ýmsar aðrar stjettir. Borgar-*
stjóri kvað ekki sanngjarnt a®
ásaka bæjarstjórn fyrir skort á
áhuga fyrir lausn þessarar
deilu. Sjer væri vel ljóst þaS
óhagræði, sem almenningun
hefði áf henni.
ÓSKAÐ FRESTUN Á
VERKFALLSAÐGERÐUM
Þessvegna hefði hann3
daginn áður en til verkfallrt
kom boðist til þess að mæla)
með nokkuri hækkun &
greiðslu fyrir aukastörf og
helgidagavinnu. auka fata-
styrkinn, auk annarra iil-
slakana gegn því, að vagn-
stjóramir frestuðu verkfalls-
aðgerðum um sinn eða þaff
til sjeð yrði fyrir um sanrn-
inga annarra verklýðsf jelaga
í vor, en þeirri málaléitura
hefðu vagnstjórarnir hafnað,
Þeir hefðu cinnig hafnaíS
öðru málamiðlunartilboðl
frá bænum, sem síðar hefða
verið sett fram.
--------------------t
Rændu þorpið
KARACHI. 50 vopnaðir Biu-nicH
búar, seiri sagðir eru kornmún*
istar komu í ránsferð til þorps-
ins Lama í austurhluta Pakistaq
fyrir skömmu.
Stjórnmálanám-
skeiðið
STJÓRNMÁL ANÁMS KFIÖ
F.U.S. Fleimdallur, heldur
áfram í kvöld kl. 8.30 í Sjálf
stæðishúsinu, uppi. —» Þar
flytur Jón Pálmason forseti
Sameinaðs þings, erindi um
landbúnaðarmál.