Morgunblaðið - 21.12.1951, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.12.1951, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 21. des. 1951. 'j( 1 Framhaldssagan 28 ■mmiimDnsiiiiiiiiiiiiiiiiiiimnvTini Berbergið á annari hæð Skaldsaga eftir MILDRID DAVIS „Hér er vasaklúturinn sem ég , sagði þér frá“, sagði dökkhærða stúlkan. Hilda sem hafði setið á rúm- inu og hlustað á stóð nú upp. „Bíddu við, Dora“. Hún roðnaði þegar allir litu á hana. Hún tók litla eyrnarlokka með perlum, úr ! eyrum sér og rétti Doru. „Fáðu þessa að láni“, sagði hún. „Þeir fara vel við kjólinn þinn“. Hún reyndi að brosa, en beit í vörina. Frú Corwith hafði litið snöggv- ast við en snéri sér nú aftur að töskunni. Hún tók upp blússu sem hún hafði rétt áður lagt til hliðar og starði á hana slójum augum. „Viltu hafa þá, Dora“, spurði Hilda. Rödd hennar var þvinguð og augu hennar voru óeðlilega stór og dökk. Dora svaraði ekki en tók eyrna lokkana úr hendi Hildu og lét þá á sig. „En þú varst búin að lofa að taka klútinn", sagði dökkhærða stúlkan. hvei' síðastur 3 * necraic Sl „Geymdu hann þangað til ein- hver önnur giftir sig“, sagði Dora Winnie brosti með sjálfri sér og rótaði í skúffunni í snyrti- borðinu þangað til hún fann bursta. „Það fylgir ekki nein sér- stök gæfa því að lána brúðinni eitthvað", sagði hún. „Reyndu heldur að grípa vöndinn. Hvar er hárgreiðan þín, Dora?“ „Hún ætti heldur ekki að reyna að ná í vöndinn“, sagði Dora. „Hilda fær hann“. „Nei, hvað er nú þetta“, sagði Winnie. Dora leit við. „Læst skúffa“, tautaði Winnie. „Já, ég vissi að það var eitthvað brogað við þig Dora“. Dora hallaði sér nær speglin- um og horfði rannsakandi á mynd sína. „Hefur þú aldrei læst skúffu, Winnie?" Hilda settist aftur á rúmið. Hún lauk við það sem eftir var í glas- inu og setti það frá sér á borðið. Stúlkurnar gengu til og frá um herbergið. Fæstar gáfu henni nokkurn gaum. Hún sá þær eins og í þoku og stafaði það sumpart af öllu því sem hún var búin að drekka. Hún horfði á móður sína loka töskunni, stinga lyklinum þegjandi í handtösku Doru og fara hljóðlega út. Hávaðinn og skvaldrið ætlaði að æra hana. Hún var sú eina sem heyrði þegar barið var að dyrum. Áður en henni vannst tími til að opna, kallaði Francis utan frá gangin- um: „í guðanna bænum hleypið þið mér inn“. Nú heyrðu hinar. Dökkhærða stúlkan þaut á fætur, ýtti Hildu HRÆRIVÉLARNAR Fyrirliggjandi Henni fylgir: Hakkavél Kaffi-, grænmetis- og ávaxtakvörn Sítrónupressa Deighnoðari Þeitari og hraerari i Dropateljari : Plastic yfirbreiðsla Skafa Verð með söluskatti kr. 2.539.80. r r Arsdbyrgð. HEKLA h.f. Skólavörðustíg 3 — Sími 1275 Veljið fallegu, nytsömu Jólagjöfina þar sem er MARGT A SAMA STAÐ Extra! Extra! Extra ! Heftið með frægustu og umdeildustu sögu á Islandi, Sunnudagskvöld til mánudags morgun, eftir Ástu Sigurðar dóttur, hefur nú loks verið endurprentuð vegna gifur- legra eftirspuma og verður selt í hókaverzlunum næstu daga. — Upplag takmarkað vegna pappírsskorts. — Jólaheftið kom í gær! ÍÍÍLIST a tflUGAVtC 10 -,SIMt»67 BIJRCO BEZT Ólafur Gíslason & Co. h.f. Hverfisgötu 49. Simi 81370. I Ð J A h.f. Lækjargötu 10B, sími 6441. Raftækjaverzl. Ljósafoss h.f. Laugaveg 27. — Simi 2303. til hliðar og gægðist fram í gegn um litla rifu. „Hvað gengur á?“ spurði hún og brosti blítt. „Heyptu mér inn“. „Ég er nú hrædd um ekki. Þú átt ekki að sjá brúðina fyrr en við athöfnina". „Jæja, biddu hana þá að flýta sér. Hvað gengur eiginega á þarna inni. Það er engu líkara en verið sé að heyja s^órorustu". Hann reyndi að stinga höfðinu inn um gættina en stúlkan hélt fast. „Viltu leiða óhamingju yfii allt þitt líf“. „Hverju heldurðu að ég megi eiga von á? Nei, nei, þetta er eins og hreinasta kvennabúr". „Þú ert ennþá frjáls og for- stofudyrnar standa opnar“, kall- aði Dora. „Winnie, sáztu hanzk- ana mína nokkurs staðar." „Já, en pabbi þinn stendur við dyrnar. Flýttu þér nú, Dora. Það getur hver sem er orðið fallegur eftir að vera búin að vinna að því í þrjá klukkutíma". „Það er naumast að þú ert óþoinmóður", sagði dökkhærða stúlkan. „Hún kemur bráðum. Svona farðu nú“. Hann greip um úlnlið stúlkunn ar og reyndi að draga hana fram á ganginn. „Komdu og vertu okk- ur til skemmtunar á meðan“. „Það er ekki tímabært að daðra við ungar stúlkur núna“, sagði Winnie. „Nei, ég hef ekki séð hanzkana". Dökkhærða stúlkan flissaði, losaði hendina og skellti aftur hurðinni. Hilda sat dálitla stund enn á rúm inu. Þrátt fyrir ösina allt í kring um hana, var efns og færi um hana hrollur annað slagið og hún nuddaði á sér handleggina. Loks stóð hún upp og fór út án þess að nokkur gæfi því gaum. Frammi á ganginum var hávað- inn ennþá meiri, því þar þlandað- ist saman háværar raddir að neð- an úr stofunum og dimmar karl- mannsraddir úr herbergi foreldra hennar. Dyrnar opnuðust og ein- hver maður sem Hilda ekki þekkti kom út óg gekk niður. Hilda snéri við og fór niður baktröpurnar. Kjóllinn var henni til ama. Hún dró upp ermarnar og reyndi að lagfæra axlirnar. Hún opnaði dyrnar fyrir neðan tröppurnar og leit inn. Það var enginn í eldhúsinu. Hún skolaði vatnsglas undir kran anum og athugaði f löskurnar sem stóðu á borðinu. Loks hellti hún koníaki í glas hjá sér. Hún drakk það í einum teig og hellti aftur í glasið. Svo dró hún stól að borð inu og settist varlega niður. Þeg ar hún var viss um að hún hefði náð fullu jafnvægi, hallaði hún sér aftur á bak og teygði úr fót- Unum. Sólargeislarnir skinu inn um gluggann og á vaskinn fullan af óhreinum diskum. Stólarnir stóðu hér og þar um eldhúsið. Á borð- inu stóðu óhrein glös, hálftóm- ar flöskur, dósalyklar og óhrein svunta. Ein flaskan datt á gólfið og brotin flugu í allar áttir. Hilda teygði sig í koníaksflöskuna. Hún leit ekki á pollin á gólfinu en virt ist eiga fullt í fangi með að halda opnum augunum. Vínið skvettist úr glasinu og yfir kjól hennar. Hún raulaði „Billy Boy“ og dill- aði til fætinum ofan í pollinum á gólfinu. Á milli þess geispaði hún eða saup á glasinu. Það var orðið vel hlýtt í eld- húsinu. Vaskurinn var farinn að ganga til eins og skip úti á rúm- sjó og fæturnir á stólunum bogn- uðu og svignuðu. í fjarska heyrð- ist ómur af margróma röddum. Útidyrnar opnuðust og Swend- sen stóð á þröskuldinum. Hann stappaði snjó af fótum sér og horfði um leið inn í eldhúsið. Hilda hnipraði sig snöggvast sam an þegar kaldur gusturinn kom inn, en annars virtist hún ekki gefa honum nokkurn gaum. /eití er komið HIÐ EINA HEIMA-PERMANENT, SEM NOTAÐ ER AF MEIRA EN 20 MILJÓN AMERÍSKRA KVENNA EINS AUÐVELT I NOTKUN OG VINDA UPP IIÁR YÐAR. Nú getið þér sjálfar sett f yður heima þá fallegustu hárliðun, sem völ er á. Reynið Toni í dag og sann- færist um, hve fljótt og auð- veldlega þér sjálfar getið sett í yður þá eðlilegustu liði, sem þér hafið nokkurntíman fengið. Toni liðar hvaða hár sem er, ef það á annað borð tekur hárliðun, og gefur því mjúka og fallega liði, sem endast mjög vel, Meðal hárliðunartími er hálf önnur klukkustund. Fylgið aðeins leiðbeining- unum, og hár yðar getið þér liðað eins og þér óskið. Munið að hiðja um Toni. Permanent með 42 plast- spólum kostar kr. 43.65. Permanent, án spóla kost- ar kr. 20.50. Liðið hár yðar sjálf með og það- verður sem sjálfliðað Best-friend Hárþurkurnar kotnnar HENTUGAR FYRIR TONI NYTSÖM JÓLAGJÖF HEKLK H.F. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3 — SÍMI 1275 igaigg-' .*&****,*.. - .sytíhaÉ, Pýzku ryksugurnar K O M N A R — 4 mismunandi gerðir. ■>.J;7j ’ Hekla h.f. SKÖLAVÖRÐUSTÍG 3 1■ 1-ft8JJj.MJJJJLUJAtJÍ*IJII■ ■_■■ ■■.■■■ »■»■■■■»■ IImi*ni■ milli■■■_■■ ■ ■ ■■ ■ !_■_■■ ■ II »■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ IIIIIII■ ■■■■ ■■■■ ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■j_uibjj.MJL■ ■ JJ■ JJJJ■ J■■.■■■■■■■ ■ JJ!■ ■■mniiiiiinnm■ 11 iim■ ■ ■_■ ■_■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.