Morgunblaðið - 24.01.1952, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.01.1952, Qupperneq 1
S9. árgangar. 19. tbl. — Fimmtudagur 24. janúar 1952 PrentsmlSja Margnnblaðsina. Ibn Saud reynir að miðla máSum Inn leilað í Ismailia Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB ISMAILIA 23. janúar — Bretar halda áfram vopnaleit sinni í Ismailia og voru tvö íbúðarhverfi Araba könnuð í dag. Fundu þeir talsverðar vopnabirgðir þar. Haldið var áfram að leita í graf- rtitunum þar sem hergagnabirgðirnar fundust fyrir nokkrum öögum. SVERFUR AÐ IBUUNUM Landsstjóri Egypta í Ismailia j sagði í dag, að vera brezku her- sveitanna í borginni gerði egypzku lögreglunni ókleift að halda þar uppi löggæzlu og réttar vernd. íbúar borgarinnar kvarta nú um fæðuskorí og sagði talsmað ur egypzkra yfirvalda, að Bretum einum væri um það að kenna, þar sem þeir héfðu hindrað matvælaflutninga til Ismailia. ' Kvað hann íbúana heldur mundu svelta en þiggja mat af Bretum. MIÐLUNARTILLÖGUR Ibn Saud konungur Saudi Arabíu hefur nú sent brezku og egypzku stjórnunum uppkast að tillögum til málamiðlunar í Súez-deilunni. Er þar m. a. gert | ráð fyrir, að Bretar verði á burt með her sinn af Súez-eiði og Egyptar gangi í varnarbandalag landanna fyrir botni Miðjarðar- hafs. Acheson með blaðamönnum WASHINGTON, 23. jan. — Acheson utanríkisráðherra ræddi .við blaðamenn í dag í Washing- ton og sagði m. a. að Bandaríkja- stjórn ynni nú að þvi, að sam- ræma þau ágreiningsmál, sem væru þrándur í götu Evrópuhers- ins. Studdi hann skoðun Eisen- howers um sameiginlegt póli- tískt og efnahagslegt stjórnvald þátttökurík j anna. Reuter—NTB S. Þ. báðusl afsökunar PANMUNJOM 23. jan. — Sam- einuðu þjóðirnar hafa nú komið á framfæri við kommúnista af- sökunarbeiðni vegna sprengju þeirrar, er varpað var úr flug- vél í grennd við Kesong fyrir skömmu. Er upplýst að flugmaðurinn var villtur og tók til bragðs að létta flugvélina með því að varpa sprengjunni. Fulltrúar kommúnista í Pan- munjom hafa lagt fram landabréf þar sem merktar eru herfangabúð- ir í Norður-Kóreu. Yerða flug- mönnum S. Þ. fengin slík landa- bréf til að þeir geti forðast árásir á þær. Enginn árangur náðist við samn ingaborðin. Slarhemberg | Vill leyfa ’mnflutning landbúnaðarvara WASHINGTON, 23. jan. — Tru- ■njan forseti hefur í bréfi til leið- toga demókrata í öldungadeildinni skorað á þingið að afnema inn- flutningshömlur á ýmsum erlend- nm landbúnaðarvörum m.a. smjöri og osti. Telur hann, að frumvarp það, er nú liggur fyrir þinginu, geti stofnað utanríkisstefnu Banda- ríkjanna í hættu, en í frumvarp- inu er gert ráð fyrir frekari höml- um við innflutningi landbúnaðar- afurða. Reuter-NTB Sendiherra í Líbíu WASHINGTON — Truman for- seti hefur ákveðið að skipa Henry S. Villard fyrsta sendiherra Bandaríkjanna í hinu nýstofn- aða konungsríki Líbýu. Villard hefur að baki sér lang- an feril í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna og hefur getið sér góðan orðstír. Akvörðun forsetans fer nú fyr- ir öldungadeildina til staðfesting- ar. Starhemberg, fursti, var stofn- andi austurrísku heimavarnar- hreyfingarinnar, sem studdi Dol- fuss, kanslara, á sínum tíma. — Nazistar bönnuðu hreyfinguna og gerðu allar eigur Starhembergs og ættar hans upptækar. Nýlega hefur verið ákveðið að afhenda honum aftur allar þessar eignir. Sú ákvörðun fékk þó mjög mis- jafnar undirtektir í landinu og leiddi til stórpólitískra átaka, liópgangna og verkfalla. Rúss- neska hernámsstjórnin snerist og öndverð gegn afhendingunni og krafðist þess, að hún yrði aftur- kölluð með nýjum lögum. Síidarafli Norðmanna ein milljón hsktól. BJÖRGVIN 23. jan. — Norska síldarnefndin tilkynnti í dag, að á miðnætti í nótt hafi til- kynnt síldarmagn numið 739. 808 hektólítrum stórsíldar. Fréttir um aflann á þriðju- dag höfðu þó ekki borizt frá öllum löndunarstöðvum. Norð menn telja að heildaraflinn nemi um einni milljón hektó- lítra að afla miðvikudagsins meðtöldum og því magni, sem ekki hefur verið tilkynnt um. Ráðherrasliipti í Austurríki VÍNARBORG 23. janúar. — Fjór- ir ráðherrar í austurrísku stjórn- inni báðust lausnar í dag til að •firra ósamkomulagi milli stjórn- arflokkanna tveggja, Jafnaðar- mannaflokksins og Þjóðflokksins. Voru það verzlunarmálaráð- herrann, fjármálaráðherrann, landbúnaðarráðherrann og fræðslumálaráðherrann. Nýir ráð herrar hafa þegar verið valdir og vinna þeir embættiseið sinn hjá Körner forseta á fimmtudags- morgun. — Reuter—NTB. BandðríkjaiM veita Persum 22,5 millj. dala tækni og efnahagsaðstoð WASHINGTON — Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt, að á þessu fjárhagsári verði Persum veitt efnahagsleg og tæknileg aðstoð, sem nemur um 22.5 milljónum dala. Stuðningur Banda- ríkjanna við Persa nam á s. 1. ári tæplega 1.5 milljónum. öeirðir halda áfram í Túnis 4 lögreglumenn vegnir í gær Arabaríkin biðja Nervó að mlðta málum. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB TUNIS, 23 janúar. — Eigi færri en fjórir franskir lögreglumenn biðu bana í óeirðum, sem urðu í Túnis í dag og nokkrir særðust, þar af a. m. k. einn alvarlega. Fundir Lissabon um miðjan febrúar LUNDÚNUM 23. janúar — Tals- maður Atlantshafsbandalagsins í Lundúnum tilkynnti í dag, að hernaðarnefnd bandalagsins kæmi saman til funda í Lissabon hinn 11. íebrúar n.k. Fundum ráðherranefndarinn- ar hefur verið frestað til 16. febr. Talið er að fundunum sem áttu að hefjast í byrjun febrúarmánaðar hafi verið frestað að beiðni Frakka. — Reuter—NTB. Misbeifing neiiunar- valdsins rædd í París PARÍS — Á fundi Stjórnmála- nefndarinnar í fyrradag var rætt um upptökubeiðnir ýmissa þjóða í samtök S.Þ. og misbeitingu neit- unarvaldsins í þvi sambandi. Fulltrúar Suður-Ameríkuríkj- anna komu með ýmsar uppústung ur til I^usnar á þessu vandamáli. M. a. vildi fulltrúi Argentínu, að kallaður yrði saman sérstakur fundur Allsherjarþingsins eigij síðar en 15. marz n.k., til að fjalla um málið. Lagði hann einnig til að Oryggisráðið endurskoðaði. þær upptökubeiðnir, sem nú liggja fyrir, og gæfi síðan þingi' því er nú situr skýrslu um rnábð. i Á morgun (fimmtudag) verða. greidd atkvæði um framkomnar tillögur í sambandi við upptöku-' beiðnir 16 ríkja. Vilja Rússar hrossakaup um málið til þess að^ I koma á framfæri nokkrum lepp- ríkjum. Þeir treystast þó ekki til Iað styðja Norður-Kóreu. Um- ræðum er nú lokið og verður greitt atkvaíði um tillögu frú Rússum og Perúbúum. <®Á TVEIM STÖÐUM Við Miknin, um 150 kílómetra suður af borginni Túnis, gerðir 5000 arabiskir hópgöngumenn árás á franska lögreglustöð og felldu þegar 3 lögreglumenn. Einn særðist. Síðdegis í dag var enn mikil ólga í bænum. í öðrurri, bæ um 45 kílómetra fyrir vestaix Túnis var einn franskur lögreglu- þjónn veginn í viðureign við ó- eirðaseggi, sem beittu skotvopn- um og rýtingum. 7 manns voril handteknir. Yfirvöldin hafa nú aukið lið hers og íögreglu til taks, ef til frekari óeirða skyldi koma. RÆTT VIÐ NERVÓ Sendinefndir 14 Araba- og Asíuríkja ganga á morgun á fund forseta Allsherjarþings- ins, Padillas Nervós, í þeim til- gangi að fá hann til að ræða við frönsku stjórnina, ef þaS mætti verða til þess að af létti óeirðum í Túnis. I RÁÐHERRA í PARÍS Dómsmálaráðherra Túnis hef- ur dvalizt í París að undanförnu til að fylgja eftir þeirri mála- leitan Túnisbúa, að Allsherjar- þingið taki þessi mál til með- ferðár. í dag lýsti hann því yfir, að ræða Faures forsætisráðherra uiu Túnismálin í franska þinginu á þriðjudag hafi ekki haft aS geyma neinn nýjan boðskap til lausnar vandanum. SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR Samningar um tilgang og skil- yrði aðstoðarinnar, sem er liður í áætlun Bandaríkjanna um hjálp til þjóða, sem skemmra eru á veg komnar en vestræn ríki efnahags lega og tæknilega, hafa verið und irritaðir í Teheran af Mossadek forsætisráðherra og William E. Warne, fulltrúa tæknisamvinnu- nefndar Bandaríkjanna í Persiu. TIL EFLINGAR LANDBÚNAÐI Drýgstum skerf þessarar upphæðar verður varið til að efla landbúnað í Persíu, og auka matvælaframleiðslu landsins. Þá verður og lögð áherzla á heilbrigðis- og heilsu verndarmál og bætta lífsaf- komu almennings í landi/.iu. Um þessar mundir eru starf- andi 62 bandarískir sérfræð- ingar í Persíu og er áætlað að þeim verði fjölgað á næstunni upp í 150, vegna hinna nýju áætlana. • i IÐNAÐUR OG TÆKNIMENNTUN 4 milljónum dala verður varið til að reisa við iðnað í Persíu og færa hann í nýtízku horf og 250.000 til tæknimenntunar pers- neskra borgara í Bandaríkjunum. I samningnum er gert ráð fyrir stofnun nefndar til að hafa yfir- umsjón með framkvæmd áætlun- arinnar, skipaðri 5 Persum og 4 Bandaríkj amönnum. VerkfaSS i Lundúnuan LUNDÚNUM, 23. janúar. — Strætisvagnastjórar í Lundúnum hafa gert verkfall, vegna ágrein- ings við atvinnurekendur. 900 manns taka þátt í verkfallinu, sem veldur því að um 120 vagn- ar verða ekki starfræktir. Sam- gönguörðugleikar eru miklir í borginni af þessum sökum. Hvorir irömdu fjöldamorðin WASHINGTON 22. jan. — Full- trúum frá Sovétríkjunum og Pól- landi hefur verið boðið að bera vitni frammi fyrir rannsóknar- nefnd, sem vinnur að því í Banda ríkjunum að upplýsa málsatvik í sambandi við fjöldamorð á pólskum liðsforingjum í Ketyn- skógi 1943. Lík þásunda pólskra liðs- foringja hafa fundizt í fjölda- gröfum í skóginum. Rússar og Þjóðverjar sökuðu hvorir aðra um að vera valdir að illvirki þessu. Yfirheyrslur hefjast hinn 4. febrúar n.k. Meðal vitna verða tveir bandarískir liðsforingjar, sem komu á vettvang skömmu eftir að grafirnar fundust. Kínverjar í Víetmina SAIGON, 23. janúar. — í til- kynningu franska hersins í dag segir, að sannanir hafí fengizt fyrir því, að á síðustrt 8 mánuðum hafi 6.000 kín- verskir sjálfboðaliðar fariíl inn yfir landamæri Indókína, til að veita uppreisnarmönn- um Vietmin lið, án virkrar þátttöku í bardögum. Vir.na þeir hvers konar þjónustustörf að baki víglínunnar. Reuter-NTB 69 létu lífið. LUNDÚNUM — Á s. 1. ári létu 69 menn lífið í eldsvoðum í I.undúnaborg. 665 manns hlutu sár í eldsvoðum á sama tíma. Varar við hðtfunni LUNDÚNUM, 22. janúar. — Brezki fjármálaráðherrann, Butl- er, lét svo um mælt í dag, að efna- hagskreppa sú, sem Bretland stendur andspænis í dag sé hiít versta síðan’ófriðnum lauk. Brýndi hann fyrir þjóðinni að gera séc fulla grein fyrir hættunni í tíma. Ráðstefnu samveldislandanna' um efnahagsm. er nú nýlokið og kvað Butler hana hafa tekizt mjög vel. Allir aðilar voru sammála! um að mikilvægt væri að halda' áfram samtökum sterlingsland- anna. 1 bili þyrfti að draga úr inn- flutningi og jafnframt að leggja mikla áherzlu á að auka útflutn- inginn og tekjulindir landanna. •—Reuter. -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.