Morgunblaðið - 24.01.1952, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.01.1952, Blaðsíða 10
10 MORGUISBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. jan. 1952 * „GULLFAXr6 REYKJAVÍK - ÖSLÓ Flugferðir verða farnar til Óslóar 29. janúar og 12. febrúar. Nokkur sæti eru enn laus. Væntanlegir farþeg- ar eru beðnir að hafa samband við skriístofu vora sem fyrst. vfestur um land i hringferð hinn 28. þ.m. — Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Þórshafnar síð- degis í dag og á föstudaginn. — Farseðlar seldir árdegis á niánudag- inn. — M.s. Herlubreið austur til Eskifjarðar hinn 29. þ.m. Tekið á móti flutningi til áætlunar- hafna á morgun. Farseðlar seldir á mánudag. — FYmliggjandi: D Ö 0 L U R í pékkom IIIJ S S W U R steiiifaiBsar heldurAÐALFUND sunnudaginn 27. janúar kl. 3 e. h. í Breiðfirðingabúð. Venjuieg aðalfundarstörf. STJÓRNIN Armann til Vestmannaeyja 1 kvöld. Vörumót- taka í dag. — Fullur kassi ú kvdldi hjá þeim sem aufgiýsa s Morgunblaðinu SAMANBUBBUB Á KEXVEBK Þar sem nú er komið á markaðinn erlent kex, þá viljum vér ekki láta hjá líða að benda NEYTENDUM á þann mikla verðmismun sem er á erlendu og innlendu kexi CREAM CRACKER CREAV8 CRACKER KREIVSKEX KREfVfKEX FRAMLEITT AF OKKUR KOSTAR í SMÁSÖLU KR. 15,50 PR. KÍLÓ. ÚTLENT KOSTAR í SMÁSÖLU KR. 38,00 PR. KÍLÓ. FRAMLEITT AF OKKUR KOSTAR í SMÁSÖLU KR. 15,15 PR. KÍLÓ. ÚTLENT SAMSKONAR VARA KOSTAR í SMÁSÖLU KR. 36,60 PR. KÍLÓ. Samkvæmt þessum verðsamanburði er verð á erlendu kexi frá 142—145% hærra en á sambærilegri innlendri framleiðslu. Vér beinum því þeim tiimælum TIL NEYTENDA að þeir gjöri ýtarlegan samanburð á verði innlendra og erlendra kextegundi sem nú eru á boðstólum. Kexverksmiðjan Frón h.f. Kexverksmiðjan Esja h.f. Minningarorð Sigurðardéílur ÞRIÐJA janúar s.l. fór fram hér í höfuðborginni jarðarför K.atrín- ar Sigurðardóttur frá Hólmum í Austur-Landeyjum. Hafði hún látizt jólanóttina 24. des. s.l. — Þessarar merku konu er mér bæði ljúft og skylt að minnast með nokkrum orðum. Minning- 1 arnar um góðan mann eða konu eru vissulega eitt af því bezta og þroskavænlegasta, sem lífið á og geymir. Katrín heitin var fædd að Eorgareyrum í Eyjafjallasveit 17. marz árið 1857. Var hún því tæpra 95 ára að leiðarlokum. — 'Láfdagur hennar verður og enn lengri, þegar þess er gætt, að þungbær lífsreynsla og umsvifa- mikil störf voru löngum við hann bundin. Foreldrar Katrínar voru þau hjón, Sigurður Sigurðsson og Dýrfinna Kolbeinsdóttir, búandi að Borgareyrum og síðar að Hvammi undir Eyjafjöllum. Var Katrín tvíburi við systurina Mar- grétu, sem lézt að Litlu-Hildisey í Austur-Landeyjum fyrir fáum árum, einnig á tíræoisaldri. Alls áttu þau hjón, Sigurður og Dýr- finna, fyrir 10 börnum að sjá. j Voru þau atorkumenn, sem létu sitt ekki eftir liggja við að sjá farborða sér og sínum. En þung- ur var vissulega róðurinn flest- um barnmörgum hjónum á þeim tímum. Og með því að Katrín heitin var eizt í systkinahópnum — ásamt tvíburasysturinr.i — mun hún ung hafa lært að beita hug og hönd bæði úti og inni. 21 árs að aldri tók hún við húsmóðurstöríum hjá föðurnum eftir andlát móðurinnar. Hafði hún þau á_ hendi um nokkurra ára skeið. Á árunum, þegar hug- urinn horfir og þráir mest út í lífið, varð hennar hlutverk það, að takast á hendur bústjórn og ganga yngri systkinum í móður- stað. Gjörði lífið þannig óvenju- lega snemma ríkar kröfur til starfshæfni hennar og fyrir- hyggju. Þurfti hún og síðar meir öðrum fremur á þessu tvennu að halda. Árið 1882 giftist Katrín Gunn- ari Andréssyni frá Hemlu í Vest- ur-Landeyjum. Var hann grein af sterkum bændastofni, sem lengi hefur gjört þann garð frægan. — Reistu þau hjón fyrst bú að Háfshóli í Ásahreppi. Skömmu síðar fluttust þau að Kúfhóli í Austur-Landeyjum. Þar áttu þau dvöl og búrekstur um 15 ára skeið. Síðar bjuggu þau í 20 ár að Hólmum í Austur-Landeyjum og voru löngum við þann stað kennd. Lauk svo 40 ára samvist- um þeirra 31. júlí 1921, er hanri bar þar beinin. Margir voru þeir, sem þekktu „Hóimaheimilið" í tíð þeirra hjóna, Gunnars og Katrínar. Enn hvílir alveg sérstakur bjarmi yf- ir því nafni í minningum almenn- ings þar eystra. Heimilið var stórt og umsvifamikið. Sveitafé- lagið átti þar um áratugi horn- stein, sem óhætt var að treysta. — Gestrisni þess og létt viðmót leiddu og margan að garði. Þar mættust og féllu saman á heil- brigðan hátt straumar hins nýja og gamla tíma. Hann var hinn atorkusami búhöldur og forsjár- maður, þar á meðal hreppstjóri um tæpra 30 ára skeið. Hún aftur á móti inn á við, hin sívakandi og vinnandi húsfreyja og mikla móðir. Það Var því ekki án verð- skuldunar, að samferðamennirnir lýstu bústað þeirra með orðinu ,;fyrirmyndarheimili“. Eftir fráfall Gunnars heitins tók Magnús sonur þeirra hjóna við búi að Hólmum. — Dvaldist Katrín þar hjá honum um tveggja ára skeið. Að þeim liðnum flutt- ist hún ásamt honum til Vest- mannaeyja. Settist hún þá að hjá Dýrfinnu dóttur sinni og manni hennar, Páli Bjarnasyni skóla- stjóra. Átti hún þar 15 ára dvöl hjá þeim hjónum, eða unz tengda sonur hennar lézt fyrir aldur fram 5. des. 1938. Næsta ár fluttist hún svo ásamt Dýrfinnu dóttur sinni til Reykja- víkur og átti hér samvistir við hana alveg fram á banadægrið. Þau urðu 10 börnin, sem lífið gaf þeim hjónum til að annast og unna. Af þeim eru 5 þegar gengin til grafar: 1. Kolbeinn, dó í barnæsku. 2. Sigurður, drukknaði í Vest- mannaeyjáhöfn 1917, 33 ára að aldri. 3. Oktavía, lézt 30 ára sem húsfreyja í Hallgeirsey. 4. And- rés og 5. Ólafur, sem dauðinn kvaddi úr foreldrahúsum, annan 14 og hinn 20 ára að aldri. Eftirlifandi börn þeirra hjóna eru: 1. Dýrfinna, ekkja Páls Bjarna- sonar skólastjóra. 2. Guðrún, síð- ari kona Guðjóns hreppstjóra í Hallgeirsey. 3. Magnús, bóndi í Ártúnum, kvæntur Auðbjörgu Guðlaugsdóttur frá Vestmanna- eyjum. 4. Katrín, gift Arthur Aanes, vélstjóra, Reykjavík. 5. Andrés, vélsmíðameistari, Reykja vík, kvæntur Aðalheiði Magnús- dóttur frá Patreksfirði. Þótt orð væri á gjört var naum- ast ofsögum sagt af vænleik og glæsileik barnahópsins í Hólm- um á síðari búskaparárum þeirra hjóna, Gunnars og ICatrínar. Öll voru þau systkin og eru atorku- og mannkostamenn. Eiga því samferðamennirnir margs um þau að minnast. Og vafalaust var Ffatrín heitin þakklát honum, sem lífið geíur, fyrir börnin sín og annan auð, sem hún fékk að r.jóta. En óneitanlega var henr.i úthlutað þungbærri reynslu ásarnt hinum míklu gjöfum. Þeg- ar sonurinn drukknaði og tengda- sonurinn lézt — báðir á blóma- skeiði — fundu Vestmannaeyjar til. Þegar dóttirin, Oktavía, féll frá í fyllsta blóma lífs síns, drupu Landeyjar höfði í sorg. Þessi og önnur tilfelli hins þungbæra ást- vinamissis hafa vafalaust gengið nærri hinu viðkvæma móður- hjarta. En Katrin heitin var ein af þeim, sem vaxa við raunirnar, sem hvergi láta bugast, hvorki í starfi né sorg. Hún átti svo mikla útsýn yfir lífið, að dauðinn gat aldrei svipt hana neinu til fulls. Trúin gaf henni þá líísfyllingu og þann styrk, er þurfti til þess að taka því, sem að höndum bar. Vini eignaðist Katrín heitin marga og víðsvegar. Hún var kona vinföst og trygglynd, en þó hreinskilin og hispurslaus við hvern, sem hún átti. Skapgerð hennar var ör og viðkvæm og brautir hennar beinar gagnvart mönnum og málefnum. Eingin- manni og börnum gaf hún allt sitt bezta, hjarta, hug og hönd, og það voru miklar gjafir. Margir fleiri nutu og góðs af hugulsemi hennar og hjartahlýju. Þeir, sem urðu fyrir áföllum og andstreymi, áttu samúð og athvarf hjá henni. Hún var sérstakur vinur mál- leysingjanna, hafði yndi af ná- vist þeirra og skildi glöggt allar þarfir þeirra og kröfur. Munu fáir samferðamannanna hafa borið þá jafn ríkt fyrir brjósti. Næmleiki hennar birtist og í rík- um fegurðarsmekk. Hún undi ekki nánasta umhverfi sínu nema þar væri allt snyrtilegt og fágað. Ólærð var hún hannyrðakona svo að af bar. Og þótt stjórn- semi, starfshneigð og atorku bæri hátt í athafnalifi hennar, átti vandvirknin, hagleikurinn og hagsýnin þar þó æðstu völdin. Þótt sjaldan væri tóm til, hafði Katrín heitin mikla ánægju af lestri góðra bóka. Hún naut þess að fræðast og fylgjast með því, sem var að gerast. Minni hennar var trútt og hugsunin skýr alveg fram á efstu árin. Mestu hugðar- efni hennar voru eilífðarmálin. Þau stóðu ávallt hjarta hennar næst. Og við birtuna frá þeim var henni ljúft að starfa, njóta, stríða og þreyja. Ekki sízt þess vegna varð henni svo mikið ágengt í þjónustunni við lífið. . Við þökkum þessari merku Framh. á bls. 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.