Morgunblaðið - 21.05.1952, Page 1
39. árgangnr.
113. tbl. — Miðvikudagur 21. maí 1932.
PrentsmiSJa Mergunblaðsin*.
Aðalatvinnuvegir
þjóðarinnar eru þrír
Iðnaðurína hefir bætzt í hópinn
FORMAÐUR framkvæmdanefndar hinnar almennu iðn-
sýningar, er opnuð verður á afmælisdegi Reykjavíkur hinn
18. ágúst í sumar, flutti ávarp í útvarpið í gærkvöldi og
komst m. a. þannig að orði:
0 Iðnsýningin 1952 á að sýna landsmönnum það, að í
dag eru ekki tveir aðalatvinnuvegir í landinu, sjávar-
útvegur og landbúnaður, heldur, að iðnaðurinn hefur
bætzt í hópinn. Allir þessir þrír höfuðatvinnuvegir
landsmanna, sem eru hver öðrum nauðsynlegir.
Q Iðnsýningin á að marka tímamót í atvinnusögu þjóðar-
innar, sýna þróun og framfarir. Sýna framsækni og
fjölþætta möguleika. Sanna þjóðinni sjálfri, að iðnaður
okkar er nú þegar frambærilegur og samkeppnisfær á
mörgum sviðum. Það verður hlutverk þátttakenda í
sýningunni að sanna tilverurétt sinn sem atvinnurek-
endur og framleiðslugetu sína. Þetta tækifæri er svo
mikilsvert, að í rauninni hefur enginn er starfar að
iðnaði, efni á að láta það ónotað.
0 Sýningin verður að skapa traust á íslenzkum iðnaði,
sannfæra landsmenn um þá staðreynd, að tækni og
iðnþróun er nauðsynleg hverri þeirri þjóð, sem vill lifa
sjálfstæðu menningarlífi. Iðnsýningin 1952 vill vekja
þá, sem ekki skilja, AÐ TRUA á framtíð íslenzks iðn-
aðar er samofin trúnni á framtíð lands og þjóðar.
Framh. á bls. 2
Hver sigrar ? s
Taft hefur enn betur
Slgraði í préfkosningum í MonSana í gær
Einhaskeylí til Mbl. frá Reuter-I\TB
NEW YORK, 20. maí. — í dag fóru fram prófkosningar til for-
setakjörs í ríkinu Montana í Bandaríkjunum. Kosnir voru fulltrúar
á flokksþing demokrata og republikana ,sem haldið verður í sumar,
en flokksþing þessi velja endanlega frambjóðendur til forseta-
kosninganna, sem fram fara 4. nóvember í haust.
TAFT ER HARÐUR
Robert A. Taft, mun hafa hlot-
ið að minnsta kosti sex af átta
kjörnum fulltrúum republikana,
en ef til vill þá alla.
Fyrir kosningarnar hafði Taft
lýst því sigurviss yfir, að hann
setti fjórum sinnum fleiri fylgj-
endur í ríkinu, en keppinautur
hans Dwight D. Eisenhower og
virðist sá spádómur hans hafa
verið furðulega réttur.
. Úrslitatölur í prófkosnihgunni
verða ekki endanlega kunnar
fyrr en í nótt, þar sem talningu
er enn ekki lokið.
EISENHOWER í HUMÁTT
Á EFTIR
Staða frambjóffendanna er nú
s« að Taft hefur hlotið 375 kjör-
menn kosna og er þaff heldur
meira en Eisenhower, sem hefur
lilotið 337 kjörmenn. Sá fram-
bjóðendanna sem hlýtur 604 kjör
menn kosna á flokksþingið af
sir.ni hálfu hefur þar meff tryggt
sér framboffiff, þar sem fulltrú-
arnir eru 1206 aff tölu.
ALLT í ÓVISSU
MEÐ DEMOKRATA
Hjá demokrötum stánda málin
þannig, að baráttan í Mont'ana er
háð millum Estes Kefauvérs og
Averells Harrimanns.
Þann fimmtánda dag júnímán-j
aðar fer prófkosningin fram í
.Colúmbíarikinu, en þar stendur
höfuðborgia Washington. Glögg-
ar heimildir herma að þar hljóti
Taft alla sex fulltrúana kjörna.
Álitið er «ánnig, að hann hafi
góðar vonir með að fá meirihluta
24 kjörmannanna frá Marylond
í fylgd með sér.
Hersfyrkur
Bandaríkjanna
NEW YORK, 20. maí — Fyrsta
maí var tilkynnt í Washington hve
herstyrkur landsins væri mikill
eins og málum er komið. Hér á
eftir fara tölur yfir heraflann
innan hinna fjögurra deilda hers-
ins: Landherinn 1.570.000, Sjóher-
inn: 807,598, Landgöngusveitir
flotans: 219.000 og Flugherinn
900.000 menn.
Bandaríska hermálaráðuneytið
gaf út þessar tölur. —Reuter.
McGaw hers-
höfðingi á förum
Lætur vel af landi og þjóð
1 FRÉTTAMENN Útvarps og blaða áttu tal við E. J. McGaw hers-
höfðingja í gærdag, sem verið hefur yfirmaður bandarísku varnar-
liðssveitanna, er komu hingað til lands í maímánuði fyrir réttu ári
síðan. Höfðu þeir tal af herforingjanum ásamt fleirum foringjum
liðsins í húsakynnum bandarísku upplýsingaþjónustunnar.
Fjár vant til
Qfympíufarar
WASHINGTON, 20. maí — Tru-
man Bandaríkjaforseti hefir skor-
að á þjóð sína að láta fé af hendi
rakna í sjóð til að kosta för 400
íþróttamanna á Olympíuleikana í
Helsingfors í sumar. Til þess þarf
um 850.000 dali. Þar sem aðeins
áhugaíþróttamenn fá að taka þátt
í leikunum verður að kosta för
þeirra með frjálsum samskotum.
Hershöfðinginn lætur af starfi
sínu hér á landi n.k. föstudag, 23.
þ. m. og kvaðst hann þá munu
halda til Norfolk í Virginíafylki
vestanhafs, en þar eru aðalstöðv-
ar Atlantshafsbandalagsins. Eftir
að hafa litið inn í hermálaráðu-
neytið í Washington mun hers-
hötðinginn fara til heimilis síns
í mánaðarorlof.
Fréttamennirnir vörpuðu fram
ýmsum spurningum varðandi
dvöl varnarliðsins hér á landi,
en það situr sem kunnugt er hér
á vegum varnarsamþykkta At-
lantshafsbandalagsins til eflingar
friði og öryggi í þessum hluta
heims.
SAMBÚÐIN
SÍFELLT BATNANDI
McGaw kvað sambúð herliðs-
ins við íslendinga hafa farið mjög
batnandi og væri mikill munur
þar á, frá því fyrir ári síðan.
FjöliH'snm&r fundoar Sjáifsiæðis-
félaganna í Hafnarfirði faeitir sr.
Bjarna Jónssyni eindregnum
stuðningi við forsetakjörið
í GÆRKVÖLDI var fundur haldinn í Sjálfstæðisfélögunum í
Hafnarfirði. Var fundurinn haldinn í Sjálfstæðishúsinu þar. Hann
var mjög fjölsóttur og' sýnir það live almennur áhugi ríkir þar
fyrir kjöri sr. Bjarna Jónssonar sem forseta.
Eftirfarandi tillaga var borin upp og samþykkt með atkvæffum
allra fundarmanna:
„Fjölmennur fundur í Sjálfstæffisfélögum Hafnarfjarffar, haldinn
20. maí 1952, meff stuöningsmönnum sr. Bjarna Jónssonar, vígslu-
biskups viff forsetakjöriff, heitir honum eindregnum stuðningi og
munu fundarmenn af alhug vinna aff kosningu hans sem forseta
íslands."
Fundarstjóri var Ingólfur Flygenring, forstjóri, en Guðlaugur B.
Þórðarson fundarritari. Þessir tóku til máls á fundinum: Jóhann
Hafstein, alþingismaður, Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra,
frú Jakobína Mathiesen, Stcfán Jónsson, forstjóri, Bjarni Snæ-
björnsson, læknir, Páll Daníelsson, ritstjóri og Ingólfur Flygenring.
Einbeittur áhugi og samhugur rikti á fundi þessum.
Tyrkjaher traustur
ANKARA — Montgomery mar-
skálkur lauk miklu lofsorði á
tyrkneska herinn, búnað hans og
baráttukjark, eftir að hann hafði
kynnt sér ástand hans nú fyrir
skömmu. Tyrkneskir hermenn
hafa sem kunnugt er getið sér
mjög góðan orðstír í Kóreustríð-
Sjálfstæðismenn og aðrir sfuðningsmenn
séra Bjarna Jónssonar, vígslubiskups, við for-
sefakjörið,
Þeir* sem hafa með höndum meðmæl-
endalista, eru vinsamlega beðnir að skila þeim
sem fyrst og eigi síðar en á föstudag.
Skrifstofa Sjáifstæðisfiokksins í Sjálf-
sfæðishúsinu veifir meðmælendalistum móf-
íöku — Sími 7100.
Væri það von sín að slík yrði
þróun þeirra mála í framtíðinni.
Nýlega hélt varnarliðsflokkur
tii Hvalfjarðar og lausleg athug-
ur. hefur farið fram á hafnar-
skilyrðum í Þykkvabænum og
aðsetrum væntanlegra ratsjá-
stöðva á nokkrum stöðum á land-
inu Einnig er í athugun vega-
lagning að fjallabaki upþ í Hval-
fjörð.
Herstjórnin hefur gengizt fyrir
kynningu á landi og þjóð meðal
hei manna og munu þeir fara í
stuttar kynnisfeföir um landið í
sumar eftir því sem aðstæður
leyfa. Þar sem húsnæðisskilyrði
eru enn ekki fyrir hendi á flug-
vellinum svo varnarliðsmennirn-
ir geti haft fjölskyldur sínar hér
hjá sér er dvalartími þeirra hér
á lundi ekki nema eitt ár, ella
tvö.
Eftirmaðui- McGaw hershöfð-
ingja verður til bráðabirgða
John R. Rushenberger, kapteinn
í flugliði flotans. Hann er ætt-
aður frá Indíafylki í Bandaríkj-
unum og hefur verið í sjóhern-
um síðan árið 1920. Enn hefur
ekkert verið endanlega ákveðið
um hver verður fastur eftirmað-
ur McGaw.
í tilefni af brottför sinni héðan
af landi hefur hershöfðinginn
gefið út eftirfarandi kveðjuávarp:
Ávarp til islendinga
ÞEGAR ég kom til Keflavíkur-
flugyallar fyrir rúmlega ári, lét
ég þe'ss getið, að á herliði Banda-
ríkjanna undir minni stjórn og
íslenzku þjóðinni hvíldi sú sam-
eiginlega ábyrgð, að varðveita
frið og öryggi íslands. Nú er mér
það ánægjuefni að skýra frá því,
að þetta hefur tekizt. Á því ári,
sem liðið er, hefur það tekizt að
, va»*ðveita frelsið í þesum hluta
Norður-Atlantshafssvæðisins á
rniklu auðveldari hátt heldur en
búizt var við 7. maí 1951. Fýrir
, það er ég mjög þakklátur.
Það skal fúslega játað, að ýmsir
erfiðleikar hafa orðið á vegi okk-
okkar. Hins er þá jafn skylt að
geta, að með hjálp íslendinga og
íslenzku ríkisstjórnarinnar hefur
tekizú að vinna bug á þeim öll-
um. Síðustu 10 árin hefur banda-'
rískur her farið úr landi til
margra landa — ýmist til þess að
leysa þaú úr höndum árásar-
manna eða til þess að koma í veg
fyrir, að hinir sömu árásarmenn
legðu undir sig önnur lönd, sem
ekki gátu af eigin rammleik var-
izí ágengni þeirra.
Tvisvar hafa íslendingar séð
fyrir þörfina á hernaðaraðstoð og
vernd og hafa boðið amerísku
herliði að taka þá’tt í vörnum
lands síns.
ÞJÓÐIN EINHUGA UM ^
VERNDUN FRIÐAR
OG FRELSIS
Þegar vér komum hér fyrir ári,
áttí það samt enn eftir að koma
í ljós, hvort íslenzka þjóðin
myndi styðja ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að leyfa dvöl er-
i Frh. á bls. 2.