Morgunblaðið - 07.03.1951, Page 8
8
M n k t; n \ n L 4 « » *>
Miðvikudagur 7. mars 1951
i’giwbtadife
Ut^ a.t Arvakur, Reykjavlk
1 rvjitj.r Sigfúa Jónssou
íitótjui 1 v altýr Stefánssoo (ábyigðarm.}
PVi etmr' tstjóii: ívar Guðmundsson.
«shok: 4rnl Óla. sími 304S
^.UEivsinear: Arnl GarBar Kristimwon
íitstjorn. augiyslngai og aígreiðsla-
t ustnrstræti 8 — Síml 1600
AaKrtrtaj'gja>o fcr. 16.00 á mánuSl. umanlanOs.
I lausssoh. • • if* dntaklS i króna meO LaMi
André Gide og heims-
blekking kommúnismans
Yikar skrifar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
ANDRÉ GIDE, hinn heims-
frægi franski rithöfundur og
hugsuður, sem nyiega er lát-
inn, var einu sinni kommún-
isti og ákafur aðdáandi hins
rússneska ráðstjórnarskipulags.
Hann áleit að með falli zar-
stjórnarinnar hefði rússnesk
alþýða varpað af sjer okinu og
öðlast það frelsi, sem hann
hafði dreymt um til handa öll-
um þjóðum.
★
Hinn öri og gáfaði Frakki
barðist fyrir þessari skoðun
sinni af þeim eldmóði, sem
þjóð hans er í brjóst lagin.
En svo fjekk André Gide
tækifæri til þess að fara til
Rússlands og dvelja þar um
skeið, kynnast sjálfum raun-
veruleika sovjetskipulagsins
undir stjórn Stalins.
Eftir það var André Gide
‘ekki lengur kommúnisti og
aðdáandi þess „frelsis“, sem
sovjetskipulagið hafði veitt
rússnesku fólld. Hann sá í
gegn um hið þjettriðna net
blekkinganna, sem þyrlað
hafði verið upp um valda-
töku kommúnista og það
skipulag, sem þeir höfðu
komið á í Rússlandi.
★
Á rústum zarveldisins hafði
nýtt þrælahald verið hafið. —
Kommúnistar höfðu barist gega
* kúgun keisarastjórnarinnar. —
Þeir höfðu lofað fólkinu mann-
rjettindum, prentfrelsi, mál-
frelsi, skoðanafrelsi og raunar
hverskonar frelsi, sem zar-
stjórnin meinaði þvi.
En kommúnistar voru ekki
fyrr komnir til valda en að þeir
sviku þessi loforð. Og þeir
gtrðu meira. Þeir hertu á frels-
isskerðingunum og reyrðu kúg-
unarhelsið enn fastar að fólk-
inu.
★
Engan þarf að undra þó að
André Gide, sem unni andlegu
frelsi framar öllu öðru, yrði
fyrir sárum vonbrigðum er
hann kynntist þessum bitra
veruleika af eigin sjón og raun.
Heima í Frakklandi komst hann
m. a. þannig að orði:
,,Það er ekkert, sem kennir
okkur eins vel að meta það
ómetanlega andlega frelsi,
sem við njótum í Frakklandi
og misnotum stundum og
dvöl í Soviet-Rússlandi“.
Gide dró enga dul á hina
breyttu afstöðu sína til hins
kommúnistiska skipulags
Hann lýsti vonbrigðum sín-
um opin'kátt og af fullri
hreinskilni. Hann varaði við
falsspámönnunum, sem
höfðu svikið málstað frelsis-
ins.
¥
Margir af ágætustu rithöf-
undum heimsins, sem eitt sinn
trúðu því, að með rússheSku
byltingunni hefði merki frelsis -
ins verið hafið, hafa orðið fyr-
ir sömu vonbrigðum. Þeir hafa
sjeð að rússneska þjóðín hefur
verið hræðilega blekkt. Þeim
dylst heldur ekki að þessari
blekkingarstarfsemi er haldið
uppi um víða veröld, allstaðar
þar, sem fimmtuherdeildir
kommúnista hafa náð að festa
nokkrar rætur.
En það eru fáir, sem haf 1 i
tækifæri til þess að kynnast
ástandinu í Rússlandi af eigin
sjón og raun. Það er lokað
land. Um landamæri þess lyk-
ur rammgert járntjald herbún-
aðar og vígvjela. Jafnvel á öld-
um Ijósvakans hefur hin komm
únistiska harðstjórn landsins
sett þjettriðna girðingu með
skipulögðum útvarpstruflunurr
Rússneska þjóðin getur hvorki;
sjeð nje heyrt það, sem er að
gerast í kring um hana í heim-
inum. Stjórnin í Kreml ræður
því, hvað ber fyrir augu henn-
ar og eyru. Þannig hefur myrkri
vanþekkíngarinnar verið sveip
að um stærstu þjóð Evrópu.
Orsakir styrjalda hafa á liðn"
um öldum verið ýmsar. En ein
meginástæða þeirra hefur þó
verið vanþekking þjóðanna á
högum hver annara. Almenning
ur allra landa er friðsamur og
hatar styrjaldir og óttast þær
ógnir, sem sigla í kjöifar þeirra.
En það er hægt að blekkja fólk-
ið til fylgis við ofbeldi. Rúss-
neska þjóðin veit t. d. ekki ann
að en að Sameinuðu þjóðirnar
og þá fyrst og fremst Bandarík
in hafi hafið Kóreustyrjöldina
með árás á Norður-Kóreu.
Henni er líka sagt að Bretland
og Bandaríkin, jafnvel Svíþjóð.
Noregur og Danmörk bíði að-
eins þess að færi gefist til þess
að ráðast á Sovjet-Rússland.
Þessi heimslygi er henni boðuð
af öllum þeim ofsa, sem komm
únistaáróðurinn hefur tileinkað
sjer.
Það er í skjóli þessarar
hræðilegu blekkingar, sem
heimskommúnisminn undir-
býr þann blóðuga leik, þá
„hryllilegu árekstra“, sem
Lenin sagði að væru óumflýj
anlegir milli Rússlands og
hins vestræna heims Þann
spádóm hefur Stalin einnig
endurtekið.
ÁRRISULIR Á ÞINGI
DULNEFNIÐ „Árrisull“ á vafalaust mikla
framtíð fyrir sjer. Það skaut upp höfðinu í
þessum dálkum á sunnudag og við vorurh ekki
fyrr búnir að opna skrifstofuna daginn eftir
en Einn árrisull og Tvær árrisular sendu Dag-
lega lífinu línu.
Tvær árrisular skrifuðu í tilefni jasshug-
leiðinganna, sem Árrisull fjek birtar eftir sig
á sunnudag, en Einn árrisull hreifði nýju máli
— sem raunar er ekki nýrra á nálinni en það,
að búast má við því árlega með hækkandi
sólu.
•
ALLS EKKI HRJÓTANDI
TVÆR árrisular hafa þá orðið. Brjef þeirra
er eilítið stytt, alveg óhjákvæmilega:
Okkur finnst við mega til með að skrifa
þjer nokkrar línur (segja þær) út af brjefi,
sem þú birtir í Morgunblaðinu s.l. sunnud. um
morgunútvarpið. Við hlustum oftast á morg-
unútvarpið, og erum því hvórki sitjandi á
skólabekk, nje hrjótandi í rúminu, eins og
Árrisull ímyndar sjer að allir jassunnendur
sjeu. En aðalatriðið var nú það, að í þau
skipti, sem við höfum hlustað á morgunút-
varpið, hefur aldrei verið leikin jassmúsik,
og sú „hryllilega jassmúsik“, sem Árrisull er
að amast við, er alls ekki jassmúsik, heldur
algeng dægurlög. En því miður virðist sá mis-
skilningur eiga sjer stað hjá fjölda manns, að
jassmúsik og dægurlög sjeu eitt og hið sama.
•
EINTÓMUR MISSKILNINGUR
ÞESSI maður spyr einnig, hvort ekki sje
nægilegt að spila jassinn á kvöldin. En það
er líka misskilningur hjá honum, að spilaður
sje jass á kvöldin, því að oftast nær eru það
danslög og áðurnefnd dægurlög, sem spiluð
eru. Það er sannast að segja aðeins í jassþætt-
inum, sem eingöngu er spilaður jass í útvarp-
inu, en sá þáttur er aðeins hálftími á hálfs
mánaðar fresti. Væri óskandi, að forráða-
menn útvarpsins vildu taka tillit til þeirra
fjölda jassunnenda, sem hjer eru, bg hafa jass
þátíinn einu sinni í viku, enda mundi það
áreiðanlega vel þegið....
•
KARLAR. KONUR, BÖRN
ÞÁ KEMUR röðin að Einum árrisulum. Hans
brjef er á þessa leið, að undanteknum inn-
gangsorðunum:
. ...Jeg ætla því að biðja þig fyrir hönd
allra þeirra karla, kvenna og barna, sem allt
skammdegið verða að rifa sig á fætur um kl.
7 á morgnana, að fá þá vísu menn, sem stjórna
hringlinu með klukkuna, til að sjá hana nú
í friði þetta árið.
Þeir, sem fara á fætur kl. 7, en það er stói
hluti vinnandi fólks, eru allt skammdegið að
hlakka til bjartra morgna. En með tilfærsl-
unni á klukkunni er þessu fólki lengt skamm-
degið og veturinn svo um munar.
Lengra er brjefið ekki.
•
GIMSTEINAR!
HJER ERU stórfrjettir handa kvenfólkinu:
Fregnir frá Bandaríkjunum herfna, að New
York Times Magazine hafi í síðastliðnum
mánuði birt þrjár auglýsingar, þar sem boðn-
ir eru steinar „gimsteinum fegurri“ og fyrir
aðeins 10 til 16 dollara hvern karat (fyrsta
flokks hvítir gimsteinar kosta nú um 1100
dollara pr. karat).
•
ALLT NEMA HARKAN
GERFIGIMSTEINARNIR eru búnir til úr
titania (titanium dioxide) og þykja fyrir-
myndinni fegurrr. Geislabrot þeirra er mun
meira en ósvikinna gimsteina, og þeir hafa
alla eiginleika dýru, sjaldgæfu steinanna í
ríkum mæli, nema hörkuna.
Vikuritið Time spáir því, að gimsteinasalar
verði að fara að vara viðskiptavini sína við
„ódýrum eftirlíkingum“, sem aðeins sje hægt
að þekkja á þvi, hve þeir sieu „ekta“ gim-
steinum fremri um flestar sakir.
Mokkrar samþykktir
Búnaðarþings í gær
BÚNAÐARÞING hefur gert ályktun um eignamat á búfjenaði,
um nauðsyn þess að aðgerðir um eyðingu refa og minka verði
samræmdar um land allt og þá hefur Búnaðarþing sent Alþingi
áskorun, að samþykkja frumvarpið um breyting á lögum um
landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum landsins.
sem eru í eyði eða ekki byggj-
ast að áliti Nýbýlastjórnar og
hlutaðeigandi hreppsnefndar.
Enda vinni Nýbýlastjórn ötul-
lega að því að jarðir þessar
komist sem fyrst í trygga á-
búð.
Baráttan gegn kommún-
ismanum er þessvegna um
leið barátta gegn vanþekk-
ingunni og blekkingunum. |
André Gide unni frelsinu
og taldi það hyrningarstein
mannlegs þroska. Þessvegna
snjerist hann gegn frelsis-
ráni kommúnismanns. Þann
ig hlýtur öllum þeim að fara
scm taka þekkinguna fram
yfir blekkingar hinnar miklu
heimslygi, sem nú ógnar ör^ i
yggi heimsins og andlegum
þroska þjóðanna.
EIGNAMAT Á
BÚFJENAÐI
Búnaðarþing ítrekar ályktun
sína frá 1949 um að eignamat
á búfjenaði sje metið ósann-
gjarnlega hátt til skatts.
Leggur Búnaðarþingið á-
herslu á það, að Ríkisskatta-
nefndin framkvæmi matið
hvert sinn, sem næst tillögum
yfirskattanefnda og að fylg:
se ákvæðum laga um að meðal-
tal skattamats undanfarinna 5
ára sje haft til hliðsjónar við
matið.
EYÐING REFA
OG MINKA
Búnað^rþing ályktar að
leggja til við stjórn Búnaðar-
fjelags íslands, að hún feli
starfsmanni sínum í loðdýra-
rækt, að annast um að komið
sje á meiri samræmingu í að-
gerðum um eyðingu refa og
minka milli hjeraða. í því
skyni skrifi hann öllum sýslu-
nefndum og óski eftir tillögum
þeirra í málinu.
í brjefum til sýlunefnda sje,
meðal annars, spurt um álit
þeirra um hvort:
Ráðnir skulu sjerstakir kunn
áttumenn til að stjórna eða ann
ast um útrýmingu á refum og
minkum yfir stærra svæði.
Fluttir skulu inn sjerstakir
dýrhundar.
Gerð sje tilraun um að eyða
minkum með gasi.
Gerðar sjeu ráðstafanir til að
útvega heppilegar refabyss •
ur.
Sýslufjelögin óski eftir þvi
að senda á sinn kostnað einn
fulltrúa hvert á sameiginlegan
landsfund í Reykjavík á þessu
ári til að ræða þessi mál og taka
sameiginlegar ákvarðanir.
Samræmdar tillögur í þessu
efni leggi síðan stjórn Búnað-
arfjelags íslands fyrir næsta
Búnaðarþing.
ASKORUN TIL
ALÞINGIS
Um frumvarpið til laga um
breyting á lögum um landnám,
nýbyggðir og endurbyggingar í
svfcitum, gerði Búnaðarþing
þessa ályktun.
Búnaðarþing er samþykkt
stefnu þeirri, er kemur fram
í frumvarpinu og beinir þeirri
eiridregnu áskorun til Alþingis
að það heimili Nýbýlastjórn
með lögum að verja fje til þess
að koma I veg fyrir að jarðir
fari í eyði með því:
Að aðstoða fátæka bændur
við að koma á nauðsynlegum
umbótum á ábúðarjöi'ðum
þeirra í þeim tilgangi að hindra
að byggilegar jarðir fari í
eyði.
Að aðstoða hreppsnefndir á
því verksviði, er ábúðarlögin
fela þeim. við að tryggja að
jarðir haldist í ábúð.
Að kaupa byggilegar jarðif,
Mikil brifning
á tónleikum
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN
hSjelt í gærkvöldi hljómleika
með aðstoð Tónlistarfjelagskórs
ins. Húsfyllir var og var hljóm-
leikunum tekið með miklum
fögnuði. áheyrenda.
Dr. Urbantitsch stjórnaði
hljómsveitinni. Leikin voru
| verk eftir Schubert og Rossini.
— Einsöngvarar voru Þuríður
Pálsdóttir, Guðmunda Elíasdótt
ir. Einar Sturluson og Kristinn
Hallsson.
Vort daglega brauð
komin í 3. útgálu
LJÓÐABÓK Vilhjálms frá Ská-
holti, Vort daglega brauð, er nú
komin út í þriðju útgáfu. Er hún
í nokkuð breyttu formi frá fyrri
útgáfum. Bókin er myndskreytt
Sigfús Halldórsson hefur teikn
að í hana allmargar pennamynd
ir. Þriðja útgáfa er aukin. í
henni eru 10 ný ljóð, sem Vil-
hjálmur hefur orkt síðan síðasta
ljóðabók hans Sól og menn kom
út árið 1949.
Fyrsta útgáfan kom út 1935,
önnur þegar á næsta ár á eftir.
Bókin er prentuð í Hólaprenti
og frágangur hennar .góður.
Kápumynd er eftir Sigfús.
BONN. — í janúar voru fram-
leiddar 10.140.000 smál. kola í
V-Þýskalandi eða meira en í
nokkrum öðrum mánuði síðan
fyrir stríð.