Morgunblaðið - 13.07.1951, Qupperneq 1
38. árgangur
156. tbl. — Föstudagur 13. júlí 1951
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sólskin og fómafar
Nokkrar telpur úr Vinnuskóla Reykjavíkurbæjar slökkva þorstann
í sólskininu með þvi að í'á sjer tómat. — Um 35 telnur 14—16 ára
cru í sumar í Vinnuskólanum og vinna að ýmiskonar garðyrkju-
störfum, við að prýða og fegra umhverfi bæjarins. Vinnuskóla-
fyrirkomulagið virðist ætla að gefa góða raun, en það var fyrst í
vor sem fasíri skipan var komið á um vinnu unglinga á vegum
bæjarins.
mönnum að fan fiS Kaesong!
r
A meðan verSur hlje á umræðunutn
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
TOKYO, 12. júlí: — Snurða hefur nú hlaupið á þráðinn í vopna-
hlj esumleitunum í Kóreu. Verður hlje á fundum þar til kommún-
is*tar hafa fallist á að leyfa frjettamönnum S. Þ. að fara til Kaesong
og vera viðstadda vopnahljesumleitanirnar. Virðist, sem kommún-
istar þekki ekki frjálsa frjettastarfsemi, heldur vildu þeir banna
förina frjettamönnum þeim, sem leyft hafði verið að fara með
séndinefnd Sameinuðu þjóðanna.
KOMMUNISTAR ÞEKKJA <
EKKI FRJÁLSA
F'RJETTAÖFLUN
Þegar sendinefnd S.Þ. lagði í
dág af stað í nýjar vopnahljesum-
ræður í borginni Ka«song, fengu
um 20 frjettamenn og ljósmynd-
afar að fylgjast með henni til
þess að skýra heiminum frá því
sem fyrir augu ber á vopnahljes
fúndunum. Skammt frá Kaesong
komu vopnaðir kínverskir verðir |
móti bifreiðum S. Þ. og bönnuðu
frjettamönnum S. Þ. að halda
lengra.
HLJE Á VIÐRÆÐUM
Joy aðmíráll aðalfulltrúi sendi
nefndar S. Þ. ákvað þegar, að ef
frjettamennirnir fengju ekki að
halda áfram ferðinni, þá myndi
nefndin ekki heldur fara á vopna
hljesfundinn og situr við það.
Hefur yfirstjórn S.Þ. í Kóreu gert
kommúnistum orð um að ekki
verði af frekari vopnahijesum-
leitunum fyrr en rjettur frjetta-
mannanna verði virtur af Kín-
verjum. Segir þar og að slík í-
hlutun Kínverja um hverjir fylgi
vopnahijesnefndinni sje óþolandi.
Vilja ekki iengur sfyrjöid
við Þýskaiand
WASHINGTON, 12. júlí. — í dag
var lögð fram í fulltrúadeild
bandaríska þjóðþingsins þings-
ályktunartillaga þess efnis að
lýsa yfir því, að styrjaldarástand
ríkti ekki lengur milli Banda-
ríkjanna og Þýskalands.
— Reuter
Uppkast að japönskum
friðarsamningum birt
Kínverjar verða ekki
spurðir álils una þá
Blæs óbyrlega
fyrir Harriman
WASHINGTON, 12. júlí. —
Harriman liinn sjerstaki sentli
maður Trumans forseta verð-
ur kominn til Teheran í Persíu
á föstudagskvöld eða snemma
laugardags. Truman forseti
sagði að hann vonaðist til að
Harriman tækist að finna ein-
hveria leið til að leysa olíu-
deiluna þannig að bæði Bretar
og Persar mættu vel við una.
Frá Teheran berast hins-
vegar frjettir um að breski
sendiherrann þar í borg,
Francis Shcpherd, hafi enga
trú á að Harriman fái nokkru
áorkað og að Mossadeq for»
sætisráðherra Persa vilji eng-
ar sættir, svo að heldur blæs
óbyrlega fyrir Iiarriman.
Telja menn, að hann þurfi að
vera meira en lítið slóttugur,
ef honum eigi að takast að
sætta aðila olíudeilunnar.
— Reuter.
KYRRAHAFS-
Frakkar láta ckki Saar
PARÍS — Fulltrúar bresku stjórn
arinnar hafa látið í það skína að
vonir Þjóðverja um að fá full yfir-
ráð yfir Saar-hjeraði eru tylli-
vonir einar, því að Frakkar ætla
alls ekki að láta Saar af hcndi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter.
WASHINGTON, 12. júli: — í dag var birt samtímis í Washing-
ton og London uppkast að friðarsamningum við Japani, sem
ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hafa komið sjer saman
um og ýmsar aðrar þjóðir, sem hlut eiga að máli hafa samþykkt.
Ekki hefur Kínverjum, hvorki stjórninni á Formosa nje Peking-
stjórninni verið boðið að taka þátt í friðarsanmingum við Jap-
ani. Samkvæmt uppkasti þessu að friðarsamningum verður
Japan að öllu leyti frjálst og óháð ríki og er.gar sjerstakar höml-
ur settar á verslun þess, að öðru leyti en því að Japanir skuld-
binda sig til að fylgja almennum verslunarreglum.
---------------------------®ENGIN HEIMSVELDIS-
STEFNA FRAMAR
í uppkasti þessu er gert ráð
fyrir að Japanir afsali sjer með
öllu Kúrileyjum, Sakhalin og
Formósa. Einnig viðurkenna
Japanir sjálfstæði Kóreu og á-
girnist ekki Kyrrahafseyjarn-
ar, sem verð'a felldar undir
stjórn Ástralíumanna og Banda
ríkjamanna.
IIERLIÐ I JAPAN
Engar sjerstakar hömlur verða
settar á japanskan iðnað og
verslun og Japanir verði full-
komlega sjálfstæð og óháð þjóð.
90 dögum eftir að friðarsamn-
ingar hafa verið undirritaðir
mun hernámi Japan ljúka, en
það kemur hinsvegar ekki í veg
fyrir það, að Japanir semji við
Bandaríkjamenn með áfram-
haldandi veru bandarísks her-
liðs.
WASHINGTON, 12. júli: — Drög
eru nú komin fram að Kyrra-
hafsbandalagi þar sem Bandarík-
in, Ástralia og Nýja Sjáland
gera með sjer hervarnabandalag.
Lofar hver aðili fyrir sig að hafa
samráð við hina um mikilvægar
ákvarðanir í málum varðandi
Kyrrahafssvæðið og koma hver
öðrum til hjálpar, ef á þá yrði
ráðist. Búist er við að samning-
urinn verði bráðlega undirritaður
og staðfestur.
Bradley vongóAur
WASHINGTON, 12. júlí. —
Bradley yfirmaður landvarnar-
ráðs Bandaríkjanna sat í dag
nefndarfund með nokkrum öld-
ungadeildarþingmönnum. Sagðist
hann álíta að nú hefði verulega
niiðað áfram í Kóreu áleiðis til
að koma þar aftur á kyrrð. Virt-
ist hershöfðinginn ákaflega von-
góður um lausn Kóreudeilunnar.
— Reuter.
Erkibiskup í fangelsi
BELGRAD 12. júlí. — Utvarpið í
Belgrad útvarpaði nýlega tilkynn
ingu frá Tito einræðisherra, þar
sém hann segir, að kaþólska kirkj
an sje að reyna að gera Stepinac
erkibiskup að píslarvotti. Erki-
biskup þessi, seha situr nú í fang-
elsi titostjórnarinnar er yfirmað-
uf kaþólsku kirkjunnar í Júgó-
slavíu, sem 7 milljónir manns að-
hyllast. — Reuter.
BERGEN, 12. júlí. — I dag gerði
maður í Bergen tilraun til að
myrða kærustu sína. Honum fórst
verkið svo óhönduglega, að kær-
ustuna sakaði ekki en maðurinn
situr nú í steininum. Dró hann
upp skammbyssu og „hleypti
margsinnis af“. Þó byssan væri
hlaðin var hún biluð og aðeins
síðasta skotið sprengdi en í það
skiptið hafði hann gleymt að
miða. — NTB.
Sprengja springnr
og Reimann birtist
. ■*
Viðburðaríkur dagur í þýska þinginu
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BONN, 12. júlí: — Furðulegir atburðir gerðust á þingfundi þýska1
þingsins í dag. Heimatilbúin sprengja sprakk í þingsalnum er
kommúnistaforinginn Max Reimann birtist, en nú er deilt um það
hvort heimilt sje að handtaka hann eða ekki.
PAKKIí SNÚRU
Þegar umræður fóru fram um
þátttöku Þýskalands í Schuman-
áætluninni tóku nokkrir þing-
menn eftir því að lítill pakki,
hangandi í snæri var látinn síga
niður yfir þingsalinn, ofan af
svölum. Og það kom í ljós, að
hjer var um litla heimatilbúna
itsprengju að ræða. Sprakk hún,
*en var of kraftlítil til að valda
nokkru tjóni að ráði, nema brjóta
!!l rúður.
MAÐURINN, SEM LEITAÐ
HEFUR VERIÐ AÐ
Skömmu síðar vakti það stór-
mikla athygli, að á bekkjum
kommúnista i þingsalnum birtist
kommúnistaforinginn Max Rei-
mann. Hann hefur verið í felum
að undanförnu og bjuggust menn
við að hann væri í A-Þýskalandi.
Þykir þetta nokkuð djarft hjá
honum að sýna sig í V-Þýska-
landi, því að hann liggur undir
ákæru um að hafa rænt gömlum
fjelaga sínum, sem orðinn var
Tító-sinni og flutt hann í greipar
Rússa' í A-Þýskalandi. Reimann
var samt ekki handtekinn, þar
sem sumir álita hann í þinghelgi.
KINVERJUM EKKI BOÐIÐ
Kínverjum verður ekki boð-
ið að taka þátt í friðarsamning-
um við Japani, hvorki fulltrú-
um Formosa-Kínverja nje
Peking-kínverja. Stafar þetta
af því, að hvorug kínverska
stjórnin nýtur almennrar við-
urkenningar allra þjóða heims.
Líkaði illa dvölin
austan járnijalds
OSLÓ, 12. júlí — Nýlega var
nokkrum fulltrúum norska al-
þýðusambandsins boðið í heim-
sókn til Tjekkóslóvakíu ásamt
verkalýðsfulltrúum írá öðrum
löndum. Fulltrúar þessir eru nú
komnir heim. Líkaði þeim illa, ið
það var litið á þá sem njósnara.
A ferðum um landið kom það
fvrir, ef lestin nam staðar, og full
trúarnir vildu fara út til að
teygja úr sjer og líta í kringum
sig, að vopnaðir verðir skipuðu
þeim að halda sig inni í lestinni.
Fulltrúunum þóttu matvæli ákaf
lega dýr í Tjekkóslóvakíu og það
þótt allar vörur væru skammtað-
ar. — NTB.
Max Reimann, foringi kommún-
ista birtist nýlega í þingsölum í
Bonn. Ilcfur þetta vakið mikla
athygli, því að lögreglan hefur
undanfarið leitað að honum, þar
sem hann er ásakaður um að
hafa rænt Tító-kommúnistanum
Múller og komið lionum í greip-
ar Rússa.
Queiile lærist undan
að mynda stjórn
PARÍS, 12. julí. — Auriol Frakk
landsforseti átti í dag viðtal við
Henri Queille hinn fráfarandi for
sætisráðherra, og bað hann að
mynda stjórn, en Queille baðst
undan því, vegna heilsubrests.
— Reuter.