Morgunblaðið - 14.03.1952, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.03.1952, Qupperneq 12
Veðurúílil I dag: SA kaldi eða stinningskaldi, dálítil rignin? eða súW. 61. tbl. — Föstudagur 14. marz 1952. HANDRITIN verði afhent. Sjá grein á bls. 6. Kostnaður við æðstu stjórn landsins tæp- lega 440 þús. króna i Handhafar forselavekb skipta i mánaðarlaunutn forseta milli sín Á FJÁRLÖGUM ársins 1952 er gert ráð fyrir að kostnaður við ceð.stu stjórn landsins, forsetaembsettið verði samtals 438 þús. kr. tar af eru laun forsetans áætluð rúmlega 91 þús. kr. — Til þess »ð halda uppi risnu á forsetasetrinu eru veittar ”0 þús. kr. og til íerðalaga forsetans 5 þús. kr. i ANNAR KOSTNAÐUR FORSETAEMBÆTTISINS Annar kostnaður við forséta- embættið er 57 þús. kr. vegna skrifstofu forsetans í Reykjavík, en hún er eins og kunnugt er í Alþingishúsinu. Þá er bifreiða- kostnaður 92 þús. kr. og kostnað- tir við forsetasetrið að Bessastöð- um 115 þús. kr. Kostnaður vegna Bessastaða- kirkju er áætlaður kr. 7500 á árinu. LAUN VARAFORSETA Þegar forseti Sameinaðs Al- þingis, forsætisráðherra og for- seti hæstaréttar fara með for- ketavald skiptast hin venjulegu forsetalaun í þrjá jafna hluta milli þeirra. Þeir skulu einnig fá greiddan úr ríkissjóði útlagðan kostnað við að gegna forseta- embætti. Samkvæmt 1. nr. 37 frá 1944 skulu grunnlaun forsetans vera 50 þús. kr. En á þau ber að greiða fullar verðlagsuppbætur samkv. þeim reglum, sem um slíkar upp- bætur gilda á hverjum tíma á laun opinberra starfámanna. Forsetinn er undanþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum. — Sú undanþága mun þó ekki ná til hinna þriggja handhafa forsetavaldsins. á FLÓTTA BELBRAD, 13. marz. — í dag lenti rúmensk vélfluga á flug- velli fyrir utan Belgrad. Kom á daginn, að með henni voru 4 rúmenskir liðsforingjar og 2 lið- þjálfar allir í einkennisbúning- u;n. Höfðu þeir flúið land og leituðu nú griðastaðar í Júgó- Slafiu. Breyfinfar á slarfshálfum vlsfarSieisniia Sumargjafar HINN 1. maí næstkomandi mun Barnavinafélagið Sumargjöf hætta allri vistarheimilastarfsemi, en hún færist yfir á hendur Reykja- víkurbæjar, er þegar hefur tekið við rekstri tveggja heimila. Þessi breyting á starfseminni mun hafa það í för með sér að dagheimilis- og leikskólabörnum verður fjölgað hjá Sumargjöf. í gær birti Sumargjöf frétta- tilkynningu um þessa breytingu og segir þar á þessa leið: ÞRJÚ VISTHEIMILl Á tímabili rak Sumargjöf þrjú vistarheimili auk dagheimila og leikskóla. — Vistarheimili þessi voru Suðurborg, Vesturborg og Vóggustofan í Suðurborg. 7. júlí í fyrra tók bærinn við rekstri vistarheimilisins í Suðurborg, 2. jan. þ. á. tók hann við rekstri vistarheimilisins í Vesturborg og svo hefur það orðið nú að samn- ingi milli fulltrúa bæjaryfirvalda Reykjavíkur og Sumargjafar að bærinn taki við þeim börnum, sem eru á vöggustofunni í Suður- borg og enga möguleika hafa á því að hverfa heim þegar vöggu- stofan þar verður lögð niður. Jáfnframt því að vöggustofan verður lögð niður var ákveðið að j hætta að starfrækja dagheimilið í Suðurborg, en þar eru nú 64 bórn. NÝTT DAGHEIMILI í VESTURBORG Til þess að dagheimilisrekstur- inn hjá félaginu skyldi ekki dragast saman við lokun Suður- borgar var ákveðið að opna á eama tíma eða 1. maí nýtt dag- heimili í Vesturborg með allt að 50 börnum og fjölga dagheimilis- börnum í Steinahlíð a. m. k. um 20, svo dagheimilis plássum á vegum félagsins fjölgar heldur fia hitt við þessa breytingu. ÚR SUÐURBORG I GRÆNUBORG Á leikskólanum, sem nú er í Suðurborg með 40 börn, verður ef til vill eitthvað fjölgað í maí. En í ráði er, að hann verði rek- inn í Suðurborg þann mánuð, en flytji út í Grænuborg í júní og hefji síðan sumarstarfsemi sína þar. FJÖLGAÐ Félagsstjórnin hefur mjög hug á því þegar hún nú loks er laus við vistarheimilisstarfsemina, að fjölga dagheimilis- og leikskóla- börnum á sínum vegum. Mun fé- lagið vinna að því í framtíðinni, að komið verði upp dagheimil- um og leikskólum í nýjum bæj- arhverfum, svo sem t. d. í Hlíð- um og Laugarneshverfi og víðar. Kynnir sér starfs- hætli Scofland Yards AXEL HELGASON íorstöðumað ur tæknideildar rannsóknarlögregl unnar, er fyrir nokkru farinn til Bretlands, en í Lundúnum mun hann kynna sér ýmsa þætti í starf semi hinnar heimskunnu leynilögr reglu Scotland Yard. Mun Axel starfa í leynilögregl- unni að ýmsum þeim lögregiu- málum er hann kýs að fást við, ásamt leynilögreglumönnum Scot- land Yard. Axel mun dvelja ytra í nokkra mánuði. Fjölmargir hafa gert góð bókakaup síðustu daga Urval af góðum og filfölulega ódýrum bókum 1 ÞAÐ kom berlega í ljós, er nokkrir bókaútgefendur stofnuðu til markaðar á eldri bókum, að slíkt féll í góðan jarðveg. Almennmgur fagnar að fá þarna að kynnast því, hvað enn er til af eigulegum bókum, sem gefnar hafa verið út á undanförnum áratugum. Margurt gerði og góð kaup, þar sem bókaverð hefur hækkað allverulega síðustu árin, en verðið á eldri bókunum er óbreytt frá því sem var. Sex melra löng rifa við stefni skipsins SEYÐISFIRÐI, 13. marz. •- Stöð ugt vinnur kafari að því að kynna sér ástand oHuskipsins, enda hefur verið logn og blíða alla daga síðan þessar athugan- ir hófust. Nú er búið að finna skemmdir þær er á skipinu urðu í loftárás- inni. Skammt fyrir aftan stefni á stjórnborðkinr.una, er 6 metra löng rifa og er hún 20 cm á breidd þar sem hún er breiðust. Kafarinn hefur haft orð á því hér, að hann hafi aldrei kafað í jafn tærum sjó. Sést ótrúlega vel niðri á hinu 150 metra langa skipi, en þar sem það liggur eru 43 metrar niður á botninn og er hann leirkenndur. Hefur skipið sokkið um 2 metra r.iður í leir- inn, Skip þetta hét E1 Grillo og var byggt árið 1932. Athueun á skip- inu mun enn verða haldið áfram. — B. Kjötskömmtun SANTIAGÓ — Ríkisstjórn Síles hefir tilkynnt, að tekin verði upp kjötskömmtun frá 1. mai. — Ur því mega menn ekki hafa kjöt á borðum nema einhverja 2 daga vikunnar. URÐU AÐ VÍKJA FYRIR NÝJUM BÓKUM Útgefendum hefir verið það nokkuð áhyggj uefni, hversu margar af beztu bókum þeirra hafa fallið svo að segja dauðar eftir fyrstu jólasöluna, en við nánari athugun varð þetta ofur skiljanlegt. Bókabúðirnar bæði hér í Reykjavík og annars staðar á landinu eru yfirleitt svo litl- ar, að þ&r hafa ekki sýningar- rúm fyrir öllu fleiri bækur en þær, sem koma út fyrir jólin ár hvert. Bókaverzlanirnar verða því að ryðja frá sér eldri bókum til rýmingar fyr- ir þeim nýju og þess vegna hverfa bækurnar svo að segja úr sölu. ÓDÝRAR BÆKUR BókaverS er orðið all-hátt, eins og verð á öllum öðrum varn- ingi, en margar þeirra bóka, serra komið hafa út á undanförnum ár- um, eru nú mjög ódýrar í hlut-< falli við nýjar bækur. MARGIR GRIPU TÆKIFÆRIEli Nokkrum útgefendum datt því í hug, að gefa almenningi kosfe á að sjá þessar eldri bækur og! leigði Listamannaskálann af þvii tilefni í nokkra daga, Þessi tilraun bar þann ár- angur, að I ljós kom að mikill fjölði manna hafði einmitfe haft hng á að eignast bæk- urnar, en margar höfðu farið fram hjá þeim, þegar þær komu út. Var almenningur yfirleitt mjög þakklátur fyrir þessa nýbreytni útgefenda. Markaðurinn hefir nú veriffi haldinn á nokkrum stöðum utara Reykjavíkur og allsstaðar gefið sömu raun. j BÆKURNAR FÁST í BÓKAVERZLUNUM kvenúlpan hlaut flest atkvæði í happdrætti Vinnufatagerðarinnar Ylir 6 þúsund tóku þált í atkvæðagreiðslunni ALLS voru greidd 6003 atkvæði í happdrætti Vinnufatagerðar ís- lands h.f. í sambandi við gluggasýninguna á hlífðarfötum. Kven- úlpan, nr. 5, varð atkvæðahæst. Hlaut hún 1576 atkv. Næst kom karlmannsúlpan, nr. 2, með 1573 atkv., þá drengjaúlpan, nr. 4, með 1388, telpnaúlpan, nr. 7, með 777 atkv., kvenskíðabuxur, nr. 6. með 211, skinnvesti, nr. 1, með 210 og anorak, nr. 3, með 120. Númer var ekki tilgreint á 148 atkvæðaseðlum. DREGIÐ UM VINNINGA Þegar dregið var um, hverjir hljóta skildu vinningana, komu upp eftirtalin nöfn: Magnús Sig- urðsson, Njálsgötu 69, hlaut karl Dregið um vinningana. mannsúlpuna, Vigdís Viggósdótt- ir, Nönnugötu 12, kvenúlpuna, Bjargey Eyjólfsdóttir, telpuúlp- una og Einar Jónsson, Meðal- holti 4, drengjaúlpuna. Útdrátturinn var framkvæmd- ur af sonar-syni Kristjáns J. Kristjánssonar, formanns Félags íslenzkra iðnrekenda. LUNDÚNUM — Júgóslavar hafa mótmælt í þrígang því framferði búlgarska yfirvalda að halda föngnum þrem júgóslavneskum börnum, sem nýlega villtust inn fyrir landarnæri Búlgaríu. Búlgar ar hafa ekki anzað. Tvö ný frímerki 1 DAG verða gefin út tvö ný frímerki, 75 aura og 125 aura., Ekki eru fyrirmyndir þessara frímerkja þó nýjar. Myndin á 75-aura merkinu er af traktor að jarðyrkjustörfum, í ljósrauðum og dökkrauðum lit á hvítum grunni. Myndin á 125 aura frímerkinu er af nýsköpun- artogara og er það einnig í ljós- og dökk-fjólubláum lit. Sundmól ÍR fer fram 2. apríl ÁKVEÐIÐ er að Sundmót Iþrótta félags Reykjavíkur fari fram 2. apríl n. k. Á mótinu verður keppt í 100 m. baksundi karla, 200 m. skriðsundi karla, 200 m. bringu- sundi karla, 3x100 m. þrísundi karla, 100 m. bringusundi kvenna, 50 m. skriðsundi kvenna, 100 m. bringusundi drengja, 100 m. bak- sundi drengja, 100 m. skriðsundi drengja og 50 m. bringusundi telpna. Afli Iregur hjá Stykkishólmsbáfum STYKKISHÓLMI, 13. marz — Bátar héðan hafa aflað heldur lítið að undanförnu. Leggja þeir aflann upp hjá hraðfrystihúsun- um. — Heldur betur gengur hjá útilegubátunum en hinum, sem að hciman róa. — Á. H. Bókamarkaðurinn er j afn - framt bókasýning, þannig affl menn geti betur áttað sig á því, hvaða bækur eru til. — Þær bækur, sem þar eru og eitthvað verður eftir af, fásX að sjálfsögðu í bókaverzlun- unum, þótt þær séu þar ekkj í sýningargluggunum af á- stæðum, sem fyrr eru greindo ar. — MARKAÐUR FYRIR TÍU ÁRUMI Tíu ár eru nú síðan bókaútgef- endur efndu síðast til bókamark- aðar, en þá í nokkuð öðru formi, Þá var skrá yfir þær bækur, serrs til voru, send út um allt land, en síðan var gerð pöntun eftin skránni. Þær bækur, sem eftir urðu, voru síðan seldar á mark-< aði í skála hér í bænum. ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.