Morgunblaðið - 24.01.1952, Síða 6

Morgunblaðið - 24.01.1952, Síða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. jan. 1952 JJru dmgnófayeiðar Í>AÐ má svo að orði kveða að ný tegund „spámanna“ sé upprisin meðal vor. Kenning þessara „spá- roanna" er sú að af öllu illu og Ekaðlegu séu dragnótaveiðar verstar, og á því velti framtíð og gengi þjóðarinnar að slík starf- eemi sé hið bráðasta bönnuð með lögum. í þ'eim söfnuði sem þessa trú hefir tekið er náttúrlega mis- jafn sauður í mörgu fé, og meðal þeirra sem látið hafa til sín heyra eru nokkrir velmetnir bændur, en annars menn af ýmsum stétt- um, sem lítilla eða engra beinna hagsmuna eiga að gæta í sam- bandi við fiskveiðar eða sjávar- Útvegsmál. Hámarki sínu náði bægslagang urinn um þetta mál, þegar Al- þingi á síðastliðnum vetri taldi xiauðsynlegt að breyta gildandi lögum til þess að auðvelda bann við dragnótaveiðum, og getur sú lagabreyting varla talist til mik- ils vegsauka, hvernig sem á málið er litið, en kann að hafa litla þýðingu í framkvæmdinni. Þótt undarlegt megi virðast hafa minni andmæli komið fram opinberlega gegn þessum kenn- ingum en við hefði mátt búazt, en með því að hér er ekki um neitt smávægilegt hégómamál að ræða fyrir okkur sem búum á Bíldu- dal og raunar fleiri Vestfirðinga, þykir mér rétt að hafa hér um r.okkur orð. „Spámennirnir“ bygffja kenn- ingu sína á þeim fulyrðingum að dragnótaveiðar spilli botngróðri og eyðileggr uppeldisstöðvar þorskfiska, eins og reynslan hafi þegar sýnt með síminnkandi afla | magni og aigerri fiskiþurrð í fjörðum og á griJnnsævi. Rök- semdafærzlan er þó vægast sagt gálausleg, því enda þótt fiski- tregða sé staðreynd, blandast fá um hugur um það að til þess liggja fyrst og fremst aðrar or- sakir, svo sem nú mun verða vik- ið að. skemmdufsturíseiii ? OFVEIÐI Allt frá því að fyrst voru hafn- ®r fiskveiðar hér og fram til þessa dags hafa á ýmsum tímum komið aflaleysistímabil að vísu mislöng og misjafnlega alvarleg, og þarf varla að fjölyrða um það að dragnótaveiðar hafa ekki alltaf verið orsök til slíkra fyrir- bæra, enda hafa vísindamenn sýnt fram á hvað valda muni, og má í því sambandi minna á hina gagnmerku ritgerð Árna Frið- rikssonar „Heitur sjór“. Þannig má segja að reynsla og vísindi af- sanni kenningu „spámannanna“ svo ekki verði um villst. En sé það nú svo að aflaleysi undanfar- inna ár sé alvarlegra en áður hef- ir þekkst, einkum við Vestfirði, rná enn benda á það sem vitan- legt er, að nú þegar er orðið um verulegt offiski að ræða, og er slíkt ekki undarlegt, þegar þess er gætt að hundruð togskipa \Teiða þar næstum allan ársins hring djúpt og grunnt og raun- verulega girða fyrir fiskigöng- tírnar sem leita á grunnmiðin og inn á firðiha. Það er því raunsæ speki í orður Norðlendinsins sem sagði: „Það er tilgangslaust að friða firðina nema að girðingin fyrir utan þá sé um leið oonuð því fiskurinn kemur ekki fjalla- sýn“ og á þetta hvergi betur við en á Vestfjörðum. Hitt er svo deginum Ijósara að þáttur nokk- urra dragnótabáta í offiskinu er íilgerlega hverfandi ef borið er saman við veiði margfallt fleiri togskipa með margfallt afkasta- meiri veiðarfæri. Einnig um þetta atriði gefur reynslan nokkra bendingu, og ekki ófróð- lega. Svo sem kunnugt er mátti sæktu miðin út af Vestfjörðum á stríðsárunum, en þá gerðist það einnig að afli óx frá ári til árs, þrátt fyrir dragnótaveiðarnar, og virtist þá vera nægur fiskur inn um alla firði, eða þannig var það að minnsta kosti í Arnarfirði. Há- marki sínu náði fisggengdin í stríðslokin en hefir síðan íarið hraðminnkandi. Til samanburðar er lærdómsríkt að spyrja Norð- lendinga um það, hve mikinn ár- angur þeir hafi séð af dragnóta banninu þar norðurfrá, DRAGNÓTAVEIÐI, ÞAR SEM SAND- OG MALARBOTN ER Ef rætt er um uppeldisstöðvar þorskfiska, liggur fyrst fyrir að átta sig á því, í hverskonar um- hverfi slíkar stöðvaf mundu helzt j vera, og flestir að líkindum leita þeirra á svæðum þar sem hraun- botn er, en það vita einnig allir, sem ekki eru of fákunnandi til að tala um þessi mál, að enginn óvitlaus dragnótaformaður mundi kasta nót sinni þar sem honum dytti í hug að slíkur botn væri. Engir vita það betur en þeir sem við þessar veiðar fást að tak- ist svo illa til að nót lendi í hrauni ■ má búast við að sjá þá nót ekki aftur, og aldrei væru slík köst nema fánýt tímaeyðsla. Á sama hátt reyna menn einnig að forð- ast af fremsta megni að kasta þar sem nokkur teljandi botngróður er, af þeim einföldu orsökum að þá fyllist nótin af óþrifum svo bæði er illt að ná henni upp og hún er þessi: Hvernig á þá að veiða þessar fisktegundir? Al- kunnugt er að steinbítur sem lagstur er í skel lítur ekki við be’tu. Þessar fisktegundir verða því hvorki veiddar á línu eða handfæri þó menn vildu nota þær gamalkunnu veiðiaðferðir. Til þess að leysa vandann yrði því að finna nýtt veiðarfæri sem kom ið gæti í stað dragnótarinnar, og hver veit nema það þætti einnig hættulegt. Auðvitað er sú lausn til, ef lausn skyldi kalla, að veiða alls ekki þessar fisktegundir, en ef það skildi þá sýna sig að þorsk- urinn margblessaður kæmi samt ekki upp að landsteinunum'þætti kannske einhverjum til lítils fórn að. Til eru þó þeir menn sem áreið- anlega mundu blessa okkur fyrir bjálfaskapinn. Það eru ensku togaraskipstjórarnir, sem einkan- lega að vor- og haustlagi liggja þolgóðir við landhelgislínuna, eða kannske innanvið hana ef umferð er lítil, reiðubúnir að hirða allt það sem þeim er mögu- legt að ná í, af þeim fiski sem gengur í fjörðinn að vorinu og út úr honum að haustinu, þeir kunna að meta kolann, og beir fengu að minnsta kosti vafalaust góða haustveiði, sem við, hinir góðhjörtuðu menn, hefðum ekki brjóst í okkur til að taka frá þeim og kannske heldur ekki þörf fyr- ir. DRAGNÓTAVEIÐI EKKI SKAÐLEGRI EN AÐRAR Ifamótihug iiú éloi geysiverk að hreinsa hana, en þar ! VFlnlAnF-RmR við bætist að á slíkum stöðum er | VEIÐIAÐF«RÐIR enginn fiskivon. Það eru því stinn heimskir menn sem halda að drag nótaveiðimenn verji tíma sínum til þess að böðlast á hraunum eða þvælast í þara, en þar við bætist að dragnótin er ekki slíkt tæki að með henni væri hægt að fram- kvæma stórvægilega röskun á hafsbotni, þó vilji væri til slíkra hluta. Af þessum ástæðum er það að hver og einn dragnótaformað- ur kastar ekki á öðrum stöðum en En eins og ég gat um áður er hér ekki um neitt hégómamál að ræða fyrir akkur Bílddælinga. Við eins og aðrir Vestfirðingar verðum fyrst og fremst að treysta á sjóinn, og staðreynd er það að 60—70% af því aflaverðmæti sem berzt hér á land er veitt í dragnót, og staðreynd er það einnig að einmitt og einungis | dragnótaveiðarnar hafa hin síð- 1 ustu ár gert það mögulegt að þar sem hann veit að er sléttur sand- eða malarbotn, og ekki einu sinni þar sem búast má við mjúk- um leirbotni eða forum, en sam- kvæmt þessu er þá einnig Ijóst mál að það er einungis mjög lítill hluti af víðáttu fjarðanna, a. m. k. hinna stærri, sem talist getur nothæft veiðisvæði fyrir dragnót, og því er það fjarstæðukennd ályktun að dragnótaveiði á svo takmörkuðum svæðum, jafnvel þó skaðleg væri, geti haft úrslita- þýðingu um fiskgöngur eða fisk- uppeldi, að minnsta kosti í eins víðáttumiklum firði eins og Arn- arfjörður er. Og því er það, að þeir menn sem mesta þekkingu og reynslu hafa á þessum veið- um, undrast mjög þær firrur sem haldið er á lofti um þessi mál, en undrast hitt þó enn meira ef slík ar kenningar eiga að metast hærra en álit okkar færustu sér- fræðinga um fiskveiðimál. STEINBÍTUR OG KOLI Lítum svo aðeins á fjárhags- hliðina. Staðreynd er það að þær fisktegundir sem veiðast r drag- nót hér vestan lands eru stein- bítur og koli næstum einvörð- ungu. Hitt er einnig vitað að þess ar vörur eru nú sem stendur beztu gjaldeyrisvörur okkar og ættu því út frá því sjónarmiði varla að geta talist fyrirlitleg framleiðsla. En væru nú drag- nótaveiðar bannaðar með öllu er heita að engin erlend veiðiskip ! eftir að svara einni spurningu, en nokkur fleyta væri hreyfð héðan til vetrarútgerðar, og hafa því, haldið líftórunni í þeirri fátæk- legu útgerð sem héðan er rekin, og það án styrk.ia eða sérstakrar skuldaskilaaðstoðar hins opin-1 bera. Ef dragnótaveiðar yrðu bannaðar má því óhætt slá því föstu, að óbreyttum aðstæðum, að engin fiskbranda kæmi hér á land allan ársins hring. Það þættu máske engin stórtíðindi, en upp af þeim myndi þó vakna sú spurn ing í enn ríkara mæli en nú er, I sem óvíst er hversu auðvelt yrði að svara, en hún er þessi: Á j hverju eiga þá íbúarnir að lifa? Og mér er ekki grunnlaust um að einmitt þessi spurning sé vökn- 1 uð í sumum þeim byggðarlögum, sem blessun dragnótabannsins hefir þegar náð til. Niðurstaðan af þessum hugleið- ingum verður því í stuttu máli þessi: Reynslan hefir engan veg- ! inn sýnt að dragnótaveiði sé skað legri eða hættulegri en aðrar t veiðiaðferðir, og þar eð engin heildarrannsókn eða tilraunir hafa verið gerðar sem sanna slíkt er ótímabært að banna þessar veiðar. Verði hinsvegar slík rann sókn framkvæmd af okkar fær- , ustu fiskifræðingum, og leiði hún það í Ijós að nauðsynlegt sé að banna þessar veiðar, þá og þá fyrst, er shk framkvæmd eðlileg. 1 En þó yrði hún að gerast með það ríflegum fyrirvara, að þau Framh. á bls. 12 * Ólafsfirði, 9. .ian. ’52. í DAG er 9. janúar 1952, norð- anstormur og hríðarveður. Hvergi sér á dökkan díl. Þó er snjór ekki mikill, en fannkoma hefur verið alimikil í dag. Veturinn hefur að vísu verið mildur það sem af er, svo í raun og veru er hægt að segja, að veturinn hafi byrjað hér hjá okkur fyrir alvöru, með komu hins nýja árs. Og svo berast í dag ísfregnir. Óneitanlega virðist :nér veður og allar horfur minna á jan- úarmánuð 1918, en þá kom ísinn og gei;ði hafþök fyrir Norðurlandi, eins og mörgun mun vera í ferSku minni. Man ég, að ég ásamt fleir- um gekk yfir þveran Eyjafjörð utanverðan. Er það býsna sögu- legt að hafa lifað það, að ganga þurrum fótum frá Árskógsströnd til Hríseyjar, og þaðan yfir Aust- urál að Steindyrum á Látraströnd, síðan út með ströndinni að Gríms- nesi, sem þá var næst yzti byggði bærinn austan Eyjafjarðar. Látur var yzsti bærinn, þá búið þar myndar búi. | Nú heyri ég sagt, að allir bæir allt að Svínárósi, sem mun vera á móts við innri enda Hríseyjar, ’ séu eyðijarðir einar. En ástæðan til göngunnar yfir Eyjafjörð ! þveran, á ís, var sú, að sækja I hvalkjöt,'því allmaragir háhyrn- | ingar frekar en höfungar, höfðu króast inni við ströndina, vegna íssins, og fékk margt heimilið málsverð af þeirri björg. Sannað- ist hér greinilega, að eins dauði er annars líf. En hvað sem öllum ævintýrum líður um ísgöngu á Eyjafirði 1918, og skuggalegu útliti þessa dagana, vonast þó vafalaust allir eftir því, að „landsins forni fjandi“ stöðvist við Horn og stingi ekki í álinn í áttina til okkar. Heim- sókn hans hefur vafalaust aldrei verið neinum hugsandi manni kær, enda sú heimsókn að venju ritað sínar rúnir erfiðis og margskonar þrauta á söguspjöld fyrri og síð- ari kynslóða á íslandi, jafnvel þó verði að játa, að börn í æsku eiga sínar „rómantísku“ minningar um kynjaborgir íssins og furðusagnir, sem við þennan gest eru tengdar. Ekki meira um hafís og fortíð. MIKIÐ ATVINNULEYSI Ég sagði víst, að fátt gerðist hér sem í fréttir væri færandi. Þó er alltaf eitthvað að gerast hér eins og allsstaðar, þar sem menn- irnir lifa sínu lífi. Því miður verður að segja þá raunasögu, að hér hjá okkur hefur.ríkt atvinnu- leysi frá haustnóttum og fram til þessa dags. Hefur svo reynst lengst af. Er það ekki sársauka- laust að þurfa að horfa á, ár eftjr ár, fjölda manna hverfa héðan um áramót til fjarlægra staða, í at- vinnuleit, fjölda húfeðra og ann- arra, kvenna og karla, stundum svo að heimilin þarf að leysa upp urn stundarsakir, vegna þess að foreldrar og elztu börnin eru neydd til að hverfa að heiman, af því að ekkert er að gera heirna. T. d. s.l. nýársdag fór héðan áleiðis til verstöðvanna sunnan- lands stór hópur manna. Þegar kirkjuklukkumar hringu til nýárs tíða, var þetta fólk að kveðja ætt- ingja og vini og stíga á skips- fjöl til brottferðar. Ánægjulegra og ákjósanlegra hefði verið að vita af þessu fólki glöðu og ánægðu: heima þennan dag, og eiga mögu- leika til starfs og athafna heima þegar hinir virku dagar ársins opnuðust. Bót er þó í máli þeiru er heima sitja, að mega lifa í von- inni um glaða heimkomu og fær- andi hendur með hækkandi vor- sól. Síðan á nýársdag hafa fleiri horfið að heiman til atvinnu á fjarlægum stöðum, að líkindum hundrað manns *eða fleiri, þegar allir eru farnir. JÓLAHÁTÍBIN OG ÁRAMÓT En þó okkur virðist að þessu leyti skuggi hvíla yfir lífshag manna hér, og forráðamenn og at- hafnamenn hér hafi góðan vilja og glími stöðugt við að leysa þenn- an vanda, þá liðu þó blessuð jólin hjá sem fyrr, ánægjuleg og bless- unarrík fyrir alla. Fjölsóttar messur aila hátíðisdagana, jóla- trésfagnaður fyrir börnin, vina- heimsókr.ir, kvikmyndasýningar og dansleikir fyrir unga fólkið og kannske einhverjir eldri slæðst með. En þannig líða víst jólin alls staðar, a. m. k. þar sem bæir og þorp hafa myndast. Og fyrr en varir rennur síðasti dag- ur ársins upp. Kirkjan kveður gamla árið á sinn venjulega hátt, með guðs- þjónustu, og þegar líður á kvöld- ið, streymir unga fólkið á ára- mótadansleikinn. En hinir eldri sitja máske heima. Þeir eru ekki lengur ungir og kjósa kyrrðina og næðið heima. Kannske erú börnin horfin að heiman og mamma gamla og pabbi sitja ein heima. Má vera að síðustu stund- ir ársins séu þeim dálítið trega blandnar, söknuður grípi hugann. Ef til vill vaka líka í huga þeirra góðar og elskulegar minningar frá einhverju löngu liðnu gamlárs- kvöldi, þegar þau ung og glöð kvöddu gamla árið líkt og unga fólkið gerir þetta gamlárskvöíd. Allt er þetta eðlilegt og sjálf- sagt. Þannig á þetta að vera, og verður að vera. Ög nýársdagurinn rennur upp með nýjar vonir, r.ýja möguleika, ný tækifæri. ■— Sólin hækkar á lofti, dagurinn lengist. Yið og allt berst hægt en þó sva undarega fljótt mót vori og sum- arsól. Er þá ekki hyggilegast að reyna að hrekja allan ótta um ís og erfiði á brott, kjósa heldur lífið, vonir þess, vernd og tækifæri, gera hug^ ann að gróðrar- og ræktunarstöð slíkra hugsana? FISKIÐJUVER, IIOFNIN O. FL. Ég lofaði víst fréttapistli í upþ hafi. En þegar ég fór að kynna mér það sem á pappírinn er kom- ið, komst ég að raun um, að í raun og veru eru hér engar frétt- ir fluttar. I sannleika allt annað en í upphafi var œtlað. Þannig gengur það víst æði oft, að önnur verður útkoman, en upphaflega var stofnað til. En fréttabréf verð ur þetta samt að heita,. og því vil ég bæta þessu við. Heilsufar í byggðarlaginu hef- ur verið gott á liðnu ári. Fyrir jólin var unnið að sandmokstri í höfninni, í atvinnubótavinnu. Ný- lega var stofnað hér hlutafélag, Tilgangur þess er að kaupa og reka Fiskiðjuver Ólafsfjarðar- kaupstaðar. Hafa kaupsamningar þar um verið undirritaðir. Vonir standa til að Ólafsfjarðarhöfn verði lokið á sumri komanda. Það er .gengið að fullu frá lengingu norðurgarðs. Bílvigt hefur verið sett upp í vetur, og ætti því að vera góðir möguleikar á að af- Frsmh. á bU. 11 , ir hundrað á luánuði getið |iið eignasi Rilsafn Jóns Trausfa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.