Morgunblaðið - 24.04.1951, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.1951, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 24. apríl 1951. ijöídæmðskipiinii! snesfa vandamálil Eðlilegt að ný stjórnar- skrd verði sett d þjóðfundi S SAMBAXDI viö endurskoöun s.ljórnarskrárinnar, er kjördaema- ívkipunin mesta vandamálið. I því <ír hæ?t að benda á ýmsar leiðir. X'.n það þarf að finna einhverja, r tm saemilegur samhugur getur tekist um. Þannig iioTnst Bjarr.'i Benedikts «ron utanríkisráðherra m. a. að «nrði í framsöguræðu, sem hann íiutti um stjórnarskrármálið á inndi Stúdentafjelags Reykjavík- %er i gærkvöldi. Ráðherrann lýsti |)ví einnig sem sinni persónulegu •Svkoðun, að vel færi á því, að ný í tjórnarskrá yrði sett á þjóð- iundi. í því sambanrti minntist t'ann þess, að 100 ár eru í sumar 1 \tin frá þjóðfundinum 1851. tiREYTINGAR Á ÍSTJÓRXARSKRÁ ÍSLAXDS Bjarni Benediktsson ræddi í viþphafi máls síns um fyrstu stjórn «íiskrá íslendinga frá árinu 1874. A henni hefðu ýmsar breytingar -verið gerðar qg nýjar stjórnar- r.krár settar árið 1820 og 1944. IÞiátt iyrir þessar breytingar, í iiætti segja, uð ýmsir megin þsett 3” hinnar upphafiegu stjórnar- f.krár stæðu óhaggaðir enn þann <iag 1 dag. Reynslan hefði einnig í;ýnt það meðal margra þjóða, að tíðar breytingar stjórnskipulaga A'seru ekki heppilegar. Mestu má!i( íkipti, að þjóðirnar sniðu sjer ,'rtakk eftir vexti, og bygðu stjórn .-.kipulög sín á þörf sinni og nauð- ayn. Hann kvað suma hafa talið };að fráleitt, að ekki skyldi sett <dveg ný „lýðveldisstjórnarskrá" <:r lýðveldi var stofnað í landinu. )in að sínu á’liti, hefði verið skyn- j.amlégt að breyta þá aðeins þvi, ,<.em breyta þurfti og blanda ekki óskyldum atriðum, sem vakio t efðu deilur, inn í sjálía lýðveld- isátoínunina. ‘ý'MSAR VEILUR >I()MXAE í LJÓS Ráðherrann minntist því næst að ýmsar veilur væru komnar j tjós í stjórnarskrá okkar. Starf- ;-3i nú sjerstök nefnd að endur- .•■koðun hennar. Aðalvandamálin j sambandi við þá endurskoðun, væru tvö: Skipun æðsta hand- J afa framkvæmdavaldsins og ..kipun Alþingis og sambandið tnilli þessara tveggja aðila. Ef j.amkomulag. tækist um þessi at- » iði, væri auðvelt að komast að auðurstöðu í málinu. Ráðherrann f aldi hæpið, að Islendingar vildu j.ria einum rnanni eins mikil vö!d ng til dæmis Bandaríkjaforseti Lefu.r. Ef forseti yrði áfram þjóð- l-.jörinn, teldi hann heppilegt, að l’.ann bjeldi sig fyrir utan dag- legar deilur, en gripi inn í ef sjer- r;tök þörf væri á. ílf ræðu Ejarna Bfincdikfssonar á sfúdenfafyndi ekki að dyljast, að kjördæmaskip1®’' unin væri mesta vandamálið í í sambandi við endurskoðun stjórn | arskrárinnar. Þar væri fyrsta spurningin, hvort allir kjósendur ættu að hafa jöfn áhrif án tillits til búsetu. Um það greindi menn verulega á. Skoðanir væru einn- ig skiptar um það, hvort æski- legt væri,' að meirihluti geti myndast á alþingi, eða að sem flestar skoðanir ættu að eiga þar fulltrúa. — Bjarni Benediktsson ræddi því næst um kosningar í einmenningskjördæmum og hlut- fallskosningar. — Persónulega kvaðst hann hneigjast -að kosn- ingum í einmenningskjördæm- um, af því þó tilskildu, að kjós- endatala væri nokkurn veginn jöfn í hverju kjördæmi. Hugsan- legt væri einnig, að hafa nokkur stór kjördærrii með hlutfallskosn ingum. Fylkja- eða fjórðungs- skipun, taldi hann ekki henta Is- lendingum. Hann kvað það skoð- un sína, að rjett væri, að alþingi skiptist áfram í deildir. Eðlilegt væri einnig, að takmarkaður yrði rjettur þess til þess að hækka fjárlagafrumvarp á svip- aðan hátt og tíðkast í Bretlandi. FYLGJANDI ÞJÓÐFUNDI Utanríkisráðherra kvað mjög vel við eigandi að láta setningu nýrrar stjórnarskrár fara fram á nýjum þjóðfundi, sem boðað yrði til á næstu árum. Við kosníngu til hans yrði fyrst og fremst kosið um stjórnarskrármálið. En þá þyrfti einnig, að ná samkomulagi um fyrirkomulag kosninga til slíks þjóðfundar, Bjarni Benediktsson, utanríkis ráðherra, lauk máli sínu með því að segja, að við endurskoðun stjórnarskrárinnar, yrðum við að vera minr.ugir þess, sem vel hefðí reynst, byggja á því og bæta úr ágöllunum. t Miklar umræður urðu á fund- inum, sem fór hið besta fram. „Anna Pjeíarsdollir" á kyikmynd í Nýja Bíó FYRIR NOKKRUM árum gerði Palladium-kvikmyndafjeiagið danska, kvikmynd eftir leikrit- inu „Anna Pjetursdóttir". Leik- stjóri var Carl Th. Dreyer, sem er álitinn vera einn af fremstu kvikmyndaleikstjóvum Dana. Var þetta fyrsta kvikmynd hans eflir 11 ára fjarveru frá Danmörku. Kvikmyndin vakti þegar at- hvgli í Danmörku og síðar víða um lönd. Hún fjekk hina bestu dóma í Lundúnablöðunum og sögðu sumir gagíuýnendur þar, að þeir hefðu aldrei sjeð iafnvel gerða og áhrifaríka kvikmynd. I Frakklandi var mvndinni svo vrel tekið, að Frakkar ljetu setja inn í hana samtöl á frönsku og í Bandarikjunum var myndinni hælt mjög meðal annars i „Timc Magazine“. Nú er þessi kvikmynd komin hingrð og er sýnd í Nýja Bíó. Aðalhlutverkin leika Thorkild Roose (Sira Absalon) og Lisbeth Movin leikur Önnu. Búast má við góðri aðsókn að kvikmynd- inni hjer, þvi Leikfjelagið hefir einmitt sýnt leikritið „Anna Pjet ursdóttir" að undanförnum við góða aðsókn og undirtekir. Á fyrstu árum kvikmyndagerðar- innar þóttu Danir einna fremstir allra þjóða í kvikmyndagerð. Þykja þeir nú hafa vaxið mjög á ný í kvikmyndagerð með „Önnu Pjetursdóttur". Innbrolsþjófur í m múnisfa í Brazllíu RIO DE JANEÍRO, 18. apríl. — Blöðin í Rio segja frá bví í dag, að margir kommúnistar hafi ver ið teknir höndum undanfarna daga. Hafa kommúnistar látið ófriðlega vegna samþykkta, er gerðar voru á ráðstefnu Ameríku lýðveldanna fyrir skömmu. Reuter—NTB. I FYRRINOTT handtóku lög- reglumenn drukkinn náunga, sem brotist hafði í ölæði inn í versl- unina Edinborg, sem . eins og kunnugt er, er ein af stærstu verslunum hjer í Miðbænum. — Lögreglumaður er var á varð- göngu P Hafnarstræti, heyrði er maðurinn braut rúðuna i aðal- hurð verslunarinnar. Maðurinn Jreyndi að fela sig, en tókst það ekki. | Eins var í fyrrinótt brotist inn í efnalaugina Lindin í húsi Sjó- klæðagerðarinnar og einnig í viruskemmu Eimskipafjelagsins í Haga. Ekki er vitað hvort ein- hverju hefur verið stolið á þess- um stöðum. TLYNDUN RÍKISSTJÓRXAR J Sjerstök ástæða væri ti!, að | búa tryggilegar um myndun ríkisstjórnar. en nú væri gert. Það væri að vísu á valdi þjóð- arinnar að skapa sjer sterka meirihlutastjórn. Og ekki væri liægt að kenna stjórnarskránni um óáran og sundrung í sjáltu mannfóifeihu. Hægt væri að hugsa sjer ýmsar nýjar leiðir tii mvndunar ríkréstjórnar, t. d. þá, að Alþingi kysi ríkis- stjórn til ákveðins tíma. Ef því hefði ekki tekist það inn- an ákveðins frests, skyidi þing rofið og kosningar fara fram. ' Með þessu væri tryggt nauð- ..ynlegt samband löggjafarvalds- Tins og framkvæmdavaidsins. — JTugsanlegt væri einnig, að stjórn „■rforSeti væri um leið iörseti lýð veldisins, eins og tíðkast í Sviss. ANNMARKAR A KOSNINGA- ) YRIRKOM ULAGIN U Ráðherrann kvað mikla ann- •rtarka vera á núverandi kosn- j igafyrirkomulagi. En þess væri Þetta er nýjasta sk'ip ísienska fiotans, Jökulfell. Það skip á Samband ísl. samvinnufjelaga ög er það frystiskip. Þetta er þriðja frysti- skipið, sem til landsins er keypt eftir síðustu lieimstyrjöld. Hein-.a- höfa Jökulíells er á Reyðurfirði. Er íslenskyr lögreiinliundur, en skilur úk\ nema dönsky MEÐAL farþega á Gullfaxa s.l. sunnudagskvöld frá Kaupmanna höfn var lögregluhundurinn „Sparter", en hann verður fyrsti æfði lögregluhundurinn, sem Reykjavíkur lögreglan fær. „Sparter“ er af Schafer-kyni, tæplega fjögra ára. Danska lög- reglan útvegaði hundinn og f jekk hann eingöngu vegna þess, að eigandi hans flutti í nýja íbúð þar sem hann gat ekki haft. hund með sjer og varð því að látá hundinn frá sjer. Sparter ótti heima í Árósum áður en hann kom hingað. ER BYRJAÐUR AÐ LÆRA ÍSLENSKU Geirjón Helgason lögroglu- þjónn sjer um „Sparter“, en er hann var í Danmörku í-fyrra tii að kynna sjer lögreglumál kynti hann sjer sjerstaklega meðferð og æfingu lögregluhunda og lagði drög að því, að æíður hundur fengist hingað til lands. Síðan hefir Geirjón í hyggju að ala upp fleiri lögregluhunda. Só einn galli er á þessum fyrsta islenska lögregluhundi að hann skilur ekki nema dönsku. Verður Geirjón að tala við hann á þeirri tungu, en hann er þegar byrjaður að kenna seppa íslensku og telur að áður en langt líði muni hann geta hlýtt fyrirskipunum, sem honum eru gefnar á íslensku. ÚTSKRIFAÐUR MED „LÁf)I“ „Sparter" lögregluhundur er vútur mjög og hlýðinn. Hann er útskrifaður úr lögregluhunda- skóla með hæstu einkum í hinum fjölda mörgu fögum, sem lög- regluhundar verða að læra. Próf- skírteini hans fylgir að sjáifsögðu með honum svo og ættartaia, því Geirjón Helgason með „Sparter“ „Sparter" er að sjálfsögðu vel ættaður langt fram í ættir. ómissandÍ v:ð LÖGREGLUSTÖRF Geirjón er sannfærður um, að áður en langt líði verði „Sparter“ talinn ómissandi við lögreglu- störf hjer í bænum. Hann er varð hundur góður og ver menn fyrir árásum. Hann getur og elt uppi menn, sem reyna að strjúka og hann leitar að týndum mönnuni, eða fihnur fólk, sem kann að hafa lent í viilum. Ýmislegt fleira kann Sparter, sem koma kann að góðu haldi fyr ir löggæsluna hjer*í bænum. Rifsljóri ÞjóSviljans dsmdur V FY'RIR nokknim dögum gekk í aukarjetti Reykjavikur, dómur í máli því er Sjómannafjel. Iíeykja- víkur höfðaði gegn ritstjóra Þ.jóð- viljans, Magnúsi Kjartanssyni, fyr ir ærumeiðandi ummali um stjórn f.jelagsins. Var Magnús dæmdur í 800 kr. sekt og ummæli hans dæmd dauð og ómerk. Þjóðvilja ritstjór- anum var og gcrt að greiða máls- kostnað. Greinar þær er mál þetta er risið út af birtust í Þjóðviijanum, en Magnús Kjartansson er ábyrgð armaður blaðsins, á síðastl. hausti i sambandi við stjórnarkjör í Sjó- mannaf,jelaginu. Greinar þessar voru mjög meiSandi fyrir stjórn fjelagins og ekki hafa þær á neinn hátt verið rjettlættar, Magnúsi Kjartanssyni var gert að birta niðurstöður dómsins 1 blaðinu, að viðlögðum dagsektum, 30 kr. á dag. Dómnum ber að full- næg.ja innan 15 daga frá birtingu að viðlagðri aðför að iögum. Steinkerin fil hafnar- gerSarinnar í Hafn- arfirði keypi Á AUKAFUNDI Bæjarst.iórnar Hafharfiaiðar í gær, voru endan- lega samþykkt kaup á steinker- um í hafnarbygginguna. Kostuðu þau 9 þús. steriingspund hvort ker úti í Hollandi. Þá voru samþykktir samningar, scm hafnarnefndarmennirnir Ing- ólfur Flygenring og Emil Jónsson gerðu við hollenskt fii'ma um flutning á kerunum. Firmað hefir skuidbundið sig til þess að skila þeim til Hafnaífjaröar á tímabil- inu 1. .iúní til 15. júlí n. k. i Þá var á þessum sama fundi samþykkt heimild til handa bæj- arstjóra að taka lán til þessara framkvæmda. -F rj ettaritari, Erfili um mjélkur- fiutninga í SsiSur- Þingeyjarsýslu ÁRNESI, mánudag. — Mjóikur- flutningar í Suður-Þingeyjar- sýslu hafa gengið mjög illa um langan tima. Engin mjólk hefur verið flutt á bílum til Húsavíkur s.l. daga. Allmargir bændur hafa hinsvegar flutt mjólkina á hesta- sleðum undanfarið. Síðastliðinn laugardag lögðu mjólkurbílar af stað úr Aðaldal og Reykjadal. Voru þeir 30 klst. til Húsavíkur, og urðu jarðýtur að aðstoða þá á leiðinni. Ekki þykir fært að láta hreinsa veginn sökum kostnaðar. — Hafa þessir etfiðleikar valdið miklum óþæg- indum hjá bændum vegna flutn- ings á fóðri, sem þeir hafa ekiíi getað náð til sín síðan fyrir ára- mót. — Frjettaritari. Aðaifundur Búnaðar fjelags áðsidæia ÁRNESI, mánudag. — Aðalfund- ur Búnaðarfjelags Aðaldæla var haldinn í gær (sunnudag). —* Fundurinn var fjölsóttur og var mikill áhugi ríkjandi um fram- faramál landbúnaðarins. Ræktunarframkvæmdir fje- lagsmanna voru með mesta móti á s.l. ári. Starfræktar voru tvær beltidráttarvjeiar og ein minní dráttarvjel. Afkoma búnaðarfjelagsins var góð á s 1. ári. Og námu skuldlaus- ar eignir fjeiagsins um 185,000 kr. Eignir jukust um 50,000 kr. á árinu. Stjórnin var öll endurkosin. en hana skipa: Þormóður Guðmunds son, Kristján Jónatanss ;n og Hjalti Guðmundsson. — Frjettarit-sri,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.