Morgunblaðið - 14.03.1952, Page 10

Morgunblaðið - 14.03.1952, Page 10
10 MORGUNBLAÐiB Föstudagur 14. marz 1952. J Framhaldssagan 31 þjónustufólkið snýr sér til þegar eitthvað bjátar á. Ef ég er fyrir, og þér viljið að ég fari, þá skuiuð þér segja til“. „Herra East, Jim“. Stoneman baðaði út höndunum með skelf- ingarsvip. „Þið vitið hvorugir hvað þið eruð að tala um, Þetta eru erfiðir dagar, en þið verðið að hafa stjórn á ykkur. Jim, þú verður að biðja hena East af- sökunar. Hann hefur verið okkur cllum til hjálpar. Við þörfnumst aðstoðar hans“. „Afsakið", sagði Morey lágt. „En hvað í ósköpunum á ég að gera?“ „Spurðu herra East hvað hann ráðleggur. Ilann veit meira um háttu þjónustufólksins en þú. Farðu að ráðum hans. Þú munt ekki iðrast þess“. Morey yppti öxlum en honum var þó tæplega runnin reiðin. ,,Eg bið yður herra East að vera kyrr hér og hjálpa okkur út úr þessum vanda.“ „Jú, sjálfsagt. Ég skal gera það sem í mínu valdi stendur. En þið vitið eins vel og ég að þið fáið enga stúlku héðan úr nágrenninu og tæplega nokkurs staðar annars staðar. Ef til vill væri hægt að fá stúlku frá New York, en senni- lega mundi hún koma sér burt eftir einn eða tvo daga. Einhver þeirra niðri í Cretwood mundi s.iá til þess að hún fengi að heyra sólarsöguna“. „Þér virðist r.okkuð öruggur um það að Florrie muni ekki koma aftur“. ,,Eg held að Florrie komi ekki aftiy og ég efast um að hún sé á lífi. Þér verðlð að viðurkenna að útlitið er ekki glæsilegt“. „Já, en ekki er þetta mér að kenna. Frú Lacey velti um olíu- lampa. Það var Davenport að kenna. Og ennþá vitum við ekk- ert um Florrie." „Ég byrjaði Mark. Hann ætlaði að segja frá rifvildinu um ruslafötuna, en hætti við bað. „Nei, Violet verður að fá hjálp og reyndar held ég að ég viti hvaðan ég get útvegað hana. En ég verð að fá samþykki konu yðar fyrst“. „Það et> ekki hægt. Hún getur ekki tekið á móti heimsóknum'1. | „Og ég skal gefa yður annað gott ráð, enda þótt þér hafið ekki ■ leitað þess. Og það er að konan . yðar er bezt komin á sjúkrahúsi". | „Nei“, sagði Morey. „Hún hress ist fljótlega. Ef hún aðeins or lát- in í friði. En hvers vegna þurfið 1 þér hennar leyfi? Er ekki nóg að ég gefi mitt samþykki?“ „Ef til vill. Ég ætla að hugsr mig um. Nú ættum við að fara og taka þátt í leitinni'*. Stoneman ræskti sig. ,.En hvað um jarðarför frú Lacy. Verðum við ekki að vera viðstödd þar? Þetta er allt á ringulreið**. „Ég skal hringja til ungfrú Pond og skýra þetta fyrir henni“ sagði Mark. ,,Ef Violet vill fara, þá getur hún bað ‘. Perrin kom hljóðlega inn. „Þeir hafa fundið hattinn hennar**, sagði hann. „Á stígnum fyrir framan hús ungfrú Pett.y". „Ég ætla að fara og hr:ngja“, sagði Mark, og gekk út. „Hver ræður hér“, sagði Morey og blístraði um leið og Mark \ar farinn. „Það geri ég“, sagði Stoneman, „og gleymdu því ekki, kunnirgi. Og vel á minnst, sendir þú blóm- in til frú Lacev frá mér með nafnspjaldinu? Þakka þé” fyrir, Jim. Þú ert hugulsamur. Ég skal g/pra það sama fvrir þig einhvern tfmann seinna." Hann stóð upp og gekk brosandi út. Símastúlkan í Bear River sagði Mark að ungfrú Pond væri ekki heima en Patridge tæki við skila- boðum til hennar. Hún gaf hon- um því samband við Amos. Bessy og Beulah höfðu verið um nóttina yfir frú Lacey ásamt fleiri kunningjum hennar, sagði Amos. Þær voru þar ennþá. Gat hann gert cokkuð fyrir hann? Mark bað hann að segja Beulah að hann rnundi koma síðar um daginn cða kvöldið. Hann ætlaði að segja b.onum frá hvarfi Florrie en Amos haíði heyrt það. Ella I Mav hafði frétt það frá frænda sínum í Bear River, en hann hafði séð leifarmennina fara af stað. I Amos hcfði beðið Ellu May að segja ekki Bessy eða Beulah frá bví fyrr en að jarðarförinni lok- inni. Mark bað hann að afsaka fjar- veru Morev og fólks hans við venzlafólk frú Lacey. 7. KAFLI Mark fór út ásamt Morey og Stoneman o? þeir slógust í för með leitarmönnu"um. Þeir leit- uðu unp eftir hhðinni en fundu ekkert. Einu sinni leit Mark upp að húsinu og sá hvar frú Morey stóð við glu^gann og horfði út. Hann veJti því fyrir sér hvaða huemvndir hún eerði séf um þetta. Hafði henr’ verið sagt allt eins og var? Eða höfðu þeir talið henni trú um einhveria vitleysu til að valda he.nni ekki áhyggj- um? Líklega hafði sannleikanum verið haldið leyndum fyrir henni. Ef til vill fann hún það á sér núna að eitthvað alvarlegt hafði komið fyrir, eins og í fyrra skipt- ið, þegar hún hafði komið inn í herbergi hans og tilkynnt honum að einhver væri dáinn. Honum var kalt og ónotalegt þegar þeir fóru heim til að snæða hádegisverð. Violet fékk leyfi til að gefa leitarmönnunum frá Bear River sem hún þekkti, að borða í eldhúsinu. Henni var líka gefið leyfti til að fara og vera við jarð- arför frú Lacey, en hún afþakk- aði. Morey sagði að kona hans virt- ist vera að reyna að rífa sig upp úr doðanum. Hún var farin að tala um flutningavagna og lest- ir. „Ég er sjálfur orðinn leiður á þessum stað“, sagði hann. „Ég held að hún vilji fara suður á bóginn með börnin. Mér er sama hvert ég fer, bara ef ég kemst héðan“. „Veit frú Morey um Florrie?" spurði Mark. „Vissulega ekki. Við vitum ekk ert heldur. Hvers vegna spyrjið þér að því?“ „Ég var bara að velta því fyrir mér. Stoneman talaði líka um það að þið munduð flytja fljót- lega“. Stoneman var staðinn upp frá borðinu og farinn út. „Ég vissi ekki að það væri almennt ákveð- ið“. „Það hefur heldur ekki verið það. Hann hefur líklega verið að tala við Lauru. Þegar hún fær einhverja flugu í höfuðið, þá kemst ekkert annað að. Hún hef- ÆVINTÝRI MIKKA IV. Gíroldi Eftir Andrew Gladwin 28. — En hvernig stóð á því, að þér breyttust í Gíralda? spurði einn dýrafræðingurinn kurteislega. Hans hávelborinheit, borgarstjóri Spörvaborgar virti spyrj- andann fyrir sér og sagði með semingi: — Þessi galdranorn breytti mér í Gíralda. Hún kom að mér í tjaldinu mínu, þar sem ég stóð fyrir framan spegil og dáðist að sjálfum mér. Iíún ávítaði mig fyrir sjálfselsku mína og misgerðir við íáíækt og fáfrótt fólk. Síðan fór hún að tauta eitthvað óskiljanlegt þrugl, pataði með höndunum í allar áttir og áður en ég vissi af var ég orðinn áð Giralda. Herrar mínir, það sem á eHir fór vitið þið. Ég mun láta mér þetta að kenningu verða, það sem eftir er ævinnar og ætíð minnast þess. — Þetta verður okkur öllum lærdómsríkt, sagði prófessof Árbakki og mælti íyrir munn allra viðstaddra. Herra Ágúst Puttli sneri scr nú að Mikka og tók hlýlega í hönd hans: — Ég mun aldrci.geta fullþakkað þér, sagði hann, fyrir að hafa gefið mér lakkrísborðana og þannig leyst mig ú-r álögunum. Þótt ótrúlegt sé, þá þótti mér lakkrís aldrei góð- ur, en hér eítir mun mér þykja hann hið mesta hnossgæti. Ég hef ákveðið að hafa framvegis alltaf lakkrís í vösum mínum — svona til að minna mig á. .. . Og ef einhver ykkar á leið um Spörvaborg, þá verður mér það mikil ánægja að taka á móti honum sem bróður. Dýrafræðingarnir þyrptust nú í kringum borgarstjórann til að óska honum til hamingju með frelsið og spyrja hann kurteislegra spurninga um það hvernig honum hefði liðið þegar hann var Gíraldi. Það tók þess vegna enginn eftir því, þegar Mikki læddist á bak við nálægan runna og lagði af stað í áttina til árinnar og síns kæra Víkingaskips. Síðar þegar Mikki var að leita að stað tif að leggja að og borða kökurnar sínar og drekka gosdrykkinn, þá minntist hann þess, að prófessor Árbakki hafði gleymt að sæma hann hinum tvöföldu verðlaunum fyrir að hafa fangað Gíraldann fyrir klukkan 4. — Nú, en auðvitað hafði prófessorinn um svo margt að hugsa, sagði Mikki við sjálfan sig. Og svo var Gíraldinn alls ekki Gíraldi, þegar til kom! Endir sögunnar „Gíraldi“ Hnefdeikamót ÁRIIAl verður háð í íþróítahúsinu við HÁLOGALAND í kvöld (föstudag) 14. marz kl. 8,30. Keppendur verða í 22 í 10 þyngdarflokkum. Aðgöngumiðar fást í Hellas, hjá Lárusi Blöndal, Bókaverzlun Isafoldar og við innganginn, ef eitt- hvað verður óselt. Seíjum ■ dag eiiirfermingarkjóla Verð frá 250,00 - 595,00 FföEbreytt úrval QJtfoss íá trœ ti Höfum nú aftur fyrirliggjandi hinn vinsæla n rr olíubæii og mælitæki „Redex“ olíubætirinn ver vélina sliti, sótthreinsar. bætir ganginn og sparar eldsneytið. Reynið einn brúsa. og þér munuð sanníærast um gæðin. Bifreiðavöruverzlun Friðriks Berfeisen Hafnarhvoli — Sími 2872. í Sundhöllinni tilkynnir: Fjögurra kílóa þvottur þveginn og þurrundinn, kostar kr. 17.60. Getum bætt við okkur blautþvoti. Tökum einnig Iitla þvota. • SÍMI ÞVOTTAHÚSSINS ER 6299. jrnæði til lUar | ca. 100—130 ferm., óskast til leigu. — Þarf að $ vera sem næst Miðbænum. — Upplýsingar í síma 7667.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.