Morgunblaðið - 21.12.1951, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbólc
S8. árgangnr.
297. tbl. — Föstudagur 21. desember 1951.
Prentsmlðja Margunblaðsina, |
fsfóðleikhúslð fær
aukið rekstrarfé
Upplýsingar um launagreiðslur fil leikara
í GÆR var frumvarpið, um að rekstrarsjóður Þjóðleikhússins fái
meira fé af skemmtanaskattinúm en hingað til, samþykkt sem lög
frá Alþingi. — Var frv. samþykkt svo að segja óbreytt frá því er
það var lagt fram og var þá skýrt frá efni þess hér í blaðinu.
yiLLANDl SOGUM HNEKKT
I umiæöum, sem um málið |
urðu kvaddi Gísli Jónsson sér
hljóðs og sagði að þar sem uppi
hafi verið ýmsar mjög villandi
sögur um það, hvaða laun ýmsir
leikarar hafa fengið hjá Þjóðleik
húsinu, sem hafi leikið hér sem
gestir, telji hann rétt að
láta sannleikann koma i ljós í
þessum málum og hnekkja með
því röngum sögum um þetta.
Launagreiðslur til þessara leik-
ara væru sem hér segir:
Anna Borg:
Fyrir 23 sýningar á
„Heilög Jóhanna" 25,000,00
Fyrir 14 sýningar á
„ímyndunarveikin“ 14,000,00
Ferðakostnaður .... 3,824,42
Uppihald 11,200,00
Stefán íslanði:
Fyrir 29 sýningar á
„Rígólettó“ .. 24,500,00
Ferðakostnaður .... .. 7,612,00
Uppihald • • 14,903,50
Else Miihl:
Fyrir 18 sýningar á
„Rígólettó“ . . 9,000,00
Ferðakostnaður .... . . 4,995,10
Uppihald •• 5,918,75
Eva Berge:
Fyrir 11 sýningar á
„Rígólettó“ 4,765,00
Ferðakostnaður .... 3,806,00
Uppihald 3,294,95
Júgó-Slafar skila
slríðsföngum
BONN, 20. des.: — Þýzkir striðs-
fangar, sem júgó-slafnesk stjórn-
völd hafa sleppt úr haldi, koma
heim til Þýzkalands á morgun,
laugardag. Eru þá ekki nema um
140 þýzkir stríðsfangar eftir í
Júgó-Slafíu. Sennilega verða 100
þeirra látnir lausir i janúar.
— Reuter-NTB.
Missa þeir bifa úr
ÓSLÓARBORG, 20. des. —
Norska blaðinu Dagbladet
farast svo orð í dag: „Urskurði
Haag-dómsins var tekið fá-
lega í Álasundi og Sunnmæri.
íslendingar færa að líkindum
út landhelgi sína, og það getur
haft mikil áhrif á síldveið-
arnar, sem Norðmenn stunda
við ísland.
Norðmenn veiða ár hvert
síld fyrir um 20 milljónir
norskra króna við norður-
strönd íslands.“ Reuter-NTB.
Kveikt á norska jólatrénu
LUNDÚNUM, 20. des. — í kvöld
var kveikt á norslta jólatrénu á
Trafalgartorgi í Lundúnum. Þetta
eru fimmtu jólin í röð, sem Ósló-
arbúar gefa Lundúnabúum stórt
jólatré. — Reuter-NTB.
Fulltrúi íslands kosinn í
þýzku kosninganefndina
Tekur hún lil slarfa upp úr nýjárinu \
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
PARÍSARBORG, 20. des. — Allsherjarþing S. Þ. samþykkti í dag
með 45 atkvæðum gegn 6, að sett skuli á fót nefnd, er rannsaki,
hvort skilyrði séu til frjálsra kosninga í Þýzkalandi. Fimm komm-
únistaríki Austur-Evrópu og ísrael greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Kari Gvifard
Lábía fullvaida
konungsríki
LUNDÚNUM, 20. des. — Á
mánudaginn kemur verður Líbía
fullvalda konungsríki. — Þingið
verður í tveimur deildum, og
fara kosningar til þess fram
snemma næsta árs.
Simon Edwardsen:
Fyrir uppsetningu og
leikstjórn á 29 sýning
um á ,,Rígólettó“ .. 18,605,00
Ferðakostnaður ....... 7,849,55
Uppihald ............. 12,179,55
Samkvæmt þessu hafa því
launagreiðslur orðið kr. 95,870,00.
Þá skýrði Gísli Jónsson frá því
að nettóhagnaður af sýningum á
„Rígólettó" hafi orðið um 150
þús. kr.
RÁÐIST Á GARÐINN ÞAR
SEM HANN ER LÆGSTUR
Jóhann Þ. Jósefsson talaði
einnig í þessum umræðum. •—
Kvaðst hann hafa fengið fregnir
af því að nú væri þjóðleikhús-
stjóri vera farinn að „spara", en
heldur kæmi sá sparnaður illa
niður, því að þar væri ráðist á
garðinn þar sem hann væri
lægstur.
Framh. á bls. 8
Flugmenn Air France
gera verkfall
PARÍSARBORG, 20. des.: —
Flugmenn hjá Air France gerðu
verkfall í kvöld. Það stendur til
9. janúar n.k., ef ekki takast
samningar á þeim tíma. Krafizt
er launahækkunar, og taka allir
flugmennirnir þátt í verkfallinu,
þeir sem stunda farþegaflug, að
undanskildum þeim, er fljúga til
Austurlanda.
Það var stéttarfélag farþega-
flugmanna, sem afréð, að lagt
skyldi út í verkfall þetta. For-
mælandi Air France segir verk-
fallið ekki munu vera algert, þar
sem ekki séu allir flugmennirnir
félagsbundnir þar.
— Reuter-NTB.
Stjórnarbót í Túnis
PARÍSARBORG, 20. des.: —
Stjórn franska Jafnaðarmanna-
flokksins hefir samþykkt að veita
Túnis aukna sjálfstjórn. Kveður
þar við annað hljóð en hjá stjórn-
inni. — Reuter-NTB.
Sfirðlega gengur með
danska sjónvarpið
| KAUPMANNAHÖFN, 20. des.: —
Það blæs eki sem byrlegast fyrir
sjónvarpið í Danmörku. Ekki eru
nema 150 sjónvarpsnotendur, og
eru litlar líkur til, að þeir verði
1500 á fyrsta árinu eins og von-
azt hafði verið. — NTB.
^FULLTRÚI ÍSLANDS ,
í KOSNINGANEFNDINNI
Samþykkt var, að fulltrúar ís-
lands, Brazilíu, Pakistans, Hol-
lands og Póllands taki sæti í
refndinni. Pólski fulltrúinn hef-
ur lýst yfir, að Pólverjar vilji
engan hlut eiga að nefndinni, en
menn vona, að þeir taki sinna-
skiptum. — Þá hafa og Austur-
Þjóðverjar tilkynnt, að nefndin.
fái ekki leyfi til að koma inn i
landið og gera þar athuganir.
\
HEFST HANDA
UPP ÚR NÝÁRINU
Vishinski hélt því fram, að
verkahringur nefndarinnar mið-
aðist við störf, er S. Þ. væri ó-
viðkomandi.
Nefndin tekur til starfa eins
fljótt og unnt er eftir áramótin,
en að líkindum verður aðalverk-
svið hennar í Vestur-Þýzkalandi.
Ljósmyndari blaðsins tók þessa
mynd af Karli Övgárd á fyrir-
lestrarkvöldi hjá Svifflugfélag-
inu sumarið 1948.
Bretar þrengja
kost Egypta
KAÍRÓ, 20. des. — Yfirmaður
Bretahers á Súez-eiði hefur til-
kynnt, að hér eftir verði farið
með þá Egypta eins og óvini, sem
reynast við handtöku hafa vopn
í fórum sínum.
Telja margir, að í tilkynning-
unni felist það og, að hér eftir
\ erði þeir Egyptar, sem Bretar
taka höndum, ekki framscldir
egypzkum stjórnvöldum, heldur
fari Bretar með mál þeirra.
í gær var varpað sprengjum
að brezkri járnbrautarlest, en
cngan sakaði. — Reuter-NTB.
Kunnur, sænskur svifflugmaó-
ur týnist í Bandaríkjunum
Dvaldist hér á landi sumarið 1948
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
SAN FRANSISKÓ, 20. des. — í dag leituðu enn 30 vélflugur auk
fjölda manns á landi sænska svifflugmannsins Karls Övgárds, sem
hvarf í Nevada-fjöllunum fyrir tveimur dögum, þar sem hann
reyndi að setja nýtt met í hæðarflugi. Sást seinast til hans, er
hann hvarf inn í skýjaþykkni eftir að hann hafði sleppt dráttar-
taug vélflugunnar. Þá var hann í fimm þús. metra hæð.
-----------------— ♦ÆTLAÐI í 12 ÞÚSUND
METRA HÆÐ
Grikkinn var
kosinn
PARÍS, 20. des.: — í dag var
samþykkt í Allsherjarþinginu,
að Grikkland skyldi hljóta
sæti Júgó-Slafa í Oryggisráð-
inu.
Fengu Grikkir 39 atkv., en
Hvít-Rússar 16. Þetta var 19.
atkvæðagreiðslan, sem fram
fór í þinginu um málið, en tii
að fulltrúi sé löglega kosinn í
ráðið þarf hann % atkvæða.
Fyrir hálfum mánuði voru
fulltrúar Chiles og Pakistans
kjörnir í ráðið í stað Ekva-
dors og Indlands.
Danski farþega-
skip brennur
SAN FRANSISKÓ, 20. des.: —
Átta þús. smál. danskt skip,
Erria, ónýttist af eldi úti fyrir
vesturströnd Bandaríkjanna í
dag. Björgunarskipum tókst að
bjarga 75 manns, farþegum og á-
höfn, en enn er saknað 11 manns,
8 skipverja og 3 farþega.
Hálftíma eftir að eldsins varð
vart, var það alelda, svo að flýja
varð það. Vonir standa til, að þeir
sem saknað er, hafi komizt í
björgunarbáta. — Reuter-NTB.
Bíóngurlóarmál-
inu lokið
KAUPMANNAHÖFN, 20. des.: —
Stærsta mál í sögu dönsku lög-
reglunnar, Kóngurlóarmálið, er
nú á enda. Við réttarhöldin hafa
verið skrifaðar 60 þús. blaðsíður,
en 5000 manns hafa verið yfir-
heyrðir.
M.a. voru 30 lögreglumenn
flæktir í málið. — NTB. ;
Gin- og klautaveikin
breiðist út í Áusturríki 1
VÍNARBORG, 20. des. — Aust-
urríska landbúnaðarráðuneytið
tilkynnir, að gin- og klaufaveik-
innar hafi orðið vart á 72 bæj-
um í 37 sýslum landsins. Sein-
ustu 2 daga hefur veikin fundizt
á 10 bæjum. Allir bæirnir hafa
verið settir í sóttkví.
Reuter-NTB.
Vélflugurnar hafa nú leitað um
mikinn hluta Nevada og Kaliforn-
íu, en ekki hefir sézt tangur né
tetur eftir af svifflugu Karls.
Svifflugamaðurinn hafði súrefnis-
birgðir til 6 stunda flugs í mikilli
hæð. Gerði hann sér vonir um að
komast upp í 12 þús. metra hæð,
með því að færa sér í nyt hið
mikla loftuppstreymi með fjalla-
tindunum.
VAR HÉR VIÐ RANN-
SÓKNIR 1948
Karl Övgárd var hér á landi
sumarið 1948 við rannsóknir á
bylgjuuppstreymi. Flaug hann þá
hjá Svifflugfélagi Islands í rann-
sóknaskyni. Áður en hann kom
hingað var hann við sams konar
rannsóknir í Tékkó-Slóvakíu.
S.þ. búa sig undir að
laka við slríðsiöngun-
um cg ilytjo til Japan
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
TÓKÍÓ, 20. des. — Samningamenn S. Þ. í Panmunjom hafa til-
kynnt kommúnistum, að þeir séu fúsir til að hefja að nýju við-
ræður um skipti stríðsfanga, er nafnaskráin, sem kommúnistar
hafa afhent, hefur verið rannsökuð. i
---------------------®UNDIRBÚNINGUR TIL AÐ 1
FLYTJA FANGANA
TIL TÓKÍÓ
í svip er ekki hægt að segja um,
hve nær viðræður geti aftur haf-
izt. Eftir er að ganga frá fanga-
skiptunum í einstökum atriðum.
Herstjórn S. Þ. hefir þegar gert
ráðstafanir til að taka við stríðs-
föngunum og flytja þá loftleifca
til Japans.
Staiin er 72 ára í dag
MOSKVU, 20. des. — Stalin,
marskálkur, verður 72 ára á
morgun, föstudag. Hafa'blöðin í
löndum Austur-Evrópu skýrt frá
því, að verkamenn hafi skuld-
bundið sig til að afkasta meiru
þann dag en þeim er ætlað jafn-
aðarlega.
Ekki vita menn örugglega,
hvar Stalin dvelst um þessar
mundir, en að líkindum lætur
hann fara vel um sig suður í
Kákasus. — Reuter-NTB.
LITIÐ BARIZT
Sama sem ekkert var barizt í
Kóreu í dag. Nokkrir loftbardag-
ar urðu þó yfir Norður-Kóreu. j