Morgunblaðið - 02.03.1952, Qupperneq 16
1
VeMflif í dag:
Allhvass eða hvass NA.
Bjartviðri.
Reykjaiiliriréf
Sjá fel*.
leilnf-lskidiigMf
um félögum sínum
íkú drukknun
Kynningarkvöid Varðar í Sjálf-
stæðishúsinu annað kvöld
Togari þeirra sökk eftir árekstur
Peir einir komost láfs af
„Opið hús44 fyrir meðlimi
og allf Sjálfstæðisfólk
* ,
Athyglisverð nýbreytni í féiagslífinu . j
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUÉ hyggst að taka upp þá ný-
breytni 'í--félagsstarfseminni að jiafa við og við kynningarkvöld f
Sjálfstæðishúsinu til þess í senn að efla félagssamtökin og stuðia
að auknum ög nánari kynnum meðlimaniia. Öllu Sjálfstæðisfólki eg
jafnffamt heimill aðgangur að þessum kynningarkvöldum.
-------------------«>
ROBERT Þorvaldsson, 28 ára
gamall Vestur-íslendingur,
bjargaði nýlega f jórum mönn-
um frá drukknun, er togáí'I
þeirra sökk eftir árekstur í
innsiglingunni til Boston.
Robert Þorvaldsson er son-
verji á togaranum Ballard frá
Boston. Ballard fór ásamt tog-
aranum Lynn á veiðar frá
Boston í þéttri þoku. Lynn
fór á undan. Er komið var
nokkuð út í Bostonflóa, sigldi
olíuflutningaskip fram hjá
Ballard einnig á útleið. Fimm
mínútum síðar kemur togar-
inn Ballard að þeim stað er
olíuflutningaskipið hafði siglt
á togarann Lynn með þeim
afleiðingum að hann sökk.
Vél Ballards var stöðvuð og
áhöfnin reyndi eftir beztu getu
að ná til áhafnarinnar af Lynn
sem var á sundi á slysstaðn-
um.
Robert Þorvaldssön gekk
mjög vel fram við biörgun
ina. Þeir skipverjar á Bailard
sáu ekki til mannanna í sjón-
um vegna þokunnar, en sigldu
á hljóð þeirra og komu um
síðir auga á f jóra þeirra. Þeir
voru aðframkomnir og að því
komnir að láta bugast og eng-
inn tími var til að setja út
bát. Robert bað þá skipsfélaga
sína að halda í fætur sér og
þannig teygði hann sig niður
til helkaldra mannanna í sjón-
um og dró þá" um borð. Tveir
þeirra manna, er Róbert náði
til létust síðar.
Robert Þorvaldsson er son-
ur Jakobs Þorv^ldssonar og
konu hans, er búa í Boston.
Robert var í sjóliðinu á stríðs-
árunum, en hefur síðan stund-
að fiskveiðar ci‘ V og faðir
hans og gerði.
Réðist Robert fyrst á tog-
arann Lynn, en. skipti um
skipsrúm fyrir sl.ömmu. Varð
hann því til, þess að bjarga
fyrri skipsfélögum sínum.
Róbert Þorvaldsson.
tcéi í sjúkling í
tíispél í vondu veðri
REYKHÓLUM, 1. marz. —Björn
Pálsson, flugmaður, kom hingað
til Reykhóla í dag og sótti sjúk-
Jing, sem þurfti til skurðaðgerð-
ar.
Veðrið hér var mjög slæmt, 7—
:8 vindstig á norðaustan, skafrenn
ingur og þétt hríðarél. Lending
og flugtak tókst samt vél. — L.G.
Hvsrnig bsta má úr
umferðarörðug-
leikunum
Svörl hæna
máluðhvlt!
HALLDÓR KILJAN segir í
samtali við blað kommúnista,
að hann hafi aldrei verið í
kommúnistaflokki!! Hins veg-
ar hafi hann ’gengið í „Sam-
einingarflokk alþýðu — sós-
íalistaflokkinn“ þegar hann
var stoínaður.
Skáldinu í Gljúfrasteini
nægir það með öðrum orðum,
að svört hæna sé máluð hvíí.
Þá trúir hann því að hún hafi
komið hvít úr egginu!!
Á öllu íslandi mun nú eng-
inn maður, sem almennara
er gert grín að en Halldór
Kiljan. Um samtal hans og
yfirlýsingar í „Þjóðviljanum“
er rætt nokkru nánar í Reykja
víkurbréfinu í dag.
Sjálfstæðishúsið hefur að jafn«
aði ekki verið notað til veitinga-*
starfsemi og samkomuhalds á
mánudagskvöldum. Fundir Sjálf-
stæðisfélaganna hafa þá öðrui
fremur verið á mánúdögum |
húsinu.
: i
„OPIÐ HÚS“ j
Sé Sjálfstæðishúsið nú ekki
notað til fundahalds á slíkura
dögum, er ætlun félagsstjórnar-
innar, að þá sé þar, — ef svcS
mætti segja — „opið hús“ fyrig
Varðar-félaga og annað Sjálf-
stæðisfólk til aukinna kynna og
nánara samstarfs.
„Programmið“ er fyrst og
fremst að hittast og kynnast. Aðj
sjálfsögðu geta menn fengið sér
kaffibolla eða aðrar veitingar
meðan Jtnenn rabba saman. Mena
geta líka haft meðferðis spil 3
vasanum og tekið eina eða tvær
rúbertur við kunningjana.
Á þessu fyrsta kynningarkvöldi
á mánudaginn, verða einnig
sýndar kvikmyndir úr félags-
starfseminnL
Námslánasjóðjirstúdenfa mun
slls lána 500 fsús, kr. á ári
StarfsregSur sjóðsins ákveðnar
í LÖGBIRTINGABLAÐI því, er út kom í gær, er birt í heild reglu-
gerð hins nýstofnaða launasjóðs stúdenta. Úr sjóði þessum skal
veita íslenzkum stúdentum við háskólann námslán. — Lánin skulu
veitt tvisvar á ári. Heimilt er að veita stúdentum að láni úr sjóðn-
um, allt að 5000.00 krónur árlega.
STJÓRN SJÓÐSINS ♦---------------------------
Önnur grein reglugerðar sjóðs-
ins fjallar um stjórn hans, en
hún skal skipuð fimm mönnum:
tveim tilnefndum af háskólaráði,
tveim af stúdentaráði háskólans,
x>g menntamálaráðherra,/ skipar
einn án tilnefningar. — Mennta-
málaráðherra skal og skipa for-
mann sjóðsstjórnar, úr hópi
Ætjórnenda. í varastjórn er sömu
aðilar tilnefna skulu vera fimm
menn.
NÁMSLÁNIN
Um veitingu námslána segir
meðal annars svo í reglugerð-
inni: Sé eigi unnt að fuilnægja
öllum lánabeiðnum, skulu þeir
stúdentar ganga fyrir að öllu
jöfnu, sem lengst eru komnir í
námi, eða eru að búa sig undir
meiri háttar próf. — Við veit-
ingu lána verður tekið tiilit til
efnahags umsækjenda og hæfi-
legs námstíma hans. Lánaveit-
ingar fara fram tvisvar á ári, í
nóvernber og marz.
ENDURGREIÐSLA
LÁNANNA
Sérstök grein fjallar um
greiðslu lánanna. — Stúdentar
skulu eigi greiða vexti meðan á
námstíma stendur, en greiða
iánin upp með jöfnum afborgun-
um og 3y2% á tíu árum. Skulu
vaxtagreiðslurnar og afborganir
af lánunum hefjast þrem árum
eftir að námi lýkur.
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn, var Jagt fram
bréf umferðarnefndar, varðandi
athugun á möguleikum þess að
bæta úr umferðarörðugleikum
þeim á Lækjartorgi, er stafa af
bækistöð strætisvagnanna þar.
í bréfi umferðarnefndar er bent
á Ieið til þess að bæta úr þessu.
Eru tillögur nefndarinnar þær að
stiætisvagnarnir verði fluttir af
^Lækjartorgi inn á svæði vestan
, við Arnarhólstún. Það á að mynd
ast þar, við fyrirhugaða fram-
lengingu Lækjargötu, norður yfir
jLækjartorg og síðan norður Kalk-
ofnsveg.
Únlitaleiklr í Há-
logalandi í kvöld
1 KVÖLD kl. 8 fara fram í í-
þróttahúsinu við Hálogaland úr-
slit í keppni meistaraflokks karla
á handknattleiksmeistaramóti ís-
Jands.
í B-deild keppa Afturelding og
FH um sæti í A-deild næsta árs,
en í A-deild fer fram keppni Ár-
manns og Vals um efsta sælið og
íslandsmeistaratitiiinn 1952. Má
þar búast við mjög skemmtileg-
um og spennandi leik.
nyju
HELLISHEIÐI varð aftur ófær í
gær, en þegar veðurfar batnaði
hófst Vegagerð ríkisins þegar
handa um að rvðja veginn og vat'
því verki nýlokið. — Tepptist
leiðin nú aftur vegna skafrenn-
ings.
Um klukkan 6 í gær voru 26
bílar fastir á heiðinni. — Sendi
vegagerðin þegar ýtur þeim til
aðstoðar, og í gærkvöldi voru
allir bílarnir komnir ofan af
heiðinni.
Engin skipsferð iil
Akraness í þrjá daga
ENGIN skipsferð hefir verið til
Akraness þrjá undanfarna daga,
vegna þess að vél „Andeyjar“,
sem annazt hefir ferðirnar síðan
Laxfoss strandaði, bilaði og við-
gerð ekki lokið.
Flutningar allir hafa því farið
fram með bílum. Ennþá er allt í
óvissu með, hvernig gapga muni
að fá nýtt skip i stað Laxfoss.
Badmlntonkeppnin
_ INNANFÉLAGSMEISTARA-
MÓT Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur heldur áfram í dag
kl. 2 í íþróttahúsinu við Háloga-
land, en fyrri hluti mótsins fór
fram s.l. miðvikudag.
Alls eru eftir 17 Ieikír, bæði
einliða- óg tvíliða-leikir karla og
kvenna og einnig tvenndar-
keppni.
Nýr bókamarkaður í
Lisfamannaskál-
anum
NÝR bókamarkaður hefst í Lista-
mannaskálanum á morgun kl. 2
e. h. og stendur til föstudags-
kvölds. Standa þeir Árni Bjarnar
son, bóksali á Akureyri og Egill
Bjarnason, bóksali í Reykjavík,
fyrir markaði þessum.
Eru þarna á boðstólum á 4.
hundrað bækur, sem allar eru
seldar með niðursettu verði. —
Fjölmargar eru seldar á hálfvirði
og nokkrar með allt að 80% af-
slætti frá upprunalegu verði.
Bókamarkaður þessi hefir áð-
ur verið á Akureyri og gekk þar
mjög vel. Einnig mun hann hald-
inn víðar á landinu. Gefin hefir
verið út skrá með á 4. hundrað
bókum. Allar þær bækur verða
seldar í bókaverzlunum hvar sem
er á landinu me.ð hinu lækkaða
verði til loka marzmánaðar.
íjölda hárra vinninga þar á meðal
7S þús. kr. hefur ekki verið vitja
& i
KVIKMYNDIR ÚR
FÉLAGSSTARFINU
Þar er af nokkuru að taka, þvl
að undanfarin ár hafa við og viði
verið kvikmyndaðir ýmsir þætt-
ir úr flokksstarfseminni. Verða
sýndir þættir frá vígslu Sjálf-
stæðishússins 1946 — frá 20 ára
afmæli Heimdallar 1947 — frá
þingi Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna 1947 á Akureyri ■—■
frá héraðsmótinu og alþingis-
kosningum 1949 — frá 25 ára af-
mæli Varðar 1951 o. fl.
Sem sagt — það er „opið hús11
í Sjálfstæðishúsinu fyrir Varðar-
menn og annað Sjálfstæðisfólk,
annað kvöld.
Tilgangurinn er fyrst og fremstl
að hittasi og að kynnast og á
þann hátt að styrkja félagsbönd*
in. —•
I LÖGBIRTINGABLAÐINIT,
sem út kom í gær, er birt skrá
yfir vinninga í Happdrættis-
láni ríkissjóðs, sem ekki hef-
ur verið vitjað.
Hér er um mikinn fjölda
vinninga að ræða, bæði í A- og
B-flokki. — Meðal þeirra er
einn 75.000 króna vinningur í
B-flokki, sem kom upp á miða
nr. 4561, er dráttur fór fram
15. janúar 1850.
Þá eru ósóttir tveir 15 þús.
kr. vinningar, fimm 10.000 kr.
vinningar og scx 5 þús. kr.
vinningar.
Fjölda 2000 og 1000 kr.
vinninga hefur ekki verið
vitjað, svo og 500 króna og
250 króna vinninga.
Þeir sem þátt taka í Happ-
drættisláninu ættu að kynna
sér þessa skrá í Lögbirtingi.