Morgunblaðið - 18.04.1952, Page 11
Föstudagur 18. apríl 1952
11
r i\ ‘ *1 í
MORGUNBLAÐIÐ
Áfiræðurs
Böðvar Bjaraason presfur
SÉRA BÖÐVAR Bjarnason præp.'
hon. fyrrum sóknarprestur að
Hrafnseyri og prófastur í Vestur-
ísafjarðarprófastsdæmi er átt-
ræður í dag og kom mér því til
hugar að minnast þessa þekkta
kenni- og fræðimanns á opinber-
um vettvangi og vænti ég að séra
Böðvar taki viljann fyrir verkið.
Við sr. Böðvar höfðum þekkzt
í nokkur ár. Á annan páska-
dag heimsótti ég hann í Lands-
spítalann, en þar hefur hann leg-
ið sjúkur af innvortis meinsemd,
er læknar hafa náð burt, og virt-
ist mér sr. Böðvar þá á góðum
batavegi.
Séra Böðvar Bjarnason er
fæddur 18 apríl 1872 á Reykhól-
um í Reykhólasveit. Foreldrar
hans voru hjónin Bjarni bóndi
á Reykhólum Þórðarson bónda
í Belgsholti í Melasveit og víðar,
Steinþórssonar, og seinni kona
hans Þórey Kristín Ólína Páls-
dóttir bónda ’á Reykhólum Guð-
mundssonar. (Albróðir Þóreyjar
konu séra Eyjólfs Kolbeins á
Staðarbakka). Eru þær ættir
þekktar og þjóðkunnar. — Séra
Böðvar var einn í hópi hinna
mörgu efnilegu stúdenta, sem
ýtskrifuðust úr Lærða skólanum
í Reykjavík 30. júní 1897, em
kandídat í guðfræði úr Presta-
OREME
SHAMPOO
Oddný Guðbjörg
DRENE er sennilega heim®-
ins vinsælasta og mest not-
aða hárþvottaefni.
DRENE fæst í þrem stærð-
um. —
DRENE er einmitt það sem
hentar yðar hári bezt.
Umboðsmenn:
Sverrir Bernhöít h.1
skólanum varð hann 16. júní
1900. Honum var veitt Hrafns-
eyri 27. ágúst 1901 og vígður 13.
apríl 1902 og átti hann þannig 50
ára vígsluafmæli nú á páskadag,
á hátið upprisunnar og lífsins.
Lausn fékk séra Böðvar frá
embætti 21. maí 1941 frá fardög-
um að telja og var þannig nærri
40 ár prestur á Hrafnseyri. Síðan
’hefur hann dvalið hér í bænum.
Séra Böðvar var prófastur í
Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi
um skeið. Hann var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Ragnhildur
Teitsdóttir gullsmiðs og veitinga-
manns á Isafirði. Þau slitu sam-
vistir 1913. Börn þeirra: Bjarni,
Einar, Guðrún, Þórey Kristín
Ólina, Sigfús Ágúst. — Síðari
kona séra Böðvars er frú Mar-
grét Jónsdóttir frá Keldudal.
Börn þeirra: Baldur, Bryndís,
Baldur (f. 6. nóv. 1924).
Greinark’orn þetta á éingöngu
að verða afmæliskveðja, en ekki
æviminning.
Mér hefur verið sagt af kunn-
ugum að Hrafnseyri hafi verið vel
setínn aí honum. Var þess nauð-
syu, því fjölmenni var á staðnum
oft og einatt eins og siðvenja var
á prestssetrum fyrr, enda þá
hægara um vik á ýmsa lund hvað
búskap snerti og annað, sem við-
kom sveitastörfum.
Auk þess var Hrafnseyri lengi
skólasetur í tíð séra Böðvars.
Þegar séra Böðvar Bjarnason
var sjötugur fyrir 10 árum (18.
apríl 1942) mun hans hafa verið
minnst í dagblöðum bæjarins af
kunnugri mönnum en mér og
einnig er hann var 75 ára í
Kirkjublaðinu, enda er hann fyr-
ir löngu þjóðkunnur maður að
verðleikum. Munu fjölmargir
| hugsa hlýlega tíl hans nú á þess-
I um heiðursdegi hans og • óska
honum blessunar Guðs.
Um trúarskoðanir séra Böðv-
ars er mér ekki kunnugt af öðru
en því, er ég hefi lesið eftir hann.
Hygg ég, að hann sé laus við allt
ofstæki á sviði trúmála og ann-
ara mála, sem ofarlega eru á
baugi. „Sínum augum lítur hver
á silfrið." Sérhver verður að
fyigja eigin sannfæringu sér-
hverju sinni. Skoðanir eru auka-
atriði, ef menn eiga hugsjónir
að berjast fyrir.
Vænti ég þess, að aldurinn
verði séra Böðvari ekki úr þessu
þyngri en orðið er og að hann
öðlist bót meina sinna. Óskum
vér samferðamennirnir á lífsleið-
inni þeim hjónunum heilla og
blessunar með einlægum sumar-
óskum.
(Rítað á annan páskadag 1952).
Ragnar Benediktsson.
Fædd 23/12 1903
Dáin 8/4 1952
ILASTYRKIR
KVEÐJA
FRÁ SYSTURBÖRNUM
Þinn er liðinn lífsins dagur
leiðir okkar skiljast hér.
Rís í eilífð unaðsfagur
æðri heimur móti þér.
Frjáls á þroskans fögru brautum
frelsarans við dýrðarstól,
sál þin lifir laus frá þrautum
lauguð Drottins náðarsól.
Auðug varst af ást og mildi
öðrum gafstu perlur þær,
hjálparfúsa höndin vildi
hlúa að okkur, frænka kær.
Fundum blessun frá þér streyma,
fögur dyggð í störfum bjó.
Hreina göfgi hafði að geyma
hjartað sem á bak við sló.
Þína minning blessun bjarta
biðjum Guð að launa nú,
gæðin öll sem gafstu af hjarta,
góða frænka, mild og trú.
Ástúð þín sem aldrei gleymist
eins og fagur geisli skín
í okkar hjörtum ávallt geymist
yndislega myndin þín.
Herra ritstjóri.
ÝMS blöð eru alltaf annað slag-
ið að hnýta í þá opinberu starfs-
mepn, sem fá endurgreiddan
meiri eða minni hluta bifreiða-
kostnaðar síns með hinum svo-
kölluðu „bílastyrkjum". Menn,
sem eru þessa „styrks“ aðnjót-
andi eru svokallaðir „gæðingar"
viðkomandi yfirvalda og því
taldir vondir menn af andstæð-
ingunum.
Þeir menn, sem fá endur-
greiddan bifreiðakostnað sinn eru
yfirleitt með 40—55 þús. kr. í
árslaun hjá viðkomandi fyrir-
tækjum, og ef þeir eru í t. d.
verkstjórastöðu, verkfræðistarfi
eða öðru eftirlitsstarfi og- hafa
umsjón meíj vinnu á mörgum
stöðum, liggur það í augum uppi,
að það má nýta æði betur af-
kastagetu slíkra manna með því
að þeir hafi farkost til að flytja
sig á milli vinnustaða. Ef t. d.
viðkomandi maður afkastar 30—
40% meira með bíl en án bíls
væri sanngjarnl að greiða hon-
um 12—22 þús. kr. á ári í „bíla-
styrk“, ef hann legði sér til bíl
sjálfur. Þeir „bílastyrkir“, sem
hið opinbera hefur greitt undan-
farið er allt frá ca 2000—13000
kr. eftir mati. „Bílastyrkir" sem
þetta eru sannarlega ekki neinn
bitlingur fyrir ,,gæðinga“, því að
reksturskostnaður bíla er yfir-
leitt verulega mikið fyrir ofan
þessar tölur. Þessi til staðfest-
ingar skal bent á, að reksturs-
kostnaður bíla er skv. skýrslu
nefndar valdri af verkfræðingum
bæiarins, sem hér segir:
» I, WIUOW
í 09' T AMIoírwiAlmoMjOH
beasity söw
sem flestir biðja um.
Ódýr — en góð og (Irjúg.
Fyrsta Islandsméitð í
málanna
FYRSTA íslandsmótið í körfu-
knattleik hefst 21. þ. m. og lýkur
29. þ. m. Til þessa fyrsta íslands-
móts í þessari íþróttagrein hafa
sex félög látið skrá sig til
j keppni, Ármann, ÍFK, Háskólinn,
| ÍBV og ÍR og hið nýstofnaða í-
j þróttafélag starfsmanna á Kefla-
víkurflugvelli.
Á mótinu er keppni um bikar,
sem starfsmenn Lookhead félags-
ins á Keflavíkurflugvelli gáfu í
fyrra. Fór fram keppni um hann
; Qg sigruðu ÍR-ingar.
Þrír leikir verða leiknir hvert
kvöld, en mótið fer fram að Há-
logalandi.
IMýtt da^heimiii
opnað 2. maí í Vesturborg. — Umsóknir sendist for-
stöðukonunni fyrir 22. þ. m., sími 4899.
BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF
Framh. af bls. 9
skiptir í tvö horn með vitastærð-
ir hjá nágrannaþjóðunum. Stóru
vitarnir eru stærri en okkar vit-
ar flestir, en langflestir minni,
sérgtaklega er þetta áberandi í
Noregi, og veldur þar um auð-
vitað hvernig strönd þeirra er,
skerjótt og vogskorin, svo að
siglingaleiðir verða þröngar og
krókóttar, og því þörf margra
vita en smárra. Vitakerfið og
fyrirkomulag þess verður auðvit-
að að laga sig eftir ströndinni og
þeim siglingum, sem þar fara
fram.
Sem algerða mótsetningu við
rorsku strendurnar, má t. d. taka
vestmströnd Jótlands, þar sem
hafnleysur eru á löngum svæð-
um. Þar eru vitarnir strjálir en
stórir og ljósmiklir (upp í 8 millj.
H.K.). Hvorttveggja þetta er til
bjá okkur. Suðurströnd íslands
má vel bera saman við vestur-
strönd Jótlands, og t. d. Aust-
firðina við suma hluta norsku
strandarinnar, og þá kemur í ljós
hjá okkur nákvæmlega sami
munurinn og þar: Fáir stórir vit-
ar á suðurströndinni og margir
litlir á AusLjörðum.
Um neina fasta reglu hvað
sne’rtir stærð vitanna getur því
ekki verið að tala. sem gildi alls
staðar. Aftur á móti virðist mér
einsýnt, að raflýsing stærstu vit-
anna og aukning radíóvitanna
, hér verði tekin upp eins og ann-
ars staðar, sérstaklega þar sem
rafmagn er fáanlegt frá bæjar-
neti eða öðrum rafveitum. Gas-
vitarnir eru annars, í einu og
öðru formi, enn þeir langalgeng-
ustu eins og hjá okkur og er ekki
að sjá, að á því verði nein veru-
leg breyting á næstunni.
eða 12—17000 kr., ef miðað e«*
við seinni upphæðina. Eftir eru
þá 17—23 þús. kr., sem þeir eiga.
að fá endurgreitt af bifreiða-
kostnaði sínum miðað við um
18.000 km akstur alls.
Oft er það svo að menn dútla.
meira og minna sjálfir við við-
gerðir á bifreiðum sínum, og geta
þannig með herkjum haldifS
reksturskostnaði þeirra það langt
niðri að „bílastyrkurinn" nægi
fyrir daglegum nauðþurftura
bílanna. Þetta eru oft fátækiir
menn, sem hafa á einn eða ann-
an hátt getað aurað sér saman
fyrir bíl og langað til að geta
átt hann. Úr því þeir eru svo>
komnir á „bílastyrk“ verða þeir
bundnir af honum og standa
slyppir og snauðir, þegar bíllina
er orðinn ónýtur, því að þeir
eiga þá ekki fyrir kaupverði
annars bíls í stað þess ónýta,
vegna þess að „bílastyrkurinn**
hefir ekki verið nægilega hár til
að nægja fyrir afskriftum. Mér
er kunnugt um að svona hefir
þetta gengið til með einn af
virðulegustu og samvizkusömusta
embættismönnum Reykjavíkur-
bæjar svo að þessi orð em ekki
sögð út í loftið.
Áróður andstæðinga stjórnar-
valda ríkis og bæjar missir þvi
gersamlega marks þegar verið er
að tala um „bílastyrki“ sem ein-
hvers konar kaupuppbót til „gæð
inga“ viðkomandi stjórnarvalda.
Af ofannefndu er auðsætt að
endurgreiðsla bílkostnaðar er yf-
irleitt allt of lág og fyrir henni
er bæði meiri og betri grund-
A. Amerískur bíll, verð 70.000 kr.
Laus gjöld (háð kílómetratölu) miðað við 18.000 km. á ári, viríf-
ist vera meðalakstur skv. reynslu. ' t
Bensín og olíur 19 1/100 km ...................... 5.380 kr. {
Viðhald (skv. uppgjöri 1951 kr. 0,76 km) ........ 13.700 —• |
•----------------------- I
19.080 kr. J
Föst gjöld: {
Rentutap af stofnkostnaði 6% •%-70.000 .............. 2.100 kr. J
Skattar og tryggingar um ........................... 2.000 —• j
Bilskúrsleiga 100 kr, á mánuði ....................... 1.200 —- j
Afskriftir 20% af 70.000 .......................... 14.000 —
19.300 kr, j
Samanlagður kostnaður er því um kr. 38.000. {
•1
B. Evrópubíll, verð 50.000 kr.
Laus gjöld, háð kílómetratölu miðað við 18.000 km. á ári. >
Bensín og olíur 10 1/100 km ................... 2.980 kr. J
Viðhald (skv. uppgjöri 1951 kr. 0,97 km)........... 17.500 — [
--------------:--------- I
20.480 kr. ]
Föst gjöld:
Rentur af stofnkostn. 6% af %-50.000 .......... 1.500 kr. j
Skattar og tryggingar um............................ 1.500 —■ j
Bílskúrsleiga 100 kr. á mánuði ..................... 1.200 —• í
Afskriftir 20% af 50.000 ....................... 10.000 —
Samtals eru þetta um 35 þús. krónur.
14.200 kr. }
i
Af þessum upphæðum eiga [ völlur en t. d. fyrir húsaleign-
,menn svo að sjálfsögðu að styrkjum og útsvarseftirgjöfura
greiða sinn einkaakstur, sem get-| ráðandi manna í bæjarfélögum í
ur verið 6000—9000 km á ári, nágrenni Reykjavíkur. X. ,
■ V*
ennismiður óskast
Upplýsingar gefur Gunnar Vilhjálmsson hjá h.f. Egill
Vilhjálmsson. — Síjai 81812. £
LITIÐ EINBYLISHIJS
vel byggt, með öllum þægindum og 900 ferm. ræktaðrl
lóð, til sölu í Kópavogi.
Einar Ásmundsson hrl., Tjarnqrgötu 10.
Sími 5407. Viðtalstími 10—12 f. h.